Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 2. JIJLÍ 1987. Fréttir_____________________________________________________________________________________ x>v Stjömaniiyndunin: Enn koma upp vandamál - stjómamiyndun áætluð um helgina Enn einu sinni voru vonir manna bundnar við það að stjómarmyndun tækist í gærkvöldi en enn einu sinni komu upp ófyrirséð vandamál og stífiii. í þetta sinn vom það alþýðuflokks- menn sem settu strik í reikninginn þegar ekki tókst að fá þá til að fallast á málamiðlunartillögu sem sjálfstæð- ismenn og framsóknamienn vom tilbúnir til að samþykkja. Mikil fundahöld hafa verið vegna stjómarmyndunarinnar undanfama sólarhringa. Þannig var fundað linnu- laust frá kl. 21 á þriðjudagskvöld til kl. 7 í gærmorgun. Þráðurinn var tek- inn upp að nýju kl. 10.30 í gærmorgun og fundað með hléum til miðnættis í gærkvöldi. Árangurinn af þessum fundahöldum var nokkur þó ekki dygðu þau til að reka endahnútinn á stjómarmyndunina. Samkomulag hefur nú náðst um ráðuneytaskiptingu. Ekki hefur hins vegar verið gengið frá stefnu í sjávar- útvegs- og landbúnaðarmálum en búist er við að þau verði leyst á ein- faldan hátt. Stóra vandamálið í gær vom hins- vegar hugmyndir Alþýðuflokksins um kaupleiguíbúðir. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur telja að í núver- andi löggjöf sé þegar séð fyrir þeim þörfum sem kaupleiguíbúðimar eiga að svara. Ný málamiðlunartillaga um kaupleiguíbúðimar var lögð fram seint í gærkvöldi og á fundi vinnuhóps flokkanna í morgun átti að reyna til þrautar að ná samkomulagi um hana. Því er eina ferðina enn búist við að þingflokkarnir afgreiði stjómarmynd- unina fyrir sitt leyti í kvöld þannig að stjómin ætti að geta komist á lagg- imar um helgina. Allur er þó varinn góður. -ES Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokks, Egill Jónsson, Halldór Blöndal, Eyjólfur Konráð Jónsson og Birgir ísleifur Gunn- arsson, ræða um veröandi ríkisstjórn undir styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli í góöa veðrinu i gær. DV-mynd JAK Albert klár í bátana Eins og alþjóð er kunnugt hefur stjómarmyndun Sjálfstæðisflokks, Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks gengið hægt og brösulega þó nú bendi flest til að smiðshöggið verði rekið á næstu dögum. Þegar sem stirðlegast hefur gengið hafa menn litið í kringum sig og reynt að meta hvaða möguleikar em aðrir í stöðunni. DV hefur heimildir fyrir því að þeg- ar virtist vera að slitna upp úr stjóm- armynduninni vegna framsóknar- manna á sunnudag og mánudag var rætt í hópi sjálfstæðismanna að næsti möguleiki væri að fá Borgaraflokkinn til samstarfs við Sjálfstæðis- og Al- þýðuflokk í stað Framsóknarflokks. Meirihluti var þessu fylgjandi innan þingflokksins en þó er mjög hörð and- staða við slíkar hugmyndir meðal nokkurra þingmanna. „Við höfum alltaf sagt að við séum tilbúnir að ganga til viðræðna við hvem sem er um myndun ríkisstjóm- ar. Það em allir þingmenn jafnir í okkar augum,“ sagði Albert Guð- mundsson þegar DV spurði hann um þetta mál í morgun. Steingrímur Hermannsson afhenti Albert verkefiiaskrá stjómarinnar, sem nú er reynt að mynda, á fundi þeirra í Stjómarráðinu á mánudag. Albert var spurður hvemig Borgara- flokknum litist á verkefriaskrána. „Það er nú ómögulegt að segja nokk- uð um það fyrr en við höfum fengið nánari upplýsingar. En við höfum rætt þetta plagg nokkuð. Við settum nefnd í að skoða það,“ sagði Albert. Á þessari stundu bendir flest til þess að yfirstandandi stjómarmyndun ta- kist en ef upp úr slitnar er ljóst að samstarf Sjálfstæðisflokks og Borg- araflokks er alls ekki útilokað eins og margir hafa talið til þessa. -ES Stjómarskipti: Laugardagur til lukku - segir verðandi forsætisráðherra „Við höfum ekki stjómarskipti á mánudegi. En laugardagur er til lukku,“ sagði Þorsteinn Pálsson, verð- andi forsætisráðherra, spurður um hvenær búast mætti við stjómarskipt- um, komi ekkert óvænt upp á. Þor- steinn kvað menn þó ekki sjá fyrr en síðar í dag hvenær ný ríkisstjóm tæki við völdum. Til stjómarþátttöku þurfa flokkam- ir samþykki stærri valdastofnana sinna; flokksráðs Sjálfetæðisflokksins, miðstjómar Framsóknarflokksins og flokksstjómar Alþýðuflokksins. í gær töluðu menn um að í fyrsta lagi væri mögulegt að ná þessum valdastofriunum saman á föstudags- kvöld. -KMU Þanmg sómdu þeir um verkaskiptingu Framsóknarmenn fá fjóra ráðherra eins og sjálfetæðismenn. Sjálfetæðis- flokkur fær samgönguráðuneyti af Alþýðuflokknum en lætur í staðinn dóms- og kirkjumálaráðuneyti. Þetta eru tvær helstu breytingamar sem forj'stumenn flokkanna hafa sa- mið um síðasta sólarhring. Tillaga þeirra um verkaskiptingu, sem þeir hafa orðið ásáttir um að leggja fyrir þingflokkana, er þannig: Sjálfstæðisflokkur fái forsætisráðu- neyti, menntamálaráðuneyti, iðnaðar- ráðuneyti og samgönguráðuneyti. Ennfremur forseta Sameinaðs þings og formann utanríkismálanefhdar. Framsóknarflokkur fái utanríkis- ráðuneyti með utanríkisviðskiptum, sjávarútvegsráðuneyti, landbúnaðar- ráðuneyti og heilbrigðis- og trygginga- ráðuneyti. Alþýðuflokkur fái fjármálaráðu- neyti, viðskiptaráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti og félagsmála- ráðuneyti. Ennfremur formann íjár- veitinganefndar. Ráðherraefni Sjálfstæðisflokksins, auk Þorsteins Pálssonar, eru talin Friðrik Sophusson, Birgir ísleifur Gunnarsson og Ólafur G. Einarsson. Erfiðast er talið fyrir Þorstein að fá Matthías Á. Mathiesen til að láta af ráðherradómi fyrir Ólaf G. Einarsson. Rætt er um að Halldór Blöndal verði tekinn inn verði menn ekki ásáttir um annan hvom Reyknesinginn. Frá Framsóknarflokki er talið nokk- uð öruggt að ráðherrar verði Stein- grímur Hermannsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Hélgason og Guð- mundur Bjamason. Frá Alþýðuflokki er talið nær víst að setjist í ráðherrastóla þau Jón Bald- vin Hannibalsson, Jón Sigurðsson og Jóhanna Sigurðardóttir, sem verður eina konan í þessari ríkisstjóm. Forseti Sameinaðs þings verður áfram að öllum líkindum Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Eins er gert ráð fyrir að Eyjólfur Konráð Jónsson verði áfram formaður utanríkismála- nefndar. Formaður fjárveitinganefnd- ar er talinn verða Kjartan Jóhanns- son. , -KMU Fiskmarkaðurinn: Karfaverðið for niður í rúmar tólf krónur Á fiskmarkaðnum í Hafharfirði vom boðin upp 118 tonn af fiski í gær og fékkst ágætt verð fyrir nema á karf- anum, þar fór verðið niður í 12,20 krónur kílóið. Af karfa var boðið upp 51 tonn og var meðalverðið 12,70 krónur, hæsta verð 17,00 krónur en lægsta 12,20 krónur sem fyrr segir. Af þorski vom boðin upp 56 tonn og var meðalverðið 33,50 krónur, lægsta verð 32,20 krónur, en hæsta verð 36,60 krónur fyrir kílóið. Af ufsa vom boðin upp 3,7 tonn, meðalverð 16,86 krónur, lægsta verð 12,00 krónur en hæsta verð 19,50 krónur fyrir kílóið. Af ýsu vom boðin upp 3 tonn, meðalverð 53,58 krónur, lægsta verð 40,50 krónur en hæsta verð 56,40 krónur fyrir kílóið. Lítið var af kola, aðeins 1,7 tonn, meðalverð 17,30 krónur, lægsta verð 15,00 krónur en hæsta verð 19,80 krónur fyrir kílóið. í dag verða boðnar upp 150 lestir af togarafiski í Hafnarfirði og um 5 tonn af bátafiski. Uppboðið hefst klukkan 15.00. Ekkert var boðið upp á Faxamark- aðnum í Reykjavík í morgun og verður ekki fyrr en eftir helgi vegna viðgerða. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.