Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1987, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987. Kvikmyndir Morö er framió af mafiunni og peningum stoliö en jafnvel þaö er gert skondið. Gellur og gæjar í Kalífomíu Sumir halda því fram að Kalifornía sé paradís á jörðu, að ekki sé talað um strendurnar og lifið á þeim. Hver man til dæmis ekki eftir laginu Cali- fomia girls eða Kalifomíuskvísum- ar sem David Lee Rorh söng hér fyrir fáeinum árum. Textinn var einkanlega tileinkaður glæsileika þeima. Terminal Exposure, sem Laugar- ásbíó heíur fengið sýningarrétt á. verður sýnd þar von bráðar. Hún gengur einmitt út á gellumar og gæjana í Kalifomíu og strandlífið þar í borg. Glæpir, lauslæti og önnur fíflalæti fyrir krakka á öllum aldiá em aðalsmerki myndarinnar. Sjón- um er víða beint; allt frá eltingarlát- um neðansjávar til glimmersins í Las Vegas. Framleiðandi myndarinnar er Nico Mastroakis. Hann samdi einnig handritið ásamt Kirk Elli, auk þess sem hann leikstýrir. Myndin er í svipuðum stíl og tvær kvikmyndir sem sýndar hafa verið nýlega hér á landi, Risky Buisness og Ferry Bu- ellers Day off. Tveir ljósmyndafúskarar, eltandi kvenmenn á röndum, em aðalper- sónui' myndarinnar. Þeir em staddir á ströndinni, sem endranær, er lík, með hálfa milljón dollara á sér, verð- ur á vegi þeirra. Þeir eru glöggir, strákamir, og sjá strax að morð hef- ur verið framið og hirða peningana. En morðinginn er innan seilingar og taka þeir til við að mynda líkið bak og fyrir og segjast vera lögreglu- menn. Þeim er auðvitað ekki trúað enda líta þeir ekki út fyrir að bera lög og reglur landsins á herðum sér. Mafían hefur þar verið að verki og upphefst mikill eltingarleikui' um þvera og endilanga Kalifomíu. Lenda þeir félagar í ýmsum ævintýr- um, skondnum og spennandi. Létt- leiki, vín og villtar meyjar er aðalhúmor myndarinnar. Fjöldi ungra leikara kemur við sögu í Terminal Exposure og em þeir flestallir lítt þekktir, nema þá kannski innan Bandaríkjanna. -GKr ► Á ferðalagi „Heim að Hólum“ í Hjattadal Enn í dag segja Skagfirðingar „heim að Hólum“ þegar þeir eiga við heimahéraðið. Talshátturinn visar til þess að Hólar í Hjaltadal vom löngum höfuðstaður Norðurlands, biskupsstaður og höfðingjasetur. Hjaltadalur er langur og þröngur dalur og Qöllum girtur. Hjaltadals- heiði tekur við upp af dalbotninum og var fyiTum farið yfir heiðina til Hörgárdals en leiðin þótti erfið yfir- ferðar. Hólar em ekki landnámsjörð og komu fyrst við sögu um 1100 þegar ákveðið var að setja biskupsstól á Norðurlandi. Engir Norðlendingar vildu gefa jörð undir biskupsstól uns Illugi Bjömsson, prestur á Hólum og eigandi jarðarinnar, gaf Hóla til dýrðar og hagsbóta fyrir heilaga kaþólska kirkju. I sjö aldir, frá 1106 til 1798, vom Hólar biskupssetur og um leið höfuðstaður Norðurlands. Eins og búast má við sátu merkis- klerkar staðinn og fara miklar sögur af sumum þeirra. Trúlega er á engan hallað þótt síðasti pápíski biskupinn sé talinn merkastur guðsmannanna á Hólum. Jón hét hann og var Ara- son og sameinaðist í honum slægð stjómmálarefsins og eldmóður hins rétttrúaða. Til skamms tíma var ís- lenskum bömum kennt að Jón hefði verið síðasta sjálfstæðishetja mið- alda. Lærðir menn og leikir túlkuðu andstöðu Jóns við lútersku sem and- óf gegn ágangi Danakonungs og úr varð kenning sem gerði gæslumann páfa á Islandi að þjóðfrelsisskæm- liða íslensks almúga gegn erlendum drottnurum. Að Jóni gengnum stóðu hhð Fróns opin fyrir kúgunarleppum danska konungsins. Kenningin var áberandi á öndverðri þessari öld og fram á hana miðja þegar íslenskir stjómmálamenn æstu hver annan upp í andstöðunni við Dani og tókst að slíta konungssambandinu þegar Kristján konungur tíundi var fangi nasista 1940-1945. Þeim sem kenndu þessi fræði og trúðu þeim svelgdist hins vegar ekki á þegar útlendum her var lánuð stasjón á landinu skömmu eftir slitin við „kúgarann" í Kaupmannahöfh. En það var sem sagt Jón Arason sem hatrammlega barðist gegn lút- erskum sið og gerðist við eitt tæki- færi svo djarfur að hertaka stólinn í Skálholti. Það kom fyrir ekki og laut Jón í lægra haldi fyrir hinum nýja sið og galt pápísku sinnar með lífinu. Jón og synir hans tveir vom hálshöggnir í Skálholti þann 7. nóv- ember 1550. 400 árum seinna var reistur tum til minningar um hetjuna Jón og er þar lítil kapella sem í em geymd bein feðganna, að sögn. Á þremur öðrum stöðum hefur verið sáldrað niður minnismerkjum um síðasta kaþólska biskupinn á íslandi. -pal Hólar i Hjaltadal. Turninn með kapellunni blasir við. Þar ku geymdar leifarnar af Jóni og sonum hans. Kvikmyndahús DV Bíóborg Arizona yngri Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ' Moskitóströndin Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05. Krókódila Dundee Sýnd kl. 5 og 11. Morguninn eftir Sýnd kl. 7 og 9. Bíóhúsið Bláa Betty Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bíóhöllin Innbrotsþjófurinn Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11. Lögregluskólinn Allir á vakt Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Leyniförin Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Með tvær í takinu Sýnd kl. 5 og 7. Blátt flauel Sýnd kl. 9. Vitnin Sýnd kl. 9 og 11. Litla hryllingsbúðin Sýnd kl. 5, 7 og 11.05. Háskólahíó Herdeildin Sýnd kl. 7, 9.05 og 11.15. íga Djöfufoður kærasti Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. Draumátök Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16. ára. Hrun ameríska heimsveldisins Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16. ára. Regnboginn Dauoinn á skriðbeltum Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. A toppinn Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05. Gullni drengurinn Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Þrír vinir Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10. Herbergi með útsýni Sýnd kl. 7. Herramenn Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. Punktur, punktur, komma strik. Sýnd kl. 7. Stjörnubíó Wisdom Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Fjárkúgun Sýnd kl. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Börn líta á lífið sem leik. Abyrgðin er okkar- fullorðna fólksins. ÍUMFERÐAR BÁB Útvaip - Sjónvaip Stöð 2 kl. 22.20: Aðeins fyrir augu þín For your eyes only eða Aðeins fyrir augu þín þykir ein besta Bondmyndin og má í henni finna allt sem einkenn- ir góðan bondara, hraða, húmor, spennu, vin og villtar meyjar, fyrir utan sjálfan James Bond sem í þessari mynd er leikinn af Roger Moore, fræg- asta njósnara allra tíma sem yngri kynslóðinni finnst vera hinn eini sanni James Bond. James Bond er sem fyrr að vinna fyrir bresku leyniþjónustuna. Hann er sendur til Grikklands til þess að hafa uppi á þrjótum sem sökktu sjófar- artæki við strendur landsins. Hann hittir að sjálfsögðu unga og fallega konu, Melina Havelock, sem er að leita uppi morðingja foreldra sinna. Þau lenda saman í ýmsum ævintýrum auk ástarævintýris í landi, á sjó og í lofti. f aðalhlutverkum eru Roger Moore, Carole Bouquet, Lynn Holly Johnson og Julian Glover. - Bond - James Bond Roger Moore og Carole Bouquet á flótta á ströndum Grikklands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.