Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987.
Fréttir_______________________________________________
Heimsmeistaramót 20 ára og yngri í skák:
Geri mér engar vonir
- segir Hannes Hlrfar Stefánsson sem tekur þátt í mótinu ásamt Þresti Þórhallssyni
Þröstur Þórhallsson, Hannes Hlífar Stefánsson og fararstjóri þeirra Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari.
DV-mynd S
„Ég geri mér engar vonir um árang-
ur enda er ég bara 14 ára en þama
verða rosalega sterkir menn, margir
alþjóðlegir meistarar. Ég ætla samt
að tefla eins og ég hef alltaf gert og
bara sjá til,“ sagði Hannes Hlífar Stef-
ánsson, heimsmeistari unglinga i skák,
í samtali við DV.
Hannes er að fara til Filippseyja um
miðjan júli ásamt Þresti Þórhallssyni
og munu þeir taka þátt í heimsmeist-
aramóti skákmanna 20 ára og yngri.
Mótið hefst 19. júlí og því lýkur 3.
ágúst.
íslendingar mega samkvæmt reglun-
um senda einn þátttakenda á þetta
mót, en með því að verða heimsmeist-
ari pilta 16 ára og yngri ávann Hannes
Hlífar sér rétt til þátttöku á mótinu
og fer því ásamt Þresti.
Fararstjóri og aðstoðarmaður þeirra
félaga verður Guðmundur Sigurjóns-
son stórmeistari en hann var aðstoðar-
maður Hannesar þegar hann varð
heimsmeistari í vor.
-S.dór
Héðinn Steingrímsson skákmaður:
Á leið til Puerto Rico
Héðinn Steingrímsson fer til Puerto
Rico í dag. DV-mynd S
„Ég lofa ekki að verða heimsmeist-
ari, en ég lofa því að gera mitt besta,“
sagði hinn ungi og efnilegi skákmað-
ur, Héðinn Steingímsson, í samtali við
DV en hann fer i dag áleiðis til Pu-
erto Rico í M-Ameríku til þátttöku í
heimsmeistaramóti drengja 12 ára og
yngri.
Héðinn er einn af okkar efnilegustu
piltum í skákinni og hefur þrisvar
sinnum orðið Norðurlandameistari í
skólaskák, síðast í vetur er leið í flokki
12 ára og yngri.
Hann sagðist hafa undirbúið sig
sæmilega vel, sérstaklega síðustu dag-
ana en þá hefði hann verið á æfingum
hjá Guðmundi Siguijónssyni stór-
meistara.
„Annars var ég í sveit framan af
sumri og þar tefldi ég ekkert og skoð-
aði heldur ekkert skákir en samt held
ég að ég sé sæmilega vel undirbú-
inn,“ sagði Héðinn. -S.dór
Húsið Skipholt 50c: „er vandað og stenst fyllilega kröfur".
Burðarþolið á Skipholti 50c:
Húsið vandað og stenst
fyllilega kröfur
Umræður vegna burðarþolsskýrsl-
unnar margfrægu eru hvergi úti.
Hafsteinn Pálsson, sem var faglega
ábyrgur fyrir skýrslunni, sendi frá sér
yfirlýsingu vegna niðurstaðna skýrsl-
unnar um húsið númer 50c við
Skipholt. Nú hefur Hákon Ólafsson,
forstjóri Rannsóknastofnunar bygg-
ingariðnaðarins, sent frá sér tilkynn-
ingu um sama hús. Tilkynningin er
svohljóðandi:
„Vegna umræðna sem orðið hafa
um nýlega skýrslu Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins um ástand
þolhönnunar bygginga vill undirrit-
aður taka fram:
Ein af byggingum þeim sem til
umræðu voru var nýbygging að Skip-
holti 50c. Ég hef rætt við hönnuði
byggingarinnar, yfirfarið burðarþols-
teikningar af húsinu svo og kannað
húsið sjálft og vil að því loknu lýsa
því yfir að það er vandað og stenst
fyllilega kröfur sem gerðar eru um
burðarþol og jarðskjálftaþol af bygg-
ingaryfirvöldum. Jafnframt harma ég
þá óréttmætu gagmýni sem hönnuðir
hússins hafa orðið fyrir.“
í dag mælir Dagfari
Þeim er ekki fisjað saman, stjóm-
málamönnunum okkar. Eftir átta
vikna þóf slitnaði upp úr stjómar-
myndunarviðræðunum aðfaranótt
mánudags vegna ágreinings um einn
ráðherrastól sem ekki fannst. Af
þessu sést hvað íslensk pólitík er á
háu plani. Hér deila menn ekki um
stefriur eða málefhi, ekki um vinnu-
brögð eða viðfangsefni. Ekki aldeilis.
Ef flokkamir fá ekki stóla eins og
þeim hentar má þjóðarhagur fara til
fjandans, landstjómin og stjómar-
ráðið og orðstír Alþingis. Stólana
skulu þeir fá og stólana fengu þeir.
Nú er Framsókn búin að fá sitt fram
og allt fallið í ljúfa löð.
En það kom fleira til. Steingrímur
hafði hug á að mynda fjögurra
flokka stjóm. En þá uppgötvaði
hann að þar með þ'urfti hann að tala
við sigurvegara kosninganna, bæði
Kvennalistann og Borgaraflokkinn,
en það er alveg tabú um þessar
mundir. Það kemur auðvitað ekki
til greina undir neinum kringum-
stæðum í þessum stjómarmyndunar-
viðræðum að blanda þeim flokkum
inn í viðræðurnar sem kjósendur
greiddu atkvæði. Þegar Steingrímur
mundi eftir þessu gafst hann upp á
fjórflokkastjóminni. Þar að auki
hefði hann þurft að hafa allaballana
Fjandvinir í faðma
með sér. Allballamir hafa að undanf-
ömu verið að reyna að tjasla upp á
flokkinn sinn og koma viti í hann.
Steingrímur talar ekki við flokka
sem gera tilraun til að komast á rétt-
an kjöl. Þá er miklu betra að tala
við íhaldið sem tapaði stórt eins og
allaballar en hefur ekki haft uppi
neina tilburði til að skýra og skil-
greina það tap. Ósigurinn virðist
falla Sjálfstæðisflokknum vel í geð
og þess vegna er íhaldið vænlegri
kostur til stjómarsetu heldur en hitt
dótið sem ýmist sigraði í kosningun-
um eða er að reyna að taka sig á.
En það sem réð úrslitum um að
stóllinn fannst og ákvörðun var tek-
in um að mynda nýja Stefaníu vom
kveðjumar sem formennimir sendu
hver öðrum að loknum fúndinum
langa um helgina. Jón Baldvin sagði
að Steingrímur hefði svikið á síðustu
stundu. Steingrímur sagði að Jón
Baldvin segði ósatt. Steingrímur fór
fram á formlega afsökunarbeiðni frá
Jóni Baldvini en Jón Baldvin svar-
aði með hortugheitum. Ekki batnaði
ástandið þegar spurðist að Stein-
grímur hefði afhent trúnaðarskjölin
úr viðræðunum til annarra flokka.
Þá fór allt í háaloft og trúnaðar-
bresturinn varð alger.
Mitt í þessum hólmgöngum komst
ástarsambandið á. Þegar kveðjumar
urðu hvað kaldastar féllust þeir
fjandvinimir í faðma. Það vom
brigslyrðin og trúnaðarbrotin sem
gerðu útslagið. Ný ríkisstjóm er að
fæðast.
Af hveiju datt mönnunum þetta
ekki fyrr í hug? Ef þeir hefðu sleppt
allri þessari kurteisi og væmni en
slegist strax í upphafi fyrir opnum
tjöldum og talað nógu illa hver um
annan hefði þjóðin ekki þurft að
bíða í tvo mánuði eftir ríkisstjóm.
Reyndar er þessi aðferð ekki ný
af nálinni. Það er gamalt húsráð að
hjón rífist duglega og hreinsi and-
rúmsloftið áður en sættir takast.
Hjónabandið gengur aldrei betur en
einmitt eftir almennilegt rifrildi og
helst slagsmál. Sama lögmál gildir
augsýnilega í pólitíkinni og nú er
bara að vona að þeir skvetti úr klauf-
unum með reglulegu millibili og
skammi hveijir aðra fyrir trúnaðar-
brot og ósannindi og þá er nokkurn
veginn pottþétt að þetta verður góð
og langlíf ríkisstjóm.
Verst er hvað Steini greyið er kurt-
eis og ráðvandur maður. Hætt er við
hann verði útundan í ráðherraslagn-
um og nái því ekki að skapa heilbrigt
andrúmsloft með því að baknaga og
tortryggja hina ráðherrana. Þor-
steinn verður að læra þá iðju sem
allra fyrst ef hann ætlar að duga í
ríkisstjóm með þeim Jóni Baldvini
og Steingrími. Hann lifir þetta
stjómarsamstarf ekki af nema beija
hina til hlýðni í tíma og ótíma.
Nú er sem sé stóllinn fundinn. Nú
er búið að mynda stjóm um það að
sigurvegarar kosninganna komist
ekki að. Nú er búið að upplýsa trún-
aðarbrot og ósannindi hjá þeim sem
ætla að starfa saman. Nú er kominn
ríkisstjóm í landinu sem kann að
tala illa um þá sem í henni sitja.
Betra getur þetta ekki verið.
Dagfari