Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1987, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1987.
íþróttir_______________________
Vonast eftír að
óánægjuöldur lægi
- tímamótaaðatfundur hjá Skotfélagi Reykjavíkur
Ný stjórn í Skotfélagi Reykjavíkur
var kosin á aðalfundi félagsins, sem
haldinn var 22. apríl síðastliðinn, og
er sá fundur talinn íjölmennasti aðal-
fundur sem haldinn hefur verið i
félaginu. Alls mættu um 75 manns á
fundinn.
Formaður Skotfélags Reykjavíkur
var kjörinn Ólafur Jóhannsson en frá-
farandi formaður, Hannes Haraldsson,
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Aðrir í stjóm voru kosnir þessir:
Magnús Sigurðsson varaformaður,
Baldur Bjamason ritari, Bergur Art-
hursson gjaldkeri og Karl H. Bridde
meðstjórnandi. í varastjórn vom kosn-
ir þeir Gissur Skarphéðinsson og
Jóhann Halldórsson.
Aðeins einn stjómarmaður úr fráfar-
andi stjóm gaf kost á sér til endur-
kjörs, Karl H. Bridde og var hann
kjörinn með samhljóða atkvæðum.
Ólafur Jóhannsson, formaður Skot-
félags Reykjavíkur, sagði í samtali við
DV að mikið starf væri fyrir höndum
hjá félaginu og brýnasta verkefhið
væri áframhaldandi uppbygging og
endurbætur á útiæfingasvæði félags-
ins í Leirdal í Grafarholti. Þar hefur
verið byggður skotvöllur fyrir hagla-
byssuskotfimi, „Skeet" og sagði hann
að þar hæfust tíðar reglulegar æfingar
nú með vorinu, en æfingatímar yrðu
auglýstir sérstaklega. Einnig kvað
hann stefnt að því að halda reglulega
æfingar í riffilskotfimi á útiæfinga-
svæðinu.
Aðspurður sagðist Ólafur vona að
með nýrri stjóm heyrðu þær
hatrömmu deilur sem verið hefðu í
félaginu undanfarin misseri sögunni
til og sagðist hann vona að allir félags-
menn myndu. bera gæfu til þess að
starfa saman að uppbyggingu Skot-
félags Reykjavíkur. Slíkt myndi bera
meiri vott um íþróttaanda en að gera
sjálfa sig og aðra að fíflum með ótíma-
bærum yfirlýsingum í fiölmiðlum, eins
og komið hefði fyrir síðustu mánuðina.
-SK
■ Stuðnings- |
! menn Gróttu |
j stofna félag j
Nú um helgina, nánar tiltekið
I á laugardag kl. 14. verður stofn- |
I að stuðningsmannafélag fþrótta- .
I félagsinsGróttuáSeltjamamesi. |
■ Stofhun stuðningsmannafélags- a
I ins ber að með nokkuð óvenju- I
I legum hætti því að það em I
* félagar í Lionsklúbbi Seltjamar- ■
I ness sem standa að stofnun I
félagsins sem á að vera liður í .
I stai-fi þein-a um vímulausa æsku. |
■ Það er mikill hugur í þeim Li- ■
I onsmönntun og telja þeir að með I
■ því að stuðla að vexti og við- I
* gangi Gróttufélagsins byggi þeir ■
I upp öflugt fm-varnarstarf gegn I
vímugjöfum. Lionsmenn em *
I bjartsýnir á starf stuðnings- |
I mannafélagsins - það muni hafa .
I á stefhuskrá sinni að stuðla að |
■ því að fólki verði auðveldara að ■
I sinnastöi-fumfyriríþróttafélagið I
I og reynt verði að virkja fleiri I
■ einstaklinga til þeirra starfa. Á *
I döfinni er að stofna nýjar deildir I
_ innan Gróttu, s.s. sunddeild, bad- _
I mintondeild og köifuknattleiks- |
■ deild og segjast þeir Lionsmenn ■
I vonast til þess að ekki verði löng I
I bið á því að Grótta verði eitt af I
■ öflugustu og vfrkustu íþróttafé- *
I lögum landsins. Þá er einnig á I
stefhuskránni að bæta mjög að-
I stöðu til íþróltaiðkkana á Selt- |
■ jarnarnesi og er þar helst til að .
I telja byggingu nýs íþróttahúss. I
• Nýkjörin stjórn Skotfélags Reykjavíkur. Á myndinni eru frá vinstri: Baldur
Bjarnason ritari, Bergur Arthursson gjaldkeri, Magnús Sigurðsson varaformað-
ur, Ólafur Jóhannsson formaóur, Jóhann Halldórsson varastjórnarmaður og
Karl H. Bridde meðstjórnandi. Á myndina vantar Gissur Skarphéðinsson vara-
stjórnarmann.
DV-mynd Brynjar Gauti
Bjarni Sigurðsson og Jan Halvor Hal
í einkunn hjá norska aagblaðinu Dagbladet eftir fyrstu umferc
alþjóðlegum landsliðsklassa. Þeir félagar þóttu bera af á velli
auðvitað voru þeir báðir valdir í lið vikunnar. Brann vann Kon
í sumar - ekki síst vegna þess að íslenski landsliðsmarkvörðuri
en fagna hér í kampavíni eftir að báðir höfðu náð að sýna frál
Mavgir dómar sem áhorf-
endur voru ósammála um
- Opið bréf til íþróttasíðunnar frá Sigtryggi Sigurðssyni, fýrrum glímukappa
Öldungamót
á skíðum
Á laugardag og sunnudag verður
öldungakeppni á skíðmn í Bláfjöll-
um. Keppt verður í göngu og svigi
báða dagana.
Á fostudaginn 8. maí kl. 20.30
koma keppendur saman í Þórscafé
þar sem mótið verður sett.
Keppnin hefst kl. 12.00 í stórsvigi
á laugardag. Kl. 14.00 hefst svo
keppni í göngu, frjálsri aðferð. Á
sunnudag heldur keppnin áfram á
sama túna. Kl. 12.00 er svig og kl.
14.00 ganga með hefbundinni að-
ferð.
Á sunnudag verður komið saman
í Þórscafé um kvöldið þar sem
verðlaun verða veitt. Aldureskipt-
ing í karlaflokki er þessi: í svigi
30-35 ára og 36 40 ára og svo upp
úr. í göngu er skiptingin 35-44
ára, 45-54 ára og 55 ára og eldri.
I kvennaflokki er skiptingin
þannig: 35-44 ára og 45 ára og
eldri.
JKS
Jafnt í Moss
Norðmenn og Tyrkir skildu jöfh,
1-1, í undankeppni ólympíuleik-
anna í knattspymu f Moss í
gærkvöldi. Flo skoraði mark Norð-
manna á 5. mínútu en Demir
svaraði fyrir Tyrki á 13. mínútu.
-JKS
Íslandsglíman 1987 fór fram í
íþróttakennáraháskólanum laugar-
daginn 2. maí. Glímustjóri var Ingvi
Guðmundsson, yfirdómari Sigurjón
Leifsson og meðdómarar Amgrímur
Geirsson og Gísli Guðmundsson.
Helstu úrslit urðu þessi:
1. Eyþór Pétursson, HSÞ......5/1
2. Ólafur H. Ólafsson, KR......5/0
3. Kjartan Lárusson, HSK.......3,5
4. Jóhannes Sveinbjömsson, HSK...3
5. Kristján Ingvarsson, HSÞ.....2,5
6. Hjörtur Þráinsson, HSÞ.......!1
7. Jón Birgir Valsson, KR........0
Ámi Þór Bjamason, KR, gekk úr
glímunni vegna smámeiðsla
Glímudómar
• Eyþór Pétursson glímdi vel að
vanda. Hann er búinn að vera einn
af helstu glímumönnum landsins í
nokkur undanfarin ár. Eyþór er mjög
jafhvígur glímumaður til sóknar og
vamar.
• Ólafur H. Ólafsson tók glæsileg
brögð til úrslita og glímdi mjög áferð-
arfallega. Hann mundi eins og Eyþór
sóma sér mjög vel sem glímukappi ís-
lands.
• Kjartan Lámsson varð þriðji og
hann má mjög vel við una í sinni
fyrstu Íslandsglímu. Er vonandi að
Kjartan æfi vel áfram og sýni enn
betri árangur með meiri reynslu.
• Jóhannes Sveinbjömsson er ný-
liði í Islandsglímu. Hann tók glæsileg
brögð til úrslita og má mikið af honum
vænta í framtíðinni.
• Kristján Ingvarsson á heiður skil-
inn fyrir framlag sitt til glímunnar.
Hann hefur staðið á glímuvelli í rúma
tvo áratugi með góðum árangri. Einn-
ig hefur Kristján látið félagsmál til sín
taka því hann er meðal annars formað-
ur HSÞ.
• Hjörtur Þráinsson glímdi vel að
vanda en er æfingarlítill og háði það
honum til þess að fá fleiri vinninga.
• Jón Birgir Valsson er nýliði í
glímunni og verður framtíðin að skera
úr um hver árangurinn verður.
• Ámi Þór Bjarnason þurfti að
ganga úr glímunni vegna meiðsla en
hafði glimt meðal annars skemmtilega
glímu við Eyþór Pétursson þar sem
Eyþór sigraði þegar aðeins 12 sekúnd-
ur vom eftir.
Glímuvöllur:
Það vakti athygli mína að glímuvöll-
ur var ekki hafður eins stór og leyfilegt
er í Íslandsglímu eins og æskilegt er.
Úrslitabrögð voru:
• Eyþór vann Hjört á sniðglímu á
lofti, Áma Þór á leggjarbragði, Jón
Birgi á vinstri fótar klofbragði, Krist-
ján á krækju, Jóhannes á leggjar-
bragði og Kjartan á krækju.
• Ólafur Haukur sigraði Jóhannes
á hælkrók hægri og vinstri, Kjartan á
vinstri fótar klofbragði, Kristján á
mjaðmarhnykk, Jón Birgi á sniðglímu
á lofti og Hjört á mjaðmarhnykk.
• Kjartan sigraði Jóhannes á hægri
fótar klofbragði, Hjört á hægri fótar
klofbragði og Jón Birgi á hægri fótar
klofbragði.
• Jóhannes vann Jón Birgi á snið-
glímu á lofti, Kristján á hælkrók með
vinstri fæti utanfótar.
• Kristján vann Jón Birgi á vinstri
fótar klofbragði og Hjört á vinstri fót-
ar klofbragði.
• Hjörtur vann Jón Birgi á utanfót-
ar hælkrók, hægri á hægri.
Dómar:
Dómarar dæmdu marga dóma sem
áhorfendur vom mjög ósammála um
og dæmdu hreinlega ranga að þeirra
mati. Er sérstaklega ósamræmi í dóm-
um þar sem átt er við í glímulögum,
23 gr., þriðji liður, sem hljóðar svo:
Ef glímumaður sækir bragð með því
að láta fallast á hönd eða hné áður
en bragð er tekið eða meðan á því
stendur. Einnig virðist fara framhjá
dómurum 24 gr„ liður 1, að hanga í
sækjanda hvort sem verjandi heldur
glímutökum eða öðrum tökum.
Sigtryggur Sigurðsson