Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1987, Síða 31
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987.
Asgeir Sigurðsson
Ásgeir Sigurðsson rallökumaður
skrifaði grein í DV í gær um Ljóma-
rallkeppnina en hún hófst á hádegi
í gær. Ásgeir tekur þátt í Ljómarall-
inu og hafði sér til aðstoðar fyrsta
spölinn Þorstein Pálsson forsætis-
ráðherra.
Ásgeir er fæddur að Reyðará í
Lóni í Austur-Skaftafellssýslu. Þar
bjó hann til tíu ára aldurs en flutti
þá með foreldrum sínum til Hafnar
i Homafirði. Árið 1975 flutti Ásgeir
í Kópavoginn og ári síðar festi hann
ráð sitt. Árið 1983 fluttu þau hjónin
svo að Austurtúni 9 á Álftanesi og
þar búa þau enn.
• Ásgeir var við gagnfræðanám í
Héraðsskólanum á Laugarvatni og
í Hagaskólanum en fór síðan í nám
að Bifröst og lauk prófi þaðan 1975.
Hann hefúr starfað í tjónadeild bif-
reiða hjá Tryggingum hf. frá 1976.
Eiginkona Ásgeirs er Þorgerður,
f. 1955. Foreldrar hennar em Gunnar
Ámason og Stefanía Stefánsdóttir.
Ásgeir og Þorgerður eiga tvo syni:
Gunnar Jörva, f. 1977, og Alia Þór,
f. 1985.
Systkini Ásgeirs em þrjú: Gunn-
laugur kennari, f. 1954, en hans kona
er Gunnur Ágústsdóttir fóstra. Anna
Dóra félagsfúlltrúi, f. 1960, og Þránd-
ur nemi, f. 1968, en hann hefur spilað
með meistaraflokki ÍA nú í sumar.
Móðir Ásgeirs er Ásta, f. 1928,
Guðlaugsdóttir, b. á Virkishólaseli í
Álftafirði, Sigurðssonar. Móðir Ástu
var Guðrún frá Holtahólum í Mýra-
hreppi, f. 1888, Einarsdóttir, en þau
vom bræðraböm hún og Guðbrand-
ur Magnússon, fyrsti ritstjóri
Tímans og forstjóri ÁTVR. Ásta á
þrjá bræður: Snorra, f. 1924, Óskar,
f. 1925 og Gunnar, f. 1927.
Faðir Ásgeirs er Sigurður, fyrrv.
b. á Reyðará, f. 1924, bróðir Þor-
steins, f. 1926, sem nú býr á Reyðará,
og Baldurs, forstjóra Kórals í
Reykjavík. Systir þeirra bræðra er
Aðalheiður, f. 1923, kona Sigurðar
Hjartarsonar, frkvst. Sambands
austfirskra sveitarfélaga. Faðir
þeirra systkina og afi Ásgeirs var
Geir, b. á Reyðará, f. 1898, d. 1974,
en hann var sonur þeirra merkis-
hjóna Sigurðar á Reyðará, f. 1868,
d. 1917, og Önnu Hlöðversdóttur
kennara, f. 1876, d. 1953. Geir var
elstur sex sona þeirra hjóna en hinir
em Stefán, skólastjóri í Reykholti í
Biskupstungum, f. 1901, Ásmundur,
kennari og alþingismaður, f. 1903,
Hlöðver, skólastjóri á Siglufirði, f.
1906, d. 1982, Þórhallur smiður, f.
1907, d. 1933, og Hróðmar, kennari
í Austur-Skaftafellssýslu og Hvera-
gerði, f. 1912, d. 1957. Móðir Önnu
var Elín, dóttir Einars Hjörleifcson-
ar, prests í Vallamesi, og þar með
foðursystir Einars Kvaran skálds.
Séra Einar í Vallamesi og Þóra,
kona hans, vom bræðraböm þeirra
Hjörleifc prests og Jóns vefara en frá
föður þeirra bræðra, Þorsteini, presti
á Krossi, er kominn fjöldi merkra
manna af Austurlandi. Má þar t.d.
Ásgeir Sigurðsson.
nefna Kristján Eldjám forseta, Hjör-
leif Guttormsson og Ragnar Hall-
dórsson í álverinu.
Afmæli
Birgir Sigurðsson
Birgir Sigurðsson rithöfundur, Spít-
alastíg 3, Reykjavík, verður fimm-
tugur í dag.
Hann er fæddur í Reykjavík og
lauk kennaraprófi 1961. Birgir var
blaðamaður á Tímanum 1961—1963
og kennari í Mýrarhúsaskóla á Sel-
tjamamesi 1963-1966, Birgir var
skólastjóri Ásaskóla í Gnúpverja-
hreppi 1967-1975 og Grunnskólans i
Hrísey 1978-1980. Hann hefúr auk
þess kennt í Reykjavík og Kópavogi
og unnið við margs konar störf við
sjómennsku, búskap og verka-
mannavinnu. Birgir hefur síðastliðin
fjögur ár aðallega stundað ritstörf
og er mikilvikur rithöfúndur. Birgir
átti sæti í síðustu framkvæmdanefnd
Listahátíðar, hann gegndi störfum
varaformanns Rithöfundasambands
íslands 1982-1986 og hefur verið for-
seti Bandalags íslenskra listamanna
frá 1985. Birgir hefúr ritað eftir talin
verk: Réttu mér fána, ljóð, 1968, Al-
þýðuvísur um ástina, Ijóðaflokkur,
1971, Á jörð ertu kominn, 1972, Pétur
og Rúna, leikrit, hlaut fyrstu verð-
laun í leikritasamkeppni Leikfélags
Reykjavíkur 1972. Selurinn hefur
mannsaugu, leikrit, Leikfélag
Reykjavíkur, 1974, Skáld-Rósa, leik-
rit, Leikfélag Reykjavíkur, 1978,
Grasmaðkur, leikrit, Þjóðleikhúsið,
1983. Dagur vonar, leikrit, Leikfélag
Reykjavíkur 1987, Hann hefúr auk
þess þýtt eftirtalin verk, Bam í garð-
inum, eftir Sam Shepard, Langferð
Jónatans eftir Marten A. Hansen,
1985, og Grasið syngur, eftir Doris
Lessing, 1986.
Kona Birgis er Elsa Vestmann
Stefánsdóttir, nemi í Myndlista- og
handíðaskóla Islands. Böm hans em
Steinþór, Freyja og Steinunn Björk,
öll í námi.
Systkini Birgis: Ingimar Erlendur,
rithöfundur í Reykjavík, og Sigríður
Freyja, sem er látin. Foreldrar þeirra
vom Sigurður Ingimar Helgason,
sjómaður í Reykjavík, f. 1. mars 1906,
d. 2. janúar 1940 og kona hans Frið-
björg Jónsdóttir, f. 25. ágúst 1900,
Birgir Sigurðsson rithöfundur.
en hún er enn á lífi 87 ára gömul.
Faðir Birgis, Sigurður, var sonur
Helga, sjómanns í Reykjavík Jak-
obssonar, foðurbróður Þórarins
Jónssonar tónskálds en móðir Birg-
is, Friðbjörg, var dóttir Jóns, b. í
Sörlatungu í Hörgárdal í Eyjafirði
Guðmundssonar og konu hans, Jón-
asínu Friðfinnsdóttur.
Andrea Bjarnadóttir
Andrea Bjamadóttir, Lindargötu 41,
Reykjavík, verður níræð í dag.
Hún er fædd á Þóreyjamúpi í
Línakradal í Vestur-Húnavatnssýslu
og var fyrst með foreldrum sínum
en síðan tekin í fóstur á Refcteins-
stöðum í Víðidal þegar hún var fimm
ára til Guðmundar Guðmundssonar
og Helgu Þórarinsdóttur. Hún giftist
Bimi Leví Þórðarsyni en hann lést
1957. Foreldrar hans vom Þórður
Bergþórsson, b. á Kambshóli í Víði-
dal, og kona hans, Elín Guðmunds-
dóttir. Þau vom fyrst í húsmennsku
en bjuggu síðan á Sporðhúsum í
Línakradal en síðan á Gauksmýri í
6 ár og síðast á Neðri-Þverá. Þau
eignuðust 11 böm, en misstu einn
son í æsku, Þórð Leví, þau sem upp
komust vom Þóra Margrét, gift
Pétri Aðalsteinssyni, ráðsmanni við
Sjúkrahúsið á Hvammstanga, Jakob
Benedikt, glerskurðarmaður í
Brynju í Rvík, Þórður Leví, leigubíl-
stjóri í Rvík, Unnsteinn, b. á Neðri-
Þverá í Vesturhópi, Heiðrún,
húsmóðir í Rvík, Aðalheiður, hús-
móðir í Rvík, er látin, maður hennar
var Sigurður Magnússon, verktaki
í Rvík, Helgi Hólm, starfsmaður í
Kassagerð Reykjavíkur, Bjami
Hólm, glerísetningamaður í Rvík,
giftur Rebekku Bjamadóttur, Geir
Hörður, viðgerðamaður í Rvík, gift-
ur Magneu Guðlaugsdóttur, Eygló
húsmóðir, sambýlismaður hennar er
Karl Sveinsson, leigubílstjóri í Rvík.
Systkini Andreu em Ágúst Bjami,
b. á Hurðarbaki í Vesturhópi, giftur
Marisbil Sigurðardóttur, Jónína, gift
Bimi Jakobssyni, b. á Neðri-Þverá,
Margrét, lést ung, Herdís, nú á Elli-
heimilinu á Hvammstanga, Hálfdán,
verslunarstjóri í Rvík, giftur Aðal-
heiði Þórarinsdóttur.
Foreldrar þeirra vom Bjami
Andrea Bjarnadóttir.
Bjamason, b. á Fossi og síðar á
Bjarghúsum í Vesturhópi, og kona
hans, Ingibjörg Ágústa Andrésdóttir.
Faðir Bjama var Bjami Bjamason,
sem bjó samtímis á Öxnatungu og
Litlu-Ásgeirsá, og seinna á Syðri-
Þverá, en faðir Ingibjargar var
Andrés Einarsson, b. á Stöpum á
Vatnsnesi, og konu hans, Sólveigar
Jónsdóttur.
Þorkell Fjeldsted
Þorkell Kr. Fjeldsted, b. i Ferju-
koti, laxveiðimaður og fréttaritari
útvarpsins, er fertugur í dag. Þor-
kell er að vísu fæddur á fæðingar-
deildinni í Reykjavík en hefur alla
sína tíð átt heima i Ferjukoti og er
alinn þar upp hjá foreldrum sínum.
Hann sótti Héraðsskólann að Reykj-
um í Hrútafirði og var síðan við
búfræðinám á Hvanneyri. Frá því
að námi lauk hefur Þorkell verið b.
að Ferjukoti ásamt föður sínum en
eins og flestir vita er laxveiðiáhug-
inn honum í blóð borinn.
Þorkell giftist 1971 Hebu Magnús-
dóttur en hún er fædd 1951. Foreldr-
ar Hebu em Valdis Björgvinsdóttir
og Magnús Pétursson, Ólafesonar
bróður Sveins forseta, Bjömssonar
ritsjóra og ráðherra.
Þorkell og Heba eiga tvo syni og
tvær dætur. Kristján, f. 21. 4. 1971,
Magnús, f. 11. 11. 1973, Heiða Dís,
f. 5.4.1979 og Elísabet, f. 16.11.1985.
Systkini Þorkels em tvö, Sigurður,
f. 1941, og Guðrún reiðkennari, f.
1952.
Foreldrar Þorkels em Kristján b.
í Ferjukoti, búfræðingur frá Hvann-
eyri og enskum landbúnaðarskóla,
f. 1914, og Þórdís, íþróttakennari frá
Laugarvatni og íþróttaskólanum
Snoghö á Jótlandi. Faðir Kristjáns
var Sigurður Fjeldsted, b. í Ferju-
koti og um tima ráðsmaður hjá
baróninum á Hvitárvöllum, f. 1858,
en faðir Sigurðar var Andrés, b. á
Hvítárvöllum Andréssonar, b. þar,
Vigfússonar en Andrés yngri var
landsfrægur veiðimaður og hag-
leiksmaður. Bróðir Sigurðar var
Lárus hrl., föðurafi Katrínar
Fjeldsted, læknis og borgarráðs-
manns. Móðir Andrésar eldri var
Karitas, dóttir hins kunna sýslu-
manns Magnúsar á Skarði Ketils-
sonar. Móðir Sigurðar var Þorbjörg,
systurdóttir Eyjólfs Eyjajarls.
Faðir Þórdísar var Þorkell versl-
unarmaður í Borgamesi, Guð-
mundsson b. á Jafriaskarði,
Auðunssonar. Móðir Þórdísar er nú
á nítugasta og níunda aldursári en
hún heitir Guðrún Bergþórsdóttir
og býr í Borgamesi. Þórdís er ættuð
af Mýrunum í báðar ættir.
60 ára__________________________
Oddný Sigurðardóttir, Álfaskeiði
88, Hafnarfirði, er 60 ára í dag.
Auður Eiriksdóttir, Erluhrauni 10,
Hafnarfirði, er 60 ára í dag.
Jóhanna Pálmadóttir, Þórunnar-
stræti 117, Akureyri, er 60 ára í dag.
Sigþór Sigurðsson vélstjóri, Ránar-
götu 13, Akureyri, er 60 ára í dag.
50 ára__________________________
Kristinn Guðnason verslunarstjóri,
Miðvangi 67, Hafnarfirði, er 50 ára
í dag.
Pétur Simon Víglundsson, Lækjar-
bakka II, Lýtingsstaðahreppi, er 50
ára í dag.
Páll Pétursson, Akurholti 20, Mos-
fellsbæ, er 50 ára í dag.
Bergþóra Bergsteinsdóttir, Lang-
holti 2, Keflavík, er 50 ára í dag.
40 ára__________________________
Hilmar Sigurðsson, Fífumýri 14,
Garðabæ, er 40 ára í dag.
Jóna Jósteinsdóttir, Barónsstíg 51,
Reykjavík, er 40 ára í dag.
Gunnar Kristinsson, Sólvangi,
Grýtubakkahreppi, er 40 ára í dag.
Júlíus Baldvinsson, Lyngbraut 2,
Gerðahreppi, er 40 ára í dag.
Ingibjörg M. Þórhallsdóttir, Eikar-
lundi 25, Akureyri, er 40 ára í dag.
Einar Kristmundsson, Grænuhlíð,
Torfalækjarhreppi, er 40 ára í dag.
*•
Andlát
Sigríður Benediktsdóttir
Sigríður Benediktsdóttir, ljósmóðir á
Þorvaldsstöðum í Skriðdal, lést í
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum sunnu-
daginn 23. ágúst.
Sigríður var fædd 24. nóvember
1892 að Þorvaldsstöðum í Skriðdal
í Suður-Múlasýslu. Hún var í
Kvennaskólanum í Rvík 1910-1912
og lauk ljósmæðranámi frá Ljós-
mæðraskóla íslands 1926. Sigríður
var ljósmóðir í Skriðdalsumdæmi
1926-1967. Hún var virk í Kvenfélagi
Skriðdalshrepps og var heiðmð af
konum í byggðarlaginu fyrir ljós-
mæðrastörf á sextugsafmæli sínu.
Maður Sigríðar var Friðrik Jóns-
son, b. og oddviti á Þorvaldsstöðum,
en hann lést 16. apríl 1977. Foreldrar
hans vom Jón ívarsson, b. á Eyrar-
teigi og Víkingsstöðum á Völlum,
og kona hans, Herbórg Eyjólfedóttir,
og vom þau Sigríður og Friðrik
systraböm. 1976 vom þau gerð að
heiðursborgurum Skriðdalshrepps.
Böm þeirra em Margrét ljósmóð-
ir, gift Sigþóri Sigurðssyni trésmið,
og Jóna Vilborg, gift Kjartani Run-
ólfssyni, b. á Þorvaldsstöðum.
Fósturdóttir Sigríðar var Margrét
Sigbjömsdóttir, dóttir Jónu Vilborg-
ar en hún er gift Sigfúsi Grétarssyni
menntaskólakennara.
Foreldrar Sigríðar vom Benedikt
Eyjólfsson, b. og hreppstjóri á Þor-
valdsstöðum í Skriðdal, og kona
hans, Vilborg Jónsdóttfr. Faðir Sig-
ríðar, Benedikt, var sonur Eyjólfs,
b. í Litla Sandfelli, Benediktssonar,
b. á Kolstöðum á Völlum, Rafnsson-
ar. Móðir Eyjólfc var Herborg
Rustikusdóttir.
Móðir Sigríðar var Vilborg Jóns-
dóttir Austíjörð, prests á Klippstað
í Loðmundarfirði, Jónssonar, Schi-
öld, b. og vefara á Amheiðarstöðum
i Fljótsdal, Þorsteinssonar, prests á
Krossi í Landeyjum, Stefánssonar.
Bróðir Jóns Austfjörð, var Pétur,
prestur á Valþjófsstað, langamma
Ragnars Halldórssonar í álfélaginu,
og faðir Sigríðar, langömmu Vals
Amþórssonar. Systir Jóns Austfjörð
var Þóra, amma Einars Kvaran rit-
höfundar, langafa Ragnars Amalds
alþingismanns.
Guðjón Klemensson læknir lést á
Borgarspítalanum 26. ágúst.
Áslaug Guðmundsdóttir, Vestur-
götu 70, Akranesi, lést á Sjúkra-
húsinu á Akranesi að kvöldi 26.
ágúst.