Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987. Fréttir Vík í Mýrdal: Bændur reiðir vegna lokunar sláturhússins „Það er mikil reiði í mönnum hér vegna lokunar sláturhússins Víkur hf. Við vorum látnir vita alltof seint að það ætti að loka húsinu. Við höf- um alltaf lagfært það sem héraðs- dýralæknir hefur tahö ábótavant við húsið. Síðan lokunarskýrslan var send inn hefur komið í ljós að þeir ágallar. sem dýralæknir sér nú við sláturhúsið, eru svo smávægilegir að við hefðum getað bætt úr þeim. Það helsta sem hann telur á skorta er að það vanti fleiri vaska og kló- sett,“ sagði Gísli Halldór Magnús- son, bóndi í Ytri-Ásum, í samtali við DV. í sama streng tóku fleiri bændur sem undanfarin haust hafa lagt inn hjá Vík hf. Bændur töldu að það myndi óhjákvæmilega lengja slátur- tímann um of að leggja niður annað af tveimur sláturhúsum í Vík, þar sem um 7500 fjár hefði verið slátrað þar undanfarin ár. Lokun slátur- hússins væri nánast pólitískar ofsóknir á hendur þeirra bænda sem hefðu lagt inn hjá Vík hf., það væri verið að neyða þá í viðskipti við Slát- urfélag Suðurlands. „Lokun sláturhússins lengir slátr- unartímann hér til muna og það er óvíst að við sem lögðum inn hjá Vík hf. fáum fé okkar slátrað hjá Slátur- félagi Suðurlands fyrr en seint og um síðir. Það setur okkur einnig í tö'uverðan vanda að sláturhúsið gekkst í ábyrgð fyrir á annan tug milljóna króna vegna áburðarkaupa bænda nú í vor. Ég myndi vilja senda mitt fé til slátrunar út úr sýslunni en sauðfjárveikivæTiir hamla því hugsanlega. Mér finnst hálfpóhtískt lykt af þessu máli. Ef þetta sláturhús verður alfarið lagt niður er ekki langt að bíða þess að Sláturfélag Suðurlands nái einokunaraðstöðu allt frá Skeiðará og upp í Borgar- fjörð. Þá hafa þeir þetta allt í hendi sér og því kvíði ég. Samkeppni er alltaf af hinu góða,“ sagði Gísh Halldór Magnússon bóndi að lokum. -jme Jón Helgason: „Fer ekki í stríð við heil brigðisyfirvöld „Ég fer ekki í stríð við heilbrigðis- yfirvöld í landinu út af lambakjöti og hef ekki í hyggju að veita Vík hf. leyfi til slátrunar í haust. Dýralækn- ar, sem lögum samkvæmt eiga aö gefa sláturleyfishöfum meðmæli, treystu sér ekki til þess í þessu til- viki og ég brýt ekki í bága við þá, til þess met ég sauðfjárræktina í landinu of mikils," sagði Jón Helga- son landbúnaðarráðherra þegar hann var spurður að því hvort hann hefði tekið áskorun bænda um aö opna aftur Sláturhúsið Vík hf. Sláturhúsinu Vík hf. var lokað fyr- ir um mánuði. Engin vilyrði fengust fyrir þvi að húsið yrði opnað að upp- fylltmn ákveðnum skilyrðum. Sláturhúsið hefur verið rekið á und- anþágum í mörg ár, að sögn Guðbergs Sigurðssonar sláturhús- stjóra, og reiknuðu bændur og forsvarsmenn þess með að svo yrði einnig í ár. Sigurður Sigurðsson, settur yfir- dýralæknir, og Þorsteinn Lindal héraðsdýralæknir gáfu húsinu um- sögn og í henni kemur fram að þeir treysta sér ekki til að mæla með undanþágu til slátrunar vegna skorts á hreinlætisaðstöðu, bágbor- innar vinnuaðstöðu starfsfólks og slælegrar aðstöðu til heilbrigðis- skoðunar á kjöti. Yfirstjóm slátur- hússins og bændur, sem skipt hafa við sláturhúsið, sættu sig ekki við þessa umsögn og fengu þriðja dýra- lækninn, Aðalstein Pálsson, settan héraðsdýralækni í fjarvem Þor- steins Líndal, til að gefa húsinu umsögn en hann treysti sér ekki fremur en hinir tveir til að mæla með að húsið fengi leyfi til slátrunar í haust. -jme örn KE 13 var fyrsti loðnubáturinn sem landaði hjá Krossanesverksmiðj- unni. Hann var með um sjö hundruð tonn af loðnu og fékk þrjú þúsund krónur fyrir tonnið. DV-mynd gk Fývsti loðnufarmurinn kominn á land: Krossanesverksmiðjan greiddi 3 þúsund krónur Gj® Knstjánssan, DV, Akureyii; „Það er allt í lagi með það verö sem við fáum fyrir þennan farm en annars er þetta loðnuverð og allt 1 kringum það hreinn og klár skrípaleikur," sagði Sigurður Sigurðsson, skipstjóri á Emi KE 13, er hann kom aö landi í gær- morgun með fyrstu loðnu haustsins. Öm kom til Krossanesverksmiöj- unnar í Eyjafirði með um 700 tonn. Þar sem hér var um fyrsta loðnufarm vertíðarinnar að ræða greiddi verk- smiðjan þijú þúsund krónur fyrir tonnið sem er tæplega tvöfalt það verö er yfimefnd ákvað á dögunum. Fyrir næsta farm til Krossaness verða greiddar 2.500 krónur á tonnið en síð- an lækkar verðið nokkuö. „Við fengum þetta við miðlínu milli íslands og Grænlands, með því vest- asta sem verið hefur," sagði Sigurður skipstjóri. Hann sagði að þeir hefðu orðið varir við nokkurt magn af loðnu en hún hefði verið í smáum torfum og hefði þurft níu köst til að ná þessum sjö hundmð tonnum. Obreytt verð á bensíni á næstunni „Staðan á Rotterdam-markaði er nú þannig að útlit er fyrir að verðið 8,50 krónur lítrinn á gasolíunni og 31 krón- an á bensíninu geti haldist óbreytt næstu tvo mánuði," sagði Kristján B. Ólafsson, deildarstjóri hjá Skeljungi hfi, viö DV. Kiistján sagði að bensín hefði lækk- að örhtið í verði í Rotterdam að undanfómu eftir að það hefði stigið um hásumarið. „Meðédveröið var um 181 dollari tonnið í júh en er komið niður í 160 dohara í. Sama er að segja um gasohuna. Verðið var í júh um 165 dollarar tonnið en er komið niður í um 155 krónur. Verðið virðist nokkuð stöðugt um þessar mundir." Þá sagði Kristján að verð á hráohu hefði verið um tíma í Rotterdam á bil- inu frá 18 dohurum tunnan í 20 dohara. Sem kunnugt er er miðað við skráð ohuverð í Rotterdam í viðskiptum ís- lendinga og Sovétmanna. -JGH I dag mælir Dagfari Tímabundin sálarkreppa KfiörarM^gaWfel raSaráðhefraskipanog wrna Hkisstjóminni Wíl^BlfrwT'rmrn’iiM nnd fllla konar »ki|“-1 Þótt menn hafi öðlast þá lífs- reynslu að þeim komi ekkert lengur á óvart, þá er ekki þar með sagt að eiiistaka sinnum sperri menn ekki brýmar er þá undrar. Ritara Dag- fara varð á sú skyssa að opna augun með forsíðu Tímans í gær. Þar var frá því skýrt með stríðsletri á forsíðu að ritstjórar Mogga vildu ráða ráð- herraskipan og stjóma ríkisstjóm- inni. Tíðindi sem þessi urðu þess valdandi að sá er þetta ritar sneri sér á hina hhðina og sagði viö sjálfan sig aö misjafnar væm óperettumar í íslensku þjóðfélagi. Fer það eftir tóneyra hvers og eins hvemig mús- íkin hljóðar hverju sinni. Svo er það auðvitað ahtaf spuming hvort mað- ur hafi lesið rétt eða skihð rétt það sem lesið er. Nema hvað Tímablaðið er tekið upp aftur og hin skelfilega forsíða, kolsvört, barin augum á nýjan leik. Og enn stendur það sama með risafyrirsögn. Þar fyrir utan er birt mynd af núverandi ríkisstjóm þar sem ahir brosa í boði forseta ís- lands. Næstu viðbrögð eru þau að leita upplýsinga í fyrmefndu eintaki Tímans á hvem hátt þeir Matthías og Styrmir hafi komiö sér saman um þá ríkisstjóm sem nú situr. Og hvað kemur í ljós? Jú, það sem í ljós kem- ur er að ritsjórar Morgunblaðsins vildu ekki Matta Matt sem utanríkis- ráðherra og þaðan af síður vildu þeir Hahdór Ásgrímsson sem sjávar- útvegsráðherra. Þegar hér er komiö sögu leggur ritari Dagfara frá sér blaðið og spyr sjálfan sig hvort hans andlega geð- hehsa sé endanlega glötuð. Alla vega hélt hann að Matti Matt væri enn ráðherra og þá ekki síður Hahdór Ásgrímsson. Þó fer svo að blaðið er tekið í hendur á nýjan leik og augun rekin í aðra stórfyrirsögn undir mynd af ríkisstjóminni. Og sú fyrir- sögn var eftirfarandi: „Rógsherferð skipulögð í seyfján þjóðlöndum". Lesendum th fróðleiks skal þess get- ið að þegar hér var komiö sögu var Dagfara öhum lokið. Það eitt að rit- stiórar Morgunblaðsins vhji skipa ráðherra og ríkisstjóm em nógar upplýsingar á fastandi maga. En þegar við bætist að ríkisstjómin æth aö skipuleggja rógsherferð í seytján löndum af þessum ástæðum þá fer ilhlega um mann. Fyrirhuguð rógs- herferð á þá væntanlega að beinast gegn fyrmefndum ritstjórum. Mað- ur spyr sig ósjálfrátt: af hveiju seytján lönd en ekki hundrað og seytján? Leggur blaðiö frá sér og ákveður að ekki verði meira lesið fyrr en eftir tvo bolla af svörtu kaffi, ítem smáhugleiðslu um hvað hafi virkhega skeð í þjóðfélaginu á einni nóttu. Eftir kaffidrykkjuna er blaðið síð- an tekið th handargagns á nýjan leik í þeirri von aö komist veröi til botns í málinu. Með því að fletta upp á blaðsíðu þijú kemur í Ijós að ahur þessi hamagangur á forsíðu er vegna þess að Hahdóri Ásgrímssyni varð reikaö inn á Gauk á Stöng. Ástæðan fyrir veru Hahdórs þar var að Sam- band ungra framsóknarmanna hélt þar hádegisverðarfund og mun Sam- bandið hafa komist aht fyrir við eitt af htlu borðunum. Nema hvað Hah- dór er ræðumaður borðsins og upplýsir þar að ritstjórar Morgun- blaðsins vhji öhu ráða í ríkisstjóm- inni. Nú kann svo að vera að ákvarðanir ríkisstjómar séu teknar við Aðalstræti en ekki í stjómarráð- inu. Um það skal ekkert fiihyrt, enda heimhdir ekki aðrar en fyrmefnd Tímafrétt. Hins vegar er það um- hugsunarefni þegar sjávarútvegs- ráðherra segir á Gauki á Stöng að hoiium hðist það ekki að tala iha um Morgunblaðið án þess aö eiga það á hættu að vera tekinn í gegn í leiður- um fyrmefnds blaðs ehegar Reykja- víkurbréfi. Jafnframt segir ráðherrann á Gauknum að samstarf við Alþýðu- flokkinn th frambúðar komi nú mjög th greina. Eins og alþjóð veit þá er útbreiðsla Alþýðublaðsins heldur hth miðað við Morgunblaðsins, svo ekki sé minnst á fjölmiðlarisann sem nú um stimdir heitir Tíminn. En ef staðreyndin er sú að ritstjórar blaða ráða ráðherra og myndun ríkis- stjóma þá er hér með lagt th að þar komi við sögu þeir er ritstýra óháð- um fjölmiðlum ef ætlunin er sú að almenningur ráði hvemig landinu er stjómað en ekki tveir menn við Aðalstræti ehegar kaffiklúbbur á Gauknum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.