Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Side 40
F R E T
A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 16. JUNI 1987.
Eins og áhugi
einhverra hafí
minnkað
—segir Þorsteinn Pálsson
„Mér finnst þetta nú hafa dregist
um of,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, í
morgun þegar DV spurði hann
hvernig honum litist á stöðuna í
stjómarmyndunarviðræðunum.
„Það er allt of mikill seinagangur
á þessu núna. Manni finnst eins og
áhugi einhverra hafi minnkað.
Von.andi kemst samt einhver skrið-
ur á þetta. Það er full þörf á þvi,“
sagði Þorsteinn. -ES
Tíminn vinnur
með þessu
- segir Jón Baldvin
„Þetta tekur nokkra daga enn,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, þegar
DV innti harip eftir gangi mála í
morgun.
Þegar Jón var spurður hvort hann
væri ekki farinn að ókyrrast sagði
hann að svo væri alls ekki.
„Nú er ég mjög rólegur. Tíminn
vinnur með þessu. Við fundum nú í
dag, formennimir, til að ná sam-
'9* komulagi um fyrstu aðgerðir. Það
kæmi mér ekki á óvart þó það tæki
tvo fundi,“ sagði Jón Baldvin. -ES
Lógreglan klippir
á Akureyri
Jón G. Hauteson, DV, Akureyri.
Það verða engin hátíðarhöld hjá
þeim sem eiga eftir að láta skoða
bílana sína á Akureyri á morgun.
Eftir 17. júní ætlar lögreglan að
byrja herferð á að klippa númer af
bílum sem en er óskoðaðir. „Það eru
margir óskoðaðir bílar enn í bæn-
um,“ sagði Gunnar Randversson
lögregluvarðstjóri við DV í morgun.
DV
DV kemur næst út fimmtudaginn
18. júní. Smáauglýsingadeildin er
opin til kl. 22 í kvöld. Lokað á morg-
un, 17. júní. Síminn er 27022.
LOKI
Á krataforinginn við
framsóknarmálgagnið?
Sölusamtök fiskframleiðenda:
Setja upp umboðs-
skrifstofu á Spáni
Sennilega verður Barcelona fyrir valinu, segir Dagbjartur Einarsson stjómaiformaður
„Islenskir saltfiskframleiðendur
hafe enga umboðsskrifstofti á Spáni
og við höfum fúllan hug á að breyta
því og þess vegna er unnið að því
að koma þar upp skrifstofú. Það er
ekki ákveðið hvort það verður Spán-
verji eða fslendingur sem stjómar
skrifstofúnni, en það skýrist Qjót-
lega,“ sagði Dagbjartur Einarsson,
stjómarformaður Sölusamtaka ís-
lenskra fiskframleiðenda, i samtali
viðDV.
Saltfiskframleiðendur hafa ekki tfl
þessa verið með eigin umboðsskrif-
8tofu á Spáni og að sögn Dagbjarts
er þar nú enginn sérstakur umboðs-
maður.
Nær öllum íslenska saltfiskinum
er landað í Bilbao í Baskalandi, en
stærsta neyslusvæðið er Barcelona-
svæðið, íbúar þess eru yfir 5 milljónir
manna.
Til þessa hefúr íslenskur saltfiskur
ekki verið seldur á S-Spóni, en nú
stendur til að breyta því, að sögn
Dagbjarts. f ráði er að fá þar sölu-
menn til að selja saltfiskinn, en vitað
er að mikið saltfiskhungur er á S-
Spáni og þar er einnig mesta fisk-
neysluhefðin í landinu. Sfspánn
hefur verið talinn fátæktarsvæði þar
sem ekki þýddi að bjóða svo dýra
vöru sem saltfiskurinn er. Þetta hef-
ur breyst hin síðari árin og grund-
völlur er kominn fyrir þvi að selja
þaríslenskanaaltfisk. -S.dór
Það er ekki talinn fallegur siður að gægjast á glugga. En þegar
um sundlaug er að ræða og vinirnir ef til allir i sundi, glugginn
þar að auki opinn og maður verður að standa uppá hjólinu sínu
til að sjá hverjir eru mættir, þá er það afsakanlegt. Myndina tók
Kristján Ari Ijósmyndari DV við Sundlaug Hafnarfjarðar í gær.
Steingrímur Hermannsson:
„Úrslit fyrir
helgina"
„Við verðum að fá úrslit í þessum
viðræðum fýrfr helgina," sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra í morgun um stjórnarmyndun.
„Þá verður að liggja fyrir samstaða
um fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum
og ffamhaldsaðgerðir um áramót sem
ekki eru minna mál en alveg órætt
ennþá. Og menn verða að hafa komið
sér saman um skiptingu ráðuneyta og
forystu.
Eg held að þetta sé ekki útilokað,
en það þarf líka að gerast mikið á
skömmum tíma til þess að við náum
saman ríkisstjórn í þessum viðræð-
um.“ -HERB
Stjómarmyndunin:
Fundað um fyrstu
aðgerðir í dag
Nú í dag hefst lokapretturinn í
stjómarmyndunartilraun Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks.
I gær skilaði hagffæðinganefhdin af
sér og í gærkvöldi ræddu formennimir
við sína flokksmenn um niðurstöður
og valkosti hennar. Þá hitti Jón Bald-
vin þá að máli Steingrím Hermanns-
son og Þorstein Pálsson en sinn í
hvom lagi.
I dag er gert ráð fyrir að formennim-
ir hittist og ræði fyrstu aðgerðir í
efnahagsmálum og verður sá fúndur
Veðrið
þann
sautjánda
Vel þekkt þjóðhátíðarveður
verður þann sautjánda. Fremur
hæg sunnan og suðaustanátt um
mestallt landið. Víða skýjað við
sjávarsíðuna en öllu bjartara veð-
ur inn til landsins. Hiti á bilinu tíu
til sautján stig.
líklega ekki fyrr en eftir hádegi.
Vitað er að mikil andstaða er við
skattatillögur nefndarinnar í Sjálf-
stæðisflokknum og eftir upphlaupið
þar fyrir helgi er enn erfiðara fyrir
Þorstein Pálsson að koma óvinsælum
hugmyndum hljóðalaust í gegn. Hins
vegar er mörgum sjálfstæðismönnum
það ljóst að ef þessi stjómarmyndun
tekst ekki má eins búast við að flokk-
urinn verði utan stjórnar á næsta
kjörtímabili.
-ES
Borgaraflokkurinn:
Þórir Lárusson
formaður í Rvík
„Ég var alveg steinhissa, þama
mættu um 200 manns og það er reynsla
mín að þetta sé ekki heppilegasti
tíminn til þess að halda pólitíska fúndi.
En þetta sýnir að það er líf í Borgara-
flokknum," sagði Þórir Lámsson
rafvirkjameistari sem var kosinn form-
aður kjördæmisfélags flokksins i
Reykjavík í gærkvöldi.
Þórir er fyrrverandi formaður
Landsmálafélagsins Varðar sem er
stærsta félagið í Sjálfstæðisflokknum
í Reykjavík. Með Þóri í stjóm kjör-
dæmisfélags Borgaraiflokksins em 14
manns.
-HERB