Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1987, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987.
3
Kringlan:
Byggð á undanþágum
Nýja Hagkaupshúsið, Kringlan, er
byggð á undanþágum. Úttektarmenn
frá byggingafulltrúanum í Reykjavík
taka ekki út einstaka verkþætti eins
og venja er heldur hefur verið veitt
sérstök undanþága. í byggingareglu-
gerð er kveðið á um að slíka
undanþágu megi veita. Hagkaup sem
byggingaraðili réði til sín sérstaka
verkfræðinga sem annast þessa út-
tekt. Er þeim ætlað að gæta hags-
muna Hagkaups gegn einstökum
verktökum.
Miklar, umræður hafa verið um
byggingarmál að undanförnu. Þar
hefur verið deilt á flesta þætti bygg-
ingamála. DV innti nokkra verk-
fræðinga álits á þeirri aðferð sem
notuð er við úttektir verkþátta í
Kringlunni. I máli þeirra kom fram
að þessi aðferð sem notuð væri við
úttektir á byggingu Kringlunnar
væri síst verri kostur en að kalla til
eftirlitsmenn byggingafulltrúans í
Reykjavik. Til að bæta eftirlitið væri
ein af betri leiðunum sú að ráðnir
væru sérstakir verkfræðingar sem
önnuðust úttektir við stærri bygg-
ingar.
Burtséð frá því hvor leiðin er betri,
að eftirlitsmenn byggingafulltrúa
eða sérstaklega tilráðnir verkfræð-
ingar annist úttektir, þá er Kringlan
byggð á undanþágum. -sme
Mallorcaveður
á Neskaupstað
Þorgeröur Maímquist, DV, Neskaupstaö:
Á Neskaupstað ímynda sér nú allir
að þeir séu komnir til Mallorca og eru
famar að renna tvær grímur á þá sem
þegar eru búnir að borga inn á sólar-
landaferðimar í ár. í Neskaupstað
hefur nefhilega verið blíðskaparveður
undanfama daga, vel yfír 20 stiga hiti
og logn. Fólk hefur dregið fram sumar-'
klæðin og sólarolíuna. Skólum er
lokið og njóta krakkamir nú sumar-
blíðunnar til hins ýtrasta.
Útvarp Aldan í Ölduselsskola:
Um 60 dagskrávgeið-
armenn að störfum
Um sextíu dagskrárgerðarmenn
voru að störfum við útvarpsstöð sem
starfrækt var á vegum nemenda í
Ölduselsskóla um helgina. Útvarps-
stöðin hét Aldan og dagskrárgerðar-
mennirnir 60 úr röðum nemenda
komu við sögu, auk kennara, for-
eldra og systkina.
Sendingar Öldunnar hófust klukk-
an fjögur síðdegis á föstudegi og
stanslaust var útvarpað til miðnættis
á sunnudegi. Með þessum hætti fögn-
uðu nemendur Ölduselsskóla skóla-
lokum.
Að sögn Guðmundar Fertram Sig-
urjónssonar, útvarpsstjóra Öldunn-
ar, stóð undirbúningur að útsend-
ingu í tvær vikur og hefðu nemendur
sýnt framtakinu mikinn áhuga bæði
á undirbúningstímanum og á meðan
á útsendingu stóð.
Aldan sendi aðallega út tónlist en
síðustu tvo tímana fyrir miðnætti í
gær var rætt við skólastjóra og kenn-
ara um reynsluna af útvarpinu.
Guðmundur sagði að stefnt væri að
því að gera útvarpssendingar að ár-
vissum viðburði í félagslífi skólans.
Þeir 60 dagskrárgerðarmenn, sem
tóku þátt í sendingum Öldunnar,
borguðu með sér 200 krónur til að
stöðin gæti staðið undir sér. „Við
köllum það hlutafé," sagði Guð-
mundur. Útvarpsreksturinn kostaði
30.000 krónur og með stuðningi
fjölda fyrirtækja bjóst útvarpsstjór-
inn við að endar næðu saman.
-pal
Astarævintýri
aldarinnar
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Ástarævintýri aldarinnar, samband
aliandarinnar og heiðargæsarinnar á
Andapollinum á Akureyri, er enn í
miklum blóma. Heiðargæsin er búin
að verpa úti í hólmanum og liggur
stíft á. Búist er við að fimm til sjö
ungar komi.
Hvíta, stóra aligæsin býr sig af krafti
undir föðurhlutverkið. Karlfuglinn
hefur fylgst náið með ungum sem pek-
ingönd leiddi fyrir tveimur dögum út
á pollinn. Sú hafði verpt undir tré rétt
við Andapollinn.
Fiskmarkaður Norðuriands:
Framkvæmda-
stjóri ráðinn
Jón G. Haukssan, DV, Akureyit
Sigurður P. Sigmundsson, hagfræð-
ingur og deildarstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Norðurlands h/f á Akureyri. Hann
tekur til starfa 10. júlí. Fiskmarkaður-
inn mun mest starfa sem fjarskipta-
markaður en jafnframt verður
uppboðshús við Strandgötuna á Akur-
eyri.
Fréttir
Hagkaupshúsið í Kringlunni er byggt á undanþágum
jmwt
tæk®
OG þÚ FLÝGUR
í GEGNUM DAGINN
fÍöSyWutrimmtæVúð-
Hvernig á að nota
fjölskyldutrimmtækið rétt?
Burt með aukakíló.
Æfið S mín. á dag.
Til þess að ná árangri verður að æfa hlnar þrjár
mlkllvægu undirstöðuæflngar daglega.
Eftlr að byrjað er að æfa samkvæmt æflngar-
prógrammi mótast vaxtarlag Ifkamans af sjálfu sér.
Æfing I
Þessl æfing er fyrlr magavöðva og stuðlar að mjóu mlttl
Setjlst á sætlð á trlmmtæklnu, legglð fæturna undlr
þverslána, hendur spenntar aftur fyrlr hnakka. Látlð
höfuðlð sfga hægt að gólfl. Efrl hlutl Ifkamans er
relstur upp og teygður f átt að tám.
Mikllvægt: Æflngu þessa verður að framkvæma með
Jöfnum hraða án rykkja. f byrjun skai endurtaka
æflnguna flmm sinnum, en sfðan fjölga þelm I allt að
tiu slnnum.
Æflng 2
Þessl æflng er fyrlr handleggi og rassvöðva.
Legglst á hnén á sætlð á trlmmtæklnu. Taklð báðum
höndum um vinklana, handlegglrnir hafðlr belnlr og
stíflr allan tímann. Teyglð úr fótunum þannlg að setan
rennl út á enda, hnén dregln aftur að vlnklunum.
Æflngln endurtekin a.m.k. flmm slnnum.
Æflng 3
Þessl æflng er tll þess að þjálfa og móta lærvöðva,
fætur og handleggl.
Setjlst á sætlð og taklð báðum höndum um
handföngln á gormunum og draglð sætlð að
vinklunum. Teyglð úr fótunum og hallið efrl hluta
llkamans aftur og toglð I gormana. Haldlð gormunum
strekktum allan tfmann og spennlð og slaklö fótunum
tll skiptls.
Æflngln endurtekin a.m.k. tfu slnnum.
Enginn líkami er góður
án vöðva f brjósti,
maga og bakhluta
Kúlumagi, fitukeppir, slöpp brjóst,
slappur bakhluti o.s.frv.J
Allt petta sýnir slappa vöövavefi.
Byrjaöu strax aö stækka og styrkja vöövana pína
meö pessan árangursríku og eölilegu aðferö
S/iippir vixjvar
Hrjcwivo^"^
I
S/;ij>/nr vrirJvar ÆJiiir v»lv:ir
Leggðu fljótt af
Misstu aukakíló með því að æfa 5 mín. á dag.
ÓTA
Verð aðeins
2.890.
Pöntunarsími 91-651414
Símapantanir alla daga vikunnar kl. 9.00-22.00
Póstverslunin Príma Box 63, 222 Hafnarfirði