Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 10
30
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Iþróttir
• Zola Budd.
Zola Budd
kom, sá og
sigraði
Hlaupadrottningin Zola Budd,
sem hefur átt við meiðsli að stríða
i hásin í meira en ár, tók þátt í 10
km götuhlaupi í Bangor á N-ír-
landi á laugardaginn. Hún varð
sigurvegari í hlaupinu á 32.17 mín.,
eða á tveimur mín. betri tíma held-
ur en hún stefhdi að. „Ég horfi nú
fram á veginn og hef tekið stefhuna
á að keppa á ólympíuleikunum í
Seoul 1988. Ég er að verða góð af
meiðslunum," sagði Budd sem er
ekki búin að ákveða hvort hún
keppir í 3.000 eða 10.000 m hlaupi.
-sos
Ben Johnson
fljótastur í
Monte Carlo
Ben Johnson var öruggur sigur-
vegari í 100 m hlaupi á frjáls-
íþróttamóti í Monte Carlo á
laugardaginn. Hann kom í mark á
10.15 sek. ítalinn Pavani varð ann-
ar á 10,31 sck.
Félagi hans frá Kanada var sig-
urvegari í 110 m grindahlaupi á
13,35 sek. Bandaríkjamaðurinn
Campbell kom í mark á 13,38 sek.
Heimsmethafinn í 800 m hlaupi
frá Kenýa, Billy Konchellan, varð
að sætta sig við fimmta sæti. Bret-
inn Tom McKean var sigurvegari
á 1:45,74 sek.
Frakkinn Vigneron var sigur-
vegari í stangarstökki, stökk 5,72
m. Bandaríkjamaðurinn Bell stökk
sömu hæð.
-sos
Hearts á
toppinn í
Skotlandi
Hcarts skaust upp á toppinn í
Skotlandi á laugardaginn. Þá vann
félagið góðan sigur, 3-1, yfir
Dundee á útivelli John Cloquhoun
skoraði mark eftir aðeins 20 sek.
og síðan bætti hann öðru marki
við. John Robertsson skoraði
þriðja mark Edinborgarliðsins.
Hearts er með 13 stig eftir átta
leiki. Celtic og Aberdeen eru með
12 stig. Rangers og St Mirren 9.
Celtic og Aberdeen mættust í Glas-
gow og lauk viðureigninni með
jafntefli, 2-2. Tommy Burns og
Billy Stark, fyrrum leikmaður
Aberdeen, skoruðu fyrir Celtic.
Peter Nicholas og Joe Miller jöfh-
uðu fyrir Aberdeen.
St. Mirren lagði Dundee Utd. að
velli, 2-0, og Rangere vann sigur,
1-0, yfir Motherwell.
-sos
„Vamarmenn
sem hafa
náð 32 ára
aldri þurfa
að gangast
undir próf“
- segir Tony Schumacher sem
er óhress með mánudagsæf-
ingar hjá markvörðum
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Tony Schumacher hefur alltaf verið
ófeiminn að láta hugmyndir sínar í
ljósi. Eftirfarandi glefsur eru úr við-
tali við hann í Sport Intemationaal
sem gefið er út í Hollandi. í þessu við-
tali kemur Schumacher inn á séræf-
ingar og er óspar sem fyrr að láta
skoðanir sínar í ljósi.
• Tony Schumacher, markvörðurinn umdeildi.
„Hvers vegna þarf ég að æfa
á mánudögum?“
„Ég hef nú hin síðustu fimmtán ár
fengið sérstakar markmannsæfingar.
Nú spyr ég: Hvers vegna fá aðrir leik-
menn ekki sömu meðhöndlun? Hvers
vegna þarf ég sem markmaður að
mæta í fimmtán ár á hveijum mánu-
degi, sem er í raun eini frídagur minn,
og þá er ég að æfa í einn og hálfan
tíma úti á velli og svo á eftir í hálftíma
í lyftingum. Þetta sé ég aldrei leik-
mennina, sem spila úti á velli, gera.“
„Þjálfari á að vera úti á velli
frá átta til fimm“
„Þjálfarar leggja alltaf einnig minni
áherslu á stutta spretti sem mér finnst
fáránlegt. Hvers vegna taka miðherjar
ekki t.d, á hveijum degi æfingar í því
að skora mörk? Hvers vegna heldur
þjálfari aðeins æfingu í tvo tíma og
er svo farinn heim í staðinn fyrir að
vera úti á velli frá kl. 8 til 17.00 með
hveijum leikmanni fyrir sig, í minnst
einn og hálfan tíma?“
„Ég vil séræfingar með hverj-
um leikmanni“
„Ef þú ert að læra eitthvað verður
þú að leggja meiri tíma í lærdóminn
en tvo tíma á dag. Ég vil séræfingar
fyrir hvem leikmann og vamarleik-
menn, sem em komnir yfir 32 ára
aldur, þyrftu að gangast undir próf til
þess að ganga úr skugga um hvort
þeir séu ekki famir að missa niður
hraðann - láta þá hlaupa í 12 sekúnd-
ur til að sjá snerpu þeirra.“
„Ég æfi stökkkraftinn daglega“
„Eg sjálfúr æfi stökkkraftinn dag-
lega og mér finnst að aðrir megi leggja
hart að sér eins og ég geri,“ segir Tony
Schumacher að lokum í viðtali við
Sport Intemationaal. -JKS
Jones hefur
skorað mest
Andy Jones hjá Charlton er orðinn markahæsti leikmaðurinn í
ensku 1. deildar keppninni eftir að hafa aðeins leikið einn leik. Já,
leik sem hann skoraði ekki mark L Charlton keypti kappann frá
Port Vale. Jonea skoraði sex mörk fyrir 3. deildar félagið.
Liverpool-leikmennimir John Aldridge og Steve Nicol hafa einnig
skorað sex mörk. Gary Bannister, QPR, og Alan Smith, Areenal,
hafa skorað fimm mörk.
Mark Bright, Crystal Palace, hefur skorað flest mörk í 2. deild eða
9. Jimmy Quinn, Svindon, heftir skorað sjö mörk.
-sos
Punktar fra Englandi:
Tottenham vill kaupa
Hartford fra Luton
- og Everton Tony Cottee frá West Ham
Tottenham hefúr nú augastað á
markaskorara, þrátt fyrir að félagið
hafi þá Clive Allen og Belgíumanninn
Nico Claesen í herbúðum sínum á
White Hart Lane. David Pleat, fram-
kvæmdastjóri Lundúnafélagsins,
hefur mikinn hug á að fá Mick Hart-
ford frá Luton til liðs við sig. Pleat
þekkir Hartford mjög vel því að Hart-
ford lék undir hans stjóm hjá Luton.
Tottenham er tilbúið að borga eina
milljón sterlingspunda fyrir þennan
stóra og sterka miðherja.
• Liverpool hefur mikinn hug á að
fá Mark Walter frá Aston Villa.
• Manchester City er á höttunum
eftir Graeme Hogg frá Man. Utd og
er City tilbúið að borga 250 þús. pund
fyrir Hogg sem leikur sem miðvörður.
• Everton vill kaupa Tony Cottee,
markaskorarann mikla frá West Ham
sem er metinn á 1,5 millj. sterlings-
punda. Ef af kaupum verður er reiknað
með að West Ham fái miðvörðinn
Derek Mountfield frá Everton.
• Nú, ef Everton fær ekki Cottee
mun Colin Harvey, framkvæmdastjóri
félagsins, halda áfram að reyna að fá
Peter Davinport frá Man. Utd. Da-
vinport er metinn á 650 þús. pund.
• Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Man. Utd, hefur lýst yfir áhuga
sínum að kaupa Peter Weir frá
Aberdeen. Coventry og Watford hafa
einnig augastað á þessum 29 ára mið-
vallarspilara.
-sos
• Graeme Hogg - færir hann sig um
set i Manchester?
Chartton keypti Andy Jones
Lundúnafélagið Charlton festi
kaup á Andy Jones, landsliðsmanni
frá Wales, á föstudaginn. Jones, sem
er 24 ára, lék með 4. deildar liðinu
Port Vale. Lannie Lawrence, fram-
kvæmdastjóri Charlton, sem er
byrjaður að safna liði til að forða
félaginu frá falli, keypti Jones fyrir
framan nefið á Manchester United
og Everton, sem höfðu einnig hug á
að kaupa kappann.
Charlton borgaði 300 sterlings-
pund fyrir Jones sem var heldur
betur á skotskónum sl. keppnistíma-
bil. Þá skoraði hann 30 mörk fyrir
Port Vale.
-sos