Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. Andlát Garðar Jónsson sjómaður er látinn. Hann fæddist 25. mars 1909 í Reykja- vík og andaðist 24. júní sl. á Borg- arspítalanum. Hjá Eimskipafélagi íslands hf. starfaði Garðar í alls 60 ár sem er talinn langur starfsaldur og það hjá sama fyrirtæki. Garðar kvæntist Svövu Jakobsdóttur 11. ágúst 1934 og eignuðust þau fjóra drengi. Konu sína missti Garðar 24. desember 1979. Síðustu árin hefur sambýliskona Garðars verið Guðrún Karlsdóttir. Þau hafa átt ánægjulega daga saman og búið síðustu tvö árin að Jökulgrunni 5a, Hrafnistu. Útför Garðars fer fram í dag, fimmtudaginn 2. júlí, klukkan 13.30 frá Fossvogs- kirkju. Reynir Guðmundsson bóndi, Nýja-Bæ í Borgarfirði, lést í Land- spítalanum 22. júní sl. eftir erííð veikindi. Reynir kenndi sjúkleika síðla vetrar sem dró hann til dauða á skömmum tíma. Hann var fæddur á Sauðárkróki 18. júni 4938 og ólst þar upp. Hann gekk að eiga unnustu sína, Ólöfu Guðbrandsdóttur frá Nýja-Bæ, 1. desember 1962 og hófu þau búskap í Nýja-Bæ og hafa búið þar æ síðan. Þeim varð tveggja sona auðið, Guðbrands og Kristins. Reyn- ir verður jarðsunginn frá Bæjar- kirkju laugardaginn 4. júlí kl. 14. Tapað - Fundið Hver saknar hjóls? Grænt kvenreiðhjól var skilið eftir við hús í Garðabæ fyrir ca 3 mánuðum. Upplýsing- ar í síma 14040 eða 53361. Guðrún Halla Þorsteinsdóttir, er lést í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, þann 28. júní sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 3. júlí kl. 13.30. Margrét Pétursdóttir, Aðalstræti 17, ísafirði, Iést 30. júní sl. Útförin fer fram frá Isaíjarðarkirkju laugar- daginn 4. júlí kl. 14. Þórhallur Guðmundsson frá Lauf- ási, til heimilis á Droplaugarstöðum, áður í Furugerði 1, lést í Borgarspít- alanum 30. júní. Útför Margrétar Jónsdóttur, Hrafnistu, Hafnarfirði, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. júlí kl. 10.30. Agnar ívars húsgagnabólstrari, Hávallagötu 11, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu- daginn 3. júlí kl. 13.30. Haraldur Ögmundsson, fyrrver- andi baðvörður i Fellaskóla, Norður- brún 1, verður jarðsunginn frá Askirkju föstudaginn 3. júlí kl. 15. Afmæli 90 ára verður á morgun, 3. júlí, frú Guðrún Ólafsdóttir, fyrrum hús- freyja í Unaðsdal á Snæíjallaströnd. Eiginmaður hennar var Helgi Guð- mundsson bóndi og útvegsmaður þar. Hann lést árið 1945. Guðrún ætlar að taka á móti gestum á þessum merkisdegi sínum í Atthagasalnum á Hótel Sögu á afmælisdaginn kl. 15-18. 50 ára afmæli á í dag, 2. júlí, Harald- ur Sumarliðason, byggingam'eistari og forseti Landssambands iðnaðar- manna. Hann tekur á móti gestum að Skipholti 70 á morgun, föstudag 3. júlí, kl. 17-19. 60 ára er í dag, 2. júlí, Hildur Guð- leifsson, fyrrv. húsfreyja á Langstöð- um í Hraungerðishreppi í Flóa. nú til heimilis að Lyngheiði 15, Selfossi. Maður hennar er Guðmundur Guð- leifsson. Þau verða að heiman í dag. 75 ára afmæli á í dag, 2. júlí, frú Lóa Eyþórs, Melabraut 38, Seltjarnar- nesi. Eiginmaður hennar var Öfeigur Ólafsson húsasmíðameistari en hann lést árið 1971. Hún er að heiman í dag. Ti]kyiiningar Opið hús í Norræna húsinu I dag. 2. júlí. kl. 20.30 verður fyrsti fyrir- lesturinn í sumardagskrá Norræna húss- ins. Eyþór Einarsson grasafræðingur talar um gróðurríki Islands og sýnir litskyggn- ur. E.vþór heldur fyrirlesturinn á dönsku. Eftir stutt kaffihlé verður sýnd kvikmynd- in „Þrjár ásjónur Islands" með norsku tali. Sumardagskráin hefur verið fastur liður í starfsemi hússins allt frá 1979. Hún er einkum sett saman með tilliti til norr- ænna ferðamanna og flutt á einhverju Norðurlandamálanna. Islenskir fræði- menn halda erindi um ísland - land, þjóð, sögu og náttúru. Þessi dagskrá verður öll fimmtudagskvöld í sumar. Kaffistofa húss- ins og bókasafn eru opin þessi kvöld til kl. 22. I bókasafni liggja frammi þýðingar íslenskra bókmennta á öðrum norrænum málum og bækur um ísland. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomn- ir. Forseti Finnlands sæmir Njörð P. Njarðvík riddarakrossi Forseti Finnlands, Mauno Koivisto, hefur sæmt Njörð P. Njarðvík, dósent og rithöf- und, riddarakrossi 1. flokks hinnar fmnsku Ljónsorðu fyrir margra ára störf hans að menningarsamskiptum Finnlands og Islands, ekki síst á sviði bókmennta þar sem Njörður hefur kynnt, þýtt og gefið út finnskar og finnlandssænskar bækur. Ambassador Finnlands, Anders Huldén, afhenti Nirði heiðursmerkið mánudaginn 29. júní sl. og þakkaði honum um leið fyr- ir margháttuð störf hans í þágu finnsk- íslenskra menningarsamskipta. Eldri borgarar Frá og með 1. júlí verður opið hús alla laugardaga, eins og verið hefur, frá kl. 14-22. Fimleikar í nútíð og framtíð F.S.l. efndi til ráðstefnu í maí sl. Stjórn og starfsnefndir gerðu grein fyrir störfum sínum frá síðasta þingi og lögðu fram til- lögur og áætlanir um stariið næsta starfs- ár. Lög og leikreglur sambandsins eru í endurskoðun og komu fram á ráðstefnunni ýmsar róttækar breytingatillögur. Þátt- takendur í ráðstefnunni vildu að á næstu starfsárum yrði lögð markviss áhersla á fræðslumál. Einnig að lokið yrði við gerð íslenska fimleikastigans og hann gefinn út. I umræðum um fjármál F.S.Í. voru sam- þykkt eindregin tilmæli til stjórna að við gerð næstu fjárhagsáætlunar F.S.Í. verði sundurliðað hvað varðar einstaka verk- þætti þannig að allar nefndir hafi starfs- grundvöll. Samþykkt var áskorun til stjórnar F.S.I. um að koma á betra sam- starfi við félög utan Reykjavíkur og efna til fimleikamóta úti á landi. Samþykkt voru tilmæli til félaga innan F.S.Í. að sjá til þess að frambærilegt fag- og áhugafólk innan þeirra raða gefi kost á sér til starfa fyrir almenna fimleika þeim til eflingar. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför Sigurðar Más Péturssonar Borgarholtsbraut 78. Guð blessi ykkur öll. Steingerður Sigurðardóttir Gréta Sigurðardóttir Sigurður Hreiðarsson Eggert Sigurðsson Helga Sigurjónsdóttir Þorvarður M. Sigurðsson Jóhanna Guðmundsdóttir Birna E. Sigurðardóttir Elfar Gunnlaugsson Pétur Sigurðsson Elín Guðmundsdóttir Linda Sif Sigurðardóttir Svana H. Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Spakmælið _______________________ Mönnum er ekki vant að líða vel þegar þeir hafa blekkt aðra. - O. Benneche Breytingar á reglum fyrir símskeytaþjónustu Breytingar hafa orðið á reglum fyrir sím- skeytaþjónustu með þeim hætti að hringt verður til viðtakenda venjulegs símskeytis og textinn lesinn fyrir hann. Skeytið er síðan póstlagt en viðtakandi getur einnig sótt það á símstöðina. Óski sendandi eða viðtakandi venjulegs skeytis hins vegar eftir að það sé afhent samdægurs verður það sent gegn hraðboðagjaldi, kr. 90. Óski sendandi einnig eftir því að skeytið sé af- hent gegn kvittun er gjald fyrir það kr. 15. Framangreind gjöld eru án söluskatts. Heilla- og samúðarskeyti verða áfram bor- in út til viðtakenda án hraðboðagjalds. Hlíðargarðshátíð Hlíðargarðshátíðin í Kópavogi verður haldin í dag, 2. júlí, ef veður leyfir. Hátíð þessi er fastur liður í starfi vinnuskólans og jafnan haldin fyrri hluta júlí. Þar hefur verið ýmislegt um að vera, t.a.m. leikir og þrautir, tívolíbásar, ýmis leiktæki og mini- golf, svo eitthvað sé nefnt. Hundruð manns hafa lagt leið sína í Hlíðargarð á þessa hátíð undanfarin sumur. Lögð er áhersla á að ungir sem aldnir geti unað í garðinum þessa dagstund og fundið eitthvað við sitt hæfi. Veitingar hafa og verið seldar á staðnum og ágóði runnið til sérstaks mál- efnis. Nú mun hann renna til fatlaðra ungmenna úr Kópavogi sem fara í sumar- búðir til Danmerkur seinna í sumar. Eins og áður sagði er hátíðin fyrirhuguð í dag en frestast til næsta góðvirðisdags þar á eftir ef með þarf. Lúðrasveitin Svanur á alþjóð- legt lúðrasveitamót Lúðrasveitin Svanur heldur til Austur- Þýskalands í dag. Sveitin mun taka þátt í alþjóðlegu lúðrasveitamóti í Rostock. Mót þetta hefur verið haldið ár hvert síð- an 1958 og er þetta í þriðja skipti sem Islendingar taka þátt. Undanfarna mánuði hafa blásarar lagt hart að sér við æfingar auk margháttaðra fjáröflunarleiða. Er það ætlun félaganna í Svaninum að gera veg íslands sem mestan austan járntjalds eins og ævinlega þegar landinn leggur land undir fót á erlendri grund. Stjórnandi lúðrasveitarinnar Svans er Kjartan Óskarsson og einleikari með sveitinni er Pétur Eiríksson. Formaður lúðrasveitar- innar er Guðrún Helga Gylfadóttir. Stúdíó S.G. tekur til starfa Nýtt æfingastúdíó hefur tekið til starfa í Furugrund í Kópavogi, Stúdíó S.G. Stúdíóið býður upp á leikfimi og púltíma fyrir konur og karla og stendur innritun yfir næstu daga. Hver tími er 50 mín. og æfingakerfið byggist upp á hitunaræfing- um, þoli, styrkjandi æfingum og teygjum. I september hefst kennsla í jassballett í bama- og unglingaflokkum. Kennari er Sigríður Guðjohnsen. Hún lauk dans- kennaraprófi 1983 sem viðurkennt er af alþjóða dansráðinu I.C.B.D. og er félagi í Félagi íslenskra danskennara. Undanfarin 9 ár hefur Sigríður starfað hjá J.S.B. og dansað með dansflokki J.S.B. í 7 ár. Stúdíó S.G. er, ásamt heilsuræktinni Sólskin, til húsa í Furugrund 3, Kópavogi. Þar er að sjálfsögðu einnig boðið upp á gufu- og ljósaböð og kaffisopa. Síminn er 46055 Tónleikar Tónleikar í Abracaabra I kvöld, 2. júlí, og sunnudagskvöldið 5. júlí halda Mickey Dean og Þorleifur Guð- jónsson tónleika í Abracaabra. Flutt verður klassískur blues, ballöður new wave kántrí og nýtt efni eftir Mike. Mikki er nýkominn frá Chicago eftir vetrardvöl í Mekka blúsins. 20 júní sl. komst nafn Mickey Dean á síður Billboard, stærsta og sterkasta tímarits iðnaðarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.