Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1987, Side 18
18
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1987.
LEIKSKÓLINN
HOLTABORG
Sólheimum 21
Fóstra óskast í 'A starf e.h., einnig starfsfólk
í heila og hálfa stöðu. Upplýsingar gefur
forstöðumaður í síma 31440.
RÍKISSPÍTALAR
LAUSAR STÖÐUR
Líffræðingur eða meinatæknir
óskast sem fyrst á rannsóknastofu í ónæmisfræði.
Um er að ræða starf við sérstakt rannsóknarverkefni
og þjónusturannsóknir. Nánari upplýsingar veitir for-
stöðumaður, sími 29000-692, og deildarstjóri,
29000-604.
Hjúkrunardeildarstjóri
óskast til stafa á lyflækningadeild I, 11-A frá 15.
nóvember. Deildin veitir almenna lyflæknisþjónustu.
Auk þess er sérstök áhersla lögð á þjónustu við sjúkl-
inga með meltingarfærasjúkdóma og smitsjúkdóma.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu og þekkingu
af stjórnunarstörfum. Upplýsingar veitir hjúkrunar-
framkvæmdastjóri lyflækningadeilda, sími
29000-485 og 29000-484.
Deildarþroskaþjálfi
óskast á deild 1 sem tekur til starfa í desember nk.
að lokinni gagngerri endurbyggingu. Umsóknir um
starfið sendist Kópavogshæli fyrir 3. nóvember nk.
Deildarþroskaþjálfi
óskast til næturvakta í rúmlega hálft starf. Einnig
óskast deildarþroskaþjálfi í hlutastarf til að sjá um
tómstundastörf vistmanna.
Starfsmenn óskast til vinnu á deildum Kópavogs-
hælis. Vaktavinna. Upplýsingar um ofangreind störf
veitir framkvæmdastjóri eða yfirþroskaþjálfi í síma
41500.
Urval notaðra
CITROÉN^ bíla
Visa órg. 1981, beinsk., 4ra dyra,
ekinn 65.000 km, svartur. Verð
140.000.
GSA Pallas árg. 1984, beinsk.,
gíra, 5 dyra, ekinn 60.000 km, svai
ur. Verð 300.000, goH eintak.
GSA árg. 1986, beinsk., 4ra dyra,
ekinn 23.000 km, blár. Verð 380.000.
BX 16 TRS árg. 1987, beinsk., 5
dyra, ekinn 16.000 km, silfurgrár.
Verð 460.000.
BX 16 TRS árg. 1984, ekinn 70.000
km. Verð 430.000.
BX Leader árg. 1986, beinsk., 5
dyra, ekinn 18.000 km, silfurgrár.
Verð 460.000.
Opið virka
daga kl. 9—18
Laugardaga
kl. 13-17.
G/obusr
Lágmúli 5, Reykjavík
Sími 91-681555
„Þá var byrjað í fyrrahaust að gera við kirkjuna, ..
Ámeskirkja á Ströndum
Það hefur verið óvenjumikið skrif-
að um Ámeskirkju á Ströndum
undanfarið. Valgeir Benediktsson er
fæddur og uppalinn á kirkjujörðinni
Ámesi. Hann flutti þaðan eítir ferm-
ingu eins og flestir unglingar þurfa
að gera í þessu byggðalagi, því enga
atvinnu er þar að hafa, en Valgeir
flutti heim aftur fyrir nokkrum
árum með konu og tvö böm. Val-
geiri fannst hryliilegt að sjá Ámes-
kirkju þegar að hann kom heim.
Söfnuðurinn hafði hirt hana illa og
ekkert haldið henni við og ráðandi
heimamenn vom búnir að fá syni
sína og frændur, sem era húsasmið-
ir, til að dæma kirkjuna ónýta og
fiína, en Benedikt faðir Valgeirs
ásamt mörgum öðrum Ámes-
hreppsbúum vildi ekki trúa því.
Samþykktin
Svona liðu árin og ekkert var gert
fyrir hina öldnu kirkju nema hvaö
Magnús heitinn Runólfsson, sem var
starfandi prestur í nokkur ár, málaði
kirkjuna sjáifur að utan og innan
fyrir ca 17 árum.
Bræðumir Ingólfur og Valgeir
Benediktssynir ásamt foreldrum og
mörgu öðra fyrirhyggjusömu fólki í
sveitinni höfðu áhuga á að láta sér-
fræðing, sem hefði vit á, skoða gömlu
kirkjuna og var Hjörleifur Stefáns-
son arkitekt fenginn til að skoða
Ámeskirkju fyrir 2-3 árum. Gerði
hann tillöguteikningu af endurbót-
um á kirkjunni. Nokkru síðar var
haldinn almennur safnaðarfundur
sem samþykkti eftirfarandi:
„TUlaga samþykkt á almennum
safnaðarfúndi í Ámessókn laugar-
daginn 3. maí 1986.
1. Almennur safnaðarfundur Ár-
nessóknar haldixm í Ámesi þann
3. maí 1986 samþykkir, að byggð
verði ný sóknarkirkja af hóflegri
stærð. Húsgerð og staðarval verði
ákveðin síðar.
2. Um meðferð gömlu sóknarkirkj-
unnar er gerð efdrfarandi
samþykkt: Áhugamönnum um
varðveislu hennar er heimilt við-
hald hennar, og verði það ekki á
vegum safnaðarstjómar.
Söfnuðurinn samþykkir, að fé,
sem húsafriðunamefnd hefur
, veitt til viðhalds kirkjunni gangi
til þess máls.
Meðan kirkjan er í eigu safnaðar-
ins, og til afnota fyrir hann er
þeim, sem að viðgerð standa skylt
að halda kirkjunni í nothæfu
ástandi.
TUlagan afgreidd á eftirfarandi
hátt:
Já sögðu 32
Nei sögðu 13
Auður 1
ÓgUdir 2“
Einræðið rís upp
Svo var byijað í fyrrahaust að gera
hina öldnu kirkju upp. Sett var upp
ný hurð sem böm Sigríðar Guð-
mundsdóttur í Ófeigsfirði gáfú til
rninningar um móður sína fyrir 8-9
árum. Hafði hurðin verið geymd
KjáUaiinn
Regína Thorarensen
fréttaritari á Selfossi
uppi á kirkjulofti þann tíma án þess
að vera sett upp. Svona var mann-
skapsleysið á öllum sviðum gagn-
vart hinni öldnu kirkju. Þá var
byrjað í fyrrahaust að gera við kirkj-
una, kirkjugólfið allt endurbætt og
var unniö að því í 9 daga og var oft
langur vinnutími. Svo var byrjað
aftur 21. ágúst sl. og þá reis gamla
einræðið í hreppnum upp og bann-
aði að unnið væri við kirkjuna en
þrátt fyrir það var haldið áfram að
vinna af miklu kappi. Svo varð það
næst að Gunnsteinn sóknarformað-
ur bað sýslumanninn að sætta fólkið
sem vann við kirkjuna og stjómina.
Eftir að sýslumaðurinn hélt fund
með áhugamönnum um gömlu
kirkjuna og stjóminni, var haldið
áfram að klæða kirkjuna að utan og
grunnmála hana og er hún sem ný
að utan enda valinn rekaviður í
kirkjuna, 5/4, sem var unninn og
gefinn af þeim feðgunum Valgeiri,
Ingólfi, Benedikt og konu hans og
hafa áðurgreindir feðgar ailir unnir
hvem dag sem unnið hefur verið í
kirkjunni, samtals 19 daga undir
stjóm sérfræðingsins Guðmundar
Baldurs Jóhannssonar.
Slæmur frágangur
Ég get ímyndað mér að sýslu-
manninum hafi blöskrað að hafa
verið beðinn um að stoppa verkið
þvr kirkjan var orðin eins og guös-
húsi sæmir. Því var það til skammar
fyrir ráðandi menn hvað þeir héldu
kirkjunni illa við í áratugi. Mér
finnst það alltaf til skammar fyrir
safnaðarmenn að halda guðshúsum
illa við og þeir höfðu ekki einu sinni
manndóm í sér til að setja sneril á
hurðina eftir að hann var úr sér
genginn eftir 138 ár, heldur settu
þeir snærisspotta í gatið þar sem
snerilinn var í og negldu nagla á
dyrastafinn og settu svo stein neðst
í spottann og þannig var kirkjan lát-
in vera í mörg ár. Já, hryllilegra
guðshús hef ég ekki séð og hef ég
víða farið. Já, það koma nýir siðir
með nýjum mönnum og þeir vilja
að ráðandi menn standi við sína
samninga og leyfi eins og meðfylgj-
andi samningur sýnir sem er
undirskrifaður af Gunnsteini Gísla-
syni, formanni sóknamefndar.
Fé afþakkað
Ég ætla mér ekki að taka þátt í
þessum svoköiluðu kirkjudeilum í
Trékyllisvrk en eftir að ég las um-
mæli Þórs Magnússonar þjóðminja-
varðar blöskraði mér alveg einræðið
í Gunnsteini Gíslasyni, að liggja á
peningum sem veittir era til hinnar
öldnu Ámeskirkju. Þessari fram-
komu hefði ég aldrei trúað á þann
athafnamann sem ég vissi ekki ann-
að en væri heiðarlegur maður af
bestu gerð. Að leyfa sér að afþakka
það fé sem búið er að veita í Ames-
kirkju, já flest er ráðandi mönnum
leyfilegt í hinum afskekkta hreppi.
Ég hef hælt Gunnsteini í ræðu og
riti fyrir hans dugnað og athafna-
semi, en það hafa ekki allir hrepps-
búar verið ánægðir með það hól
mitt.
Framkvæmdir stöðvaðar
Ég hef aldrei heyrt það áhugafólk
Ámeskirkju, sem er að gera hana
upp, hallmæla öldungadeildinni sem
ætlar að byggja nýja kirkju. Ég dáist
að þeirri fyrirhyggju öldungadeild-
arinnar að ráðast í kirkubyggingu
úr því að hægt er að gera Ámes-
kirkju upp. Þeir vilja hafa öryggiö
ef svo ólíldega vildi til að hin aldna
kirkja tæki upp á því í ellinni að
fjúka. Ég óska Ámesbúum allra
heilla bæði í nútíð og framtíð. Lifið
í sátt og samlyndi og ég vona að
Gunnsteinn skili með forgangshraði
peningunum til Ámeskirkju en liggi
ekki á þeim eins og ungahæna.
ES. Gunnsteinn hefur verið stórt
númer Ámeshreppsbúa. Hann er
búinn að vera kaupfélagsstjóri þar í
26 ár og aldrei tekið sér sumarfrí
fyrr en í sumar, að hann tók sér,
ásamt sinni fjölhæfu konu, frí til að
skoða hinn stóra heim, en eitthvað
hefur komið yfir Gunnsteinn í hans
þriggja vikna sumarfríi. Það fýrsta
sem hann gerði eftir heimkomuna
var að kalla á sýslumann og lögreglu
til að stoppa fólkið sem var aö lag-
færa hina gömlu kirkju sem var og
hefur verið Ámesbúum til stór-
skammar í áratugi.
Regína Thorarensen.
„Að leyfa sér að afþakka það fé sem
búið er að veita 1 Árneskirkju, já flest
er ráðandi mönnum leyfilegt 1 hinum
afskekkta hreppi.“