Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Side 33
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987.
33
Dægradvöl
))
Hún er sko langbest
af okkur öllum“
7 \i :
„Mér er alveg sama þótt ég sé eina
stelpan og fmnst bara betra að spila
í strákaliði," sagði Ingibjörg Harpa
Ólafsdóttir, níu ára og fyrirliði A-liðs
KA á Tommamótinu, ein örfárra
stelpna sem tóku þátt í mótinu.
„Eg hef spilað fótbolta í meira en
þrjú ár og það er það skemmtilegasta
sem ég geri. Núna er ég varnarmað-
ur. Vinkonum mínum finnst þetta
ekkert sérstaklega skemmtilegt, en
mig langar heldur ekkert frekar að
spila í ^telpnaliði."
Ingibjörg sagðist hafa hlakkað til
Tommamótsins frá því í vor og fannst
mjög gaman. Hún ætlaði að reyna
að komast næsta ár líka.
Það var greinilegt að samherjarnir
voru mjög hrifnir af Ingibjörgu því
5?
U
þegar þeir voru spurðir hvernig það
væri að hafa stelpu í liðinu, svöruðu
þeir: „Alveg frábært. Hún Imba er
sko langbest af okkur öllum.“
Og það stóð heima. Á verðlaunaaf-
hendingunni um kvöldið var Ingi-
björg kosin varnarmaður mótsins.
-ý r ^
- 1 v i
v
mmMK
|7| ~ . *?
í ^ , . ■
-■
Ingibjörg Harpa Olafsdóttir, níu ára fyrirliði og varnarmaður, fyrir miðju á myndinni, í hópi samherja úr KA-lið-
inu. Strákarnir sögðu að Ingibjörg væri besti leikmaðurinn í liðinu.
Andri Sigþórsson, markakóngur og
leikmaður mótsins, hampar hér á-
nægður verðlaununum.
Draumurinn
er að verða
atvinnumaður
- sagði Andri Sigþórsson
„Ég kom ekkert endilega til þess
að vinna. Ég kom bara til að spila
fótbolta. Auðvitað er samt alveg frá-
bært hvað mér hefur gengið vel enda
er ég búinn að æfa mikið fyrir þetta
mót,“ sagði Andri Sigþórsson, tíu
ára, í sigurliði KR-inga en hann var
markakóngur mótsins, með 33 mörk,
og auk þess var hann valinn leik-
maður mótsins.
Þetta var í þriðja skipti sem Andri
tók þátt í Tommamótinu, en jafn-
framt það síðasta þar sem hann
verður of gamall næsta ár. Andra
fannst það dálítið miður en sagði þó
að það yrði nóg af öðrum mótum til
að taka þátt í næsta ár. „Ég spila
fótbolta í öllum frístundum," sagði
Andri, „og er búinn að gera það síð-
an ég var fimm ára.“
- Áttu þá engin önnur áhugamál?
„Jú, stundum spila ég líka hand-
bolta.“
Andri sagðist ekki vera neitt sér-
lega þreyttur, enda ætlaði hann strax
að fara út á KR-völl þegar hann
kæmi heim. „Ég ætla að halda áfram
að æfa meðan ég get. Mig langar
mest af öllu að verða atvinnumaður
síðar meir, það er draumurinn.“
Það ert jfaí sem
situr undir stýri.
mÉUMFEROAR
Uráð
sertilbooi
og fidjrara
enangaM
mm
Ein krukka (100 gr.) af Neskaffi samsvarar
1/2 kg. af venjulegu kaffi en kostar ekki nema
kr. 159,-. Kaffipakki (1/2 kg.) kostar hins vegar
á bilinu kr. 165,-til kr. 180,-.
Neskaffi er því ekki bara gott á bragðið - það
er líka ódýrast.
VATNAGARÐAR 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 83788