Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 6
26
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
íþróttir____________
Jón Grétar
tók stöðu
Guðmundar
Steinssonar
Jón Grétar Jónsson, sóknarleík-
maður úr Val, tók sæti Guðmund-
ar Steinssonar í ólympíulandslið-
inu. Guðmundur fór með
A-landsliðinu til Noregs. Ólyxnpíu-
landsliðið hélt til Prakkiands í
gær. Það leikur vináttuleik gegn
franska L deildar liðinu Bordeaux
á miðvikudaginn.
• Þorvaldur og Ormarr Örlygssynir.
DV-mynd ÞJ
DV
Bræður fóru
til Bordeaux
Bræðumir Þorvaldur og Ormarr
Örlygssynir fóru til Frakklands með
ólympíulandsliðinu í knattspymu.
Liðið leikur vináttuleik gegn Frakk-
landsmeisturum Bordeaux á miðviku-
daginn.
Ormarr, sem hefur leikið þrjá lands-
leiki, er 25 ára bakvörður hjá Fram.
Þorvaidur er aftur á móti einn af lykil-
mönnum KA-liðsins á Akureyri.
Ormarr lék einnig með KA áður en
hann gerðist leikmaður með Fram.
-ÞJ
Innreið
atvinnu-
mennsk-
unnar í
Sovétmenn hafa nú kunn-
gert að knattspyrnufélagið
Dnepr frá Okrainu sé fyrsta
alhliða atvinnuknattspymu-
liðið í landinu.
Leikmenn félagsins em
þannig bundnir því með bein-
um launasamningi:
„Dnepr mun bjóða ieik-
mönnum sínum og þjálfiirum
þriggja ára samning til að
byija með,“ sagði fram-
kvæmdastjóri Dnepr, Georgy
Zhizdik, í viðtali við sovéska
tímaritið Soviet Sport.
Dnepr er um þessar mundir
í öðru sæti fyrstu deildar og
hafa leikmenn þess sótt mjög
í sig veðrið síðan þeir fóru
að hafo atvinnu af knatt>
spymunni.
Þess má geta að fram að
þessu hafa knattspymulið í
Sovétríkjunum jafiian tengst
ýmsum stofriunum með ein-
um eða öðrum hætti. Nefiia
má herinn sovóska sem dæmi
um slíka stofriun.
-JÖG
HK-liðið
mætti ekki
til Akureyrar
Greiðir
þúlaun?
Ertu á launum við eiginn rekstur?
Tilkynningareyöublaö vegna
launagreiðendaskrár staðgreiöslu hefur
verið sent öllum launagreiðendum til
útfyllingar. Ef þú einhverra hluta vegna
hefur ekki fengið eyðublaðið, þá skaltu
nálgast það hjá næsta skattstjóra.
Allir launagreiðendur eiga lögum
samkvæmt að tilkynna sig á launagreið-
endaskrá. Einnig allir þeir, sem reikna
sjálfum sér, maka sínum eða börnum
endurgjald vegna vinnu við eiginn
rekstur.
Launagreiðendaskráin erforsenda
þess að launagreiðendurfái allar
nauðsynlegar upplýsingar um
framkvæmd staðgreiðslu opinberra
gjalda.
Tilkynning á launagreiðendaskrá
skal berast fyrir 1. október nk.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Gyffi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
Mikil óánægja braust út á Akureyri
þegar ljóst var að HK-liðið úr Kópa-
vogi mætti ekkj til leiks á handknatt-
leiksmóti sem fór fram á Akureyri um
helgina. HK, sem óskaði upphaflega
eftir þessu æfingamóti, tilkynnti á
fimmtudaginn að HK-liðið kæmi ekki.
Akureyringar reyndu að fá annað fé-
lag í stað HK. Þar sem stutt var til
stefiiu fékkst ekki annað lið.
Því kepptu þrjú félög, KA, Þór og
KR, og léku liðin sex leiki. KR-ingar
og Þórsarar hituðu upp á föstudags-
kvöldið. KR-ingar unnu þá 19-17. Á
laugardag fóru fram þrír leikir: KA
vann yfirburðasigur yfir Þór, 26-16.
Þór og KR .gerðu jafhtefli, 19-19, og
sömuleiðis KA og KR, 21-21. í gær
unnu leikmenn KA stóra sigra, 24-14
yfir Þór og 24-14 yfir KA. KR-ingar
unnu einnig stórsigur, 29-13, yfir Þórs-
urum.
II KR lék án Jóhannesar Stefáns-
sonar og Þorsteins Guðjónssonar.
• Jóhann Jakobsson hjá KA meidd-
i ist í fyrsta leiknum. Þá lék Erlingur
Kristjánsson ekki með KA.
• Það er greinilegt á þessu móti að
erfiður vetur er framundan hjá Þórs-
liðinu.
-sos