Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988. 5 Stjómmál Fatainnflutningur með fólsuðum upprunaskírteinum: Talsvert hér um fölsuð skírteini Könnun á því hvort hingað til lands sé fluttur fatnaður meö íolsk- um upprunaskírteinum hefur farið fram af hálfu tollyfirvalda og hefur sú athugun leitt í ljós að töluvert er um það að fölsuðum upprunaskír- teinum sé framvísað við tollaf- greiðslu. Þetta kom fram 1 svari Jóns Bald- vins Hannibalssonar fjármálaráð- herra við fyrirspurn frá Inga Birni Albertssyni, þingmanni Borgara- flokksins, um þetta efni. Spurði Ingi Björn hvort brögð væru að því að fatnaöur frá Asíu væri fluttur til frí- verslunarlands þar sem skipt væri um upprunaskýrslu og þar með slyppu menn við toll. Fjármálaráöherra sagði ennfrem- ur að athuganir tollyfirvalda á upprunaskírteinum væru liður í al- mennu tolleftirliti og hefði töluvert borið á því að slíkum skírteinum væri framvísað við tollafgreiðslu. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði um þetta efni að þessi mál væru undir smásjánni. Hann benti á að fölsun upprunaskírteina væri refsiverð samkvæmt lögum. Einnig kom fram að þar sem sérstakt eftirlit væri með fatainnflutningi væri ekki hægt að flytja inn föt með DHL hrað- sendingum. -ój Guðrún Helgadöttir og hvalaraðstefnan: # Fær aðeins að hlusta á framsöguerindin Guðrún Helgadóttir, þingmaður Alþýðubandalagsins, hefur óskað eftir því að fá að sitja ráðstefnu um nýtingu og vemdun sjávarspendýra sem hefst hér á landi 21. janúar næst- komandi, en hefur verið neitað um aö taka þátt í ráðstefnunni að öðru leyti en því að henni er heimilt að hlýða á framsöguerindi. Guðrún sagði í gær að ýmsir þing- menn væru ekki of ánægðir með fyrirhugaða ráðstefnu og varað hefði verið við henni í utanríkismála- nefnd. Guðrún sagðist hafa óskað eftir því að fá að taka þátt í ráðstefn- unni en fengið munnlega synjun frá starfsmanni sjávarútvegsráðuneyt- isins. Þá heföi hún beðið um að fá synjunina skriflega en því hefði verið hafnað. Hún sagði það athyglisvert að einn ráðherra héldi leynilega ráðstefnu um jafnviðkvæmt utanríkismál sem hvalamál og að þingmanni væri synj- að um að fá að hlýða á það sem þar færi fram. Sagði hún að ýmsir óttuð- ust að ráðstefnan gæti æst frekar upp óvild í garö íslendinga í hvalamálinu. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra sagði í gær að til ráðstefn- unnar hefði verið stofnað á þeim gmndvelli að þangað myndu stjórn- völd þjóöa, sem háðar væru sjávarút- vegi, senda fulltrúa sína. Halldór sagði að íslenksk stjórnvöld heföu þegar tilnefnt menn til að sitja ráð- stefnuna fyrir íslands hönd. Á ráðstefnunni yrðu flutt framsöguer- indi og síðan færu fram störf í nefndum. Guðrúnu Helgadóttur væri velkomið að hlýða á inngangs- erindin en aðeins þátttakendur myndu taka þátt í vinnu starfshópa. -ój Ný Vestmannaeyjaferja: Ríkisstyrkur 180 milljónir? Stofnkostnaður vegna nýrrar ferju á milli lands og Eyja, sem kæmi í stað feijunnar Herjólfs, er lauslega áætlaður um 660 milljónir króna en í lánsfjárlögum, sem samþykkt voru á Alþingi í gær, er gert ráð fyrir lán- töku vegna nýrrar ferju að upphæð 100 milljónir króna. Fjárveiting þessi er skilyrt, því að hún er háð samþykki samgönguráð- herra, fjármálaráöherra og fjárveit- inganefndar. í ræðu á þingi í gær sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra að enginn ágreiningur væri um lántökuheimiidina en fyrir- varinn á fjárveitingunni væri til þess ætlaður að reyna aö tryggja eðlileg og skynsamleg vinnubrögð í máhnu. Sagði Jón að áætlun um 660 milljóna króna stofnkostnað kynni að hækka og einnig sagði hann að kannað yrði hvort unnt væri að smíða feijuna innanlands. Miðað við rekstur á þeirri feiju sem nú er í notkun og afkomu þeirrar starfsemi, sagði fjár- málaráðherra að búast mætti við því að ríkissjóður þyrfti að standa straum af allt að 150-180 milljónum af rekstrarkostnaði nýrrar ferju á hveiju ári. -ój Bjórfrumvarpið: Væntanlegt úr nefnd í byrjun febrúar Bjórfrumvarpið svokallaða er nú til umfjöllunar í allsheijamefnd neðri deildar Alþingis. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Ólafi G. Einarssyni, formanni nefndarinn- ar, kemur máhö úr nefndinni í byijun febrúar og verður þá tekiö til við afgreiðslu þess í neðri deild. Ólafur sagði að sá timi sem notaður heföi verið við vinnu við frumvarpið í nefndinni ætti ekki að leiða til þess að málið dagaði upp í þinginu en slík örlög eru bjórfrumvörpum ekki ný- næmi. -ój FUNAI HQ 6400 myndbandstœki með forritanlegri fjarslýringu JAPÖNSK HÁGÆÐATÆKITROÐFULL AF TÆKNINYJUNGUM BETRITÆKIFÁST VARLA NE BETRAVERÐ Kr. 30.500.- stgr. © VörumarkaDurinn KRINGLUNNI S. 685440 LETURprent

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.