Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
13
Fréttir
Vangreiðslur fyrir sauðfjárafurðir:
Bóndi fer í mál við kaupfélagið
„Ég álít þetta ekki kæru af minni
hálfu heldur er þetta hreint inn-
heimtumál,“ sagði Þorgrímur Starri
Björgvinsson, bóndi í félagsbúinu
Garði II í Mývatnssveit, sem hefur
sent til innheimtu ógreidda reikn-
inga hjá Kaupfélagi Þingeyinga.
Innheimtan stafar af því að enn er
eftir að greiða 8% af fullu verði sauð-
fjárafurða og einnig krefst Þorgrím-
ur dráttarvaxta á þær upphæðir sem
áður hafði dregist að greiða.
„Þetta getur vissulega orðið próf-
mál og um leið áfall fyrir búvörulög-
in sem mér er ekki sárt um enda eru
þau hrein hrákasmíð. Það þýðir lítið
að setja inn ákvæði um greiðslur til
bænda ef ekki er staðið við þær,“
sagði Þorgrímur.
„Auðvitað nær Þorgrímur að inn-
heimta. þetta, það var aldrei spum-
ing,“ sagði Hreiðar Karlsson,
kaupfélagsstjóri KÞ. Hann sagðist
hins vegar ekki getað svarað því
hvort dráttarvextir innheimtust.
„Við erum ekki með málsókn á hend-
ur ríkisvaldinu en erum þó að reyna
að leita réttar okkar enda verðum
við að búa við eðlileg starfsskilyrði."
-SMJ
Leikendur i Blessuðu barnaláni. Leikstjórinn Guðjón Ingi Sigurðsson þriðji frá vinstri i efri röð.
DV-mynd Ægir Þórðarson
„Blessað bamalán“ á Sandi
Kristín Þórðardóttir, DV, Hellissandi:
Að undanfórnu hefur Leikfélag
Hellissands æft gamanleikinn
Blessað barnalán eftir Kjartan
Ragnarsson. Alls eru hlutverk 12
en stærstu hlutverk eru í höndum
Sigrúnar Sigurðardóttur, Drífu
Skúladóttur og Þorkels Cýrusson-
ar. Leikstjóri er Guðjón Ingi
Sigurðsson.
Frumsýnt verður föstudaginn 15.
janúar en áætlað er að sýningar
verði alls fjórar.
Mímir
OG MALIÐ ER LEYST!
BH
miimmw
7 vikna námskeið hefiast I s 77-
! 8-30-20.30 og 20 40-22 4f|S m'
Siðdegistímarki. 13-15 og 14-]
E NSKA
þyska
franska
SPÆNSKA
ITALSKA
ISLENSKA
fyrir utlendinga
12 V I K N A
N Á M S K E I Ð
H E F J A S T
25. janúar
Enskuskóli æskunnar er
fyrir börn á aldrinum
8-13 ára og þeim er skipt
í hópa eftir kunnáttu.
Skólinn er starfræktur í
iBREIÐHOLTI,
VESTURBÆ OG
HAFNARFIRÐI
TIL LEIGU!
Verslunarhúsnæði, jarðhæð á Rauðarárstíg,
580 m2. Glæsilegt og nýtt húsnæði.
Laust strax.
Tilboö sendist auglýsingaþjónustu DV merkt
„Rauðarárstígur 116".
Nauðungaruppboð
annað og síðara sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins
1987 á fasteigninni Þorsteinsgötu 4, Borgarnesi, þingl. eign Guðbrands
Geirssonar, fer fram að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Sigurðar I.
Halldórssonar hdl. og Ólafs Axelssonar hrl. á skrifstofu embættisins fimmtu-
daginn 21. jan. nk. kl. 10.30.
___________________Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Alltaf á laugardögum! Upplýsingasími: 685111