Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1987, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1987, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987. 13 Mest seldu lyfin of dýr og gagnslaus Neytendasamtök Evrópu, BEUC, gerðu rannsókn á verði og gæðum lyfja íyrir EBE. Rannsóknin sýndi ástandið í Vestur-Þýskalandi, Stóra-Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Belgíu, Hollandi og írlandi. Niður- staðan var að verð var mjög mismunandi, munurinn jafnvel um 400%. Hann er kominn til aðallega vegna þess að nokkur lönd hafa strangt eftirlit með myndun verðs hjá framleiðendum. Franskir neytendur borga minnst fyrir lyfin. Næst koma belgískir og ítalskir neytendur þar sem stjómin ákveður beint hvaða verð framleið- endur mega setja upp. Stjómvóld á Ítalíu reyna einnig að hafa bein áhrif í þá átt að ódýr- ari lyf séu seld, lyf sem em eins að efni til en ekki seld undir firma- merkjum. Hins vegar greiða neytendur í Stóra-Bretlandi og á írlandi meira en í Hollandi og í Vestur-Þýskalandi greiða þeir mest. I Bretlandi væri hægt að spara um 20 milljónir punda árlega ef læknar vildu gefa tilvísun á ódýrari lyf. í skýrslu BEUC er reiknað með að spamaður næði 142 milljónum þýskra marka, hefðu þeir gefið tilvísun á góð og ódýr lyf við háum blóðþrýstingi í stað lyfla bris- erin og isokel við hjartakveisu (angina pectoris) sem em þriðja og fjórða mest selda lyfið. Belgíumenn em sólgnir í fukkalyf og kaupa aðallega vibramycine og clamoxyl. Því miður fjölga þessi lyf gerlum sem efu ónæmir fyrir þeim. I skýrslu BEUC er einnig bent á annað mest selda lyfið í Belgíu, pers- antine, sem notað er við angina pectoris, þrátt fyrir að bandaríska stofnunin Federal Dmg Administr- KjáDaiiim Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur 6. Aukaáhrif. 7. Matur, drykkur og hreyfingar sem verður að forðast. 8. Hvar á heimili ber að geyma lyfið. í BEUC-skýrslunni em bomar saman upplýsingamar sem fylgdu mikið notuðum lyfjum í ýmsum lönd- um: a) Hollenskar upplýsingar um gikt- arlyfið voltaren vom mjög ítar- legar og bent var á að lyfið mætti ekki nota samtímis lyfjunum phenobarbital, acetylsalylsým (aspirin o.þ.h.) og lithium, en ekk- ert er sagt um þessar takmarkanir í frönskum, ítölskum og belgisk- um fylgiritum voltaren. í vestur- þýska upplýsingaritinu var bent á að taugaáfall getur fylgt kvala- stillandi lyfinu optalidon, en að vísu sjaldan. Ekkert finnst um „Á íslandi fylgja alls engar upplýsingar innfluttum lyfjum enda eru upplýsing- arnar teknar út úr pakkningunum.“ ation hafi 1981 komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri sannað - eftir 25 ára notkun - að lyfið væri áhrifaríkt. Nauðsynlegar upplýsingar Upplýsingar sem neytendum (sjúklingum og læknum) em nauð- synlegar: 1. Heiti lyfsins. 2. Tilgangur notkunar þess. 3. Hve mikið er æskilegt að nota. 4. Mesta magn sem taka má á sólar- hring. 5. Tímabilið sem nota má lyfið. þetta í hinum löndunum. Á ís- landi fylgja alls engar upplýsing- ar innfluttum lyflum enda em upplýsingar teknar út úr pakkn- ingunum. b) BEUC varð að benda á að ýmis mest seldu lyfin væm jafnframt gagnslaus og hættuleg. í Stóra- Bretlandi gaf neytendaráð út bók 1984 (sjá mynd) og benti á að af 50 mest seldu lyfjunum mætti kaupa 30 tegundir í ódýrari út- gáfu. Sams konar bók var gefin út í Vestur-Þýskalandi (sjá mynd). Bittere Piwen WRONG . hindof medícíne CHAm-nmM^oaALmn „BEUC varð að benda á að ýmis mest seldu lyfin væru jafnframt gagns- laus og hættuleg. í Stóra-Bretlandi gaf neytendaráð út bók 1984 (sjá mynd) og benti á að af 50 mest seldu lyfjunum mætti kaupa 30 tegundir í ódýrari útgáfu. Sams konar bók var gefin út í Vestur-Þýskalandi (sjá mynd).“ c) Alvarlegt dæmi er um mjög mikið selt lyf og jafnframt hættulegt sem var nýlega bannað. Árið 1981 var lyfið operen (benoxaprofen) í 18. sæti í Stóra-Bretlandi þótt það hefði aðeins verið til sölu í 2 ár. Giskað var á að um 350.000 manns hefðu notað giktarlyfið þar til framleiðandinn, Eli Lilly í Banda- ríkjunum, tók það af markaði í öllum löndum haustið 1982. Þar til í ágúst 1982 voru skýrslur um 3500 alvarleg aukaáhrif, þ.m.t. 61 dánartilfelli. En lyfið, nú undir nafni bexopron, var selt í Dan- mörku frá því í ágúst 1981 en alvarlegar upplýsingar komu fram og lyfið var tekið af mark- aði 1984. Ef til vill létust þijár eldri manneskjur af lvfinu í Dan- mörku. d) Markaður fyrir lyf (ekki með firmaheiti) hefúr stækkað um 10% árlega. í Bretlandi var út- búinn listi yfir ód>TU lyfin og læknar verða að gefa tilvísanir á þessi lyf sem líklega mun spara 75 millj. punda á ári. 25% allra lyija í Bretlandi eru ódýrari lyf, en veltan er aðeins 8%. d) Nauð- synlegt er þó að rannsaka lyfin og hafa opinbert eftirlit með útg- áfu leyfa til framleiðenda til að koma í veg fyrir markaðssetningu gagnslausra fy'fja. Þessu er ítar- lega framfydgt í Bandaríkjunum. I gangi er nú samanburður á verði lvfja sem flutt eru inn og einnig framleidd á íslandi. Niðurstöður verða birtar þegar verð er fengið frá íslenskum framleiðendum. Eirika A. Friðriksdóttir Um „slátrarann fvá Lyon“ „Hann starfaði alltaf með hægristjórnum i Rómönsku Ameríku. Slagorð og afstaða nasisma til lifs og dauða loddu alltaf við hann. Hann iðrað- ist aldrei." Nú standa yfir í Frakklandi réttar- höld yfir nasistanum fyrrverandi, Klaus Barbie, fyrir stríðsglæpi hans í siðari heimsstyrjöld, sem og yfir áframhaldandi leynilögregluferli hans í Evrópu eftirstríðsáranna og í Rómönsku Ameríku síðustu ára- tuga. Fáum blandast hugur um að þetta sé merkilegt mál vegna hinnar sífelldu árvekni og endurskoðunar sem þörf er á í lýðræðisríkum til áð varast undirróðursstarfsemi öfga- hópa. Reynt verður hér að bregða ljósi á kjama málsins með þvi að leita svara við þeirri spumingu hvort Barbie var dæmigerður nasisti. Stéttauppruni nasista Illræmdustu nasistamir komu flestir úr lægri miðstéttinni. Þeir vom því ekki ófaglærðir verkamenn úr borg eða sveit né stóreignamenn eða aðall. Þeir komu gjaman úr stétt embættismanna, kaupsýslumanna og menntamanna. Allar stéttir urðu illa úti á kreppuárunum í Þýska- landi en lægri millistéttin var sú stétt - sem varð rótlausust. - Framtið lífs- stíls hennar virtist í molum í fátækt- inni og atvinnuleysinu en um leið hafði hún meiri getu til að gera upp- reisn gegn ástandinu en verkamenn- imir sakir menntunar sinnar og stöðu í þjóðfélagskerfinu. Að þessu leyti var Barbie dæmi- gerður. Foreldrar hans vom kennar- ar og að auki ólst hann upp á árum uppreisnarólgu í Trier, landamæra- borg við Frakkland, og Lúxemborg. Að loknu stúdentsprófi blasti at- vinnuleysi við honum. Framaforsendur í nasistaríkinu Til að komast áfram í kerfi nasism- KjaUaiinn Tryggvi V. Líndal þjóðfélagsfræðingur ans og verða meira en venjulegur fylgismaður urðu menn að hafa styrk í sér til að verða færir um að afneita gamla skipulaginu. Það var hægt með því að gerast hugsjóna- maður sem trúði að baráttan við að komast út úr kreppunni útheimti hetjulega fómarlund til að brjóta niður allt efnahagsskipulag, bæði til hægri og vinstri. Hin leiðin var að vera svo mis- kunnarlaus í eðli sínu að menn gátu unnið níðingsverk sem venjulegum mönnum var ekki treystandi til. Barbie virtist hafa báða þessa eig- inleika í einhveijum mæli. Hann var hugsjónamaður að upplagi sem sést af því að hann vék aldrei frá lífsskoð- un nasismans, jafnvel ekki er ytri skilyrði lífs hans vom gerbreytt í Suður-Ameríku. Ennfremur var hann alltaf sjálfum sér samkvæmur í baráttu sinni gegn kommúnisma. Sést það á þvi að í stríðslok gekk henn ekki til liðs við leyniþjónustu Sovétmanna til að nýta sér sína víð- tæku þekkingu á njósnastarfsemi bandamanna, líkt og aðrir leynilög- reglumenn, heldur gekk henn til liðs við leyniþjónustu hinna lýðræðis- sinnaðri en hægrisinnaðri Banda- ríkja í hemumdu Þýskalandi. Hann starfaði alltaf með hægristjómum í Rómönsku Ameríku. Slagorð og af- staða nasisma til lífs og dauða loddu alltaf við hann. Hann iðraðist aldrei. Óvenjulegt kaldlyndi og yfirborðs- mennska hans birtist hins vegar í því að strax eftir stúdentspróf fékk hann atvinnu hjá Vemdarsveitun- um við að njósna um samlanda sína í hvers konar hópum sem ríkinu stóð ógn af. Skipti þá litlu hvort í hlut áttu stúdentar. sértrúarhópar eða stjórnmálahópar til hægri eða vinstri. í stríðinu virtist hann hafa gaman af að yfirhevra fanga sína sjálfur með barsmíðum og p.vnting- um og af að taka menn sína af lífi fyrir agaþrot. Glæpir hans „gegn mannkyninu“ Þessir glæpir em reyndar löngu fymdir en eftir standa glæpir hans „gegn mannkyninu" er hann sendi hóp hólpinna gyðingabama í dauða- búðir og var ábyrgur fy.ir að senda aukalega lest af fólki í dauðabúðir. Hvort tveggja var gert í stríðslok þegar óbreyttir tækifærissinnar meðal nasista hefðu ekki lengur haft sig í frammi. Barbie gerðist venjulegur eigin- maður og faðir. Síðan flúði hann með ijölskyldu sína til Bólivíu í Suð- ur-Ameríku og setti þar upp sögun- armyllu. Ekki liðu þó mörg ár áður en hann sá sér leik á borði að bjóða nýrri stjóm þjónustu sína. Þar með hófst ferill hans við að innleiða í Rómönsku Ameríku evrópska fangabúðatækni og and-skæmliða- tækni, ásamt öðrum landflótta nasistum. fasistum og hryðjuverka- mönnum. Var þetta mest á sjöunda og áttunda áratugnum. Sem dæmi um að Barbie var sami þykkskinnungurinn og áður má nefha að í fyTÍrlestri, sem hann hélt fyrir lækna og aðra útvalda um yfir- heyrslur, pyntaði hann tvo pólitíska fanga til dauða sem hluta af sýni- kennslu. Alvöru stríðsglæpamaður Barbie er því verðugt dæmi um illsku stærsta og versta tilfellis fas- ismans, þ.e. nasisma þriðja ríkisins. Hann var ekki bara leynilögreglu- maður af þeirri harðsvímðu tegund sem jafiian má finna hjá stríðandi ríkjum heldur manngerð sem er áskorun við allt lýðræðislegt gildis- mat. Hann er ekki eins slæmur og ríkisleiðtogar, skrifræðismorðingjar og útrýmingarbúðarekendur þriðja ríkisins, sem þegar hafa verið dæmd- ir, heldur fulltrúi hinna mörgu sem sluppu en vom glæpamenn samt. Tryggvi V. Líndal „Sem dæmi um að Barbie var sami þykk- skinnungurinn og áður má nefna að í fyrirlestri, sem hann hélt fyrir lækna og aðra útvalda um yfirheyrslur, pyntaði hann tvo pólitíska fanga til dauða sem hluta af sýnikennslu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.