Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Síða 37
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987.
37
Simamynd Reuter
Slappaðafíhitanum
Þessi ísbjörn nýtur þess sannarlega að kæla sig þar sem hann lúrir á tómri
tunnu í tjörninni sinni í Cologne dýragarðinum í V-Þýskalandi. Það er víst
ekki vanþörf á að kæla sig dálítið niður þar sem hitinn er yfir þrjátíu stig.
Þessi tóma tunna er uppáhaldsleikfang bjarnarins og til margra hluta nytsam-
leg, það má bæði leika sér að henni og leggja sig á henni. Það er ekki
ólíklegt að hann sé að láta sig dreyma um svalari heimkynni sín þar sem
hann hvílir angurvær á tunnunni.
Undragleraugu fyrir lata
Marsha Weinel, forstjóri vöruhúss
í Cincinnati, skoðar hér sendingu af
nýjustu uppfmningunni í gleraugna-
bransanum. Það eru gleraugu sem
hægt er að sjá rétthorn með. Þannig
er hægt að liggja með bók á magan-
um og lesa hana í gegnum gleraugun
án þess að þurfa að halda henni upp
að augunum vegna þess að gleraug-
un spegla letrið á sérstakan hátt.
Einnig er hægt að horfa á sjónvarpið
í láréttri stöðu og losna þannig við
óþarfa höfuðhreyfingar. Þvkja þessi
gleraugu vera mesta gersemi enda
eiga þau að tryggja eigandanum
meiri afslöppun. Galdurinn með gler-
augunum er fólgin i sérstökum
linsum með hjálp spegla.
Simamynd Reuter
Prmsáhumarveiðuin
Edward Bretaprins var nýlega í sex daga opinberri heimsókn í Kanada
og var það fyrsta opinbera heimsókn þessa yngsta meðlims konungsfjölskyl-
dunnar. Hér sést hann á humarveiðum síðasta dag heimsóknarinnar og
virðist hann mjög einbeittur þar sem hann tekur humarinn varlegá úr háfn-
um. Honum veiddist vel í þessum veiðitúr.
Simamynd Reuter
Simamynd Reuter
Beethoven
upprisiim?
Þessi risastóri loftbelgur í líki tónskáldsins Ludvigs von Beethoven hefur
vafalaust skotið einhverjum skelk í bringu er hann sveif yfir Munchen í
fyrradag. Ætlunin var þó ekki að hræða íbúa í Munchen heldur á þetta
uppátæki að sýna hlýhug og vinarþel! Belgja-Beethoven mun gera víðreist
á næstunni í nokkurs konar vinaferðalagi milli helstu borga V-Þýskalands.
Það er bandarískt viðskiptatímarit sem fjármagnar þetta vinalega flakk
kauða.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Elísabet Taylor
yfirgaf nýlega í reiðikasti veit-
ingahús eitt í Los Angeles án
þess að hafa einu sinni snætt
þar fyrst. Ástæðan var sú að
bannað var að reykja inni á
staðnum og það gat leikkon-
an alls ekki þolað. Hún lét sig
þó hafa það að koma aftur á
sama stað næsta dag ásamt
sex kunningjum sínum. Og
þá gat hún reykt að vild. Hvers
vegna? Jú, hún leigði einfald-
lega allan staðinn til þess að
geta reykt við borðið sitt og
sat hún þarna ásamt vinum
sínum fram eftir kvöldi og
keðjureykti.
Mel Gibson
stefnir staðfastlega að því að
slá barneignamet í ástralska
leikaraheiminum. í síðasta
mánuði fæddist honum og
Robyn, konu hans, fimmta
barnið og það aðeins á sex
árum. Gibson er sagður lifa
rólegu fjölskyldulífi og er fá-
tíður gestur á síðum slúður-
blaða nema einna helst þegar
ný börn bætast í fjölskylduna.
Þau hjónin eru kaþólsk og
mjög trúuð. Þar sem Gibson
sjálfur kemur úr barnmargri
fjölskyldu gæti eins verið að
hann ætlaði sér að eignast
fleiri.
Al Pacino
hefur mikið sést upp á síðkast-
ið með leikkonunni Diane
Keaton, bæði á götum New
York borgar sem og í Los
Angeles. Þegar þau eru spurð
um þetta samband sitt eru þau
þögul sem gröfin eða snúa
bara út úr. Mönnum þykir þó
ólíklegt að hjónaband sé
væntanlegt enda hafa þau
bæði í viðtölum áður fyrr lýst
yfir vantrú sinni á hjónabandi.
Það er þó aldrei að vita.