Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Side 7
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
7
Fréttir
Allir meginþættir Lerfsstöðvar voru boðnir út:
Samningsverð hússins
var um 1,5 milljarðar
hvað varð um 300 milljóna lækkun frá kostnaðaráætlunum?
Bygging Flugstöðvar Leife Eiríks-
sonar hefur í öllum meginþáttum
verið i höndum verktaka sem hreppt
hafa verkin í útboðum. Samnings-
verð fyrir byggingu hússins sjálfs
reiknað á verðlagi í júlí var um 1,5
milljarðar króna. Eins og kunnugt
er segir byggingamefnd flugstöðvar-
innar að stöðin kosti 2.850 milljónir
króna.
í þessum 1,5 milljörðum króna fel-
ast jarðvinna og lagnir, húsið
fokhelt, glervirki, frágangur innan-
húss og lóð með bílastæðum. Ljóst
er að mikill aukakostnaður hefur
fallið á suma þessa verkþætti þegar
til kom, einkum fráganginn innan-
húss. Þá er fyrir utan þessa tölu
ýmislegt sem kostar verulegt fé.
Meðal þess má nefna landgangana
sex, rúllustigana, ýmsan sérbúnað
og listaverk. Þá er ótalinn hönnun-
ar- og stjómunarkostnaður, svo og
fj ármagnskostnaður.
í þeim gögnum um útboð á helstu
verkþáttunum sem DV hefur undir
höndum kemur í ljós að samnings-
verð þeirra er 300 milljónum króna
lægra en kostnaðaráætlanir hönn-
uða. Sá spamaður hefur þó komið
að litlu haldi þegar fram í sótti. Þá
ber að gæta þess varðandi heildar-
verð flugstöðvarinnar að felld vom
niður aðflutningsgjöld af ýmsu efni
og hlutum til hennar. Það þýðir að
í raun og vem er stöðin enn dýrari
en byggingamefnd gefur upp, í sam-
anburði við aðrar byggingar, og má
áætla verð hennar um eða yfir 3.000
milljónir króna á þeim gmndvelli.
Þegar byggingamefnd Leifestöðv-
ar gerði nýlega grein fyrir heildar-
kostnaði við stöðina upp á 2.850
milljónir króna reiknaði hún ofan á
upphaflega kostnaðaráætlun inn-
lenda verðbólgu allan byggingartím-
ann og að auki kostnað vegna
ákveðinna breytinga á byggingar-
tímanum. Þess var ekki getið að
samningsverð helstu verkþáttanna
var 300 milljónum króna lægra en
kostnaðaráætlanir. Skýringar á
þessu atriði eða öðrum fást ekki hjá
nefhdinni.
-HERB
Hóllinn á bílastæðinu fyrir utan verksmiðju kóka kóla að Stuðlahálsi.
Flugstoövarmálið:
Byggingarnefnd-
in í bindindi
Byggingamefhd Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar hefur ákveðið að fara í
talbindindi gagnvart fjölmiðlum þar
til úttekt Ríkisendurskoðunar liggur
fyrir. Þorsteinn Lngólfsson, nýr for-
maður nefhdarinnar, greindi DV frá
því að ákvörðun um þetta hefði ve-
rið tekin nú í vikunni.
Það verður því líklega litlar skýr-
ingar að fá næstu mánuðina á því
gríðarlega háa verði sem greiða
verður fyrir Leifestöð eða ótrúlegu
misræmi og seinagangi á upplýsing-
um frá nefhdinni um byggingar-
kostnaðinn. Eins og DV hefur skýrt
frá mun það taka Ríkisendurskoðun
mánuði frekar en vikur að grann-
skoða málavexti.
-HERB
Góðarvættirsem
vemda kóka kóla
Hóllinn fyrir utan kóka kóla verk-
smiðjuna að Stuðlahálsi hefur vakið
athygli margra. Sögusagnir em um
að þar séu álfar og því hafi hóllinn
ekki verið jafhaður við jörðu á sínum
tíma.
Davíð Guðmundsson verksmiðju-
stjóri segir kiminn að í hólnum séu
örugglega vættir sem vemdi kóka
kóla en hóllinn hafi þó verið látinn
standa fyrst og fremst vegna þess að
hann sé fallegur og setji svip á um-
hverfið. „Sagan um álfana í hólnum
hefur heyrst áður enda sýna niður-
stöður kannana að 50 prósent íslend-
inga trúa á álfa,“sagði Davíð.
JGH
Slæmt að eiga afmæli um helgar:
Heillaóskaskeyti
ekki borin út á
landsbyggðinni
„Við berum ennþá út heillaóska- og
samúðarskeyti alla daga í Reykjavík
en víðast hvar úti á landi em þau
aðeins borin út á venjulegum skrif-
stofutíma á virkum dögum,“ sagði
Ágúst Geirsson, símstjóri í Reykjavík.
Ágúst sagði að breyting hefði orðið
á afhendingu venjulegra skeyta í
Reykjavík. Texti skeytanna er sím-
aður til viðtakenda og síðan em
skeytin send í pósti. Óski menn eftir
því að skeytin séu borin beint út em
þau send í sérstakri hraðboðasendingu
og leggst þá aukagjald á skeytin, eða
112,50 krónur.
„Eftir að flestar símstöðvar urðu
sjálfvirkar varð það til þess að þær
lokuðu um helgar. Þá fækkaði skeyta-
sendingum með sjálfvirkninni og störf
talsímavarða hafa mikið til lagst nið-
ur.
Þetta varð til þess að símstöðvamar
vom aðeins opnar á skrifstofutíma og
því var enginn til þess að taka á móti
og bera út skeyti á kvöldin og um
helgar.
Það er hins vegar regla hjá mörgum
símstöðvum úti á landi, sérstaklega
þó hinum minni, að hafa opið þegar
stórviðburðir em í vændum, svo sem
fermingar eða merkisafmæli. Ef ein-
hverjir benda símstöðvarstjórunum á
að slíkir viðburðir séu í nánd reyna
þeir oftast að hafa aukavakt á stöð-
inni til að taka á móti og dreifa
heillaóskaskeytum," sagði Ágúst
Geirsson, símstjóri í Reykjavík.
-ATA
HAUSTTILBOÐ
SOLHUSIÐ
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18, sími 28705
Takmarkað upplag
tilboðskorta
á að seljast.
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI