Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987.
13
Handbók fyrir
teppakaupendur
Handbók fyrir teppakaupendur,
holl ráð og hagnýtar upplýsingar
nefhist bók sem komin er út á vegum
Teppalands-Dúkalands. Þetta er 28
síðna handbók sem gefin er út í til-
efni af 20 ára afmæli fyrirtækisins.
Samhliða dreifingu handbókarinnar
stendur einnig sumartilboð fyrirtæk-
isins út júnímánuð. <
Handbókin inniheldur ýmsar hag-
nýtar upplýsingar fyrir neytendur
eins og kaflaheiti bera með sér en
þau eru m.a.: Hvemig spara má þús-
undir króna og forðast leiðindi.
„Hver er munurinn á hinum ýmsu
gerðum teppa?“, Hvemig teppi eig-
um við að velja okkur? Hvernig
fórum við að því að leggja gólfteppið
sjálf?
Það er auglýsingastofan ÓSA, Ól-
afur Stephensen, Auglýsingar
-Almenningstengsl sem umsjón hafði
með útgáfu handbókarinnar.
-A.BJ.
Fyrsta handbókin afhent viðskiptavini.
Neytendur
Opal og
Tópas með
innihaldslýsingu
ingu á Topas sem sé í samræmi við
reglugerð.
I umræddri grein í DV var m.a. haft
eftir Oddi Rúnari áð bæði Opal og
Topas væm með ófullnægjandi upp-
lýsingar. Við athugun á þessum
vörutegundum hefur komið í ljós að
þær eru báðar með áprentaðri inni-
haldslýsingu. -A.BJ.
Munið að
senda inn upp-
lýsingaseðilinn
fynr heimilis-
bókhald DV
Borist hefur tilkynning frá Nóa Sír-
íusi þar sem mótmælt er frétt um að
Topas sé ekki með tilskildar innihald-
slýsingar. i bréfinu er staðhæft að
Oddur Rúnar Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, kannist ekki við að hafa
nefnt Topas í samtali við blm. DV.
Oddur hafi sjálfur samið innihaldslýs-
Sjúkrakassar og slokkvitæki
á uppsprengdu verði?
Fyrir nokkrum dögum kom til okkar
maður með sjúkrakassa og bíla-
slökkvitæki sem hann hafði riýlega
fest kaup á fyrir samtals 5.200 kr.
Kostaði slökkvitækið 1.540 kr. en
sjúkrakassinn 3.660 kr. Þennan vam-
ing keypti hann af sölumanni sem
gekk i hús og bauð vöruna fala.
Maðurinn greiddi með Eurokorti en
sölumaðurinn bauð honum jafnframt
að skipta þeirri greiðslu á tvær af-
borganir.
í fyrstu taldi sögumaður okkar sig
hafa gert góð kaup á nauðynlegum
öryggistækjum en fljótlega kom á dag-
inn að nákvæmlega eins slökkvitæki
eru seld á bensínstöðvum Skeljungs á
1.078 kr.
Hann rölti þá með sjúkrakassann í
næstu lyfjaverslun og bað afgreiðslu-
stúlkuna að meta innihald kassans.
Niðurstaðan varð sú að innihald kass-
ans var hægt að kaupa í lyfjaverslun-
inni fyrir u.þ.b. 1.600 kr. í langflestum
tilfellum hafði lyfjaverslunin á boð-
stólum nákvæmlega sömu vörur og
komu upp úr kassanum en í einstaka
tilfellum var þó um sambærilegar vör-
ur að ræða.
Þegar hér var komið sögu hringdi
hinn vonsvikni viðskiptavinur til
Eurokortaþjónustunnar og fékk þá
þær upplýsingar að það væru fullkom-
lega ólöglegir viðskiptahættir að
skipta kortagreiðslunni á þann veg
sem hér um ræðir.
Nú þótti honum tími til kominn að
segja okkur söguna sem hér hefur
verið höfð eftir. Við fórum svo á stúf-
ana, fengum matið frá lyfjaversluninni
staðfest, auk þess sem við létum einn-
ig meta innhald kassans í annarri
lvfjaverslun. í síðari lyfjaversluninni
var innihald sjúkrakassans metið á
1.500 kr.
í báðum þessum lyfjaverslunum voru
mun fullkomnari sjúkrakassar til sölu
fyrir töluvert lægra verð. I Apóteki
Austurbæjar var t.d. hægt að fá nokk-
uð stærri sjúkrakassa fyrir tæpar 2.000
kr. Auk þess var okkur svo tjáð að í
sjúkrakassa sögumanns okkar vantaði
ýmis nauðsynleg atriði, eins og t.d.
verkjatöflur, sárasmyrsl, fingurbindi
og öiyggisnælur.
Við fengum verðið á slökkvitækjun-
um einnig staðfest á nokkmm bensín-
stöðvum Skeljungs, auk þess sem
málsvari Eurokorta staðfesti að hér
væri imi óleyfilega afborgunarskil-
mála að ræða.
Við náðum svo tali af þeim sem
standa fyrir sölunni á öryggistækjun-
um og báðum þá að skýra þann
verðmun sem hér um ræðir.
Greinargerð þeirra fyrir verðmynd-
uninni var í megindráttum eftirfar-
andi:
Innkaupsverð: 1.870 kr.
Sölulaun: 600 kr.
Krísuvíkursamt.: 208 kr.
Afföll v. lánsviðs.: 624 kr.
Til ráðstöfunar: 858 kr.
Söluskattur: 1.040 kr.
Samtals: 5.200 kr.
Aðstandendur öryggistækjanna
lögðu áherslu á þá staðreynd að þeir
færðu viðskiptavinum sinum vömna
heim og að þeir tækju ekki vexti þrátt
fyrir afborgunarkjör.
„Afföll vegna lánsviðskipta" em
hins vegar 12% af heildarverði örygg-
istækjanna en hér er um vægast sagt
frumlegan lið í greinargerð af þessum
toga að ræða.
Það er auðvitað sjálfsagður hlutur
að hafa slökkvitæki og sjúkrakassa
við höndina í bílnum og reyndar ætti
enginn að leggja í langferð á eigin
ökutæki án þessara öiyggistækja. Það
er hins vegar einnig sjálfsagt að menn
taki mið af hvoru tveggja. verði og
gæðum. þegar keypt eru öiyggistæki.
í þeim efiium þarf ekki hvað síst að
vanda valið. En hvað um það. okur
eða ekki okur? Dæmi nú hver fvrir sig.
-KGK
Vandið valið þegar þið kaupið öryggistæki