Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1987, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1987.
FLUGMÁLASTJÓRN
RAFEINDAVIRKJAR
Staða eftirlitsmanns flugöryggistækja í radíódeild
Flugmálastjórnar er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist samgönguráðuneytinu fyrir 29.
maí nk.
Þú hringir — vifl birtum og auglýsingin verður
færð á kortifl.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu i sama simtali.
Hámark kortaúttektar í síma er kr. 4.000,-
Hafið tilbúið:
/Nafn - heimilisfang - sima - nafnnúmer -kortnúmerN
og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
VANTAR I EFTIRTALIN HVERFI
Þórsgata
Freyjugata
Lokastígur
Eiríksgata
Barónsstígur 49-78
Hofsvallagata 40-61
Melhagi
Stóragerði
Brekkugerði
Hverfisgata 66—út
Laugavegur oddatölur
Boðagrandi
Keilugrandi
Rekagrandi
Seilugrandi
Lindargata
Klapparstígur
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
Neytendui
Garðrækt er fyrir alla fjölskylduna.
Spuming vorsins hjá garðeigendum: Hvemig á að eyða mosa úr grasflötum?
Ræktaðu
garðinn þinn
f sínu víðfræga riti, Birtingi, hvetur
Voltaire menn til að rækta garðinn
sinn, og auðvitað er ekki nema sjálf-
sagt að verða við þeim tilmælum ef
menn á annað borð hafa einhvem
garð að hugsa um. Við snerum okkur
til Hafsteins Hafliðasonar garðyrkju-
manns og inntum hann eftir helstu
vorverkum garðeigenda.
Vorverkin I garðinum
Hafsteinn byrjaði að benda okkur á
að nú ættu þeir sem huga vilja að trjá-
gróðrinum að vera búnir að klippa af
runnum og grisja trjágreinar.
Nú er hins vegar rétti tíminn til að
hreinsa garðinn, fjarlægja illgresi sé
það til staðar, stinga upp blómabeð
og gefa þeim áburð.
Hæfílegur skammtur af tilbúnum
áburði er u.þ.b. 30 g á fermetra. Þar
að auki má gefa u.þ.b. 30 g af þrífos-
fati. Að þessu slepptu ættu menn að
varast of mikla áburðargjöf.
Nú er rétti tíminn til að huga að blómabeðum.
Mosaþemba
Að sögn Hafsteins spyrja garðeig-
endur nú oftast um það hvemig beri
að eyða - og forðast mosa í grasflöt-
um. Ástæður íyrir mosamyndun í
grasflötum em ýmsar.
Ef háar byggingar eða hár og þéttur
trjágróður skyggir á grasflötina eykur
það líkur á mosamyndun. Mikill trjá-
gróður getur einnig valdið því að
trjárætumar taki næringu frá grasrót-
inni, en þá er einnig hætta á mosa-
vexti.
Mosinn er viðkvæmur fyrir öllu
traðki og því er hann algengur á blett-
um sem lítið em notaðir. Þess vegna
er um að gera að halda nokkrar garð-
veislur í sumar og leyfa krökkunum
að sparka svolítið á blettinum. Það
er auðvitað engin þörf á því að breyta
blettinum í moldarsvað, en hæfilegur
umgangur heldur mosanum í skefjum.
Leirborinn jarðvegur
Ein meginástæðan fyrir mosavexti á
grasflötum er rakin til jarðvegsins,
sem er þá oftast of þéttur eða leirbor-
inn.
Þá telur Hafsteinn það helst til ráða
að stinga göt á grassvörðinn með garð-
gafli og hafa götin sem flest og þéttust.
Síðsm á að raka svörtum hellusandi
yfir flötina svo sandurinn sáldrist und-
ir svörðinn. Að því loknu er svo borinn
blandaður áburður á flötina sem nem-
ur 3-4 kg á hverja 100 fermetra.
Mánuði síðar er svo aftur gefinn
áburður og þá heldur minna (u.þ.b. 2
kg á 100 fermetra). Þessa gjöf má svo
endurtaka að einum og hálfum mán-
uði liðnum.
Ef mosaþemba er mjög mikil er ráð-
legt að nota mosaeyði sem fæst í
gróðrarstöðvum. Rétt er að geta þess
að þó mosaeyðir sé góður til síns brúks
þá er hann samt engin varanleg lausn
á mosavandanum því mosinn vill
koma aftur næsta vor.
Ef menn vilja leysa vandann til
frambúðar verður að grípa í gaffalinn
eins og getið er um hér að framan.
Sláið reglulega
Hafsteinn leggur áherslu á það að
ekki sé slegið of oft né of snöggt, því
hvoru tveggja getur dregið úr eðlileg-
um grasvexti.
Að lokum ráðleggur svo Hafsteinn
okkur að slá ekki blettinn eftir miðjan
ágúst. Sé það látið ógert myndast sina
sem hindrar mosavöxt yfir veturinn,
en við hagstæð birtuskilyrði getur
mosinn vaxið að vetrarlagi þó grasið
hggi í dvala. KGK