Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. 33 Iþróttir • Gunnar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar, sést hér stjórna liði sínu í leik. Evrópukeppni bikarhafa í handknatUeik: Stjörnumenn mæta Spánverj í Dublin „Margir þeirra hafa leikið með spánskum 1. deildar liðum/‘ segir Gunnar Einarsson, þjálfari Sljömunnar „Að öllu eðlilegu eigum við að kom- ast áfram í Evrópukeppni bikarhafa. ísland er hærra skrifað í handknatt- leik heldur en írland. En óneitanlega veikir það stöðu okkar að vita að Yago-liðið er nær eingöngu skipað Spánverjum. Margir þeirra hafa leikið með spánskum 1. deildar liðum. Við vitum að Spánverjar kunna ýmislegt íyrir sér í handknattleik,“ sagði Gunn- ar Einarsson, þjálfari Stjömunnar í Garðabæ - bikarmeistaranna í hand- knattleik. Gunnar og strákamir hans halda til Dublin í írlandi á morgum. Stjaman leikur báða Evrópuleiki sína í Dublin gegn Yago á fimmtudag og föstudag. „Við vitum ekkert um félagið nema að það er félagslið firá spánskum skóla,“ sagði Gunnar. • „Erum meö ungt lið“ „Stjaman hefur orðið fyrir blóðtöku að missa þá Hannes Leifsson og Pál Björgvinsson. Liðið er ungt - meðal- aldur leikmanna er 21 ár. Aðaltak- mark okkar í vetur er að halda okkur i deildinni. Það þýðir ekkert að vera að byggja skýjaborgir. Liðið er of ungt til þess,“ sagði Gunnar. Allir leikmenn Stjömunnar em heil- ir nema Gylfi Birgisson sem á við meiðsli að stríða í öxl. „Meiðsli hans em ekki svo alvarleg að hann geti ekki leikið með okkur í Dublin,“ sagði Gunnar. Það verður hart barist Hvað segir Gunnar um 1. deildar keppnina sem er að hefjast? „Fimm félög em áþekk að styrkleika, Valur, Víkingur, Fram, FH og Breiðablik. Þessi félög koma til með að beijast um meistaratitilinn. KR-liðið hefur sýnt skemmtilega takta og einnig KA fiá Akureyri. Það á ömgglega eftir að ganga á ýmsu í vetur," sagði Gunn- ar. -SOS Punktar frá Belgíu: Jaliazkov dæmdur í þungt keppnisbann - fyrir að lemja mótherja og hrækja á dómara Búlgarski landsliðsmaöurinn í • Gerard Bergholfz, þjálfari AA Miinchen og Preud’homme, Meche- knattepymu, Andrei Jeliazkov (35 Gent, var rekinn frá félaginu fyrir len. ára), sem leikur með belgíska 1. helgl Gent hefiir gengið illa í belg- Vamarmenn: Gerets, Eindhoven, deildarliðinuBeerschot,varáföstu- ísku 1. deildar keppninni Clijsters, Mechelen, Grun, And- daginn deemdur í þungt keppnis- • Guy Thijs, landsliöeþjálfari erlechtogRenquin.Standardliege. bann. Hann má ekki leika í Belgíu Belgíu, hefur valið Enzo Schifo, sem Miðvallarspilarar Franky van der fyrr en í janúar 1989. Hann fékk leikur með Inter Milanó á Italíu, i Elst, FC Briigge, Ceulemana, FC fimmtán mánaða bann fyrir að landsliðahópBelgíuaemmætirBúlg- Brúgge, Schifo, Inter Milano, Vand- ganga í skrokk á leikmanni í bikar- aríu í Evrópukeppni landshða í Sofíu ersmissen, Standard Iiege, Vercaut- leik á dögunum og hrækja síðan á á rniðvikudaginn. Inter Milanó gaf erer, Nantea og Vervoort, And- dómarann sem vfsaði honum af leik- Schifo ekki leyfi til að leika með erlecht velli. Belgíumönnum vináttulandsleik Sóknarleikmenn: Van den Berg, „Þetta er mikið áfall fyrir okkur. gegn Hollendingufn á dögunum. Lille, Dosmet lille, Degyse, FC Jelia2kov er besti leikmaður okk- Landsliðshópur Belgíumanna er BruggeogNicoClaesen,Tottenham. ar,“ sagði Jacques Pallens, þjálfari þannig skipaður. -SOS Beerschot eftir útskurðinn. Markverðir: Pfaff, Bayem Námskeið Námskeið eru haldin í stjörnukortagerð (Esoteric Astrology), þróunarheim- speki og sálarheimspeki. Stjörnukortarannsóknir, sími 79763. Dagheimili, Vogahverfi Til að vera betur í stakk búin að veita börnum í Sunnuborg, Sólheimum 19, markvisst upp- eldi í samræmi við þroska þeirra og þarfir viljum við ráða uppeldismenntað fólk og /eða aðstoðarfólk í 100% og 50% störf. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 36385. RÍKISSPÍTALAR LAUSAR STÖÐUR GEÐDEILDIR Hjúkrunardeildarstjóri óskast til starfa á geðdeildum, deild 15, Kleppi. Húsnæði á staðnum er í boði, Upplýs- ingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 38610. Reykjavík, 20. september 1987. FÓSTRUR NÝTT DAGVISTARHEIMILI Opnum í október nýtt skóladagheimili í Engihlíð. Vant- ar fóstrur sem fyrst. BREYTT DAGVISTARHEIMILI Fóstrur, nú gefst ykkur rækifæri til að skipuleggja dagheimili sem er að breyta starfseminni. Þetta er í Sólhlíð við Engihlíð. Hafðu samband í síma 29000- 591. Fóstra óskast í 50% starf fyrir hádegi í Stubbasel í Kópavogi. Upplýsingar í síma 44024. Reykjavík, 20. september 1987. HEIÐURSLAUN BRUNABÓTAFÉLAGS ÍSLANDS 1988 I tilefni af 65 ára afmæli Brunabótafélags Islands, 1. janúar 1982, stofnaði stjórn félagsins til stöðugildis hjá félaginu til þess að gefa einstaklingum kost á að sinna sérstökum verkefnum til hags og heilla fyrir ís- lenskt samfélag, hvort sem er á sviði lista, vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs. Nefnast starfslaun þess sem ráðinn er: HEIÐURSLAUN BRUNABOTAFÉLAGS ÍSLANDS Stjórn B.l. veitir heiðurslaun þessi samkvæmt sérstök- um reglum og eftir umsóknum. Reglurnar fást á aðalskrifstofu B.l. að Laugavegi 103 í Reykjavík. Þeir sem óska að koma til greina við ráðningu í stöð- una á árinu 1988 (að hluta eða allt árið) þurfa að skila umsóknum til stjórnar félagsins fyrir 10. október 1987. BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.