Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 11
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988.
11
UÚönd
Óánægja með
teiknimyndahátíð
Árleg hátíð
Síðastliöin fimmtán ár hefur þessi
litla burgeisaborg á ystu mörkum
framleiðslusvæðis eðalalkóhólsins
koníaks verið helsti fundarstaður
áhugamanna um teiknimyndasögur.
Síðustu helgina í janúar ár hvert er
haldin teiknimyndasöguhátíð. Þessi
hátíð byijaði. smátt fyrir fimmtán
árum og var þá hugsuð fyrst og
fremst handa höfundum. Smám sam-
an breyttist ráðstefnan í allsherjar
markað og söluhátíð. Mannfjöldinn,
sem þyrptist til borgarinnar þessa
einu helgi á hverju ári, nálgaðist tvö
hundruð þúsund og borgarstjórnin
fór að hugsa stórt.
Uppbygging
I myndhstarskóla borgarinnar var
stofnuö teiknimyndasögudeild, sú
eina sinnar tegundar í heiminum.
Hafist var handa við að byggja helj-
armikla miðstöð sem á að hýsa
vinnustofur og rannsóknarhúsnæði
fyrir hstamenn og áhugamenn um
teiknimyndasöguna og ýmiss konar
nýja tækni í teikningu, svo sem
tölvugrafík.
Angouleme átti að verða borg
myndarinnar. Það voru einkum sós-
íalistar í valdatíö Mitterrands sem
studdu þetta. Fyrir borgina var þetta
gróðaleið og ágæt aðferð til aö vekja
athygli á sér.
Því getur vel verið að þessi þekkta
hátíð færi sig um set, til dæmis th
Grenoble, Lyon eða annarrar stærri
borgar. Það væri kannski ekki verra
því þá þyrfti Angouleme að endur-
skoða allverulega ímynd sína og
kannski huga alvarlegar að mynd-
inni í stað þess að fara árlega á eitt
teiknimyndasölufyllirí.
Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux:
í miðausturhluta Frakklands er
borg sem heitir Angouleme. Hana
kannast flestir Frakkar við og jafn-
vel nokkrir íslendingar. Það er
auðvitað vegna Tinna, Ástríks,
Lukku-Láka og ahra hinna teikni-
myndasögupersónanna því Angoul-
eme er oft nefnd höfuðborg
teiknimyndasögunnar í Frakklandi
. sem er svo óumdeilanlega land þessa
tjáningarforms.
Borgarstjórinn hefur átt í minni hátt-
ar fjármálahneykslum undanfarið.
Angouleme er fátækari borg en áður
var, teiknimyndahátíðin fær minni
pening og þar fyrir utan eru fjöl-
margir aðstandendur hátíðarinnar,
útgefendur og aðrir, hundóánægðir
með aðstöðuna og síaukinn verslun-
arbrag sem yfir öllu hvílir.
Babb í bátinn
Nú er hins vegar komið babb í bát-
inn því Pierre Pascal, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar og upphafsmaður
hennar, er búinn að fá nóg og hefur
sagt upp störfum. Þar sem borgar-
stjómin styrkir hátíðina ahverulega
ræður hún miklu og borgarstjórinn Lukku-Láki, Tinni og Ástríkur eru verslunarvara, likt og flest annað, og
og Pascal voru orðnir litlir vinir. borgarbúar i Angouleme ætluðu að hagnast vel á þeim.
Heimsverslunin
í uppgangi
meira inn á síðastliðnu ári en áður
fyrr.
GATT lítur björtum augum til
framtíðarinnar. í skýrslu stofnun-
arinnar segir að þrátt fyrir spennu
í viðskiptalífinu og vandamál í þró-
un gengismála sé enginn vafi á því
að ástandið sé viðunandi um þessar
mundir. GATT fullyrðir að ýmiss
konar jákvæð teikn séu á lofti.
Neýtendur og tjárfestingaraðilar
hafi haldið tiltrú sinni og heimsvið-
skiptin séu á stöðugri uppleið. Að
mati GATT munu viðskiptin auk-
ast jafnt og þétt á árinu. 1988 eða
að minnsta kosti jafnmikið og á
árinu 1987. Það er þróun sem fáir
hefðu trúað að möguleg væri eftir
þau vandamál og erfiðleika sem
urðu í kauphallarviðskiptunum á
síðastliðnu hausti.
Gizur Helgason, DV, Lúbedc
Þrátt fyrir erfiðleikana á verð-
bréfamarkaðnum nú undanfarna
mánuði þá stíga heimsviðskiptin
ört. Svo mun og verða út árið 1988.
Þannig mælir GATT, hin alþjóð-
lega tolla- og viðskiptastofnun, í
ársskýrslu sinni.
Kauphallarerfiðleikamir 1987
hafa haft lítil eða engin áhrif og þau
fimmtán lönd, sem talin eru mest
skuldum vafin, hafa staðið sig bet-
ur en vonir stóðu til. Þetta mat frá
GATT er nokkurn veginn sam-
hljóða nýlegum skýrslum frá
Efnahags- og framfarastofnun Evr-
ópu og Evrópubandalaginu. í þeim
er tahð að engin ástæða sé til að
óttast samdrátt vegna verðbréfa-
hrunsins.
Önnur mikilvæg þróun hefur átt
sér stað og hún viðkemur fimmtán
skuldugustu löndum veraldar. Þau
hafa staðið sig betur en búist hafði
verið við. Útflutningur þeirra jókst
um 10 prósent árið 1987 á meðan
innflutningur þeirra varð 7 pró-
sent.
GATT upplýsir ennfremur að
heimsviðskiptin hafi aukist í heild
um 4 prósent (mót 3,5 prósentum
árið 1986). Verðmætaaukningin
jókst um 15,5 prósent eða í 2450
milljarða dollara en það er algjört
met. Nú virðist allt benda til þess
að um svipaða viðskiptaaukningu
verði að ræða á þessu ári.
Verslun með landbúnaðarvörur
á síðasta ári jókst um 4 prósent en
féll um 1 prósent á árinu 1986. Ein
af ástæðum þessarar aukningar nú
er aukinn innflutningur á matvæl-
um til Japans. Kínverjar ííuttu og
MIKIÐ ÚRVAL EIGULEGRA BÍLA
VIÐ FLESTRA HÆFI
Nissan Cedric, árg. 1985, 6 cyl.,
dísil, ekinn 175 þús. km, vel meö
larlnn bill, sjállskiptur, vökvastýri,
ratmagn i rúöum, útvarp, segul-
band, litur brúnsanseraður. Skipti
koma til greina á ódýrari biireið.
Verð 780 þús.
Golf GTI, árg. 1987, ekinn 18 þús.
km, 5 gíra, litur rauður, útvarp, seg-
ulband. Skipti gætu komið til greina
á óýrari bilreiö, einnig greiðsla
með skuldabréti. Verð 720 þús.
Subaru Justy J-12, árg. 1987, fjór-
hjóladrifinn, ekinn aðeins 9 þús.
km, 5 gíra, útvarp, segulband, litur
hvitur. Aðeins bein sala, engin
skipti. Verð 420 þús.
Toyota Corolla 1300 DX, árg. 1988,
ekin 4 þús. km, 4 gira, útvarp, seg-
ulband, samlitir stuðarar, litur
hvítur. Skipti gætu komið til greina
á ódýrari blfreið. Verð 515 þús.
Nissan Sunny 1500 SLX sedan, árg.
1988, ekinn 5 þús. km, 5 gira, með
vökvastýri, litur hvitur, samlitir
stuöarar. Aðeins bein sala, engin
skipti. Verð 550 þús.
Nissan Patrol disil, lengri, árg.
1984, 6 cyl. Nissanvél, 5 gira,
vökvastýri, breiö dekk, White spoke
felgur, litur hvitur. Skipti koma til
greina á ódýrari bifreið. Verö 810
þús.
Engin útborgun og greiðsiukjör
allt að 2 ár
Teg. Arg. Verð
Lada Sport 1980 110.000
Mazda 626 1980 150.000
MMCColt 1981 150.000
Subaru station 1980 160.000
Nissan Sunny station 1981 160.000
Saab 99 1979 180.000
MMC Lancer 1982 225.000
Subaru station 1981 230.000
Lada Samara 1987 230.000
Toyota Tercel 1982 230.000
Honda Civic 1982 230.000
Suzuki sendi-bitabox 1983 170.000
Honda Civic 1981 160.000
Citation 1980 200.000
FiatUno 45 1984 200.000
Mazda 626 1981 240.000
MMCColt 1983 250.000
Peugeot 305 station 1982 250.000
Mazda 626-2000 1982 260.000
Malibu station 1980 290.000
Mercedes Benz 220 D 1978 300.000
Honda Accord 1982 310.000
Subaru E-10, sendibill 1985 310.000
Citröen GSA Pallas 1984 310.000
Subaru 1800 station 1983 330.000
Subaru 1800 hatchback 1983 330.000
Mazda 929 station 1982 330.000
Nissan Sunny GL 1984 340.000
Nissan Sunny station 1984 340.000
Nissan Pulsar 1986 350.000
Escort 1100 Laser 1986 360.000
AMC Eagle 4x4 1982 390.000
Saab 99 GL 1984 400.000
Mazda RX7 1980 420.000
Nissan Sunny GL 1986 430.000
Subaru 1800 station 1984 430.000
Oldsmobile Cutlass 1980 450.000
GolfGL 1986 485.000
Range Rover 1979 490.000
MMC Pajero, stutt., bens. 1983 550.000
Golf GTI 1984 590.000
Range Rover, 4 dyra 1981 850.000
Cherokee Chief 1984 930.000
KAUPENDUR. ATHUGIÐ:
ÞETTA ER AÐEINS SÝNISHORN ÚR SÚLUSKRÁ 0KKAR
BÍLAR VIÐ FLESTRA HÆFI
ÝIVIISS K0NAR KJÖR
Opiö laugardaga 10-17.30