Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1987, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1987.
Fréttir
Eins og sjá má á myndinni var vegurinn við brúna yfir Holtsá með öllu ófær og munaði minnstu að flóðunum tækist að grafa hann alveg í sundur.
þeir ófærir.
Miklar skemmdir urðu á vegum á
norðanverðu Snæfellsnesi í vatns-
veðrinu sem gekk yfir vestanvert
landið á laugardaginn. Vegir grófust
víða í sundur vegna vatnavaxtanna,
annars staðar ást úr vegunum, brýr
skemmdust og sums staðar flæddi yflr
vegina.
A Fróðarheiði urðu miklir vatna-
vextir. í svokölluðum Flóa flaut yfir
veginn á stórum köflum og var öll
umferð um hann varasöm þó ekki
væri vegurinn talinn með öliu ófær.
Vegurinn á milli Ólafsvíkur og Grund-
aríjarðar varð ófær þar sem hann fór
í sundur viö brúna yfir Holtsá og
skemmdir urðu á brúnni sjálfri. Þá
varð vegurinn á mflli Grundarfiarðar
og Stykkishólms einnig ófær á tíma-
bili.
Flóðin rifu með sér vegavinnuskúra
og þegar vatnavextimir minnkuðu
lágu skúramir á víð og dreif um aU-
stórt svæði. Þá skemmdist brú, sem
var í smíðum, yfir Fróðá.
Vegagerðin vann í aUan gærdag við
lagfæringar á vegum og í gærkvöldi
vom aliir vegir aftur orðnir færir.
-ATA
Vegavinnuskúrarnir lágu á víð og dreif eftir að flóðin, sem rifu þá með sér, höfðu sjatnað.
DV-myndir Ægir Þórðarson
Miklar vegaskemmdir
í vatnavöxtunum
Snæfellsnes:
Gífurlegt
vatnsveður
um helgina
Gífurlegt vatnsveður gekk yfir Snæ-
feUsnes norðanvert um helgina og
fylgdi það mjög hvassri sunnanátt.
„Stóri sunnan", eins og lögreglan í
Ólafsvík kaUaði það, náði 10-12 vind-
stigum og úrfeUið, sem kom í kjöUarið,
var meira en menn á SnæfeUsnesi rek-
ur minni til að hafi áður verið. Þetta
veður olii miklu tjóni, einkum þó á
vegum og brúm.
Flestir vegir á norðanverðu Snæ-
feUsnesi urðu ófærir vegna vatnavax-
tanna og tvær brýr skemmdust. Þá
kviknaði í húsi á HeUissandi og réðu
slökkvfliðsmenn ekki viö neitt vegna
veðurofsans. Bfll valt við Ólafsvíku-
renni og á meðan mesti veðurofsinn
stóð yfir fór þjófavamabjaUa í útibúi
Landsbankans á HeUissandi í gang og
ómaði bjallan yfir aUt byggðarlagið
þar tíl lögregla kom frá Ólafsvík og tók
hana úr sambandi. Þá hafði daginn
áður kviknað í trUlu sem lá í höfninni
á Rifi.
Erfið helgi hjá lögreglu og slökkviiiði
á SnæfeUsnesi.________-ATA
Sunnanverðir Vestfirðir:
Miklar vega-
skemmdir vegna
vatnsveðurs
Miklar vegaskemmdir urðu víða á
sunnanverðum Vestfiörðum vegna
vatnsveðurs um helgina.
Að sögn lögreglunnar á Patreksfirði
byijaði að heUirigna strax á fóstudags-
kvöldið og rigndi stansMtið fram á
sunnudagsmorgun. Muna elstu menn
ekki eftir öðru eins úrfeUi á þessum
slóðum og breyttust Utlar ársprænur
í stórár.
Víða á suðurfiörðunum hefúr grafist
mikið úr vegum og er tíl dæmis ófært
frá Patreksfirði inn á Barðaströnd.
Brúin yfir Haukabergsá féU niður um
rúman metra þar sem grófst undan
öðrum stöpU hennar og er vegurinn
því alveg kolófær. Nú er verið að meta
hvort gera á við brúna eða byggja
nýja en á meðan er þessi leið lokuð.
Þá er vegurinn frá Patreksfirði yfir
í Örlygshöfii í sundur á Ósum. Víöa
hefur runnið úr vegum á suðurfiörð-
unum og smáskriður faUið á þá og því
víða illfært um vegina á þessum slóð-
um. -ATA
Þeir á EgUsstöðum eru ekki beint
biUegir þessa dagana, hafa ákveðiö
að segja Matthíasi samgönguráð-
herra stríð á hendur. Ástæða fyrir
reiði verktaka á EgUsstöðum er sú
ákvörðun ráöherra að láta bjóða út
fyrsta áfanga flugvaUargerðar aust-
ur þar. Telja þeir sig hafa fengið
loforð frá fyrrverandi samgönguráð-
herra þess efnis að ekkert útboð
færi fram en heimamenn fengju
verkið á sUfurdiski. Enga skýringu
kunna þeir á því hvers vegna Matti
Matt breytti ákvörðun forvera síns
nema þá það að hann skuh vera úr
Hafnarfirði. Sú skýring er auðvitað
ekki verri en hver önnur. Verktak-
amir á EgUsstöðum benda Uka á að
það sé aUs ekki víst að útboð fari
fram, hvað sem ráðherra segi, því
hann sé alls ekki einvaldur.
Nú er það ekkert leyndarmál að
Matthías hefur unnið vasklega fyrir
sitt kjördæmi en hins vegar er vand-
séð hvaöa hag hann telur sig hafa
af því að egna þá þama fyrir austan.
Nema manninum gangi það eitt til
að reyna að tryggja að þessi fram-
kvæmd verði sem hagkvæmust og
ódýmst fyrir ríkið sem á að borga
brúsann. Svo má auðvitað ekki
gleyma því að í Hafnarfirði hefur
aðsetur fyrirtæki sem hefur tekið aö
Slegist um flugvöll
sér mörg og stór verk á undanfóm-
um árum og oft átt lægsta tílboð í
verk. Kannski að það sé þetta sem
verktakamir fyrir austan hafa bak
við eyrað þegar þeir ausa úr skálum
reiði sinnar vegna ákvörðunar Matt-
híasar. Þetta er eitt af þessum
stórskemmtUegu máium sem koma
upp annað slagið þegar heimamenn
í héraðum telja sig hafa einkarétt á
að annast þar aUar framkvæmdir
þótt aUur almenningur í landinu
borgi síðan reikninginn. það er legið
í þingmönnum, ráðherrum og emb-
ættismönnum og ýmist beitt hótun-
um eða fortölum. Stimdum hefur
þetta borið árangur en stundum
ekki. Þaö er aUavega ljóst að þeir á
EgUsstöðum ætla ekki að gefast upp
fyrr en í fidla hnefana. En það er
lika næsta víst að Matthías Hafnfirð-
ingur er ekki maður sem lætur
beygja sig og er þá skemmst að
minnast þess hvemig vaUð var í ráð-
herrastóla núverandi ríkisstjómar.
Það verður því tekist hart á í þessu
máU og vandi að spá um úrsUt.
Heimamenn segja að það sé verið
að gera þama flugvöU vegna þess
að þeir eigi heima þama en ekki
vegna þess aö Matthías býr í Hafnar-
firöi. Auk þess verði þeir ekki dýrari
en aðrir við verðlagningu og nóg eigi
þeir af tólum og tækjum. Þennan
fyrsta áfanga skuU þeir vinna fyrir
45-50 miUjónir króna. Ráðherrann
hefur haft nægan tíma að undanf-
ömu til að hugsa mál sitt og jafnvel
bera það undir aðra símleiðs af sjú-
krabeði sínum í Hafnarfiði. Nú er
bara aö vita hvað Sverrir Her-
mannsson gerir sem hét þvi að taka
upp harða byggðastefnu eftir að
harm missti ráðherradóminn. Ekki
má reikna með að hann sitji hjá í
þessu máU enda mörg atkvæði í
hættu. Og varla ætlar EgiU Jónsson
að láta kyrrt Uggja, svo að ekki sé
minnst á HaUdór Ásgrímsson sem
er einn mesti framsóknarmaður á
þrngi að AgU Jónssyni frátöldum.
Það verðúr eins gott fyrir Matthías
að vera orðinn góður í bakinu þegar
hann fær þessa kraftamenn yfir sig
sjóðandi af vonsku. Þeir munu bíta
í skjaldarrendur og heimta að ekki
sé gengið á rétt atkvæðanna þama
fyrir austan. Hvort rikiö getur spar-
að einhverjar miUjónir með útboði
kemur þessu máU auðvitað ekki við.
Hagur atkvæðanna verður að ganga
fyrir þjóðarhag ef því er að skipta.
Núverandi flugvöUur á EgUsstöðum
er sagður svo lélegur að oft megi
Ukja honum við forarpytt og ástæðu-
laust er að rengja það. En svo kann
að fara að flugvaUargerðin verði tíl
þess að upphefiist mikiU leðjuslagur
þar sem flokksbræður munu berjast
svo hriktir í innviðum flokks sem
þarf á öUu að halda frekar en áfram-
haldandi óeiningu og átökum
innbyröis. SennUega hefur Matthías
Bjamason ekki hugsað máUð tíl
enda þegar hann reddaði sextíu
miUjónum í þessa flugvaUarfram-
kvæmd og bað heimamenn að gera
svo vel að njóta. Eða getur verið að
hann hafi einmitt hugsað máUð tU
enda? Það er oft erfitt að lesa í huga
Vestfirðingsins og vel getur verið að
hann hafi eimmitt taUð sig eiga
harma að hefna af einhveijum
ástæðum. En við bíðum spennt eftir
næsta þætti þessa spennandi fram-
haldsleflmts því vart er hægt aö
segja að aöaUeikendur hafi stigið á
senuna enn sem komið er.
Dagfari