Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987.
Hamborg er heimsborg
- flug og glsting - flmmtudaga og sunnudaga
Útlönd
Ný stjóm tók til starfa I Grikk-
landi í gær og sagði forsætisráöherr-
ann Andreas Papandreou aö hann
héldi að hún mundi þjóna landi og
þjóðbetur.
Haföi forsætisráðherrann, sem er
sósíalisti, stokkað upp í stjóm sínni
og tekið aftur inn í hana þijá vinstri
menn. Telja sérfræðingar að túlka
megi breytingu þessa þannig að Pap-
andreou sé aö undirbúa kosningar
fyrr en áætiað var.
Þann 6. september síðastliðinn
fúilyrti Papandreou að hann myndi
ekki stokka upp í stjórninni en að-
spurður kvaðst hann í gær hafa skipt
um skoðun. Segja embættismenn
uppstokkunina hafa verið ákveðna
á síðustu stundu eða á mánudaginn
og því hafl hún komið öllum á óvart.
Rútu hvolfdi í Portúgal
Spænsk iangferðabifreið ók út af
þjóðvegi í norðurhluta Portúgai í
gær og fór bifreiðin á hvolf. Að
minnsta kosti fimm manns létu líflö
og fimmtíu særðust Tíu hinna
særðu eru alvarlega slasaöir. Far-
þegamir vom frá Granada á Spáni.
Vegurinn var háll eftir rigningar
og aö sögn sjónarvotta lenti bifreiöin
úti í skurði.
Kínverjar selja útlendingum land
Yfirvöld í Kína hafa ákveðið að
seija erlendum fyrirtækjum land til
þess að auka verslun og fjárfestingu
á Hainana eyju undan suöurströnd
landsins. Opinber kínversk frétta-
stofa greindi frá þessu í gær.
Á eyjan að verða sérstakt efha-
hagssvæði og myndi hún til að byija
með fa fé frá sljóminni en þyrfti síð-
an sjálf aö siá um flárlög sín. Pjögur
svipuð efiiahagssvæði em nú í Kina.
Hafa þau öll verið sett á laggímar á
þessum áratug til þess að lokka að
erlenda fjárfestingaraöila.
Fyrsta opinbera uppboðið á land-
svæði í Kína var haldiö i í Shenzhen
nálægt Hong Kong fyrr í þessum
mánuði. Fór eignin til kínverskra
aðila.
IVeir létust í fellibylnum
Tvö böm létust er fellibylurinn
Emiiy gekli yfir Dóminlska lýðveldið
í gær. Vindhraöiim var hundrað og
níutíu kílómetrar á klukkustund og
fylgdu miklar rigningar i kjölfariö.
Vindhraöinn minnkaði eftir þvi sem
á daginn ieið.
Emily stefiiir nú í átt að Bahama-
eyjum þar sem hans er þegar fanð
að gæta að nokkm leyti. A Haiti, þar
sem mikill viöbúnaöur var, var logn
og sólskin er menn vöknuðu í gær-
morgun. Þar rigndi þó á norður-
strönd landsins seinni hlutann í gær.
Sleppt úr fangels! í ChSle
Vestur-þýsk kennslukona, sem verið hefur í fangelsi í Chile í eitt ár, var
i gær veitt leyfi til þess að yfirgefa landið gegn tryggingu. Þurfti hún sér-
stakt leyfi þar sem hún er enn sökuð um hryðjuverkastarfsemi
Kennslukonan, Beatriz Brinkmann, sagði við fréttamenn í gær að hún
hygðist halda til Vestur-Þýskalands. Hún er chilensk í aðra ættina. Foreldr-
ar hennar búa i Chile.
Stjómin i Bonn haiði unniö að því aö fá Brinkmann látna lausa og var
máiið tekið upp er atvinnumálaráðherra Vestur-Þýskalands var í heimsókn
í Chile í júií.
Sévardnadse
hittir Shuttz
Ákveðinn hefur verið fundur George
Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, og Edvard Sévardnadse, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, vegna
Persaflóamálsins en Bandaríkjamenn
fóm fram á að slíkur fundur yrði hald-
inn í kjölfar árásar bandarískrar þyrlu
á íranskt skip fyrr í vikunni. Ætiunin
er að ræða aðgerðir til að tryggja
skipaferðir um flóann en Sévardnadse
sagði í ræðu á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna að sigiingar um flóann
yrði að tryggja og það yrði að gerast
með sameiginlegu átaki heimsbyggð-
arinnar allrar með styrk Sameinuðu
þjóðanna. Þetta er, að því er talið er,
í fyrsta sinn sem Sovétríkin hafa stutt
hugmyndir um sameiginlegt herlið
Sameinuðu þjóðanna.
Ekki er þó talið liklegt að þessar til-
lögur nái fram að ganga því að menn
búast við þvi að Bandaríkjamenn legg-
ist gegn þeim vegna hins gífurlega
kostnaðar sem þetta hefði í fór með
sér.
íranir hafa nú lýst því yfir að kallað
verði saman tveggja milljón manna
aukalið næstu tvö árin. Tilkynning
þessi kom um leið og Caspar Wein-
berger, vamarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, lagði af stað í ferð til
Persaflóa þar sem hann mun ræða við
ráðamenn í Saudi Arabíu og Bahrain
Bandarískir sjóliðar um borð i USS Lasalle fylgjast með atburðum á Persaflóa
og heimsækja bandarísk herskip á
þessa fjóra daga sem heimsóknin
stendur.
Bandaríkjamenn og Bretar hyggjast
leggja til bann á vopnasölu til Irans í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en
ekki er taiið líklegt að það fáist sam-
þykkt. Bretar lokuðu þó íranskri
innkaupaskrifstofu í Lundúnum í gær
og er búist við að starfsmenn hennar,
um 50 talsins, verði reknir úr landi.
í kjölfar alls þessa hefúr íransfor-
seti, Ali Khameinei, lýst því yfir að
hann búist við innrás Bandaríkja-
manna. Hann sagði í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina ABC að
floti Bandaríkjamanna á flóanum væri
merki um stríð þar sem slíkur fjöldi
herskipa gæti engan veginn verið til
vamar, þau væra innrásarlið. Að-
spurður hvort íran teldi sig eiga í stríði
við Bandaríkjamenn í kjölfar árásar
bandarískrar herþyrlu á íranskt skip
sagði hann að svo væri ekki en Banda-
ríkjamenn væra vísir til að neyða
írani til stríðs.
Friðarumleitanir
Mið-Ameríku
i
Bandaríkjamenn ekki hrifríir
Vinstrisinnaðir skæruiiðar í E1
Salvador hafa jánkað boði stjómar
José Napoleon Duarte um friðarvið-
ræður í samræmi við ftiðaráætlun
nokkurra ríkja í Mið-Ameríku.
í Nicaragua hafa contraskæruliðar
hins vegar hafnað tilboði stjómar
sandinista um vopnahlé, en skærulið-
unum barst nýlega stór vopnasending
frá Bandaríkjunum.
Einn af leiðtogum contraskæruliða,
Enrique Bermudez, sagði í gær að það
eina sem að sandinistar væru að reyna
að fá fram með tilboði um vopnaihlé
væri að skæruliðar legðu niður vopn
til að sandinistar gætu verið við völd
um alla eilífð. Hann sagði að ekki
kæmi til greina að leggja niður vopn
þrátt fyrir að stjómarherinn hefði gert
það en á þriðjudag lýsti Daniel Ortega
yfir einhliða vopnahléi.
Samkvæmt fiiðaráætluninni er
stefnt að því að koma á friði í álfúnni
fyrir sjöunda nóvember næstkom-
andi. Til að contraskæruliðar geti
Leiðtogar contraskæruliða, Enrique Bermudez, situr lengst til vinstri.
þraukað þangað til samþykkti full-
trúadeild Bandaríkjaþings í gær að
styrkja þá með 3,5 milljónum dala.
Reaganstjóm hefúr sagt að yfirlýsing-
ar sandinistastjómarinnar í Nic-
aragua um vopnahlé og prentfrelsi séu
aðeins fegrunaraðgerðir.
Contraskæruliðar segja að ekki sé
hægt að stöðva átök án samningavið-
ræðna og sé því ákvörðun stjómarinn-
ar hjóm eitt. Sandinistar hafa hins
vegar aldrei tekið í mál að semja við
leiðtoga contraskæruliða, þeir segja
hina raunverulegu leiðtoga skærulið-
anna vera Bandaríkjastjóm og það séu
sem ræða verði við, en Bandaríkja-
menn hafa þjálfað og haldið uppi
skæruliðum aút frá 1981.