Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 2. JÚLl' 1987. 7 Atvinnumál Nýjar mælingarreglur fiskiskipa: Fjölmörg vandamál sem þarf að leysa -skipstjómarréttindi,veiðiréttindiogviömiöunarreglurkjarasamningabídaúrlausnar Hinar nýju mælingarreglur skipa, sem tóku gildi hér á landi í gær, 1. júlí, eru alþjóðareglur sem íslendingar hafa tekið upp. Breytingamar eru fólgnar í því að nú eru skip ekki lengur mæld í brúttólestum eins og verið hefur held- ur í tonnum. Að sögn Páls Hjartarson- ar hjá Siglingamálastofhun er það ekki sjálfgefið að 100 brúttólesta skip teljist meira en 100 tonn samkvæmt nýju mælingarreglunum. Þó sagði hann að hér á landi myndu skip í langflestum tilfellum mælast upp á við samkvæmt nýju reglunum. Páll sagði að þegar skip væru mæld í tonnum ætti það ekkert skylt við þyngd skips- ins né burðargetu. Þess vegna gætu tvö skip, sem bæði væru talin 300 tonn að stærð, borið mismikinn afla. Hann sagði það mjög flókið mál að útskýra mælingarreglumar. Fjölmörg vandamál munu skapast hér á landi vegna þessara nýju reglna. Þau skip sem smíðuð vom eða smíði var hafin á fyrir 1. júlí fá aðlögunar- tíma varðandi mælingar fram til 1. janúar 1994. En skip sem smíði er hafin á eftir 1. júlí verða mæld sam- kvæmt nýju reglunum. Þau vandamál sem leysa þarf em meðal annars skipstjómarréttindi manna. Þar hefur verið miðað við brúttólestir. Nú þarf að breyta því yfir í tonnastærð skipa og nota aðra við- miðun. Sama er að segja um veiðiréttindi skipa. Þau fara sums staðar eftir brút- tólestafjölda þeirra. Þar þarf sömuleið- is að breyta yfir í tonnafjölda og breyta viðmiðunarreglum. Þá þarf að breyta viðmiðunarreglum varðandi kjör sjómanna á fiskiskipum og er þar fyrst og fremst um að ræða bátakjara- og togarasamninga. Á tog- urum, sem í dag em 500 bróttólestir eða minni, gilda bátakjarasamningar. Á togurum, sem em stærri, gilda hinir svonefndu togarasamningar. Þeir em mjög frábmgðnir bátakjarasamning- unum, auk þess sem fleiri menn eru í áhöfh stóm togaranna en þeirra minni. Það er því ljóst að mikið verk er framundan við að levsa þessi mál. -S.dór Mælingarreglurnar: Tvöfalt kerfi næstu 6 árin - mál 9,9 lesta bátanna fylgir lögum um fískveiðistefnu Ámi Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði að ljóst væri að ýmis vandamál yrðu því samfara að hafa tvöfaldar mælingar- reglur fiskiskipa hér á landi næstu 6 árin. Öll skip, sem hafin er smíði á eftir 1. júlí, verða mæld samkvæmt nýju reglunum en hin eldri hafa aðlög- unartíma varðandi mælingu eftir þeim til 1. janúar 1994. Ámi sagði að taka þyrfti því á hverju máli fyrir sig í þessu efni um leið og það kemur upp. Margir sem verið hafa að kaupa 9,9 brúttólesta bátana, sem em í raun niðurmældir samkvæmt gömu mæl- ingarreglunum og em því undan- þegnir kvótakerfinu eins og aðrir bátar sem em minni en 10 brúttólest- ir, bera nú ugg í brjósti um að missa réttindin og falla undir kvótakerfið. Ámi Kolbeinsson benti á að í raun kæmu þessir bátar nýju mælingarregl- unum ekkert við hvað varðar réttindi þeirra til undanþágu frá kvótakerfinu. Þau réttindi ákvarðast af lögum Al- þingis um fiskveiðistefnuna og þau falla úr gildi um næstu áramót. Þá verður Alþingi að setja ný lög um fisk- veiðistefhuna. Enginn getur sagt til um hvemig þau lög verða, né hverjar viðmiðunarreglur varðandi undan- þágu frá kvótakerfinu verða né heldur hvort kvótakerfi verður áfram eða þá með hvaða hætti. Þeir þ\Tftu i raun ekkert að óttast mælingarreglumar heldur lögin um fiskveiðistefnuna. ef þeir hafa eitthvað að óttast. Ámi sagði þetta vera lýsandi dæmi um eitt af þeim málum sem þarfnast úrlausnar í kjölfar breytinganna. -S.dór Á ísafirði er greinilega starfandi vinnuskóli. Þar má sjá marga ungl- inga vinna við ýmiss konar verk, sópa götur, garðyrkjustörf, mála götukanta og fleira og fleira. Útsend- arar DV hittu tvær bráðhressar 13 ára stúlkur, þær Sigurlaugu Mariu Bjarnadóttur, sem stendur á mynd- inni, og ínu Björg Össurardóttur, en þær voru í óðaönn að mála götu- kanta og að sjáfsögðu gula. Þær sögðu að þeim líkaði vel að vinna hjá vinnuskólanum. Kaupið sögðu þær ágætt, 93,88 á tímann. Vinnu- skolinn á ísafirði starfar frá 1. júni og út júlimánuð. -sme/DV-mynd GVA Veruleg hækkun hefur nú orðið á farsímum. Söluskattur á farsíma Fjármálaráðherra hefur fellt niður söluskattsundanþágu á farsímum frá og með deginum í gær að telja, að því er fram kemur í frétt frá fjármálaráðu- neytinu. Samkvæmt þessari ákvörðun er sala farsíma söluskattsskyld frá og með 1. júlí oghækka því farsímar um 25%- -ój Siglufjörður: íþróttahús reist Guðmundur Daviðssan, DV, Siglufirði: Síðastliðinn fóstudag var flaggað í tilefhi þess að íþróttahús á Siglufirði var reist. Áætlað er að verktaki skili húsinu fullklæddu 12. ágúst næstkomandi. Þá verður eftir að slípa gólfið og ganga frá öllu inni í húsinu. Vonast Siglfirð- ingar eftir skilningi fjárveitingavalds- ins á mikilvægi þess að Ijúka byggingu hússins sem fyrst því þessi bygginga- máti er margfalt ódýrari en stein- steyptar byggingar eins og tíðkast hafa og ofviða eru öllum minni sveitar- félögum. INNFLUTTIR NOTAÐIR CHEROKEE LAREDO KR. 1.390.000 CHEROKEE CHIEF KR. 1.290.000 CHEROKEE PIONEER KR. 1.180.000 Bílar þessir eru keyptir af AMC JEEP verksmiðjun- um og eru því í ábyrgð sem og aðrir bílar sem fluttir eru inn af AMC JEEP umboð- inu á íslandi, Agli Vil- hjálmssyni hf. f - ^»i: ■ 11 j ■ a/X' Í W&\ - -j. WAGONEER LIMITED KR. 1.495 imiiB Bílar þessir eru allir árg. 1987, lítið eknir með 4.0 L 6 cyl. vél, sjálfskiptir, rafmagns- læsingar, rafdrifnar rúður og hlaðnir aukahlutum. riJeep. EGILL VILHJÁLMSSON HF., umboðið Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.