Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987. Fréttir Nýju trúfélögin: „Ekkert strið“ „Nýju trúfélögin eru ekkert smá- kóngastríð heldur svar við brýnni þörf. Það er stórkostleg neyð. Fólk lifir íjarri guði og i sorgum sínum leitar það að haldreipi, þess vegna eru trúfé- lögin komin til sögunnar," sagði Gunnar Þorsteinsson frá trúfélaginu Krossinum á blaðamannafundi í gær. Að fundinum stóðu félögin Ungt fólk með hlutverk, Krossinn, Vegurinn, Hvitasunnusöfnuðirinn og Trú og líf. „Við stöndum saman,“ sögðu forsvars- menn þessara safnaða. „Við viljum sjá kristið starf eflast. Það er meira sem sameinar okkur en sundrar." Gunnar Þorsteinsson frá Krossinum sagði að það væri eðlilegt að nýiar kirkjur spryttu upp í þeim fersku straumum sem nú væru í trúmálum hérlendis sem og erlendis. „Það er ekkert stríð á milli okkar eins og sum- ir halda og við erum með skipulegt samstarf." JGH Peningainarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 14-15 Ab.Bb. Lb.Sb, Sp.Úb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-19 Úb 6 mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb. Úb 12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb Tékkareikningar 6-8 Allir nema Vb Sér-tékkareikningar 4-I5 Ab.lb, Vb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán meosérkjörum 3-4 Ab.Úb 14-24,32 Úb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Vb.Ab Sterlingspund 8,25-9 Ab.Úb, Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Ab.Vb Danskarkrónur 9-10,5 Ib ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 28-28,5 Bb.Lb Viðskiptavixlar(forv.)(1) 30-30,5 eða kge , Almennskuldabréf 29,5-31 Lb.lb, Vb Viðskiptaskuldabréf (1) kge Allir HlaupareikningarMirdr.) Útlán verðtryggð 30 Allir . Skuldabréf 8-9 Lb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 27-29 Bb SDR 8-8,25 Bb.Lb, Úb.Vb Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Bb.Úb, Vb Sterlingspund 11,25- 11,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,5-5,75 Bb.Sp. Úb.Vb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Drátfarvextir 40.8 MEÐALVEXTIR óverðtr. ágúst 87 28,8 Verðtr. ágúst 87 8.1% VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala ágúst 1743 stíg Byggingavísitala ágúst (2) 321 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% 1. júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóöa (uppl. frá Fjárfestin< arfélaginu); Ávöxtunarbréf 1,2084 Einingabróf 1 2,248 Einmgabréf 2 1,328 Einingabréf 3 1,396 Fjölþjóðabréf 1,060 Gengisbréf 1,0241 Kjarabréf 2,246 Lífeyrisbréf 1.130 Markbréf 1,120 Sjóðsbréf 1 1,095 Sjóðsbréf 2 1,095 Tekjubréf 1,213 HLUTABRÉF Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiöir 194 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 118 kr. Iðnaðarbankinn 142 kr. Skagstrendingur hf. 182kr. Verslunarbankinn 125 kr. Otgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavfxla gegn 30% ársvöxtum, Samv.banki og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb=Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Ob = Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. (2) Byggingarvisitala var sett á 100 þann 1. júlí, en þá var hún í 320. Hún verður framvegis reiknuð út mánaðarlega, með einum aukastaf. Nánari upplýsingar um peningamarkaöinn birtast i DV ð fimmtudögum. Siómenn flvia í koiu w ww J „Það eru vaðandi toríúr af bein- eru ferlíki, 8 til lO tonna. uggann koma upp úr sjónum og amir í svifið í sjónum við Patreks- hákarli um allan Patreksfjörð. Birgir sagði að' þessar skepnur sveigði þá frá en í vitlausa átt, hinn fjörð. „Þeir tefja okkur við veiðar Sumir trillusjómenn, sem hafa lent færu iétt með að taka 8 tonna bát í ugginn kom upp úr. Báturinn lyftist ogþaðeraðalmálið,“sagðiBirgir. inni í torftmum, hafa drepið á vél- nefið ef þeim sýndist svo. „Þeir möl- upp á skepnuna, stöðvaðist, og spól- JGH inni og ferið í koju afhræðslu," sagði bijóta báta af þessari stærð.“ aði. Ugginn fór í skrúfúna og blæddi Birgir Ingólísson, trillusjómaður á „Ég hef sjálftxr lent í yandræðum fe honum.“ Patreksfirði, í gær. Beinhákarlamir vegna þessara hákarla. Ég sá annan Að sögn Birgis sækja beinhákarl- Bakhlið frystihússins á Grandagarði er illa útlitandi vegna steypuskemmda og þarfnast dýrra viðgerða. Á innfelldu myndinni sjást steypuskemmdirnar vel. DV-myndir S og JAK Hús Granda hf. á Grandagarði: Þarfnast mikilla og dýrra lagfæringa - enduibætur á gamla frystihúsinu á lokastigi „Þessar sögusagnir eru úr lausu lofti gripnar enda gætum við lagt starf- semina niður ef við seldum ísbjamar- húsið,“ sagði Jón Rúnar Kristjónsson, fjármálastjóri Granda hf., en sögu- sagnir hafa verið á lofti meðal starfs- fólks þess efiiis að selja eigi húsið og flytja starfsemina í gamla Bæjarút- gerðarhúsið. Jón Rúnar sagði að nýlokið væri viðgerð á þaki frystihússins en það var orðið lekt. Eins lægi ljóst fyrir að út- veggir hússins þörfnuðust mikilla og dýrra lagfæringa vegna steypu- skemmda sem komið hefðu fram. Hann sagði að ekki stæði til að fera í þær lagfærmgar alveg á næstunni. Þá hefur í sumar verið unnið að því að standsetja gamla frystihúsið og er sú lagfæring langt komin. -S.dór Miðfjarðará: Þúsund laxar komnir á land Kolbeinn Grímsson er einn af þeim veiðimönnum sem veiðir í urriðanum hjá Hólmfríði á hverju ári og veiðir alltaf vel, hér háfar hann einn vænan. DV-mynd JRÁ „Hollið er komið í 52 laxa og það er eftir hálfur dagur í veiðinni, stærstu laxamir í þessu holli eru nokkrir 16 punda og af þessum fisk- um eru aðeins þrír nýir,“ sagði Ámi Baldursson í veiðihúsinu við Mið- fjarðará seint á fimmtudagsnóttina, en þá áttu þeir eftir að veiða í hálfan Veiðivon Gunnar Bender dag. „Það gefur gengið frekar rólega hjá mér, hef veitt 4 laxa og veiddi einn 16 punda í Efri-Hlaupunum í kvöld. Magnús Jónasson og Ólafur Rögnvaldsson hafa veitt á tvær stangir 27 laxa af þessum 52.“ „Við Óli höfum veitt 27 laxa og þetta hefur veiðst á víð og dreif um ámar, maður er farinn að þekkja svæðið svo vel en fiskurinn er mikið á takmörkuðum svæðum eins og í Kambsfossi og Myrkhylnum, blátt þar,“ sagði Magnús Jónasson, en hann og Óli höfðu veitt flesta í holl- inu, eins og kemur fram hér á undan. „Það er úði eins og er, annars hefúr verið bjart og vatnið er alltaf að minnka hér í ánum en einn og einn nýr fiskur sést þó.“ Miðfjarðaráin er komin í eitt þúsund laxa og hún getur bætt við sig verulega ennþá. „Þetta gengur bara vel héma hjá okkur þó veðurfarið sé mjög leiðin- legt, í dag rok og leiðinlegt að standa við veiðamar," sagði Hólmfríður Jónsdóttir á Amarvatni, er við leit- uðum frétta af urriðaveiðinni. „Það hafa veiðst tveir 7,5 punda urriðar og öðrum var sleppt aftur í ána, út- lendingar sem veiddu hann, en íslendingur sem veiddi hinn. í það heila em komnir 2100 urriðar og við erum hress með það héma,“ sagði Hólmfriður að lokum. Litlar sem engar fréttir hafa borist af Grímsá í Borgarfrrði í sumar, en fyrsta holl eftir útlendinga veiddi 101 lax og voru þijár stangif með um 60 laxa. Heildarveiðin er um 610 lax- ar. -G.Bender Vigdís gerir víðreist - byrjar á Færeyjum Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, gerir víðreist á næstu vikum. Hún heldur til Færeyja á fimmtudag- inn í næstu viku og kemur aftur mánudaginn 7. september. Þremur dögum síðar, 10. september heldur hún til Japans, og þaðan til Frakklands á Islandskynningarviku. Vigdís flýgur til Voga í Færeyjum á fimmtudaginn. Þar fer hún beint upp í þyrlu og flýgur til Þórshafhar. Atli Dam lögmaður, Hans Andreas Djur- hus, sendiherra Dana, og frú, taka á móti forsetanum. í för með Vigdísi verða Komelíus Sigmundsson forsetaritari og eigin- kona hans, Inga Hafsteinsdóttir, hárgreiðslumeistari Vigdísar, Kristín Sigurbjömsdóttir, Gísli Thoroddsen matreiðslumaður og Hörður Helga- son, sendiherra íslands í Kaupmanna- höfh, og eiginkona hans, Sara Helgason. -JGH Afmæli Akureyrar: Vigdís heið- ursgestur Gyffi Kristjánsscm, DV, Akureyri: Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, verður heiðursgestur Akureyrarbæjar á 125 ára kaupstaðar- afmæli bæjarins nk. laugardag. Forsetinn kemur til Akureyrarflug- vallar kl. 8.20 á laugardagsmorgun og verður þá móttökuathöfri á flugvellin- um. Síðan taka við vegleg hátíðarhöld sem standa allan daginn og lýkur þeim með dansleik í miðbænum aðfaranótt sunnudags og garðsamkomu og flug- eldasýningu í Lystigarðinum á miðnætti. Dvalarheimilið nefnt Uppsalir Ægir Kristinssan, DV, Féskrúðsfiiði: Nýlega fór fram á Fáskrúðsfirði sam- keppni um nafn á dvalarheimili aldraðra sem brátt verður tekið í notk- un. Þrjátíu tillögur bárust frá fimmtán aðilum og varð tillaga Sigurjóns Hjálmarssonar, „Uppsalir", fyrir val- inu. Auk sigumafiisins komu tillög- umar Bjarg, Skjólbrekka, Hraunberg, Sjónarhóll, Hlíðarholt, Glaðheimar, Hofsstaðir, Háholt, Holtakot, Hofs- heimar, Hlíðarbær, Kvöldblik, Hlíðar- skjól, Dagrenning, Bjarkarás, Blómsturvellir, Birkihlíð, Þrastahlíð, Hlíð, Skjól, Vinarskjól, Fjarðarskjól, Búðaskjól, Sólberg, Búðalundur, Hlíðarós, Birkilundur, Sigurhæðir og Sólhóll. Stjóm dvalarheimilisins þakkar bæjarbúum fyrir þátttökuna og óskar sigurvegaranum og bæjarbúum til hamingju með nafhið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.