Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987.
Útlönd
Fimm fengu ævilanga dóma
Pixnm ungir Ástralíubúar voru í gær dæmdir til lífetíðarfangelsis fyrir að
hafa nauðgaö og myrt Anitu Cobby, fyrrum ástralska fegurðardrottningu.
Mennimir fimm voru drukknir og undir áhrifúm fikniefiia þegar þeir frömdu
verknaðinn.
Dómssalurinn var troðfúllur af áhorfendum í gær og þeir íbgnuðu þegar
dómarinn, Slan Maxwell, las upp dómana yfir mönnunum. Dómamir hljóð-
uðu upp á ævilanga fangelsisvist, án möguleika til þess að hljóta náðun eða
verða látnir lausir til reynslu.
Sagði dómarinn að fangana bæri að merkja greinilega með orðunum:
„skulu aldrei látnir lausir".
Sagði dómarinn réttmætt að mönnunum fimm yrði sýnd sama mildi og
þeir sýndu fómarlambi sínu.
Mennimir fimm rændu Anitu Cobby, sem var tuttugu og sex ára gömul
hjúkrunarkona, nauðguðu henni og myrtu hana. Mál þetta hefúr vakiö að
nýju umræðu um endurupptöku dauðarefeingar í Ástralíu.
Felldu átta sikha í Punjab
Indvereka lögreglan felldi átta menn úr röðum öfgamanna sikha í átökum
sem orðið hafa undanfama daga í Punjab, einu af norðurfylkjum Indlands.
Talsmaður lögreglunnar sagði að lögreglan hefði skotið á öfgamenn í fjór-
um tilvikum skammt frá landaraærum Indlands og Pakistan í gær.
öiyggissveitir lögreglu og here em í viðbragðsstöðu í Punjab vegna at-
viks er varð þar um síðustu helgi þegar sikhi myrti fjórtán manns og særði
um tuttugu til viðbótar. Maðurinn réðst mn í bamaafmæli og hóf þar skob
hríð með vélbyssu.
Þá mun lögreglan hafa gert upptæk vopn sem sikhar höfðu komið sér
upp, þar á meðal vélbyssur og skammbyssur.
Liðlega fimmtíu manns hafa nú látið lífið í Punjab-héraði í þessum mán-
uði en sikhar berjast þar fyrir sjálfetæði.
Lík bresku heimannanna fundln
Björgunarmenn hafa nú fúndið lík þriggja breskra hermanna sem hurfú
í gær í fjaligöngu í kanadísku Klettafiöllunum. Mennimir þrír munu hafa
lent í snjóflóði.
Hermennimir vom fjórir saman í hóp og slapp cinn þeirra lifandi. Hann
gat bent leitarmönnum á staðinn þar sem félagar hans fórust.
Skutu niður óþekkta flugvél
Talsmenn Nicaragua skýrðu frá því í gær að her landsins hefði skotið
niður óþekkta flugvél sem rauf loflhelgi landsins og réðst á stöðvar sandin-
ista skammt frá landamærum Nicaragua og Hondúras.
Útvarpið í Nicaragua skýrði í gær frá því að loflvamasveitir stjómar-
hersins hefbu skotið flugvélina niður eftir að hún gerði eldflaugaárás á
stöðvar landamæravarða sandinista í norðurhluta landsins.
Flugvélin varð fyrir loftvamaskotum og hrapaði um sex kílómetra innan
iandamæra Hondúras. að því er útvarpið hélt fram.
Eldflaugaárás flugvélarinnar olli engu tjóni á mannvirkjum og enginn
særðist í árásinni.
Varð að biðjast afsökunar
Einn af stjórnmálaleiðtogum Kanada varð í gær að biðjast afeökunar á
dónalegum ummælum sínum um cinn af ráðhcrmm ríkisstjómar landsins.
Forsætisráðherra Kanada, Brian Mulroney, skýrði neðri deild kanadíska
þingsins frá þessum málalyktum í gær.
Sagði Mulroney að Bob Hicks, yfirmaður einnar vamarmálanefhdar kana-
dísku ríkisstjómarinnar, hefði orðið að biðjast afeökunar á þeim ummælum
sínum að troða ætti upp í munninn á Monique Vezdna, ráðherra birgða- og
þjónustumála.
Ummæli þessi vom höfð eftir Hicks í dagblöðunum Toronto Globe og
Mail, en með þeim vildi Hicks lýsa óánægju sinni með gagnrýni Vezina á
vamarmálaraðherra landsins, Perrin Beatty. Vezina mun hafa sagt að Be-
atty væri of ungur til að skilja gildi framlaga til vamarmála í því er varðar
þróun héraða.
Afeökunarbeiðnin mun hafa verið borin fram bréflega.
Mótmæla afskiptum Indverja
Kínversk stjómvöld hafa mótmælt afekiptum Indveija af málefiium Sri
Lanka og hafa sagt þeim að halda sig algerlega utan við innanríkisdeilur
þar ef þeir vilji komast hjá aukinni spennu milli Lndlands og Kina.
Skýrt var frá því í gær að aðstoðamtanríkisráðherra Kína hefði varað
utanríkisráðherra lndlands, sem nú er í heimsókn í Kína, við því að Indverj-
ar verði að draga til baka hermenn þá sem gengið hafa of nærri landamærum
ríkjanna, svo og að halda sig algerlega utan við deiluefiii Sri Lanka, ef
ekki eigi að koma til erfiðleika í samskiptum ríkjanna.
Sprenging í Barcelona
Mikil sprenging varð í skrifetofú bandarísksk tölvuframleiðanda í Barce-
lona á Spáni í gær, skömmu eftir að yfirmenn öryggismála í borginni hittust
til að ræða aðgerðir gegn auknum hryðjuverkum þar. Sprengingin varð í
8krifetofú fyrirtækisins Hewlett-Packard og olli vemlegum skemmdum á
húsi og búnaði en engum meiðslum á fólki.
I sömu byggingu er útibú frá Lundúnabanka og suður-amerískum banka.
Verkamannaflokkunnn með öruggt for-
skot í Ástralíu
Skoðanakannanir benda til öruggs forskots ástralska Verkamannaflokks-
ins á helstu keppinauta sína fyrir þingkosningar 11. júlí næstkomandi.
Verkamannaflokkurinn, undir forystu Bobs Hawks, hefúr setið við völd í
Ástralíu síðastliðinn tvö kjörtímabil og allar h'kur em á að flokkurinn fái
yfirgnæfandi meirihluta í kosningunum í næsta mánuði. Skoðanakannanir
undanfama þrjá mánuði gefa Verkamannaflokknum 7-15 prósenta fylgi
umfram stjómarandstöðuna og hefúr dregið í sundur með flokkunum.
Síðasta útspil stjómarandstööunnar var að lofa skattalækkunum, hvort
tveggja á almenning og fyrirtæki. Kjósendur virðast hafa hafnað þessari
stefiiu og telja hana leiða til versnandi efiiahags.
Stjóm Háwks hefur tekist að halda efnahag Ástrala í góðu jafhvægi.
Llrslitin á ftalíu:
Engar skýrar línur
- sfjómarkreppa framundan
vom saman í stjóm lengst af síðasta
kjörtímabil, ásamt þremur smærri
flokkum. Samsteypan sprakk og sið-
ustu misserin sat minnihlutastjórn
kristilegra demókrata við stjómvöl-
iim.
Sósíalistar ráku kosningabaráttuna
undir þeim merkjum að flokkurinn
gæti jafhað þann óstöðugleika sem
ríkt hefur í ítölskum stjómmálum.
Enda var samsteypustjórnin undir for-
ystu Craxi sem mynduð var upp úr
kosningunum 1983, ein sú langlífasta
á Italíu síðustu áratugi. Undir forystu
Craxis náði efnahagslífið að rétta úr
kútnum.
Atvinnurekendur vilja gjaman að
kristilegir demókratar og sósíalistar
myndi saman stjóm. Að þeirra áliti
er slík stjórn vænlegust til að skila
árangri.
Það er þó ólíklegt að kristilegir og
sósíalistar myndi stjórn saman.
Skammur tími er síðan samsteypa
þessara flokka sprakk og lítill vilji er
til að reyna á ný.
Líklegast er að minnihlutastjóm
kristilegra demókrata sitji áfram á ít-
alíu og að boðað verði til nýrra
kosninga innan fárra mánaða.
Kommúnistar munu fagna nýjum
kosningum eftir þá hörmulegu útreið
sem flokkurinn fékk í kosningunum.
Fyrir kosningar hafði Kommúnista-
flokkurinn gert sér vonir um að verða
stærsti stjómmálaflokkurirtn á ítalíu.
Það fór ekki svo og fékk flokkurinn
27.1 prósent atkvæða og heldur hann
stöðu sinni sem næst stærsti flokkur-
inn á Ítalíu og stærsti kommúnista-
flokkur á Vesturlöndum.
Kommúnistaflokkurinn hefur ekki
setið í sjóm síðan 1947 og ekki er ta-
lið að á því verði breyting í bráð.
Formaður Sósíalistaflokksins á italíu, Bettino Craxi, ibygginn á svip. Kosnin-
gaúrslitin gera honum og öðrum stjórnmálaleiðtogum erfitt um vik þvi engir
skýrir ríkisstjórnarkostir liggja á borðinu. - Símamynd Reuter
Úrelit þingkosninganna á Ítalíu
boða vandræði í stjómarmyndunar-
viðræðum. Bæði sósíalistar og kristi-
legir demókratar beija sér á brjóst og
segjast hafa unnið sigur. Litlir kær-
leikar em með þessum flokkum og
strax eftir úrslitin höfnuðu þessir
flokkar hvor öðrum sem samstarfeað-
ila í ríkisstjóm.
Búist hafði verið við að kristilegir
demókratar myndu tapa fylgi í þessum
kosningum en fylgi þeirra jókst þegar
á hólminn var komið og þakka menn
það meðal annars skeleggum stuðn-
ingi Vatikansins og páfa á lokaspretti
kosningabaráttunnar.
Sósíalistar undir forystu Carxi, juku
fylgi sitt úr 11.4 prósentum í síðustu
kosningum 1983, í 14.2 prósent núna.
Kristilegir demókratar og sósialistar
Tugþúsundir munu falla
ef ekki tekst að semja
Talið er að tugþúsundir Filippsey-
inga kunni að verða trúarbragðaátök-
um á eyjunum að bráð ef samningar
takast ekki í viðræðum stjómvalda
þar við leiðtoga minnihluta múha-
meðstrúarmanna. Embættismenn
ríkisstjómar Cörazon Aquino, forseta
Filippseyja, og fulltrúar múhameðs-
trúarmanna, sem nú hafa náð sam-
komulagi um að ganga sameinaðir til
viðræðnanna, hafa viðhaldið óform-
legum tengslum undanfarið og búist
er við að innan skamms verði reynt
að ganga til formlegra samningavið-
ræðna.
I síðasta mánuði slitnaði upp úr
samningaviðræðum þessum og leið-
togar múhameðstrúarmanna hafa lýst
sig reiðubúna til þess að hefja heilagt
stríð á eyjunum og að skipa uppreisn-
arstjóm á eyjunni Mindanao.
Múhameðstrúarmenn búa aðallega á
suðurhluta Filippseyja en þeir eru
mun (ærri en kristnir, jafnvel þar sem
þeir eru flestir.
Þessi hótun múhameðstrúarmanna
kemur á mjög slæmum tíma fyrir
stjórn landsins sem stendur í harðri
baráttu við kommúnista sem embætt-
ismenn kenna um öldu af ofbeldi gegn
lögreglu og her undanfamar vikur.
Að minnsta kosti tuttugu og tveir lög-
reglumenn hafa verið myrtir í Manila,
höfuðborg landsins, á þessu ári og em
kommúnistar taldir bera ábyrgð á
morðunum.
Talið er að yfir hundrað þúsund
manns hafi látið lífið i átökum krist-
inna manna og múhameðstrúar á
Filippseyjum á áttunda áratug þess-
arrar aldar þegar aðskilnaðarstríð
múhameðstrúarmanna stóð sem hæst.
Ef átök milli trúarhópanna harðna að
nýju er talið vonlítið að stjómvöld
geti komið til móts við kröfur múha-
meðstrúarmanna um sjálfsstjóm.
Múhameðstrúarmenn krefjast nú
sjálfsstjómar þrettán héraða á Mind-
anao.
Afvopnun:
Reagan með innstæðu-
laust yfirboð
I sjónvarpsávarpi í gær sagði Reag-
an Bandaríkjaforseti að hann hefði
boðið Sovétríkjunum upp á samninga
um að eyða öllum skammdrægum
kjamavopnum stórveldanna. í skeyti
fréttastofúnnar Reuters kemur ffarn
að Bandaríkjamenn eiga engin
skammdræg kjamorkuvopn og er því
erfitt að sjá annað en að tilboð Reag-
ans sé innstæðulaust yfirboð. Tilboðið
er trúlega sett ffarn til að ná ffum-
kvæði í áróðursstríði stórveldanna.
Reagan sagði einnig að hann hefði
gefið samningamönnum sínum í Genf
grænt ljós til að hefja viðræður við
Sovétríkin um hina svokölluðu tvö-
földu núlllausn á kjamavopnum í
Evrópu. Ráðherrafundur NATO í
Reykjavík um daginn lagði blessun
sína yfir þessa fyrirætlan sem fulltrúar
stórveldanna höfðu í grófum dráttum
komið sér saman um.
Hin tvöfalda núlllausn er fólgin í því
að allar meðaldrægar flaugar Banda-
ríkjamanna i Evrópu og allar
skammdrægar og meðaldrægar flaug-
ar Sovétmanna, sem beint er að
Vestur-Evrópu, verði eyðilagðar.