Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
Fréttir
Framganga Sambandsins í Útvegsbankamálinu:
Kallar á auðhringalöggjöf
- segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra sagði ekki ástæðu til að ætla að viðskiptaráöherra hygðist ganga gegn vilja
forsætisráðherra í Útvegsbankamálinu. DV-mynd S
Útvegsbankamálið er fyrsta alvar-
lega prófraunin fyrir ríkisstjóm
Þorsteins Pálssonar. Málið hefur
tekið á sig mjög pólitíska mynd og
em Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur sakaðir um að stefria
ríkisstjóminni í hættu vegna póli-
tískrar hagsmunagæslu. Hvað segir
forsætisráðherra um þetta fyrir hönd
síns flokks?
„Það er mjög auðvelt að vísa þessu
á bug fyrir okkar leyti. Þegar við-
skiptaráðherrann fyrrverandi mælti
fyrir lögunum um Útvegsbankann
hf. þá sagði hann að það væri eink-
anlega stefnt að því að samtök í
sjávarútvegi, sjávarútvegsfyrirtæki,
viðskiptamenn bankans og aðrir
bankar, sem kynnu að hafa áhuga á
sameiningu, kæmu inn í þessi kaup.
Þannig var markmiðið mjög skýrt
sett.
Við erum með tvö tilboð á hendi.
Annað frá einum aðila. Hitt frá 33
aðilum sem em mjög óskyldir hver
öðrum. Þetta er ekki nein ein klíka.
Þeir síðamefndu gerðu jaíhframt til-
boð í öll hlutabréfin. Frá okkar
bæjardyrum séð liggur málið þess
vegna alveg augljóst fyrir."
Framsókn skipti um skoðun
„Fyrrverandi viðskiptaráðherra
fékk fyrirspum frá einum heildsala
sem vildi kaupa meirihlutann í
bankanum. Þvi var svarað alveg
skýrt og skorinort að slíku tilboði
yrði hafnað á þessari forsendu, að
við vildum ekki einn aðila. Matthías
talaði að sjálfsögðu fyrir hönd alfrar
ríkisstjómarinnar í þessu máli.
Ég get ekki neitað því að ég lít á
afstöðu Framsóknarflokksins sem
frávik frá fyrri stefiiu. Ég tel að þeir
hafi samþykkt þessi lög og meðferð
málsins út frá því grunvallarsjónar-
miði að það væri stefnt að því að
selja mörgum aðilum. Þeir gerðu
enga athugasemd og stóðu að fram-
kvæmd málsins í fyrri ríkisstjóm á
þeim grundvelli, þannig að ég lít svo
á að þama sé um stefnubreytingu
að ræða eftir að SlS kom til skjal-
anna.“
Hringamyndun skal stöðvuð
„Ég er raunar þeirrar skoðunar
að allt þetta mál og vafhingamir í
kring um það kalli á að því verði
mjög hraðað að setja hér löggjöf um
hringamyndun sem hamli gegn
óeðlilegri hringamyndun í þjóðfélag-
inu.
Sambandið er auðvitað mjög stór
hringur. Það fer ekkert á milli mála.
Ég er viss um að ef hér yrði sett
löggjöf sem takmarkaði óeðlilega
hringamyndun þá myndi hún að
minnsta kosti takmarka möguleika
Sambandsins, sem hrings, til þess að
vaxa með óeðlilegum hætti. En það
er auðvitað mikið matsatriði hvar
draga á markalínur. Við erum ekki
að lasta þau mikilvægu störf sem
margir í þessum hring eru að vinna.
Það er ákvæði um það í stjómarsátt-
málanum að setja beri lög um
hringamyndun og var fullt sam-
komulag um það á milli flokkanna
að vinna að slíkri löggjöf.
Mér finnst þessir atburðir gera það
að verkum að það þurfi að hraða því
að sú vinna fari fram og skili þeim
árangri að við getum sett um þetta
löggjöf."
Ekkert krossapróf
„Með samráðinu við flokksráðið
vildi ég ganga alveg úr skugga um
það hvaða skoðun væri uppi á með-
al flokksmanna. Þetta var hins vegar
ekki skoðanakönnun og ekkert
krossapróf heldur samráð. I því var
ekki fólgið neitt valdaafsal. Þetta
var tilraun til þess að koma til móts
við gagmýni og ábendingar um bætt
samband milli flokksforystunnar og
félagslegrar' forystu í flokknum.
Þetta samráð styrkti flokkinn í mál-
inu og gerði afstöðu hans eindregn-
ari.“
Blæs á athugasemdir
„Ég blæs auðvitað bara á það að
forystumenn í öðrum flokkum séu
að gera athugasemdir við það hvem-
ig við högum okkar innra starfi. Og
rökstuðningur þeirra fyrir því að
þetta sýni veikleika er meira en lítið
bamalegur, ekki síst þegar horft er
á það hvemig þeir sjálfir vinna inn-
an sinna flokka.“
- En bindur þessi könnun ekki hend-
ur þínar í samningum um framtíð
Útvegsbankans?
„Hún bindur ekkert mínar hendur.
Ég hef alveg ákveðna afstöðu til
þessa máls og hún er óbreytt. Ég er
ekki reiðubúinn til þess að selja
þennan banka einum aðila, hvorki
var ég það né er það. Og þess vegna
hef ég ekkert bundið hendur mínar.“
- Ef meirihluti flokksráðsmanna
hefði talið að selja ætti Sambandinu
bankann. Hefðuð þið þá skipt um
skoðun?
„Þetta var ekki atkvæðagreiðsla í
flokksráðinu og þessi spuming er
svo fjarstæðukennd að það hefði
auðvitað aldrei komið til að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði þá afstöðu."
Borgarar koma til baka
- Hvemig metið þið sjálfstæðismenn
möguleika ykkar á að ná aftur fyrri
styrk?
„Ég er ekki í vafa um að þeir séu
býsna miklir. Ég þykist hafa fúndið
það nú, sérstaklega eftir að þetta
Útvegsbankamál kom upp, að við
höfum styrkt stöðu okkar á ný og
ég er í engum vafa um það að við
eigum eftir að ná sama styrk og áð-
ur.“
- Hvemig mun Sjálfstæðisflokkur-
inn ná fyrri styrk. Munu Borgara-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
sameinast?
„Ég ætla ekki að hafa uppi neinar
spár um það hver afdrif Borgara-
flokksins verða. Ég veit það hins
vegar að ýmsir sem kusu hann síð-
ast styðja okkur núna þannig að ég
er ekki í neinum vafa um hver þró-
unin verður.
Við höfum sagt gagnvart þeim sem
studdu Borgaraflokkinn að okkar
dyr væm opnar. Sjálfstæðisflokkur-
inn er hins vegar ekki til sölu sem
verslunarvara í samningum.
- Þannig að þú telur að formlegar
viðræður um samstarf eða samein-
ingu flokkanna muni verða óþarfar?
„Slíku var beinlínis hafnað af for-
ystumönnum Borgaraflokksins
vegna þess að þeir töldu sig hafa
skyldur við fólk úr öðrum flokkum.
Eftir sem áður stendur það af okkar
hálfu að dyr Sjálfstæðisflokksins em
opnar."
- Var þetta eitthvert formlegt tilboð
sem kom frá ykkur?
„Við ræddum það, já, við Friðrik
Sophusson, á fundi sem við áttum
með forystumönnum Borgaraflokks-
ins í stjómarmyndunarviðræðunum.
Við spurðum um þeirra afstöðu til
þess að koma aftur til starfa í Sjálf-
stæðisflokknum og fengum þetta
svar.“
Viðskiptaráðherra gegn for-
sætisráðherra?
- Stendur enn til að slíta stjómar-
samstarfinu ef Jón Sigurðsson selur
SÍS bankann?
„Við höfúm engar yfirlýsingar gef-
ið um stjómarslit. Það kæmi mér
hins vegar mjög á óvart ef viðskipta-
ráðherra gengi gegn flokki forsætis-
ráðherrans í svo veigamiklu máli.
Það væri ekki í samræmi við venju-
leg vinnubrögð í samsteypustjómum
enda held ég að það hafi aldrei flökr-
að að honum að gera það og ég hef
ekki ástæðu til að ætla að það hafi
komið honum til hugar.“ -ES
Áskorendaeinvígin í skák:
Jóhann gegn Kortsnoj?
FJórtán taka þátt í Kanada
Áskorendaeinvígin fyrir heims-
meistarakeppnina í skák verða í
Kanada í janúarmánuði næstkomandi
og munu þar 14 skákmenn leiða saman
hesta sína og tefla um réttinn til að
skora á heimsmeistarann í skák.
Benda líkur til þess að Jóhann Hjart-
arson tefli þar á móti Kortsnoj, en
hann er með stigahæstu skákmönnum
sem tefla í áskorendaeinvígjunum.
I Kanada munu taka þátt þessir
skákmenn: Jóhann Hjartarson,
Kortsnoj sem teflir fyrir Sviss, Seira-
van, Bandaríkjunum, annaðhvort
Portish frá Ungverjalandi eða Nunn
frá Englandi, Short og Spielman, báð-
ir frá Englandi, Sax frá Ungveijalandi,
Spragget, Kanada, Timman, Hollandi
og Sovétmennimir Ehlvest, Jusupov,
Sokolov, Vaganian og Salov, eða alls
14 skákmenn. Óútkljáð er hvor þeirra
Portish eða Nunn verður með, en úr
því fæst skorið í sérstöku einvígi
þeirra á milli sem haldið verður í okt-
óber.
Skákmönnunum verður raðað sam-
an eftir styrkleika mældum í ELO
stigum og verður miðað við stigafjölda
þeirra 1. janúar síðastliðinn og 1. júlí,
og tekið tillit til fjölda tefldra skáka
á tímabilinu. Þetta þýðir það að árang-
ur Jóhanns Hjartarsonar á milli-
svæðamóti nýlega verður ekki tekinn
með þegar keppendur eru valdir sam-
an. Valið verður þannig að sterkustu
skákmennimir tefla við þá veikustu
samkvæmt stigatöflunni.
Stigaflöldi keppenda var þannig
samkvæmt töflunni 1. júlí síðastliðinn:
Jusupov 2635 stig
Sokolov 2635 stig
Timman 2630 stig
Kortsnoj 2630 stig
Short 2620 stig
Spielman 2615 stig
Portish 2615 stig
Seiravan 2600 stig
Vaganian 2595 stig
Nunn 2585 stig
Salov 2575 stig
Spragget 2570 stig
Sax 2565 stig
Jóhann 2550 stig
Ehlvest 2540 stig
Þegar áskorendakeppninni í
Kanada lýkur standa eftir 7 skák-
menn, sigurvegarar úr einvígjunum.
Þá bætist 8.,maðurinn í hópinn, en
það verður annar þeirra Karpovs eða
Kasparovs, sá sem tapar í heimsmeist-
araeinvíginu þeirra á milli sem hefst
í Sevilla á Spáni þann 10. október
næstkomandi. -ój
Viktor Kortsnoj.
Jóhann Hjartarsson.