Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987. Uflönd Skotið á keisarahöllina Að minnste kosti tveim eldflaugum var skotið að japönsku keisarahöll- inni í Tokýo £ gser og lentu þær í garði hallarinnar. Eldflaugunum, sem báðar voru heimagerðar, var skotið af palli vörubifreiðar og kviknaði í bifreið- inni við skotin. Ekki er vitað með vissu hverjir stóðu að árásinni en henni svipar til fyrri tilræða róttækra vinstri manna. Mótmælin breiðast út Sýrlenskir hermenn skutu viðvör- unarskotum að mannfjölda í vestur* hluta Beirút í gær þar sem mikil mótmæli gegn hækkun vöruverðs brutust út í ólátum og ránum í versl- unum. Útvarpið í Beirút skýrði frá því í gærkvöldi að líklegt mætti telja að mikill íjöldi fátækra og hungraðra Líbana myndi á næstu dögum slást í hóp þeirra sem nú standa að mót- mælum gegn þróun peningamála og verðlags í iandinu. Segir friðinn kontra að þakka Ronald Reagan Bandaríkjaforseti sagði í gær að kontrahreyfingin, sem berst gegn ríkisstjóm Niearagua, ætti allan heiður að því að stjómvöld í landinu samþykktu að eiga aðild að friðaráætlun í Mið-Ameríku, sem ieið- togar ríkja þess heimshluta komu sér saman um nýverið. Reagan átti í gær fund með sjö leiðtogum kontrahreyfingarinnar en hann hefur þegar heitið þeim áframhaldandi stuðningi bandarískra stjómvalda og á fundinum í gær var það rætt með h veij um hætti sú aðstoð yrði veitt 1 upphafi fundarins í gær sagði forsetinn að ekki hefði enn verið tekin ákvörðun um það hvemig kontrahreyfingin yrði studd en að þeim væri óhætt að treysta á að þá myndi ekkert skorta. Lerta ftiðsamrar lausnar Samningamenn italskra sljóm- valda reyna enn áð finna friðsama lausn. á uppreisn fanga á eyjunni Elbu, þar sem tuttugu og einum gísl er enn haldið í sjúkrahúsi fangélsis- ins. Embættismenn á staðnum segja þó engan árangur sjáanlegan enn. Fangamir hafa sleppt einum gísl, fangaverði, svo og heimilað brott- flutning þeirra fanga sem voru á sjúkrahúsinu þegar þeir tóku það. Þeir hafa krafist þess að fá þyrlu til að komast á brott í og hóta ella að myrða gíslana. Fangamir hafa tvisvar sett því tímamörk að gíslar yrðu líflátnir ef kröfum þeirra yrði: ekki fullnægt. Tilsettur tími hefur í bæði skiptin liðið án þess að orðið væri við kröfy- um þeirra, en þeir hafa ekki enn tekið neinn gíslanná af lífi. Taka vægt á verkfallsmönnum ' Stjómvöld í Suður-Kóreu hafa fyr- irskipað miskunnarlausar aðgerðir gegn áróðnrsmönnum kommunista í landinu, sem þau segja bera ábyrgð á óróleika meðal áerkálýðs landsins. en á sama tíma forðast talsmenn stjómarinnar alla gagnrýni þá þær þúsundir verkamanna sem iagt hafa niður vinnu í deilum undanfarinna vikna. Þótt verkalýðsátök undanfarins mánaðar hafi þegar kostað landið um einn milljarð dollara í ffam- leiðslu. virðist ríkisstjómin iíkvcðin í að taka á verkfallsmönnum af þol- inmæði Fréttaskýrendur segja að stjómvöld hafi frá upphafi, þegar þau gengu að kröfum stjómarandstöðu um úrbætur í stjómháttum landsins, gert sér grein fyrir að það myndi leiða til óróleika á vinnumarkaði þar sem verkamenn myndu fylgja eftir kröfum sínum um bætt kjör. Tólf klukkusttmdum eftir að nær þrjú hundruð hermenn á Filippseyjum reyndu í gær að steypa forseta lands- ins, Corazon Aquino, af stóli höfðu þeir enn yfirráðin yfir nokkrum her- bækistöðvum og börðust við hermenn hliðholla forsetanum. Samtímis þvi sem forsetinn lýsti yfir að uppreisnin hefði verið bæld niður tilkynntu uppreisnarhermennimir að þeir myndu ráða yfir öllu landinu áður en dagurinn væri á enda. Einkasonur forsetans særðist er skotið var á hann í nótt er hann var á leið til forsetahallarinnar. Þrír líf- varða hans voru skotnir til bana, að því er embættismenn, er ekki vildu láta nafns síns getið, greindu frá. Að minnsta kosti tuttugu og níu manns höfðu látið lífið er síðast frétt- ist og sjötíu særst. Uppreisnin hófst er hermenn, sem taldir eru fylgismenn Marcosar, réðust Að minnsta kosti tuttugu og níu manns létust í uppreisnartilrauninni á Filipps- eyjum í gær og hér er einn þeirra dreginn eftir gangi sjúkrahúss eins í úthverfi höfuðborgarinnar Manila. Simamynd Reuter með skothríð á forsetahöllina. Fimm öryggisverðir við höllina féllu í átök- um við uppreisnarmennina. Einn erlendur fréttamaður og að minnsta kosti einn uppreisnarmaður em meðal hinna föllnu. Uppreisnarmenn yfir- gáfu hallarsvæðið eftir nokkra klukkustunda skothríð. Umhverfis höllina em nú skriðdrekar sem loka öllum leiðum að henni. Ástandið þar er enn spennuþmngið. Svo virtist sem byltingarmenn nytu stuðnings hermanna í þremur hémð- um umhverfis höfuðborgina Manila og í borginni Cebu. Þess vom þó eng- in merki að þeir væm á leið til höfuðborgarinnar. Heimildarmenn stjómarinnar segja uppreisnarmenn hafa yfirráðin yfir hluta þriggja herbækistöðva. Leiðtogi uppreisnarmanna, Honasan ofursti, segir þá ekki ætla að bera fram neinar almennar kröfnr og lagði áherslu á að þeir væm ekki fylgismenn Marcos- ar. Honason var í nánum tengslum við fyrrum vamarmálaráðherra Filipps- eyja, Juan Ponce Enrile, sem nú er einn helsti andstæðingur stjómarinn- ar á Filippseyjum. Enrile var rekinn úr embætti í nóvember síðastliðnum eftir að upp komst að liðsforingjar hliðhollir honum ráðgerðu byltingu. Þegar þing kom saman í gær til þess að fordæma uppreisnina og lýsa yfir stuðningi við forsetann var Enrile, sem er þingmaður, fjarverandi. Marcos sagði í gær á heimili sínu á Hawai að hann ætti enga aðild að atburðunum á Filippseyjum en lýsti því jafnframt yfir að hann væri reiðu- búinn að taka við völdum á nýjan leik ef uppreisnin tækist og honum yrði boðið til baka. Þetta er í fimmta skipti eftir að Aqu- ino tók við völdum sem tilraun er gerð til að steypa henni af stóli. I þessari viku hefur hún mætt mikilli andstöðu borgaranna sem hafa efnt til víðtækra verkfalla og mótmæla vegna verð- hækkunar á bensíni. í síðustu tilrauninni til að steypa Aquino tóku nokkrir einkahermenn og undirforingjar þátt. Þeir voru með aðalherbækistöðvamar í höfuðborg- inni á sínu valdi í nokkrar klukku- stundir. Byltingartilraunin núna virðist hafa komið flestum á óvart. Talið er að hún verði jafnáranguislaus og hinar fjórar. Það er bent á að Aquino hafi aldrei tekist að bæla alveg niður andstöðu innan hersins og að full saksókn gegn uppreisnarmönnum hafi aldrei farið fram. Hermaður hliðhollur Marcosi, fyrrum skothríð hermanna stjórnarinnar. forseta Filippseyja, leitar skjóls undan Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.