Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987.
5
Viðtalið
Eyþór Fannberg, nýráðinn for-
stöðumaður Manntalsskrifstofu
Reykjavíkurborgar.
DV-mynd GVA
Spila gotf á
hveijum degi
eftaminn leyfir
,p)g er að búa mig undir að taka
við starfinu og kynna mér starfsem-
ina hjá stofiiuninni Mér líst vel á
nýja starfið, þetta er mikið verkefiii
sem krefst nákvæmni," sagöi Eyþór
Fannberg, nýráðinn forstöðumaður
Manntalsskrifstofu Reykjavíkur-
borgar.
„Verkefiú Manntalsskrifstofunn-
ar eru margþætt Stofiiunin er
tengjliður á miili Reykjavíkur og
Þjóðskrár c® upplýsingar í margvís-
legu formi fara þama á milii Við
höldum utan um íbúaskrá Reykja-
víkur og veitum margvíslega
þjónustu við ýmsar stofnanir borg-
arinnar, gefúm vottorð um búsetu
og um ýmiss konar leyfisveitingar.
Við reynum að fylgjast með því að
þeir sem í raun og veru eru búsettir
í Reykjavíkurborg hafi þar skráö
lögheimili. Með því er verið að gæta
hagsmuna borgarinnar hvað varöar
álagningu opinberra gjalda, félags-
lega þjónustu, skólamál og fleira.
Þannig er safiiað upplýsingum um
heimilisfangabreytingar, þær skráð-
ar og með því myndað sögulegt
yfirlit
Annar þáttur er að seipja kjörskrá
fyrir Reykjavíkurborg. Það er gert
annað hvert ár eða oftar.
í þriðja lagi sér Manntalskrifstof-
an um tæknilega fiamkvæmd
kosninganna í Reykjavík þannig að
hún er í rauninni flutt niður í kjör-
stjóm meðan á kosningum stendur.
Þetta er því nokkuð margvísleg
starfsemi sem fer fram á Manntals-
skrifstofúnnL" sagði Eyþór sem
tekur við nýja starfinu fyrsta októb-
er næstkomandL
Eyþór hefúr starfað þjá Reykja-
vikuiborg efhr að hann kom frá
Noregi 1971. Hann er feddur í Bol-
ungarvík en fór suður til Reykjavík-
ur í vélvirkjanám. Efúr námið
stundaði hann ýmis störf, var vél-
stjóri á skipum Jökla, vann í
Ofhasmiðjunni í tvö eða þijú ár,
stundaði kaupmennsku en fór síðan
til Noregs.
Þar iagöi hann stund á kerfisfiæði
og lauk prófi sem kerfisfræðingur.
Árið 1971 kom hann til íslands aftur
og fór þá að starfa hjá Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkurborgar og
vann þar í mörg ár eða til ársins
1984. Síðan hefúr hann starfað við
tölvuráðgjöf og lifeyrissjóðamál hjá
Reykjavíkurborg.
Eyþór er 59 ára gamalL Hann er
í sambúð og er Þóra Kristinsdóttir
lektor sambýliskona hans. Áður var
hann kvæntur og átti fimm böm,
sem öll em uppkomin, og 13 bama-
börn.
,Jíg er mikill flugáhugamaður. Ég
hef verið einkaflugmaöur frá árinu
1974 og hef átt litla flugvél í felagi
við aðra síðan. Svo er ég mikill golfá-
hugamaður og reyni að leika golf
eins oft og ég get Ég byijaði bara
allt of seint að sinna því áhugamáli
en helst fer ég í golf á hveijum degi
ef tími leyfir. Mér tókst meira að
segja að næla mér í íslandsmeistara-
titil í öldungaflokki í sumar,“ sagöi
Eyþór. -ATA
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Aldrei minna fylgi
við vamarliðið
Fæni en áður eru fytgjandi þvi, að vamaiiiðlð dvelji hér.
Færri em nú fylgjandi því, að vam-
arliðið sé hér en nokkm sinni áður
hefúr mælst í skoðanakönnunum DV
og fyrirrennara þess. Munurinn á
þeim, sem era fylgjandi vamarliðinu,
og andstæðingum þess er svo lítíU, aö
hann er ekki marktækur miðað við
skekkjumörk í skoðanakönnunum.
Flestir munu telja, að afskipti Banda-
ríkjamanna af hvalveiðideilunni ráði
mestu um breytinguna, sem orðið hef-
ur.
Af öllu úrtakinu nú em 36,7 prósent
fylgjandi vamarliðinu. 36 prósent em
andvíg. Óákveðin era 22 prósent, og
5,3 prósent vildu ekki svara. Þetta
þýðir, að 50,5 prósent þeirra, sem taka
afstöðu, em fýlgjandi því, að vamar-
liðið sé hér. 49,5 prósent era því
andvíg.
Þetta er mikil breyting frá DV-
könnun 1983. Þá vom um 52 prósent
af öllu úrtakmu fylgjandi vamarliðinu
og um 30 prósent andvíg. 15 prósent
vom þá óákveðin og 3 prósent vildu
ekki svara.
Þetta þýddi, að 1983 vom 63,6 pró-
sent þeirra, sem tóku afstöðu, fýlgj-
andi vamarliðinu, en aðeins 36,4
prósent andvíg.
fyrir könnun á stuðningi við vamar-
liðið í sumar. Niöurstöður vom birtar
nýlega Samkvæmt þeirri könnun
vom 55 prósent þeirra, sem tóku af-
stöðu, fylgjandi vamarliðinu en 45
prósent andvíg. Sé sú könnun sam-
bærileg við könnun DV, hefúr nú enn
dregið úr stuðningi við vamarliðiö.
Stuðningur við dvöl vamarliösins
var áöur í DV-könnun minnstur 1976,
eða 51,2 prósent þeirra, sem tóku af-
stöðu, en 48,8 prósent vom á móti. Það
var eftir þorskastríð.
Annars hefúr vamarliðiö iðulega
haft yfir 60 prósent fylgi meðal þeirra,
sem afstöðu hafa tekiö.
í könnuninni nú var mjótt á munum
hjá báöum kynjum og bæði á Reykja-
víkursvæðinu og landsbyggðinni.
Vamarliðið naut minnihlutafylgis
meðal kvenna á landsbyggðinni. Ur-
takið var 600 manns. Jafiit vr skipt
milli kyi\ja og jafiit milli Reykjavíkur-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvígur
dvöl vamarliösins hér á landi?
Með eða móti her
ÓLafúr Þ. Harðarson lektor gekkst -HH
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Fylgjandi varnarliðinu 220 eða 36,7%
Andvígir 216 eða 36%
Óákveönir 132 eða 22%
Svara ekki 32 eða 5,3%
Ef aðeins em teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar
þessar: Til samanburðar em fyrri kannanir DV og fyrirennara þess:
1968 1970 1971 1976 1980 1983 Nú
Fylgjandi 63,3% 54,8% 66,7% 51,2% 63,6% 63,6% 50,5%
Andvígir 36,7% 45,2% 33,3% 48,8% 36,4% 36,4% 49,5%
Kakan sýnir hlutföllin samkvæmt skoöanakönnuninni nú.
Með eða móti vamarliðinu
1968 1970 1971 1976 1980 1983 Nú
Línuritiö sýnir, hvemig hlutföll milli fylgismanna og andstæðinga vamarliðslns
hafa sveiflasL
Ummæli fólks
í könnuninni
Kona á landsbyggöinni sagði, aö búinn aö hegöa sér í hvalamálinu
dvöl hersins hefði fariö að tákna, aö ogfleirimálum, værinúbestaöláta
ísland væri undir.sfjóm annars herinn fara. Kona á Norðurlandi
lands. Kari á landsbyggðinni sagöist kvaðst hafa veriö fylgjandi vamar-
andvígur vamarliöinu miöaö við liðinu, en það breyttist nú, því aö
hvemig Bandaríkjamenn heíðu veriö væri að þvinga okkur. Kona á
hegðað sér í hvafenáiinu. Karl á Reykjavflcursvæðinu sagöi, eins og
Reykjavíkursvæðinu sagöi ásamt Qeiri, aö hún væri ekkert hrifin af
mörgum öðrum, að hann heföi verið vamarliöinu, en þaö yröi aö vera
einarölega fylgjandi vera vamar- hér á landi eins og ástandið væri í
liðsins, en eins og Kaninn væri heiminum. -HH
Umferðarátak lögreglunnar:
45 sviptir ökuleyfí vegna hraðaksturs
Númerin klippt af um 400 óskoðuðum bflum
Rúmlega flögur hundrað öku-
menn hafa veriö stöðvaðir vegna of
hraðs aksturs í Reykjavík og ná-
grenni frá því að haustátak lögregl-
unnar í Reykjavík í umferðarmálum
hófst fyrsta september.
„Aksturinn í borginni var alltof
hraður og við teljum að heldur hafi
dregið úr hraðakstri vegna þessa
átaks,“ sagði Ríkharð Björgvinsson,
varðstjóri hjá umferðardeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Að jafnaöi vora stöðvaðir tuttugu
ökumenn á dag vegna of hraðs akst-
urs. Á þessu tímaþfli hafa 45 verið
sviptir ökuleyfi á staönum vegna
ofsahraðs aksturs. Sá sem var stöðv-
aður á mestum hraða á tímabilinu
var á 176 kilómetra hraða og var
hann á Reykjanesbraut. Sá sem
stöðvaður var á mestum hraða inn-
anbæjar í Reykjavík var á tæplega
130 kflómetra hraöa.
Þá hafa á fjórða hundrað bílar ver-
ið teknir úr umferð vegna van-
rækslu á skoðun og auk þess hafa
meira en fjögur hundrað bílar verið
færðir til skyndiskoðunar.
Þess má geta að margir bílar hafa
misst númerin vegna þess að van-
rækt hefúr verið að umskrá bíla og
tflkynna eigendaskipti og hafa 63
bílar verið teknir úr umferð af þeim
sökum einum.
„Við ætlum aö halda þessu átaki
áfram. Við höfum hlerað hjá fólki
og svo finnum viö það sjálfir að átak-
ið hefur boriö árangur. Það er ekki
eins mfldð um hraðakstur í borginni
og það var,“ sagði Ríkharð Björg-
vinsson.
-ATA