Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987. Frétfir Maður handtekinn: Hringt var í bandaríska sendi- ráðið í tvígang um síðustu heigi og því hótað að sendiráðið yrði sprengt í loft upp. Lögreglan gat rakið hvaðan hringingamar komu. Reyndist það vera úr húsi á Akranesi. Ijögreglan á Akra- nesi hafði uppi á þeim sem haíðí hringt. Var hann færður til yfír- heyrslu og játaði maðurinn að hafa átt sök á hringingumtm. Eftir að yfirheyrslum lauk og játning lá fyrir var manninum slepptlausum. Lögreglan á Akra- nesi varð að hafa afekipti af manninum aftur á þriðjudags- morgun. Þá hafði maðurinn valdið íbúum í hverfinu sem hann býri töluverðum óþægindummeð drykkjulátum. Maðurinn gengur nú laus. Lögreglan á Akranesi vildí ekki meina að maðurinn væri hættu- legur. Hann er aðkomumaður á Akranesi og hefur veríð þar stutt- an tima. -sme Ákvörðun ríkisstjómarínnar í hvalamálinu: Hvalveiðar i visinda skyni halda áfram Elías V. Einarsson, kokkur í Borgartúni 6, steikti bíða óþreyjufullir eftir aðalréttinum - hvalkjöti. hvalkjötið. Sjávarútvegsráðherra og utanrikismálanefndarmenn DV-myndir JAK Hvalveiðar í visindaskyni munu halda áfram, samkvæmt upplýsing- um sem D V hefur aflað sér og er það meginefni ákvörðunar ríkisstjómar- innar sem tekin var á fundi hennar í gærmorgun, samkvæmt upplýsing- um sem DV hefur aflað sér. Samþykkt var á fundinum að ekki skyldi greint frá ákvörðuninni fyrr en eftir helgi og verður tíminn þang- að til notaður til að greina öðrum þjóðum frá ákvörðun ríkisstjómar- innar en sem kunnugt er hafa Bandaríkjamenn verið fremstir í flokki þeirra þjóða sem viljað hafa koma í veg fyrir hvalveiðar íslend- inga. Utanríkismálanefnd kom saman í hádeginu í dag til að ræða ákvörðun ríkisstjómarinnar en nefhdarmenn vörðust alfra frétta af fundinum. Þess má geta að á þessum fundi snæddu nefhdarmenn hvalkjöt og þótti mönnum kjötið misgott, sam- kvæmt upplýsingum DV. Um helgina sigla hvalbátamir af stað í hvalatalningu en reiknað er með að upp úr þvi hefjist hvalveiðar í vísindaskyni að nýju. -ój Hafnsógubát stolið: Kom til slagsmála um stjómtækin Til átaka kom um borð í hafhsögu- bátnum Salud í nótt. Fjögur ölvuð ungmenni stálu bátnum og héldu út úr Reykjavíkurhöfn. Lögregla og skip- stjórinn á Salud höfðu samband við Slysavamafélagið og vildi svo vel til að félagar úr björgunarsveitinni Ing- ólfi voru til staðar. Var strax haldið á björgunarbátnum Jóni E. Bergsveinssyni á eftir Salud. Var honum náð á ytri höfhinni. Þegar björgunarbáturinn renndi með síðu Salud stukku skipstjórinn á Salud og lögregluþjónn um borð í hafhsögubát- inn. Ungmennin settu vél Salud á fulla ferð áfram þegar þau gerðu sér grein fyrir að menn væm að koma um borð. Til átaka kom um stjómtækin og mátti litlu muna að báturinn færi á fullri ferð upp í grjótgarðinn. Það var fyrir snarræði skipstjórans og lög- regluþjónsins að því varð forðað. Þeir sýndu mikið þor þegar þeir stukku á milli bátanna í myrkrinu og bátamir báðir á ferð. Eitt ungmennana var skorið á hendi eftír að hafa brotið upp rúðu í stýris- húsi Salud. Þegar ungmennunum hafði tekist að komast í stýrishús Salud var eftírleikurinn hægur því lyklar að bátnum em geymdir í ræsin- um. Það var því hægðarleikur að gangsetja vél og halda til hafe. Ung- mennin vom það dmkkin að ekki var hægt að yfirheyra þau í nótt. Vom þau geymd í fangageymslu til morguns. -sme Salud á leið til hafnar. Félagar úr Slysavamafélaginu veittu lögreglu og hafnsögumönnum aðstoð við elta bátinn uppi. Hafnsögubátur fylgir á eftir. DV-mynd S Sterkasta skákmót heims hér næsta haust? Likur a að Karpov og Kasparov veroi meö Allar líkur em á að eitt af „World Cup“ stórmótunum í skák verði haldið hér á landi haustíð 1988 og er það Stöð 2 sem hefur forgöngu um það. Búist er við að bæði Ka- sparov heimsmeistari og Karpov, fyrrverandi heimsmeistari- í skák, taki þátt í mótinu, samkvæmt upp- lýsingum sem DV fékk hjá Sighvati Blöndahl, markaðsstjóra Stöðvar 2. Sighvatur sagði að Stöð 2 væri nú að leita að innlendum samstarfsaðila um mótshaldið og kvað hann þær athuganir á byrjunarstigi. Fyrir hönd samtaka stórmeistara í skák, en „World Cup“ mótin em haldin á þeirra vegum, er það tékkneski stór- meistarinn Kavalek sem hefur umsjón með mótinu. 1 samtökum stórmeistara em 22 sterkustu skákmenn veraldar á hverjum tíma og er reiknað með að haldin verði sex slík mót þar sem tefla 16 skákmenn hverju sinni. Ef svo fer sem horfir munu auk núverandi og fyrrverandi heims- meistara koma hingað til lands skákmeistaramir Kortsnoj, Hubner, Jusupov, Timman, Beljavski, Lubojevic, Spasský, Short, Anders- son og Tal. ðljóst er hvort einhver íslensku stórmeistaranna, öðrum en Jóhanni Hjartarsyni, hafi tekist að fylla þennan flokk þegar þar að kem- ur. Að sögn Sighvats er mikill kostn- aður því fylgjandi að halda mót sem þetta og er hann ekki undir 20 millj- ónum króna. Samkvæmt upplýsing- um, sem DV hefur aflað sér, kemur tíl greina að samstarfeaðilar Stöðvar 2 um mótshaldið verði Visa og Bún- aðarbankinn. -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.