Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1988, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988.
Nauðungaruppboð
annað og síðara sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins
1987áfasteigninni Bröttugötu 2, Borgarnesi, þingl. eign Jóns. S. Pétursson-
ar, fer fram að kröfu Sigurðar I. Halldórssonar hdl. á skrifstofu embættisins
fimmtudaginn 21. jan. nk. kl. 10.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
H Starf í boði
Víðstaðastaðaskóla vantar strax karl eða konu til
aðstoðar við 10 ára nemanda inni í bekk undir um-
sjón kennara. Hér er um að ræða starf frá kl. 8-12
alla skóladaga til vors. Nánari upplýsingar um starfið
og launakjör gefur skólastjóri, sími 52911 eða 5291 2,
eða Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar, sími 53444.
Skólafulltrúi Hafnarfjarðar
HRARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ■
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi:
RARIK 88002 Raflínuvír 101 km.
Opnunardagur: þriðjudagur 16. febrúar 1988 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna rík-
isins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudeginum 14. janúar 1988 og kosta kr. 300,00
hvert eintak.
Rafmagnsveitur rikisins,
Laugavegi 118
105 Reykjavík
ERUM Á LEIÐ TIL USA
í kringum mánaðamót janúar/febrúar að
kaupa bíla. Bifvélavirkjar skoða bílana.
HAGSTÆTT VERÐ.
Einnig hækkum við og breytum öllum
gerðum nýrra jeppa.
Hringið í síma 667363 og
666541.
Geymið auglýsinguna
uuona
Hyggja á hefhd-
ir gegn N-Kóreu
Konan, sem játað hefur að hafa grandað farþegaþotunni, kom fram í sjón-
varpi í Suður-Kóreu í morgun og ítrekaði þar játningu sína.
Símamynd Reuter
Vamarmálaráðherra Suður-Kóreu
kallaði yfirmenn herafla landsins
saman á fund í morgun til þess að
ræða allar hugsanlegar leiðir til
hefnda gagnvart Norður-Kóreu eftir
að stjómvöld í Se'oul sökuðu N-
Kóreumenn um að hafa staðið að því
að granda s-kóreskri farþegaflugvél
á síðasta ári.
Ráðherrann skipaði herjum lands-
ins í viðbragðsstöðu og gaf öllum
yfirmönnum fyrirmæli um að vera í
stöðvum sínum á næstunni.
í morgun játaði norður-kóresk
kona að hafa grandað s-kóreskri far-
þegaflugvél með hundrað og fimm-
tán manns innanborðs, í nóvember
síðastliðnum. Konan segist hafa
komið sprengju fyrir í véhnni og
hafi hún gert það aö skipan Kim
Jong-Il, leiðtoga í Norður-Kóreu, sem
er tilnefndur arftaki Kim Il-Sung.
S-kóreska farþegaþotan hvarf þann
29. nóvember, á flugi frá Bagdad til
Seoul.
Talsmenn stjórnvalda í Norður-
Kóreu hafa alfarið hafnað kenning-
um um að ríkisstjóm þeirra hafi
staðið að því að granda þotunni.
Segja þeir að mun Uklegra sé að ein-
hver hópur s-kóreskra andófsmanna
hafi staðið að tilræðinu.
Konan, sem játað hefur á sig
sprengitilræðið, heitir Kim Hyon-
Hui, tuttugu og sex ára gömul. Hún
var í fylgd með eldri karlmanni, sem
átti jafnan hlut að tilræðinu, en hann
framdi sjálfsmorð þegar átti að hand-
taka þau. Konan reyndi einnig að
ráöa sér bana en mistókst.
Norðmenn vonsviknir
Páll Vilhjálmsson, DV, Osló:
Norsk stjórnvöld vonuðust til að
Ryzhkov, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, sem kom í opinbera
heimsókn til Noregs í gær, hefði með
sér tillögur til að leysa landhelgis-
deilur ríkjanna en urðu fyrir von-
brigðum. Ryzhkom hélt fast við þá
stefnu Sovétríkjanna að skipta land-
helginni eftir svokallaðri svæðislínu.
Norðmenn vilja að miðlína gildi milli
landanna.
Eftir viðræðurnar sagði Gro Harl-
em Brundtland, forsætisráðherra
Noregs, að forsendan fyrir bættum
og auknum samskiptum Noregs og
Sovétríkjanna væri að landhelgis-
deilan leysist. Búist er við að leiö-
togarnir ræði þetta mál áfram í dag.
stón/eldanna í Norðurhöfum
Páll Víhjáimsscn, DV, Osló:
Samningsvilja Sovétríkjanna
verður að setja í sambandi við til-
SovétrOtin vilja gera samkomu- tölulega nýjar áætianir sem
lag um vigbúnað stórveldanna í Bandaríkjamenn hafa um sókn að
Norður-Atiantshaíi og skipta haf- fiotastöövum Sovétríkjanna á
inu á milli íslands og Noregs í Kolaskagaeftilátakakæmiámilli
svæði þar sem stórveldunum yrði stórveldanna, Áætlunin gengur út
bannaö'að hafa kafbáta sína. / á það aö bandariski ílotinn sæki
Þetta kom fram í raeðu sem so- að kjamorkukafbátum Sovétríkj-
véski forsætisráðherrann Ryzhkov anna sem næst bækistöðvum
hélt í Osló í gær á fyrsta degi heim- þeirra á Kolaskaga.
sóknar sinnar í Noregi. Sovétríkin vilja tryggja flotab-
ækistöövar sinar og era i staöinn
tilbúnir aö gefa eftir með svæði sem
Atlantshafsbandalagið þarf til aö
senda skipalestir yfir Noröur-Atl-
antshaf á hættu- og stríðstimum.
í ræðu sinni sagði Ryzhkov að
Sovétmenn vildu bæöi ræöa við
Norðurlönd og Bandaríkin ura
samkomulag sem dregur úr vig-
búnaði á Norður-Atlantshafi.
Övyggisráðið ávítar
enn ísraelskyfíwöld
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur endurtekið áskorun sína til
ísraelskra yfirvalda um að flytja ekki
á brott Palestínumenn frá ísrael.
Bandaríkin sátu hjá, ólíkt því sem
þau gerðu fyrir tíu dögum.
Sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, Vemon Walt-
ers, útskýrði þessa ákvörðun með því
að segja aö það hefði enga þýöingu
að fjalla aftur um brottvísunina.
Hann ,tók þó fram að Bandaríkin
væru óánægð með brottvísunina og
hvettu ísraelsmenn til að halda ekki
slíku áfram.
í ályktun Öryggisráðsins var ísrael
meðal annars hvatt til þess að leyfa
Palestínumönnunum fjórum, sem
fluttir voru á brott fyrr í vikunni til
Líbanons, að snúa aftur heim.
ísraelsmenn virða ályktunina að
vettugi og handtóku í gær tíu Palest-
ínumenn til viðbótar, þar á meðal
fimm blaðamenn.
Palestínumaðurinn Hanna Siniora,
ritstjóri dagblaðsins Al-Fajr, var í
gær handtekinn í Jerúsalem. Var
hann grunaður um að skiputeggja
ólögleg fundahöld.
Simamynd Reuter