Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Page 13
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. 13 Odýrari gleraugu fynr almenning „Neytendasamtökin vilja beina þeirri ósk til heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra að skipuð verði nefnd til þess að rannsaka gler- augnaverslun á Íslandi í því skyni að finna leiðir fyrir aknenning til þess að geta fengið ódýrari gleraugu en nú tíðkast. í þessu sambandi er bent á þann möguleika að öllum versiunum verði heimilt að seija venjuleg lestrargler- augu. Slík verslun myndi auka verulega samkeppni á umræddu sviði en nú virðasttilteknir fagmenn hafa óeðlileg tök á sölu og verð- myndun gleraugna." Óbreytt tómataverð Heildsöluverð á tómötum hjá Sölu- búið var að losna við eitthvað af um- félagi Garðyrkjumanna hafði ekki framframleiðslunni, úr80kr. íllOkr. breyst í gærmorgun frá því sem það -A.BJ. var 22. júní. Það hækkaði, eftir að Munið að senda ínn upplýsingaseðilinn fyrir heimilisbókhald DV Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar íjötskyldu af sömu stærð og yðar. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks______ Kostnaður í júní 1987: Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. Neytendur Neytendasamtokin vilja banna óbeinar auglýsingar Stjórn Neytendasamtakanna samþykkti nýlega eftirfarandi ályktun vegna auglýsinga í hljóð- og sjónvarpi: „í kjölfar nýrra útvarpslaga hef- ur hljóðvarps- og sjónvarpsrásum fjölgað um meira en helming. Sam- keppni um auglýsingar hefur að sama skapi harðnað. Samfara því hefur orðið óæskileg þróun í birt- ingu hljóðvarps- og sjónvarpsaug- lýsinga. Þær gerast sífellt áleitnari og skrumkenndari ásamt því að dagskrárliðir eru slitnir sundur með birtingu auglýsinga. Jafn- framt hafa óbeinar auglýsingar aukist og sífellt verður erfiðara fyrir neytendur að átta sig á hvað er auglýsing og hvað eðlilegar upp- lýsingar. Neytendasamtökin leggja áherslu á að auglýsingar séu upp- lýsandi og lausar við skrum. í ljósi þróunar undanfarinna mánaða skora Neytendasamtökin á stjórn- völd að setja nú þegar reglur um auglýsingar í útvarpi í þvi skyni að vernda neytendur fyrir óeðlileg- um truflunum á þeim dagskrárlið- um sem þeir horfa og hlusta á. Einnig verða óbeinar auglýsingar bannaðar. Þessum reglum verði einnig ætlað að stuðla að því að auglýsingar séu upplýsandi og veiti sanna mynd af þeim vörum og þjón- ustu sem í boði eru.“ Verðmunurinn meiri en allur viðskiptahallinn Neytendasamtökin kreíjast þess að viðskiptaráðherra skipi nú þegar nefhd til þess að bera saman vöru- verð til neytenda í Reykjavík og helstu borgum í nágrannalöndum okkar,“ segir í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum. Þar segir ennfremur: „Verðlagsstofhun hefur ítrekað kannað innkaupðsverð innfluttrar vöru og komist að þeirri niðurstöðu að íslenskir innflytjendur selja neyt- endum mun dýrari vörur en starfs- bræður þeirra erlendis. Innflytjend- ur hafa jafiian mótmælt þessum staðhæfingum Verðlagsstofnunar með hæpnum rökum. Vöruverð til neytenda hér er mun hærra en í nágrannalöndunum og Neytenda- samtökin krefjast þess af stjóm- völdum að þegar verði kannað af hverju það stafar. Nefrid sú, sem Neytendasamtökin leggja til að verði skipuð, hefji störf nú þegar og ljúki þeim fyrir 1. nóvember næst- komandi. Henni verði falið að kanna verð til neytenda á helstu neysluvör- um, heimilistækjum og öðm sem þurfa þvkir. Neytendasamtökin benda á að hér er um brýnt mál að ræða og fjár- hæðimar sem ber á milli á innkaups- verði hingað og til Bergen em meiri en allur viðskiptahallinn. Um svo háar fjárhæðir er að ræða að krefi- ast verður að ítarleg könnun fari fram á þessum málum nú þegar.“ Það er ekki einungis i Bergen sem almennar nevsluvörur em ódýrari en á íslandi. Neytendasíða DV hefur margsinnis bent á gríðarlegan mis- mun á verði í Revkjavík og öðrum borgum eins og Kaupmannahöfn, Denver og New York og þykir sú borg ekki beint vera með þeim ódýr- ustu í heiminum. -A.BJ. fyrir sjónvarp og útvarp á minni báta, hjólhýsi og húsbíla loksins kom- in. Innbyggður magnari, 15 db. Fáanleg 12 eða 24 volt. Verð kr. 10.950. Sjónvarpsmiðstöðin h/f Síðumúla 2 - Ath. Nýtt símanúmer 68-90-90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.