Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNl 1987.
Stuðmenn
á Akureyri
Þjóðhátíðarhöldin hefjast á Akur-
eyri kvöldið fyrir 17. júní með tónleik-
um Stuðmanna í H-100. Þjóðhátíðar-
morguninn sjálfan munu félagar í
Bifreiðaklúbbi Akureyrar keyra um
bæinn og boðið verður upp á siglingu
um Pollinn á togara.
Klukkan 14.00 verður farin skrúð-
ganga frá torginu að íþróttavellinum
þar sem hin eiginlega hátíðardagskrá
fer fram. Klukkan 17.00 verða Stuð-
menn og fleiri með sprell en síðan
hefst skemmtun klukkan 21.00. Þar
verður fyrst sýnt leikrit en síðan munu
Stuðmenn, Sniglabandið og Addi rokk
leika og syngja fram á nótt.
-JFJ
Hjálp til
sjálfshjálpar
Samtökin KONAN stefna nú að því
að koma á fót áningarstað fyrir kon-
ur/stúlkur sem hafa verið í meðferð
vegna ofheyslu vímuefna. Aningar-
staðurinn mun nefnast Dyngjan og
mun verða leitast við að gera konuna
færari um að takast á við lífið á nýjan
leik. Kona, sem dvelst í Dyngjunni,
mun vinna úti og bera ábyrgð á sér
sjálf, innan ramma húsreglna.
Alls munu 17 konur geta dvalist á
áningarstaðnum og felst stuðningur
við konuna meðal annars í reglulegum
hópfundum, einkaviðtölum við lækni
og ráðgjafa, sem verða til taks, auk
AA-funda.
Aðstandendum samtakanna hefur
þótt vanta slík heimili fyrir konur
þrátt fyrir að þörfin sé til staðar. Slík
heimili eru einungis varða á leiðinni
til bata og eiga að hjálpa konunni við
að standa á eigin fótum að nýju, um
er að ræða hjálp til sjálfshjálpar.
JFJ
Bflvelta við
Laugaland
Ökumaður, sem var einn á ferð, velti
bíl sínum við Laugaland á Þelamörk
á laugardagsmorgun. Ökumaðurinn
var fluttur töluvert slasaður á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem
hann liggur enn. Bíllinn er talinn
ónýtur.
-sme
Fréttir
Fjölbreytt hátiðartiold 17. júní
Ungur Islendingur i þjóðhátíðarskapi. Hátiðarhöldin á morgun verða fjölbreytt.
Dagskrá þjóðhátíðarhaldanna 17.
júní í Reykjavík verður með hefð-
bundnum hætti fyrir hádegi.
Forseti Islands og forseti borgar-
stjórnar leggja blóm við minnis-
varða Jóns Sigurðssonar og
forsætisráðherra flytur ávarp.
Fjallkonan ávarpar samkomuna,
Karlakór Reykjavíkur syngur og
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Að
lokum verður guðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni.
Skrúðgöngur verða frá Hall-
grímskirkju og Hagatorgi klukkan
13.45 og skemmtidagskrá verður í
miðbænum á þremur leiksviðum. í
Hljómskálagarðinum verður hægt
að fara í ýmsa leiki og á Tjörninni
verða róðrarbátar. Dagskrá verður
fyrir eldri borgara í Sigtúni og
VR-húsinu og á nokkrum stöðum
verða íþróttamót.
Að kvöldi þjóðhátíðardagsins
verður kvöldskemmtun á Lækjar-
torgi þar sem hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur ásamt fleiri.
I Laugardalshöll verða hins vegar
tónleikar þar sem 4 hljómsveitir
munu spila.
Hafnarfjörður
í Hafnarfirði munu hátíðarhöldin
hefjast með skrúðgöngu frá Hellis-
gerði klukkan 14.15 en hátíðarsam-
koma verður á Thorsplani með
hinum ýmsu skemmtiatriðum.
Handknattleikslið FH og Hauka
munu etja kappi saman um 17. júní
bikarinn klukkan 17.00 við Lækj-
arskóla og um leið verður bingó
Flensborgarkórsins í félagsálmu
íþróttahússins. Klukkan 18.00 hefst
konsertkeppni unglingahljóm-
sveita og dagskránni lýkur með
kvöldskemmtun á Thorsplani.
Kópavogur
Hátíðarhöldin hefjast í Kópavogi
með víðavangshlaupi klukkan
10.30 frá Vallargerðisvelli. Klukk-
an 13.30 verður farin skrúðganga
frá Kópavogsskóla en síðan verður
hátíðardagskrá á Kópavogsvelli
þar sem meðal annars Ríó tríóið
kemur fram.
Seltjarnarnes
Á Seltjarnarnesi fara hátíðar-
höldin fram á Eiðistorgi og hefjast
að lokinni skrúðgöngu sem farin
verður frá dælustöðinni við Lind-
arbrautklukkan 13.30. Á Eiðistorgi
verður hefðbundin hátíðardagskrá
en í félagsheimilinu verður björg-
unarsveitin Albert með kaffi og þar
í nágrenninu verða skátar með
ýmsar þrautir.
Mosfellssveit
Dagskráin hefst klukkan 10 í
Mosfellssveit með sundkeppni og
víðavangshlaupi. Um kl. 13.30 fer
skrúðganga frá Kjörvali að íþrótta-
húsinu þar sem hátíðarhöldin fara
fram. Eftir hátíðina mun flug-
klúbbur Mosfellssveitar láta
karamellur falla niður yfir hátíðar-
svæðið og hestamenn munu leýfa
börnum að stíga á bak. Verði gott
veður munu félagar í -svifdreka-
klúbbnum fljúga yfir.
I Hlégarði verður ungmennafé-
lagið með kaffisölu og á Tungu-
bökkum gefst fólki kostur á að
kaupa sér flugfar yfir sveitina. Um
kvöldið verður síðan dansleikur i
Hlégarði.
Garðabær
Hátíðarhöldin hefjast með víða-
vangshlaupi klukkan 10 í Garða-
bæ. Klukkustund síðar verður
knattspyrnukeppni milli bæjar-
hluta þar sem aldurslágmarkið
verður 30 ár. Klukkan 14.30 verður
farin skrúðganga frá horni Hof-
staðarbrautar og Karlabrautar að
Garðaskóla en þar fer hátíðardag-
skráin fram.
Við Garðaskóla verður línusig á
vegum Hjálparsveitar skáta auk
þess sem skátar verða með tívolí
og knattspyrnudeild Stjörnunnar
með tombólu.
Laust fyrir kl. 17.00 verður hátíð-
in flutt inn í íþróttahúsið þar sem
veitt verða verðlaun fyrir víða-
vangshlaupið, úrslitaleikurinn í
bæjarhlutakeppninni fer fram,
danssýning verður og fimleikar, og
loks mun bæjarstjórnin etja kappi
í körfubolta við lið úr frjálsum fé-
lagasamtökum bæjarins. Um
kvöldið verður diskótek í íþrótta-
húsinu. _jFj
I dag mælir Dagfari
Sérfræðingar í alþjóðafundum
Við erum enn á hálfgerðu kennd-
eríi eftir NATO-fundinn á dögunum
enda er heimspressan enn að vitna
í það sem þar gerðist eða gerðist
ekki. Eins og vænta mátti stóðum
við okkur með sóma með allt er laut
að undirbúningi og framkvæmd og
árangurinn af fundinum sjálfum
hefði eflaust orðið enn meiri og betri
ef við hefðum fengið að ráða ein-
hverju þar um. Að vísu ræddi Matti
Matt við Shultz vegna þess að Kan-
ar vilja að við leggjum niður vopn
gegn hvölum og svo ræddi hann líka
við Genscher hinn þýðverska um þá
óhæfu að Þjóðverjar væru að skipta
sér af því með hvaða hætti við send-
um hvalkjöt til Japan. Hestöðvaand-
stæðingar komu saman með spjöld
á lofti til að mótmæla því að NATO
væri að ræða afVopnun en þau mót-
mæli voru öllu hógværari en 1968
þegar slagurinn mikli var háður.
Ólafur Ragnar var ekki kallaður á
fundi NATO-manna og fór alheims-
friðarboðinn auðvitað í fylu og sagði
í sjónvarpi að það mætti leggja
NATO niður á hálfum degi. Þá eru
eiginlega upp talin þau afskipti sem
við Islendingar höfðum af þessum
fundarhöldum ef undan er skilin
ræða Steingríms en valdamenn
heims eiga jafnan vin í varpa þar sem
Steingrímur er.
Allt fór slétt og fellt fram í kringum
þennan fund. Það er ástæðulaust að
gera mikið úr smámistökum sem
urðu. Til dæmis er sagt að frítt lög-
reglulið hafi beðið komu Carring-
tons á Reykjavíkurflugvelli og átti
lest lögreglubíla og hjóla að fylgja
honum til hótels. Þar sem liðið var
að æfa heiðursvörðinn bárust hins
vegar þau tíðindi að lávarðurinn
mundi lenda á Keflavíkurflugvelli.
Stukku laganna verðir þá upp í bíla
sína og var ekið mikinn í átt til
Keflavíkur. Hersingin mætti bíl
Carringtons hins vegar í Kúagerði
og fór því mesti glansinn af heiðurs-
fylgd lögreglu.
Að venju reyndu fréttamenn að
draga það upp úr hinum erlendu
gestum hvemig þeim líkaði dvölin á
íslandi og þeir blessuðu land og þjóð
í bak og fyrir. Það var líka eins gott
því ekki megum við heyra styggðar-
yrði úr munni útlendinga án þess
að það verði tilefhi til ævilangrar
óvináttu í garð þeirra sem ekki
kunna að meta andlegt og líkamlegt
atgervi landans. Við erum bestir og
auk þess sérfræðingar í alþjóðafund-
um.
Sjónvarpið kallaði helsta sérfræð-
ing sinn í friðarmálum heim frá
Kaupmannahöfn svo hann gæti
blandað sér í samræður minni spá-
manna innan og utan sjónvarps í
hinum ómissandi umræðuþáttum
sem eru fastir fylgifiskar svona
funda. Nú er að vísu hætt að kalla
Áma Bergmann til skrafe og ráða-
gerða þegar afvopnunar- og firiðar-
mál ber á góma en Gunnar
Gunnarsson og Ólafur Ragnar hafa
tekið við af honum. Eins og venja er
í svona þáttum er talað geysimikið
án þess að segja neitt og allir jafn-
nær á eftir eins og vera ber.
Eftirminnilegasta framlag sjón-
varpsins í sambandi við fundinn vár
að sjálfsögðu það að hurðarhúnninn
á Sögu sást bara alls ekki, hvað þá
að fókusað væri á hurðarhún tímun-
um saman eins og þegar Höfðafund-
urinn var. Samt var sjónvarpið
opnað á fimmtudaginn en það var
ekki fyrr en um seinan sem upp-
götvaðist að það er enginn húnn á
útihurðum Sögu.
Stöð 2 sneri sér meira að bresku
kosningunum og fréttamaður Stöðv-
arinnar benti á þá athyglisverðu
staðreynd að Ihaldsflokknum var
spáð sigri þrátt fyrir THatcher og
Kinnock var í mikilli sókn þrátt fyr-
ir Verkamannaflokkinn. Varð þá
ýmsum hugsað til kosningasigurs
Steingríms þrátt fyrir Framsóknar-
flokkinn og ósigur Þorsteins þrátt
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þegar öllu
er á botninn hvolft eru atburður eins
og NATO-fundurinn fyrst og fremst
vatn á myllu fjölmiðlaspekinga sem
fá kjörið tækifæri til að fjalla um
þau mál sem til umræðu eru af slíkri
alvöru og af slíkri þekkingu að þeir
fyllast aðdáun á sjálfum sér þótt al-
menningur láti sér fátt um finnast.
En það má sjónvarpið eiga að þyrlu-
flug fréttakonu yfir Sögu fyrir
fundinn var skemmtilegt og vel unn-
ið fréttaskot sem vakti mun meiri
athygli en núlllausnir utanríkisráð-
herranna.
Dagfari.