Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Page 27
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
39
Fréttir
Tryggvi Skjaldarson við hundrað tonn af kartöflum sem hann varð að henda á haugana.
DV-mynd BG
Enn deilt um kartöflumarkaðinn:
Stnðið aðallega i
kollinum á Tryggva
segir Einar Páll Svavarsson hjá Þykkvabæjarkartöflum hf.
„Mér finnst merkilegt að Tryggvi
Skjaldarson, sem er stjómarmaður í
hinu ríkisstyrkta fyrirtæki Agæti,
skuli ráðast með slíku offorsi á
Þykkvabæjarkartöflur og kvarta und-
an því að við kaupum ekki kartöflum-
ar hans. Honum væri nær að velta
fyrir sér hvers vegna Agæti gat ekki
selt uppskeruna hans sem varð til þess
að Tiyggvi varð að keyra hundrað
tonn af kartöflum á haugana," sagði
Einar Páll Svavarsson hjá Þykkvabæ-
jarkartöflum hf. í samtali við DV.
„Við skiljum ekki þetta tal Tryggva
um stríð á markaðnum og yfirgang
einhverra samtaka. Fyrirtækið
Þykkvabæjarkartöflur hf. bauð öllum
bændum í Þykkvabænum viðskipta-
samning, þar á meðal Tryggva, en
hann og nokkrir aðrir vildu ekki vera
með enda er Tryggvi stjómarmaður í
Ágæti. Ég er hræddur um að þetta
stríð sé hvergi nema í kollinum á
Tryggva."
Einar Páll sagði að fyrirtækið
Þykkvabæjarkartöflur hf. hefði verið
stofnað 1985 og væri einkafyrirtæki.
Það hefði upphaflega gert viðskipta-
samning við tólf bændur í Þykkva-
bænum en síðan hefðu fimmtán aðrir
bæst í hópinn. Fyrirtækið Þykkvabæ-
jarkartöflur framleiðir gæðavörur en
hendir ekki saman í ógegnsæjan bréf-
poka góðum kartöflum og slæmum og
lætur neytendum eftir að henda stór-
um hluta vörunnar, eins og tíðkaðist
á tímum einokunar Grænmetisversl-
unar landbúnaðarins á kartöflumark-
aðnum.
„Mér finnst ljóst á orðum Tryggva
að hann er að yfirgefa Ágæti. Því
finnst mér undarlegt að hann skuli
fara í stríð við okkur en ekki gamla
fyrirtækið sitt sem hann er stjómar-
maður í en getur ekki einu sinni selt
uppskemna hans.
En það virðist enn eima eftir af
gamla einokunarhugsunarhættinum
hjá Tryggva og ýmsum öðrum mönn-
um hjá Ágæti, sem í rauninni er ekkert
annað en Grænmetisverslun land-
búnaðarins í spariklæðum. Þess vegna
er ráðist að Þykkvabæjarkartöflum
hf. sem með tilkomu sinni og frjálsri
samkeppni hefur komið kartöflunum
úr kartöflukofunum og gert þær að
gæðavöm sem uppfylla óskir og þarfir
neytendanna."
Einar Páll sagði að hvað verðlagn-
ingu snerti væri lítill vandi að halda
verðinu niðri með þvi að kýla kartöfl-
um í 25 kílóa poka og selja þær af
vömbílspalli nýjar úr garðinum. Þegar
varan væri hins vegar unnin og sett
í neytendapakkningar, geymslukostn-
aður bættist við og eftirlit í verslunum
þá hækkaði kostnaðurinn að sjálf-
sögðu.
„Mér finnst það hreinlega okur að
leggja fimm krónur á kílóið af kartöfl-
um, sem koma beint upp úr garðinum
og traðkað er á á vömbílspalli niðri í
miðbæ,“ sagði Einar Páll.
„Hreinlega lygi“
Tryggvi Skjaldarson, kartöflubóndi
í Þykkvabæ, sagði að það væri hrein-
lega lygi að öllum bændum í Þykkva-
bænum hefði verið boðið að selja
kartöflumar sínar til Þykkvabæjar-
kartaflna nf. Tólf bændum hefði verið
boðið það í upphafi.
„Þegar búið var að nota allar kart-
öflumar frá þessum tólfinenningum
höfðu þeir samband við fleiri bændur
sem þá vom á samningi við Ágæti.
Þeir höfðu meðal annars samband við
mig en mér fannst ómerkilegt að
hlaupa frá Ágæti á miðju sölutímabili
með afganginn af kartöflunum upp á
von og óvon og eiga það kannski á
hættu að þurfa að koma grenjandi til
Ágætis aftur með næstu uppskem.
Hvað varðar stjómarsetu mína í
Ágæti þá er ég í stjóm SÍM, Sam-
bandi islenskra matjurtarframleið-
enda, en sambandið á Ágæti. Ég var
settur í þá stjóm nánast nauðugur og
hef litlu komið þar fram af mínum
áhugamálum."
-ATA
Þær eru bæjarprýði endurnar viö húsið Sæból á Dalvik. Þau hjón Guðlaug Anna Guðlaugsdóttir og Haukur
Tryggvason eiga endurnar sem eru bæði aliendur og pekingendur. Þær sjá Guðlaugu fyrír eggjum allan ársins
hring, auk þess sem nærvera þeirra lífgar upp á tilveruna. DV-mynd JGH
K KÓPAVOGUR
BREIÐHOLT
Vörumarkaðnrinn hf.
ÞJÓNUSTUDEILDIN
ER FLUTT AÐ
SMIÐJUVEGI D 18
OPIÐ9-18 SlMI: 78800
SÍMATÍMI: kl: 10 - 12 og 14 - 17
- ÞJÓNUSTUDEILD -
SMIÐJUVEGI D 18 - 200 KÓPAVOGUR
HVERAGERÐI:
ÓSKAR að ráða umboðsmann í Hveragerði.
Upplýsingar í símum 99-4389 eða 91 -27022.
STOLPI
vinsæli tölvuhugbúnaðurinn
Átta alsamhæfð tölvukerfi sem
ganga á yfir 20 tölvutegundir.
• FJÁRHAGSBÓKHALD •SKULDUNAUTAR
• LÁNARDROTTNAR •LAUNAKERFI
• BIRGÐAKERFI •VERKBÓKHALD
• SÖLUNÓTUKERFI •TILBOÐSKERFI
Þú getur byrjað smátt og bætt við kerfum og stækkað fyrirtækið
án þess að eiga það á hættu að „sprengja" kerfin því við bjóðum:
• LITLA STÓLPA FYRIR MINNSTU FYRIRTÆKIN
• STÓLPA FYRIR FLEST FYRIRTÆKI
•STÓRA STÓLPA FYRIR FJÖLNOTENDAVINNSLU
Látum allt fylgja með í „pakka“ ef óskað er, s.s. tö|vur, prentara,
pappir, disklinga, húsgögn, kennslu og qóða þjónustu._
Sala Hönnun hugbúnaðar
Markaðs- og söluráðgjöf,
Bjöm Viggósson,
Ármúla 38,108 Rvk,
sími 91-687466.
Kerfisþróun,
Kristján Gunnarsson,
Ármúla 38,108 Rvk,
sími 91-688055.
Verslunarferð
til Glasgow
á aðeins
28 kr.
Ný sending
Ótrúlegt úrval af skartgripum,
slaufum og bananaspennum
á ótrúlegu verði.
Töskur í úrvali.
Leðurtöskur frá kr. 1.190,-
Skólabuxurnar frá kr. 990,-
Coca Cola peysur kr. 890,-
Opið virka daga kl. 9-20,
laugardaga kl. 11-16.
litla GLASG0W
Skipholti 50 C (við hliðina á Pítunni)
EF ÞÚ GETUR KEYPT SÖMU VÖRU HÉRLENDIS Á
LÆGRA VERÐI B0RGUM VIÐ MISMUNINN.