Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. Utlönd Ríkir - fátækir: Krepputákn á lofti Eymdin i Suöur-Ameriku verður ekki einangruð frá efnahagslifi Vestur- landa: Hvenær kemur kreppan? - Þegar annars vegar er til fólk sem kaupir málverk á mörg hundruð milljónir og hins vegar heimilisleys- ingjar á vergangi er kreppa í aðsigi, segir bandaríski hagfræðingurinn Ravi Batra í bók sem vakið hefur þónokkra athygli. Batra skrifaði bókina snemma á þessum áratug og reyndi að fá hana gefria út. Enginn útgefandi sýndi handritinu áhuga og á endanum réðst Batra í að gefa sjálfur út bók- ina. Nýlega var bókin útgefin að nýju, bætt og endurskoðuð. og í þetta sinn af einum þekktasta bókaútgef- anda í Bandaríkjunum, Simon og Schuster. Bókin heitir „ Kreppan mikla árið 1990“ og sktTÍr frá áþekkum aðstæð- um i efnahagslífí Bandaríkjanna nú og voru fyrir kreppuna 1929 sem fékk viðumefhið heimskreppan mikla þegar hún var flutt út frá Bandaríkj- unum á fjórða áratug aldarinnar. Ekki síðan fyrir kreppu hefur jafh- mikill auður safhast á svo fáar hendur sem nú. Eitt prósent þjóðar- innar á 34 prósent þjóðarauðs sem er hæsta hlutfall síðan kreppan 1929 skall á. Þessa staðreynd ásamt skuldasöfhun bandaríska alríkisins og einstaklinga túlkar Batra á þann veg að fyrr en seinna komi aftur- kippur sem verði að kreppu. Þeim hagfræðingum fjölgar sem eru svartsýnir á framtíð efhahags- mála í heiminum. Leonard Silk er dálkahöfundur um efnahagsmál í New York Times. Hann talaði ný- lega við nokkra virta hagfræðinga um framtíðarhorfur í efnahagsmál- um. Flestir töldu þeir líkur á að kreppueinkenna \töí bráðlega vart og sögðu sumir að miklar líkui- væm á kreppu á næsta áratug sem vtöí áþekk heimskreppunni miklu á fjórða áratugnum. Efnahagsmálarit- stjóri The Wall Street Joumal. Alfred Malabre yngri. segir f nýrri bók að búast megi við „hvirfilbyl“ í efnahagslífinu á næstunni. Skelfileg áhrif Þeir sem um hugsanlega kreppu fjalla em á einu máli um það að áhrifin verði mun skelfilegri en í kreppunni 1929. Nútímasamfélag er mun háðara stöðugu efnahagskerfi og veikari fyrir skvndilegum breyt- ingum en áður var. Samskipti innan hvers samfélags og ríkja á milli bvggja á því að viðskipti með vöm og þjónustu gangi nokkum veginn sinn vanagang og em ríkari og þró- aðri þjóðir mun háðari þessum aðstæðum en hinar fátækari sem hafa mátt búa við kröpp kjör í lang- an aldur. Fátækari þjóðir hafa enn ekki haft efni á því að byggja upp þróað stjóm- og efnahagskerfi sem íbúar Vesturlanda eiga að venjast Tvenns konar misskipting Misskipting auðs er yfirleitt meg- inþáttur í spám um efnahagskreppu. Alvarlegasta afleiðing misskipting- arinnar er sú að bilið á milli þein-a sem eiga og þeima sem eiga ekki verður svo stórt að fátækur almenn- ingur getur ekki keypt þá vöm sem eigur hinna ríku gefa af sér. Fram- leiðslan verður óseljanleg, fyrirtæk- in hætta starfsemi: kreppa skellm- á. Þessar aðstæður geta skapast inn- an Bandaríkjanna og haft keðjuáhrif á efnahagslíf allra landa eins og gerðist 1929. Aðrir benda á að annars konar misskipting geti haft alvarlegri áhrif á heimsbúskapinn en kreppa í Bandaríkjunum. Það sé misskipting auðsins á milli ríkra þjóða og fá- tækra eða ríkra heimsálfa og fátækra heimsálfa. Staða Suður-Ameríkuþjóða og landa í Afríku er núna slík að þessar þjóðir hafa ekki efni á að borga af- borganir af sínum skuldum við banka_ og ríkisstjóði á Vesturlönd- um. Á ráðstefnu í Nígeríu fyrir skömmu um efiiahagsvandamál Áfr- íkuþjóða kom fram að til að leysa vandann, sem versnar sífellt, þarf að endurskipuleggja aðstoð við ríki þriðja heimsins og gera þeim kleift að byggja sjálf upp eigin efnahag. Sem stendur fer drjúgur hluti þróun- araðstoðar til spillis, ýmist vegna mistaka og rangrar stefnu gefanda eða þiggjanda. Þótt þjóðir Afríku séu ekki eins djúpt sokknar í skuldafenið og lönd Suður-Ameríku eru vinsamleg tákn ekki beinlínis á lofti hjá hinum ríku þjóðum norðursins. Þróunin síðustu misseri er sú að dregið hefur verið úr aðstoð við ríki þriðja heimsins og ekkert bendir til að það breytist á næstunni. „Hjálpum þeim“ er dottið af vin- sældalistanum. Seðlar í veggfóður, pakkningar úr myntinni Þrátt fynr að ríkisstjóm sandin- ista í Nicaragua hafi að hluta til tekist það ætlunarverk sitt að bæta hag hinna verst settu í landinu stendur hún nú frammi fyrir efna- hagslegum vanda sem ekki verður auðleystur. Óð.averðbólga hefur sett allt verðlagsjafnvægi úr skorðum og hmn gjaldmiðils landsins er komið á það stig að almenningur gæti horf- ið aftur til vömskiptakerfis fremur en að eiga við gjörsamlega verð- lausan pappír og mynt. Óðaverðbólga Nær allan þennan áratug hefur verðbólga verið mikil í Nicaragua og hefur farið hraðvaxandi á síðustu árum. Árið 1982 var verðbólga í landinu liðlega 22 prósent, 1983 var hún um 33 prósent og liðlega 50 pró- sent árið 1984. Á árinu 1985 fór svo að halla verulega á því verðbólga það ár reyndist um 250 prósent. Á síðasta ári urðu Nicaraguamenn svo að glíma við um 657 prósent verð- bólgu og búist er við að á þessu ári gæti hún orðið um 1.400 prósent. Afleiðingar þessarar verðbólgu em að sjálfsögðu uppsprengt verðlag. Kvöldverður á veitingahúsi getur kostað hundmð þúsunda cordoba sem er allt að tífalt verð samsvar- andi málsverðar fyrir ári. Þegar tillit er tekið til þess að stærsti seðill, sem gefinn hefur verið út í Nicaragua, er 1.000 cordobar að nafhgildi fæst skýring á því hvers vegna svo margir Nicaraguabúar ganga með stórar töskur. Þeir þurfa að hafa mörg seðlabúnt meðferðis í hveija innkaupaferð. Sem dæmi um það hversu verð- lausir peningar Nicaragua em orðnir má nefna tvennt. f fyrsta lagi það að nýlega ráðlagði einn af hag- fræðingum landsins fólki að þekja veggi heimila sinna með peninga- seðlum fremur en kaupa veggfóður því það yrði ódýrara. í öðm lagi mun svo vera orðinn skortur á mynt í landinu því ódýrara er að búa til pakkningar úr myntinni sjálfri en kaupa pakkningar fyrir hana úr búð. Efnahagslegur hernaður Styrjöldin milli stjómarhei-s sandinista og skæmliða kontra- hreyfingarinnar á að sjáflsögðu stóran hlut að því hvemig komið er í efiiahagsmálum Nicaragua. Nær helmingur ríkisútgjalda fer til rekst- urs hemaðarins gegn contraskæm- liðum, sem njóta dyggilegs stuðnings Bandaríkjamanna, bæði hemaðar- lega og fjárhagslega. Kontraskæmliðar, sem ekki hafa náð neinu af markmiðum sínum þrátt fyrir fimm ára samfelldan hem- að, hafa nú tekið upp nýja baráttu- hætti. Þeir beina nú vopnum sínum að skotmörkum sem valdið geta efnahagslegum erfiðleikum, fremur Seðlastaflinn á borðinu er þrjár milljónir cordoba sem er mynt Nicaragua. Þessi upphæð samsvarar um sextán þúsund krónum íslenskum. simamynd Reuter en þeim sem hafa beint hemaðarlegt mikilvægi. Margir fréttaskýrendur telja að sú stefna sé mnnin undan rifjum Bandaríkjamanna sem telji næsta vonlítið að koma stjórn sandinista frá með vopnavaldi contra einu saman. Telji Banda- ríkjastjóm vænlegra að reyna að skapa efhahagslegt neyðarástand, með tilheyrandi hungmsneyð, í Nic- aragua og nota það til að grafa undan vinsældum stjómarinnar. Blinda Bandaríkjamanna Fáir aðrir en contraskæmliðar og harðlínumenn ríkisstjómar Reagans Bandaríkjaforseta trúa því að árang- ur náist með þessum efnahagslega hemaði. Sendimenn vestrænna ríkja í Nicaragua segja að vissulega muni aðgerðimar valda erfiðleikum og neyð í landinu en hins vegar muni þær ekki koma sandinistum á kné. Telja margir þeirra að Reagan Bandaríkjaforseti og ríkisstjórn hans séu haldnir blindu á eðli stjórn- mála í Nicaragua. Forsetinn og ráðgjafar hans vilji einfaldlega ekki horfast í augu við að i stjómartíð sandinista hefur hagur mjög margra Nicaraguabúa batnað til muna. Miðstétt landsins hefur að vísu orðið illa úti vegna aðgerða stjómar- innar en hins vegar hefur tekist að lyfta undir þá allra snauðustu, þann- ig að þeir lifa við töluvert betri kjör en áður. Þá hefur ríkisstjóm sandinista fjölgað mjög sjálfstæðum bændum í landinu þannig að nú er um áttatíu prósent landbúnaðar í einkarekstri. Auk þessa hefur svo ríkisstjóm sandinista efnt til ýmissa ráðstafana, svo sem niðurgreiðslu á matvælum, sem auðvelda láglaunafólki tilver- una. Það er þvf talið ólíklegt að efnahagslegur hemaður Banda- ríkjamanna og kontraskæmliða beri þann árangur sem ætlað er, að fella stjóm Nicaragua úr sessi og þá væntanlega koma á ríkisstjóm sem væri vinsamleg Bandaíkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.