Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988. Fréttir Jón Þorgilsson sem tekiö hefur sæti í bankaráði Landsbankans. „Hef ávallt ánægjuafþví seméggeri“ Jón Þorgilsson er sveitarstjóri á Hellu en nafn hans komst í fréttirnar fyrir skömmu þegar Árni Vilhjálmsson sagði sæti sínu í bankaráði Landsbankans lausu og Jón tók við sæti Árna í bankaráðinu. Jón Þorgilsson er fæddur og uppalinn á bænum Ægissíðu í Holtum en hann er vestan víð Rangá, á móts við Hellu. Hann er fæddur 31. mars 1931 og flutti til Hellu áriö 1949 en þá tók hann til starfa sem verslunar- og skrif- stofumaður hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu. Á sama tíma hóf Jón búskap með konu sinni, Geröi Þ. Jónasdóttur, og eiga þau tvo syni, Sævar og Þorgils Torfa. Jón Þorgilsson starfaði hjá kaupfélaginu í 13 ár en þá hóf hann störf hjá Skattstofu Suður- lands á Hellu og starfaði hann þar í 15 ár eða þar til hann var kosinn sveitarstjóri árið 1978 en þá hafði hann verið oddviti Rangárvalla- hrepps í 8 ár samhliða starfi sínu á skattstofunni. - Hvernig leggst það í þig að taka sæti í bankaráöi Lands- bankans? „Ég hefði gjaman kosið að þetta hefði borið að undir öðrum kring- umstæðum en annars kem ég ekki að þessu alveg ókunnugur því ég hef verið varamaður í bankaráði Landsbankans frá ár- inu 1982. Á þessu tímabili sat ég bankaráðsfundi samfleytt í 1 og hálft ár eða frá 1983 tÖ 1984 en þá var ég varamaður fyrir Matt- hías Á. Mathiesen. Hvað varöar vegalengdina finnst mér ekki mikið fyrirtæki að aka frá Hellu til Reykjavíkur - það tekur ekki nema röskan klukkutíma." - Hvað gerirðu í frístundum? „Ég er ekki haldinn sérstakri tómstundabakteríu enda hef ég verið svo heppinn að hafa alltaf haft ánægju af því sem ég hef verið að gera hverju sinni og aldr- ei kviðið fyrir því að mæta í vinnu. Því auk þess sem upp er taliö hér á undan hefur sitthvað fallið til, m.a. starf innan Sjálf- stæðisflokksins. En ég get nefnt að ég átti hesta á sínum tíma og auk þess spilaði ég einu sinni bridge. Svo hef ég ferðast æöi mikið um landið og get ég fullyrt að ég hafi komið í flest ef ekki öll byggðarlög á landinu. Eftirlætis- staði á ég enga sérstaka nema í Rangárþingi en ég get þó nefnt tvo staöi sem hafa haft áhrif á mig öörum fremur. Þaö er annars vegar Dettifoss og það mikla afl sem býr 1 fossinum. Hins vegar eru það Herðubreiðarlindir en þar kom ég fyrst í einstaklega fógru sumarveðri og er gróöur- inn þar minnisstæður. -JBj Vetnistankur er skammt frá ammoníakstankinum: Aðeins íkveikjuhætta - segir framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðjunnar Það er þannig búið um vetnið að það á ekki að geta orðið nein spreng- ing í því. Það er geymt undir þrýst- ingi sem gerir það að verkum að það er aðeins íkveikjuhætta því sam- fara,“ sagði Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Áburðarverk- smiðjunnar, þegar hann var spurður um hugsanlega hættu af vetnis- geymum sem eru í lítilli íjarlægð frá ammóníaksgeyminum margfræga. Hákon sagði að vetnisgeymirinn skapaði ekki hættu út fyrir athafna- svæði Áburðarverksmiðjunnar -það væru í raun aðeins starfsmenn verk- smiðjunnar sem væru í hættu af honum. Þá vildi Hákon benda á að miklar öryggisráðstafanir væru á svæði Áburðarverksmiðjunnar og öryggis- mál verksmiðjunnar væru í stöðugri umfjöllun og endurskoöun. Slökkvi- lið er á staðnum og er það skipað starfsmönnum, auk þess sem beint samband er við slökkviliðið í Reykja- vík. -SMJ Tfl umræðu síðastliðið sumar Umræöa um hættuna af Áburð- Málingu hf. Sá bruni beindi sjónum arverksmiðjunnierísjálfusérekki manna að því að víða er íðnaður nein nýlunda enda vakti DV máls með hættuleg efni í eða við íbúöa- á því í sumar, í grein 15. júlí, að byggö. Það virðist lítið ætla að þar væri geymt sprengiefni með afl breytast í þessum efnum og byggð- á við hálfa Hiroshimasprengjuna. in þéttist þvert á móti í kringum Þá var DV að fylgja eför umræðu þennan eiturefnasprengjupott. sem skapaðist í kjölfar bruna í Frásögn DV 15. Júlí sumar. Guðjón Petersen: Hefur varað við vetnis- geymunum Guðjón Peters'en, fram- kvæmdastjóri Almannavama, segist hafa varað við staösetn- ingu vetnisgeymanna við Áburö- arverksmiðjuna í starfi sínu í nefndinni um verksmiðjuna en nefndin starfaöi á vegum félags- málaráðherra. „Ég hef alltaf verið óhress með þennan vetnisgeymi. Mér finnst slæmt að í öllu þessu plássi viö Áburðarverksmiðjuna skuli endilega þurfa að troða honum niöur þama,“ sagði Guðjón sem taldi að nálægð vetnisins viö ammoníakiö drægi ekki úr hætt- unni sem stafaði af því. Ef eldur kæmi upp f vetninu væm amm- oníaksgeymamir hættulega nálægt. Þá hefðu sinubrunar á þessu svæði bent á ákveðna hættu. „Menn töldu málið ekki þannig vaxiö að það gæti orðið sprenging á þennan liátt," sagði Guöjón en vetnisgeymanna er að engu getiö í skýrslunni til félagsmálaráð- herra. -SMJ Vetnið ógnar ammoníakinu „Vetnisgeymirinn hefur enga hættu 1 for með sér fýrir byggöina en gæti hugsanlega skaðað amm- oníaksgeyminn ef eldur brytist út,“ sagöi Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Hann sagði að vetnisgeyminum sjálfum fylgdi lítil sprengihætta, slíkir geymar væm aðeins hættu- legir að þvi leyti að þeir ógnuöu ammoníaksgeymunum. Eyjólfúr benti á að við íslend- ingar væmra líklega að vakna upp við þaö núna að við lifðum í tiltölulega iðnvæddu þjóðfélagi. Hér væri notað töluvert af hættu- legum efhum sem í.eðli sínu sköpuðu hættu ef ekki væri var- lega farið með þau. Út um allt land væri t.d. ammoníak notað í frystihúsum og þá gjaman flutt þangað í 900 lítra geymum. Sagði Eyjólfur að Vmnueftirlitið ynni að reglum um meðferð þessara efna og ætlunin væri aö þær kæmu til framkvæmda með haustinu. * -SMJ Vetnið er geymt i geyminum lengst til hægri á myndinni en á milli vetnisgeymisins og ammóníakskúlunnar er geymir sem inniheldur köfnunarefni. Af óskiljaniegum ástæðum fékk Ijósmyndari DV ekki að fara inn á svæðið til að mynda. DV-mynd S. Vetnisgeymar hjá Lýsi hf. við Sund: „Eram vel meðvitaðir um hugsanlega hættu“ í verksmiðju Lýsis hf. við Köllun- arklettsveg við Sund er geymt töluvert magn vetnis sem verksmiðj- an notar viö framleiðslu sína. Þetta vetni er keypt frá Áburöarverk- smiðjunni í Gufunesi og leitt til Lýsis eftir neðansjávarleiðslu. í samtali við Ágúst Einarsson, for- stjóra Lýsis, kom fram að í geymin- um er aldrei geymt meira en um 1.000 rúmmetarar af vetni en Lýsi kaupir um 50.000 rúmmetra á ári. „Vetnið er geymt hér í tönkum en næsta íbúðabyggð er langt í burtu. Við teljum enga sprengihættu af þessu,“ sagði Ágúst. Hann sagöi að út um allan bæ væri geymt bensín sem allt eins þyrfti að fylgjast með. Þá kom fram í máli Ágústs að vetnið hjá þeim er geymt undir þrýstingi og því í fljótandi formi. Það gæti því hugsanlega orðið sprenging ef kvikn- aöi í vetninu „. . .en það er afskap- lega fjarlægur möguleiki." Taldi Ágúst að allt eftirlit með þessum efn- um væri mjög ítarlegt. „Við höfum aiveg hreina samvisku hvað þetta varðar enda með grænt ljós frá þeim sem um það fjalla, s.s. eldvamareftirlitinu, en við geram ekkert í verksmiðjunni án samráðs við það. Ég tel að við séum mjög vel meðvitaðir um hugsanlega hættu,“ sagði Ágúst. -SMJ Magnús Óskarsson boigariögmaður um mótmælin vegna Tjamargötu 20: „Þetta er angi af ráðhúsveikinni“ „Þetta er angi af ráðhúsveikinni. Ef húsin hefðu ekki verið á þessum stað væru ekki þessi læti. Reykiavík er stór fjölskylda og það er alltaf ein- hver óánægður," sagöi Magnús Óskarsson borgarlögmaður. Hann sagði að þau ákvæði bygg- ingalaga um búnað bygginga til þess aö auövelda ellihrumu og fötluðu fólki að komast leiðar sinnar ættu við ný hús en ekki gömul. „Það eru engin lagaákvæði tfl um að breyta þurfi öllum húsum í eitt- hvert ákveðið form, það er útflokað. Þaö eru engin lög sem banna starf- semi sem þessa í svona húsum. Lögin snúast um ný hús. í því liggur mis- skilningurinn," sagði Magnús Óskarsson. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.