Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987.
Erlend myndsjá
Harka i Koreu
Ekki verður annað sagt en að harka hafi verið í átökum þeim sem undan-
fama daga hafa staðið milli stúdenta og lögreglu í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu.
Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér draga menn ekkert af sér í barát-
tunni. Á einni myndinni má sjá stúdenta leggja til atlögu við -lögreglumenn
með væna lurka að vopni. Á annarri hefur einn stúdentanna náð táragasbyssu
af lögreglumanni og brýtur hana við vegg. Loks má sjá einn lögreglumannanna
liggja í blóði sínu og félaga hans stumra yfir honum.
Simamynd Reuter
Forréttíndastéttirnar
Forréttindastéttir þurfa ekki að ferðast um í strætisvögn- ekki fundið síður til mikilvægis síns, þessi eins árs gamli
um og litlum blikkdósum líkt og sauðsvartur almúginn. górilluapi, þótt hann hefði hvorki tillögu- né atkvæðisrétt
Við íslendingar sáum gott dæmi þess í síðustu viku þegar á NATO-fundum. Hann hallar sér engu að síður út um
framámenn Atlantshafsbandalagsins voru fluttir á milli í glugga límúsínunnar, tilbúinn að veifa til múgsins í lítil-
helstu glæsikerrum landsins, spegilfægðum og gljáandi. læti sínu. Raunar var hann að flytja búferlum, frá einum
En forréttindastéttimar eru margar og misjafnar og ekki. dýragarði til .annars, og. fór spölinn í teygðum kádilják,
allar atkvæðamiklar í stjómmálum. Líklega hefur hann með einkabílstjóra að sjálfsögðu.
Simamynd Reuter
Landbúnaðarstyrjöld
Franskir bændur eru yfirleitt ekki að tvínóna við hlutina ef þeir telja afkomu
sinni að einhverju leyti ógnað. Fyrir nokkru þótti þeim innflutningur Spánverja
á ávöxtum og grænmeti til Frakklands ganga úr hófi, einkum þar sem þeir
spænsku seldu sína vöru ódýrt og því erfitt að keppa við þá á jafnréttisgrund-
vélli. Frakkamir höfðu ekki mörg orð um málið, réðust einfaldlega að næstu
lest flutningabíla, sem kom með landbúnaðarafurðir yfir landamæri ríkjanna,
og kveiktu í henni. Þar með var málið afgreitt í bili og væntanlega bið á því
að spænskir bændur hrelli franska stéttarbræður sína að nýju.
- Símamynd Reuter
Tólin fínpússuð
Það er aðalsmerki góðs verkmanns að tólum hans er vel við haldið, þau hrein-
suð og jafhvel gljáfægð. Þetta gildir alveg jafnt um morðtól sem önnur, enda
þurrkar hann rykið vandvirknislega af eldflaugunum sínum, þessi ungi maður.
Það er ekki nema sjálfsögð kurteisi, ef herja skal á einhvem, að gera það með
hreinum tólum, aldrei að vita nema skítur á eldflaugum geti valdið einhverju
smiti.