Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
Viðskipti
Aburðarverksmiðjan hefur fengið
háHan milljarð úr ríkiskassanum
Áburðarverksmiöjan í Gufunesi
hefur fengið samtals 420 milljónir
krónur úr ríkiskassanum á síðustu
þremur árum. Þetta er beinn fram-
leiðslustyrkur, gjaman nefndur
niðurgreiöslur. Verksmiðjan kaupir
rafmagn af Landsvirkjun fyrir um
40 aura kílówattstundina en Reyk-
víkingar greiða 4 krónur og 32 aura
fyrir kílówattstundina. Dágóður
munur. Verksmiðjan framleiðir sí-
fellt minna af áburði vegna sam-
dráttar í landbúnaöi. Því er haldið
fram að innfluttur áburður sé ódýr-
ari og því sé hann betri kostur fyrir
bændur, þeir fái meiri hagnað af
rekstri búa sinna. Ofan í allar þessar
viðskiptapælingar um verksmiðjuna
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóðsbækurób. 21-22 Allir nema Sb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 22-25 Ab
6mán. uppsögn 23-27 Ab
12mán.uppsögn 24-30,5 Úb
18mán. uppsögn 34 lb
Tékkareikningar, alm. 10-12 Sp.lb, Vb.Ab
Sértékkareikningar 12-24 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsogn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlánmeð sérkjörum 18-34 Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,25-7,25 - Sp.lb. Ab.Sb.
Sterlingspund 7,25-9 Sb
Vestur.-þýsk mörk 2,50-3,25 Ab.Sp
Danskar krónur 8,50-9,25 Úb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
LJtlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 34-35 Sp.Lb, Úb.Bb, Ib,
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 36 eða kaupgengi
Almenn skuldabréf 36-37 Lb.Bb, Ib.Sp
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr-) 36-39 Lb.lb.
Sp
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 33-36 Úb.Lb, Bb
SDR 8,5-9 Lb.Bb. Sb
Bandaríkjadalir 10,25-10, Lb.Bb.
75 Sb.Sp
Sterlingspund 10,25-10, Úb.Bb.
75 Sb.Sp
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,25 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 51,6 4,3 á mán.
MEÐALVEXTIR -
överðtr.jan. 88 36,2
Verðtr.jan. 88 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalajan. 1913 stig
Byggingavísitalajan. 345,1 stig
Byggingavísitalajan. 107,9stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Avöxtunarbréf 1,3927
Einingabréf 1 2,550
Einingabréf2 1.489
Einingabréf 3 1,588
Fjölþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf * 2,572
Lífeyrisbréf 1.282
Markbréf 1,322
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1.173
Tekjubréf 1,311
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130 kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiðir 252 kr.
Hampiðjan 136 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 141 kr.
Iðnaöarbankinn 154 kr.
Skagstrendingurhf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Víð kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Áb = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
veriö meira í ætt við pólitík en við-
skipti. Þannig hækkaði verö áburðar
um 40 prósent árið 1985 en bygging-
arvísitalan fyrir sama tímabil
hækkaði um 27 prósent að sögn Há-
konar Björnssonar forstjóra. Þessu
var öfugt farið 1986 þegar verðið
hækkaði um 10 prósent en bygging-
arvísitalan um 32 prósent og reyndar
aftur í fyrra líka en verðið hækkaði
þá um 7 prósent en byggingarvísital-
an um 16 prósent.
Fékk áður hluta af kjarnfóður-
gjaldinu
Áður en verksmiðjan fór inn á fjár-
lög árið 1985 fékk hún ríkisstyrk með
kjarnfóðurgjaldinu margumtalaða.
Styrkurinn nam árið 1984 um 1.300
krónum á hvert tonn. Þessi upphæð
var innheimt af kjamfóðurgjaldinu
og síðan greidd til verksmiðjunnar.
Bændur eru helstu viðskiptavinir
verksmiðjunnar. Á erfiðleikatímum
í landbúnaði núna skiptir miklu
máli fyrir þá aö fá sem ódýrastan
áburð til að ná fram ýtrustu hag-
kvæmni í rekstri búanna. Þeir hafa
reyndar aukiö notkun búfjáráburðar
á síðustu árum.
Áætluö framleiðsla Áburðarverk-
smiðjunnar verður 52 þúsund tonn á
þessu ári. Hún var um 55 þúsund
tonn í fyrra og 57 þúsund tonn árið
1986. Á árinu 1984 var framleiðslan
um 60 þúsund tonn.
Þyrfti að finna nýjan raf-
magnskaupanda
Ef tekin yröi sú ákvörðun að leggja
Áburðarverksmiðjuna niður þyrfti
Landsvirkjun að flnna nýjan kaup-
anda að því rafmagni sem það hefur
selt verksmiðjunni. Auk þess yrði að
finna vinnu fyrir þá 150 sem starfa
hjá verksmiðjunni. Og síðast en ekki
síst yrði að meta til íjár það öryggis-
leysi fyrir bændur að vera orðnir
háðir öðrum þjóöum í áburöarkaup-
um. Reyndar eru þeir þegar orðnir
háðir öðrum vegna innflutnings á
ýnisum efnum við gerð áburðarins.
Niðurgreitt rafmagn, beinir styrkir
á fjárlögum, frelsi í innflutningi og
sölu á áburði fómað og sprengihætta
í ofanálag. Það er því eðlilegt að spurt
sé hvort ekki sé tímabært að leggja
verksmiðjuna niður.
-JGH
- bara a siðustu þremur árum
berast fregnir um að hún geti orðið
dýrkeypt vegna sprengihættu sem
af henni stafi. Sprengikraftinum hef-
ur verið líkt viö mátt Hírósíma-
sprengjunnar.
Forstjórinn segir verksmiðj-
una standast verðsamanburð
„Ég tel verksmiðjuna vera þjóð-
hagslega hagkvæma," segir Hákon
Björnsson, forstjóri Áburðarverk-
smiðjunnar, um það hvort hann telji
verksmiðjuna góðan bísness sé litið
algerlega fram hjá hugsanlegri
sprengihættu af henni.
Að sögn Hákonar gerði hann sam-
anburð á verði áburðap á íslandi og
í Noregi í fyrra og kom þá i ljós að
tonnið í Noregi var á 11.700 krónur
en á íslandi um 13.000 krónur án nið-
urgreiðslna. Hákon telur þennan
mun jafnast nokkum veginn út sé
tekið tillit til flutningskostnaðar
áburðarins til landsins.
Austur-Evrópa með ódýran
áburð
Að sögn Hákonar er hart barist á
áburðarmarkaðnum erlendis. Nor-
egur er mikið áburðarframleiðslu-
land og eins Þýskaland. Það eru
oftast Austur-Evrópuþjóðirnar sem
gera usla á Evrópumarkaðnum þeg-
ar þær ryðjast inn á hann annað
slagið og selja ódýran áburð. Það
verð, sem þá er verið að tala um, er
verulega lægra en verð Áburðar-
verksmiðjunnar.
Því miður tókst DV ekki í gær að
fá tölur um verð á áburði erlendis
og gera sjálft samanburö á verði
• Áburðarverksmiðjunnar og heims-
markaðsverðinu.
Á fjárlög fyrir fjórum árum
Það var fyrir íjórum árum sem
Áburðarverksmiðjan fékk styrki
beint úr ríkiskassanum. Verksmiðj-
an er á fjárlögum. Árið 1985 nam
styrkurinn 130 milljónum króna,
árið 1986 var hann 170 milljónir
króna og í fyrra, árið 1987, var hann
120 milljónir. Samkvæmt fjárlögum
er gert ráð fyrir að verksmiðjan fái
20 milljónir króna á þessu ári.
í rekstraráætlun er gert ráð fyrir
að rekstur verksmiðjunnar verði í
járnum á árinu. Sé litið á afkomu
síðustu ára nam rekstrarafgangur-
inn um 15 milljónum í fyrra, um 5
milljónum árið 1986, en árið 1985 var
tap á verksmiðjunni upp á 22 milljón-
ir króna.
Skuldirnar 450 milljónir
Skuldir hennar voru í árslok 1985
um 800 milljónir en í lok desember
síðastliðins námu þær 450 milljónum
króna. Greinilegt fjárstreymi innan
fyrirtækisins þótt hagnaðurinn sé
ekki meiri. Þar kemur til framlag
ríkissjóðs.
Ákvörðun um verð áburðar frá
verksmiðjunni hefur oftar en ekki
Almenningur hefur styrkt Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi um næstum hálfan milljarð á síðustu þremur árum.
Verksmiðjan kaupir rafmagn á 40 aura kílówattstundina en Reykvíkingar greiða 4 krónur og 32 aura fyrir kíiówatt-
stundina. Verksmiðjan framleiðir sifellt minna vegna erfiðleika i landbúnaði. Og i ofanálag berast fréttir af stór-
felldri sprengihættu af verksmiðjunni.
I Kringlunni
Guömundur Bjarnason heilbrigð-
isráðherra setti í vikunni svonefnd-
an heilsumánuð í Kringlunni.
Heilsumánuðurinn gengur út á að
fólk hugi meira að heilsunni. Þeir
sem koma í Kringluna í janúar geta
því átt von á að sjá fólk gera leik-
fimiæfmgar eða glugga i bæklinga
frá landlækni sem eru á boðstólum.
Og svona fór ráðherrann að við setn-
ingu heilsumánaðarins.
-JGH
Guðmundur Bjarnason í verslunarhúsinu Kringlunni.
1200
1100
1000
JAN FEBMARAPR MAl JUN JUL AG SEPOKTNOVDES JAN FEB MARAPR MAl JUN JUL AG SEPOKTNOVDES
I 1 9 B 6 / 1 9 8 7 I
Verð á áli rauk upp
Verð á áli í London tók vænt
stökk upp á við seinni part síðast-
Uðins sumars eftir að hafa verið
tiltölulega stöðugt allt frá byrjun
ársins 1986. Þetta sést mjög vel á
meðfylgjandi línuriti. sem sýnir
meðalverð hvers mánaðar áranna
1986 og 1987. Eins og sjá má fór
verðið úr rúmum 800 sterlings-
pundum í næstum 1200 sterlings-
pund. Síðan kom veruleg lækkun í
október. En nýja árið lofar góöu á
álmarkaðnum. Verðið er núna
komið nálægt 1100 sterlingspund-
um núna um miðjan janúar. Það
þykir álmönnum vel þegið.
-JGH