Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Page 36
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987.
Svalbarðseyri:
KEA lokaði
versluninni
__________________________
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég heyröi ekki um þetta fyrr en í
fyrradag," sagöi Bjami Hólmgríms-
son, oddviti Svalbarðsstrandarhrepps,
er DV hitti hann aö máii aö Svalbaiös-
eyri í gær en þá hafði matvöruverslun
staðarins verið lokaö.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur rekið
verslunina undanfarin misseri en lok-
aði henni frá og með mánaðamótum.
Ástæðan mun vera sú að margir íbúar
Svalbarðseyrar hafa flutt viðskipti sín
inn til Akureyrar og versla fremur í
stórmörkuðunum þar.
En þeir eru einnig margir sem ekki
eiga þess kost að versla á Akureyri
j(0g er þar aðallega um gamalt fólk að
ræða. „Ég skil bara ekkert í þessu öllu
saman en ætli ég neyðist ekki til þess
að keyra inn á Akureyri til að versla
þótt ég hafi ekki viljað keyra úti á
vegum hingað til,“ sagði einn aldraður
íbúi á Svalbarðseyri í viðtaii við DV í
gær.
Hraðskákmót á Akureyri:
Hannes
Hlrfar
sigraði
Gylfi Kiistjánsaan, DV, Akureyiú
Hannes Hlífar Stefánsson sigraði á
hraðskákmóti sem haldið var á Akur-
eyri í gærkvöldi en þá var fridagur á
Skákþingi íslands.
Þijátíu keppendur tóku þátt í mót-
inu. Hannes Hlífar hlaut 15 vinninga,
næstur kom Ólafur Krisfjánsson með
14 og Þröstur Þórhallsson varð þriðji
með 13 vinninga.
_ í dag verður tefld síðasta umferðin
'i landsliðsflokki á Skákþingi íslands
og hefst keppnin klukkan 13 í Al-
þýðuhúsinu. Margeir Pétursson
mætir þá Gylfa Þórhallssyni og nægir
jafntefli til að tryggja sér títUinn skák-
meistari íslands annað árið í röð.
A/
ÞRDSTIIR
68-50-60
VANIR MENN
LOKI
Vill nú íhaldið fara að
hafa skoðanir!
Tillögur um kjamorkufiystingu:
Sammála um að
sHja ekki hjá
segir OSafur G. Einarsson
„Ég get út af fyrir sig verið sam-
mála Steingrími Hermannssyni um
að við sitjum ekki hjá við afgreiðslu
þessarar tillögu hjá Sameinuðu þjóð-
unum um frystingu kjamorku-
vopna, heldur höfum skoðun. Það
er frekar spuming um hvaða skoð-
un; við sjálfstæðismenn em litíð
hrifnir af einhliða aðgerðum ein-
stakra ríkja, einhliða afvopnun eins
og til dæmis Norðurlandanna. Aðal-
atriðið hlýtur að vera að stórveldin
nái samkomulagi í afvopnunarmál-
um.“ Þetta sagði Ólafur G. Einars-
son, formaðm- þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins, við DV í morgun, en
Steingrímur Hermannsson utanrík-
isráðherra sagði á fundi framsókn-
arkvenna í gær að hann sætti sig
ekki við að sitja hjá við umfjöllun
um tíllögu Svía og Mexíkómanna um
frystingu kjamavopna hjá Samein-
uðu þjóðunum.
íslendingar hafa setið hjá við af-
greiðslu tillögunnar einir Norður-
landaþjóðanna. Á fundi Steingríms
í gær kom ennfremur fram að smá-
ríki ætttu aö hafa afskipti af alþjóða-
málum, að norrænt samstarf væri
homsteinn í utanrfkisstefnu íslands,
og að hann væri mjög hlynntur þátt-
töku íslendinga í Átlantshafsbanda-
laginu. -JGH
Ymir landaði í lausu í gær.
Landað í lausu
Ymir frá Hafnarfirði landaði 99
tonnum af fiski, mest karfa, og seldi á
Fiskmarkaðnum í Hafnarfirði í gær.
Að auki settu þeir Ýmis-menn í 2 gáma
og sendu út. Ymir HF 343 er orðinn
gamalt skip og eins og sjá má landa
þeir Ýmismenn „í lausu“ að hluta til
í stað þess að setja í kassa um borð
eins og víðast tíðkast. Nú er útgerðin
með nýjan Ými í smíðum í Noregi.
DV-mynd S
Veðrið á morgun
Rigning
um land
alrt
Á morgun verður drungalegt veð-
ur um allt land en eigi að síður
ágætur hiti. Allhvöss eða hvöss
sunnan- og suðaustanátt mun ríkja
á öllu landinu. Rigning verður víðast
hvar en jafii hiti um allt land, þetta
10 tíl 12 stíg.
Einn maður var fluttur á slysa-
deild eftir harðan árekstur sem varð
á mótum Lækjargötu og Reykjanes-
brautar i Hafiíarfrrði í morgun.
Slysið varð klukkan nimlega átta
í morgun. Bíll, sem var að aka eftír
Lækjargötunni, virti ekki stöðvun-
arskyldu við Reykjanesbrautina og
ók í veg fyrir bfi sem þar kom.
Maðurinn, sem var fluttur á slysa-
deild, var ekki talinn alvarlega
slasaöur. Hann kvartaði undan
eymslum í hálsi og var fluttur á
slysadeild til rannsóknar. Báðir bil-
amir skemmdust mikiö og varð að
flytja þá á brott með kranabil.
-ATA
EskHJörður*.
Samkomulag
um fiskverð
I gær tókust samningar um fisk-
verð milli sjómanna og fiskkaup-
enda á Eskifirði. Samkomulagið
unum Hólmanesi og Hólmatindi fa
5 % uppbót á allan fisk frá 17. janúar
tíl 30. september síðastliðinn.
Siöan verður greidd 8,5% uppbót
á þann fisk sem hugsanlega verður
landað hehna til 15. nóvember næst-
komandi.
-S.dór
varð er tveir bílar rákust saman i
blindhæð rétt hjá Neskaupstað á
sunnudaginn. Blindhæðin, sem er i
Oddsdal, 6-7 kílómetra frá Neskaup-
stað, er ómerkt og var annar bfllinn
öfugum megin á götunni þegar bíl-
amir mættust.
Karlmaður og kona voru í hvorum
bfi og voru öU fjögur flutt á sjúkra-
hús eftir slysið. Kona, sem var
farþegi 1 öörum bíinum, slasaöist
mikiö og lést á gúkrahúsinu í Nes-
kaupstað aðfaranótt miðvikudagsins
en hin þijú sluppu tiltölulega lítið
meidd.
Slysið varö um fjögurleytið á
sunnudaginn. Bíllinn, sem ók öfug-
um megin upp blindhæðina, var
jeppi áleiðtil Neskaupstaðar. Hinn
bfilinn var fólksbíll og í honum voru
miöaldra hjón á leið heim tíl Reyöar-
fiarðar.
Að sögn lögreglunnar er blindhæð
þessi ómerkt og mjög lúmsk enda
sáu ökumenn bflanna ekki hvor
annan fyrr en um seinan. Fólksbfll-
nokkurri ferð og er taliö að það sem
bjargað hafi fólkinu frá enn hörmu-
legra slysi hafi verið sú staöreynd
aö aHSr voru raeö bfibeltin spennt
Konan sem lést var farþegi í fólks-
bfinum en eigtnmaður hennar, sem
var ökumaður bflsins, slapp með
fótbrot. Ökumaður og farþegi jepp
ans sluppu með smávægílegar
skrámur.
Konan sem lést hét Ásta Ambjörg
Jónsdótttr, til heiroilis að Garði á
inmann og fimm uppkomin böm.
-ATA