Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Síða 9
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. 9 Afleiðingar sólu á hátæknibúnaði til Sovétmanna: Innflutningsbann á Kongsberg og Toshiba, Kongsbevg gjaldþrota? Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með miklum meiri- hluta að banna í tvö til fimm ár innflutning frá norsku vopnaverk- smiðjunni Kongsberg Vápenfabrikk og japanska stóríyrirtækinu Tos- hiba. Þessi fyrirtæki stóðu fyrir sölu á hátækni til Sovétríkjanna, sem gera sovéska hemum mögulegt að smíða mjög hljóðlátar kafbátaskrúf- ur. Þótt tap Toshiba verði meira í pen- ingum talið er nær víst að innflutn- ingsbann ríði Kongsberg Vápenfa- brikk að fullu. Fyrirtækið hefur síðustu misseri átt í vemlegum fjár- hagsvandræðum og tapaði á síðasta ári 918 milljónum norskra króna. Kongsberg var við það að ná samn- ingum við bandaríska sjóherinn um sölu á Penguin eldflaugum þegar fréttist af viðskiptum með hátækni við Sovétríkin. Áætlanir um bætta afkomu fyrirtækisins, sem er í ríkis- eign, miðuðust við að ná þessum samningum við bandaríska flotann. Litlar líkur eru nú á að um nokkur viðskipti verði að ræða við Banda- ríkin næstu tvö til fimm árin og er vandséð hvemig á að bjarga Kongs- berg úr þessu. Til að samþykkt öldungadeildar- Einn af tveim æðstu yfirmönnum Toshiba, Shoichi Saba, tilkynnir afsögn sína. Á hægri hönd hans er nýr forseti fyrirlækisins, Joichi Aoi. Símamynd Reuter innar frá því í gær nái ffarn að ganga þarf fulltrúadeildin að leggja blessun sína yfir hana og Reagna að skrifa undir lögin. Talsmaður ríkisstjómar Reagans, Charles Redman, sagði í gær að ekki væri rétt að beita fyrir- tækin tvö slíkum hefndarráðstöfun- um. - Salan á hátækni til Sovétríkj- anna er til rannsóknar hjá vfirvöldum í Noregi og Japan og það er rétt málsmeðferð. sagði Redman. Tveir æðstu vfirmenn Toshiba hafa sagt af sér og þar með tekið á sig ábvrgð á þeim vandræðum sem salan á hátækninni hefur haft í för með sér. Fvrirtækið neitar sem fyiT að hafa brotið lög. Það er víst að ríkisstjómir Japans og Noregs taka sölubann fyrirtækj- anna í Bandaríkjunum óstinnt upp og þvkir óþarflega að sér og sínum vegið. Ein meginástæðan fyrir refsigleði þingmanna öldungadeildaidnnar er að bandarísk fiTÍrtæki eiga í sam- keppni við fyrirtækin tvö um sölu á Bandaríkjamarkaði og salan á há- tækni til Sovétríkjanna sé aðeins tvlliástæða til að koma höggi á Tos- hiba og Kongsberg Vápenfabrikk. segja menn í Japan og Noregi. Reagan tilnefnir Bork í Hæstarétt Ólafur AmaisaruDV, New York: Reagan Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær Robert Bork, dómara við alríkis- áfrýjunarréttinn í Washington, i embætti hæstaréttardómara. Ákvörð- unin kom ekki á óvart því strax síðastliðinn mánudag gerðu menn að því skóna að forsetinn myndi velja Bork. Robert Bork er 60 ára að aldri. Hann stundaði nám við Chicagoháskóla og var prófessor í lögum við háskólann í Yale. Frá 1973 til 1977 var hann ríkis- lögmaður Bandaríkjanna. Bork er giftur og 3ja bama faðir. Reagan sagði í gær að það væri með mikill ánægju sem hann tilnefhdi Bork til starfans. Sagði hann Bork vera einn helsta talsmann aðhalds í dómsmálum sem völ væri á. íhaldssamir stjóm- málamenn í Bandaríkjunum fögnuðu tilnefiiingu Borks en frjálslyndir lýstu að sama skapi andstöðu við hana. íhaldsmenn telja að dómsstólar eiga að sýna aðhaldssemi, það er að segja túlka stjómarskrána og lög þröngt og láta löggjafarþing um að leggja stefn- una. Frjálslyndir em hinsvegar á þeirri skoðun að dómstólar eigi að fylgjast með tíðarandanum og breyta túlkun á lögum og stjómarskrá eftir því sem tímarnir breytast. Hljóti Bork staðfestingu öldunga- deildarinnar gæti það þýtt stefnu- breytingu Hæstaréttar í ýmsum mikilvægum málum. Fóstureyðingar em eitt dæmi. Hæstiréttur úrskurðaði árið 1973 að fóstureyðingar skyldu löglegar í Bandaríkjunum. Kvennrétt- indahreyfingar hér vestra segja að íhaldssamur hæstiréttur muni banna fóstureyðingar. Ljóst er að sá ótti er ekki á rökum reistur. Eina líklega breytingin yrði sú að löggjafarþingum einstakra ríkja yrði falið að ákveða hvaða aðgerðir yrðu leyfilegar í við- komandi ríkjum. Bork er óumdeilanlega harður íhaldsmaður en engu að síður hæfur og virtur lögfræðingur. Það sem helst virðist geta skapað andstöðu gegn honum er að það var hann sem fram- fylgdi skipuninni um svonefnt „laug- ardagsmorð" þegar hann í október 1973 rak Archibald Cox, saksóknara i Watergatemálinu, að fyrirmælum Nix- ons, þáverandi forseta. Áður höfðu Elliot Richardson dómsmálaráðherra og aðstoðarmaður hans sagt af sér embætti til að þurfa ekki að fram- fylgja skipuninni. Edward Kennedv, þingmaður frá Massachusetts, sagði í gær að sá sem hefði rekið Arcibald Cox ætti ekkert erindi í hæstarétt. Elliot Richardson, fyrrum dómsmálaráðherra. sagði hinsvegar að Bork hefði aðeins fram- fylgt skyldu sinni. Það liggur fyTÍr að einhverjar deilur verða í þinginu um tilnefningu Borks. Af ummælum manna i gær má ráða að þær verða frekar af tilfinningaleg- um toga en að deilt verið um hæfni Borks. Öldungadeildin hefur tvivegis áður fjallað um hæfhi Borks og þá vegna skipunar hans í önnur dómara- embætti. í bæði skiptin var harrn sagður hæfur og verður því erfitt fyrir þingmenn að segja nú að hann sé óhæfur. Reagan tilkynnir tilnefningu Borks i gær. Bork er frægastur fyrir aðild sina aö „laugardagsmorðinu" í forsetatið Nixons. Simamynd Reuter Útlönd Tíu ár eftir Ibúar Hong Kong minntust þess í gær að nú eru rétt tíu ár þangað til yfirráðum Breta yfir nýlendunni lýkur og hún gengur undir kín- verska stjórn. Bretar hafa farið með yfirstjórn Hong Kong í 146 ár nú, en þann 1. júlí 1997 verður nýlendan afhent Kínveijum, sam- kvæmt samningi sem undirritaður var fyrr á þessu ári. Lýst eftír njósnara Yfirvöld í Vestur-Þýskalandi hafa gefið út handtökuskipun á mann sem grunaður er um að vera einn af njósnurum sovésku leyni- þjónustunnar KGB í V-Þýska- landi. Maðurinn hefur gengið undir fölsku nafiú í Wiesbaden þar sem hann hefúr kallað sig Franz Becker. Telja talsmenn v-þýsku leymiþjónustunnar að Becker hafi verið jfirmaður Margret Hoeke, einkaritarans sem fyTÍr nokkru var ákærð fyrrir njósnir í þágu Sovét- ríkjanna. Barbie veikur Aðalverjandi Klaus Barbie, fyrr- um gestapóforingjans sem er fyiir rétti í Lyon í Frakklandi, sakaður um stríðsglæpi. skýrði frá þvi í gær að heilsu Barbie hrakaði nú mjög. Gæti jafnvel svo farið, að mati veijandans, að hætta yrði við rétt- arhöldin. í gær og í dag flvtur veijandi Barbie lokaræðu sína fyrir dóm- stólnum í Lvon. Saksóknari hefúr þegar krafist lífstíðardóms yfir Barbie en veijandi heldur fast við fyrri kröfúr um að máli Barbies verði vísað frá, hann hreinsaður af ákærum og sleppt lausum. Kviðdómur og dómarar í máli Barbie eiga að fella dóm sinn yfir honum á morgun. föstudag. 800 milljónir Þau Dorothy og Glenn Banner brostu breitt í gær þegar þau tóku við ávísun upp á liðlega sex hundr- uð þúsund Bandaríkjadali eða sem nemur tuttugu og fjórum milljón- um islenskra króna frá fylkishapp- drætti Pennsylvaníu í Bandaríkj- unum. Þau hjónakomin höföu enda ástæðu til að brosa þvi ávis- unin var aðeins hin fyrsta af mörgum. Alls unnu þau liðlega tuttugu milljónir dala eða um átta himdmð milljónir íslenskra króna í happdrættinu og fa upphæðina smám saman greidda með jöfiium árlegum greiðslum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.