Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. 5 Fréttir Grfuriegur verðmunur á grænmeti: Meira en 216 prósenta veið- munur á innfluttu kínakáli Það er betra að vera vel á verði þeg- ar keypt er í matinn. Samkvæmt nýjustu verðkönnun Verðlagsstofn- unar er gífurlegur verðmunur á grænmeti milli verslana. Verðmunur á innflutti kínakáli var hvorki meiri né minna en 216%. Það kostaði 49,30 kr. í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki en 228 kr. hjá Kaupfélagi Héraðsbúa, Egilsstöðum. Á innfluttum púrru- lauk munaði 217%. Hann var ódýrastur hjá SS í Glæsibæ, kostaði 158,05 kr., en dýrastur var laukurinn, 501,20 kr., hjá Kjörvali í Mosfells- sveit. Jöklasalat, laukur og spergilkál er nú eingöngu til innflutt. Verðmunur á milli verslana er mikill, munar tvö- földu til þreföldu verðinu. Sami munur er á innfluttum gulrótum og hvítkáli. Á íslensku grænmeti var mesti munur á steinselju. Búntið var ódýr- ast á 18 kr. í versluninni Kópavogi í Kópavogi en 50 kr. þar sem það var dýrast, hjá Nýjabæ Seltjarnarnesi. 155% munaði á grænni papríku. Hún var ódýrust seld á 194 kr. kg. hjá versluninni Tindastóli í Skagafirði en dýrust var hún á 495 kr. hjá Vöruvali á ísafirði. Þá munaði 106% á verði blaðsalats, Ódýrast var salat- ið hjá Víði í Austurstræti, 35 kr., en dýrast var það 72 kr. í Vöruvali, ísafirði. Verðmunur á íslensku og innfluttu grænmeti var mikill. Meðalverð á innlendum gulrótum reyndist 88% hærra en á innfluttum. Meðalverð á innlendu kínakáli reyndist 67% hærra en þvi innflutta. Takmarkað framboð er enn á þessum tegundum innanlands. Innlend framleiðsla var ekki dýrust í öllum tilvikum. Inn- fluttar gulrófur voru að meðaltali 90% dýrari en innlendar. Þar er um nýja erlenda uppskeru að ræða en innlendu rófurnar eru siðan í fvrra. I þessari könnun Verðlagsstofnun- ar, sem birt er í heild í 13. tbl. Verðkönnunar og hægt er að fá hjá Verðlagsstofnun, var birt dæmi um leiðbeinandi smásöluverð í Dan- mörku í síðustu viku. í nær öllum tilvikum er verðið hér á landi hærra. Borið saman við verð á innfluttu kinakáli er það 60-70% hærra hér á landi en munurinn verður miklu meiri ef borið er saman verð á kína- káli sem framleitt er hér á landi, getur farið í allt að 190%. Gulrætur sem ræktaðar eru hér á landi geta verið hvorki meira né minna en 240% dýrari hér en í Danmörku. Kartöflur hér á landi eru 80-130% dýrari en í Danmörku. -A.BJ. Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins: Segir heila skrokka 0,8 prósent af haugakjötinu Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins segir að aðeins 1,5 tonn séu í heilum skrokkum af þeim 177 tonnum kinda- kjöts sem um þessar mundir er verið að fleygja á sorphauga. Samkvæmt þessu eru heilu skrokkamir ekki nema 0,8% af öllu kjötinu. Upplýsingaþjónustan segir að haugakjötið sé einkum ærkjöt og dilkaírampartar frá sláturtíð 1985. Af um 270 tonnum séu hátt i 100 tonn hirt og send í verslanir á niðursettu verði. Lærin séu söguð af ærskrokkun- um en frampörtum hent. Framhiyggj- arsneiðar séu sagaðar af dilkaframp- örtum en afganginum hent. Einu heilu skrokkarnir sem fari á haugana séu um 1.500 kíló af hrúta- kjöti og kjöti í flokki F IV. það er „fullorðið í fjórða flokki". -KMU Þessi mynd var tekin á sorphaugunum í Gufunesi fyrir hálfum mánuði rétt áður en jarðýtan urðaði kjötskrokkana. DV-mynd S Bvfreiðaeftirlitið í frí: Lögreglan klippir stíft Þeir bifreiðaeigendur sem enn hafa ekki fært bíla sína til skoðunar mega eiga vona á að númerin verði klippt af bilum þeirra því nú stendur yfir átak hjá lögreglunni varðandi óskoð- aða bíla. Þeir bifreiðaeigendur sem vilja koma sínum málum á hreint er bent á að Bifreiðaeftirlitunum í Reykjavík, Hafnarfirði og í Keflavík verður lokað vegna sumarleyfa þriðja þessa mánaðar og ekki opnuð aftur fyrr en sjöunda ágúst. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er mikið um að það þurfi að klippa númer af bílum. Lögreglan fór sér hægt á meðan Bifreiðaeftirlitið var lokað en nú verður engin miskunn sýnd. Á meðan sumarleyfi Bifreiðaeft- irlitsins stendur yfir munu umskrán- ingar og nýskráningar ásamt prófúm ökumanna verða með venjulegum hætti. -sme Lögreglan sviptir einn vagninn númeri sínu. DV-mynd S Kvafa Brunamálastofnunar: Breytingar á tívolíþakinu! „Niðurstaða umsagnarinnar er sú að plastið stenst ekki danskar kröfúr og þetta plast er ekki leyft í Danmörku," sagði Bergsteinn Gizurarson en hon- um var að berast í hendur álit dönsku brunavamanefndarinnar sem sam- komulag varð um milli Brunamála- stofnunar og eigenda tívolísins í Hveragerði að leita eftir. Málavextir eru þeir að þakklæðning tívolísins Eden-Borgar er úr plastefni sem Brunamálastofnun getur ekki fellt sig við og telur ekki uppfylla þær kröf- ur sem gera þurfi til mannvirkis af þessu tagi. Eigendurnir segja aftur á móti að stofnunin hafi haft sýnishom af efninu í marga mánuði án þess að gera athugasemd. Segja þeir að það kosti 6 milljónir að skipta um klæðn- ingu. Var sæst á að fá umsögn erlendra aðila sem nú er komin. „Plastið uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar em til þess. Kröfumar em að það drjúpi ekki og slokkni í því af sjálfu sér þó það brenni í eldi frá öðm,“ sagði Bergsteinn og bætti því við að næsta skref yrði að sættast á hvemig skipt yrði um plast á þakinu. Taldi hann að gerð yrði fram- kvæmdaáætlun í samráði við stofnun- ina. Engin könnun á aðstæðum hér „Þessi umsögn er lítið annað en til- vitnun í dönsk lög og reglugerðir. Þeir hafa ekki komið og skoðað að- stæður heldur líta i lög og reglugerðir og gefa sér forsendur og komast því að þessari niðurstöðu.1' sagði Ólafur Ragnarsson, lögmaður tívolísins Ed- en-Borgar. Ólafur sagði að ef ekki vrði gerð könnun á aðstæðum í tívolíinu vrði ekki hægt að meta rétt bmnaeig- inleikana sem þar væm. „Annars stöndum við í viðkvæmum viðræðum við bmnamálastjóra um þessi mál og því vil ég helst ekkert tala um þetta i fjölmiðlum á meðan," sagði Ólafur. -JFJ FYRIRTÆKI - STOFNANIR LJÚFFENGIR MATARBAKKAR Verði ykkur að góðu SENDUM Leitið tilboða Veitingamaðurinn sími: 686880. Matseðill Vikuna 29. júni-3. júli Mánudagur Sveskjusúpa. Ostbökuð ýsuflok m/hrásalati. hvítum kartöflum og remolaði. Þriðjudagur Hænsnakjötssúpa. Hakkað buff m/lauk, grænum baunum, djúpsteiktum kart- öflum og paprikusósu. Miðvikudagur Tómatsúpa. Marineraður lambafram- hryggur m/steiktum kartöfl- um, gulrótasalati og brúnni sósu. Fimmtudagur Bláberjagrautur m/t>eyttum rjóma. Hangikjötsbitar i rjómagræn- metissósu, m/tartalettu og hvitum kartöflum. Föstudagur Sellerlsúpa. Beinlausir fuglar (nautakjöt m/gulrótum og baconi) m/ hrásalati og kartöflumús. Desert. Matseðill Kabarett Vikuna 29. júní- 3. júli Mánudagur Sveskjusúpa. Brauð með tómötum, agúrk- um, eggjum. Jurtapaté með sýrðum rjóma. Þriðjudagur Hænsnakjötssúpa. Brauðterta m/rækjusalati og laxasalati. Ávextir. Miðvikudagur Tómatsúpa. Brauð m/svinasteik og rauð- káli. Karrísíld m/rúgbrauði og smjöri. Fimmtudagur Bláberjagrautur m/þeyttum rjóma., Pizza Milanaise m/hrásaiati. Melóna. Föstudagur Sellerisúpa. Fyllt kjúklingarúlletta m/kart- öflusalati. Ostamauk. Desert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.