Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988.
Við Tjömina á björt-
um vetrardegi
Það var hörkufrost en bjart og
fallegt veður einn sunnudag í jan-
úar. Ég átti að keppa í blaki og leið
mín til íþróttahússins lá fram hjá
Tjörninni. Þarna var iðandi líf, fólk
á öllum aldri naut þess að vera
úti, vera á gönguskíðum, skautum
eða einfaldlega gangandi. í augna-
blikinu hefði ég helst viljað henda
íþróttatöskunni frá mér sem lengst
og ná í skauta í staðinn.
Ekkialltá hreinu
Þama í miðri Reykjavík er tæki-
færi að stunda íþróttir og það meira
að segja ókeypis: íþróttir fyrir alla,
heilbrigðar, eðlilegar hreyfingar í
fersku lofti, miklu betra og hættu-
lausara en þetta einhæfa púl í
þungu lofti dýrra líkamsræktar-
stöðva. Stórkostlegt! Já, en það er
kannski ekki allt alveg á hreinu
með „hreina" loftið í Reykjavík.
Reyndar er þessi þjóð langt á eftir
í mengunarvörnum. Hér hefur ekki
tíðkast að slökkva á mótornum
þegar maður bíður í bílnum sínum
(maður gæti haft eina íslenska
lopapeysu með sér). Hér þekkist
ekki blýlaust bensín og varla legg-
ur fólkið'mikiö kapp á að láta stilla
vélina rétt. Strætisvagnakerfið er
ekki heldur til þess að hrópa húrra
fyrir. Þegar ég flutti til landsins
samsvaraði eitt far með SVR DM
0,80. í dag kostar einn far kr. 40 (DM
1,90). Farið með strætisvögnum í
KjaUarinn
Ursula Junemann
kennari
V-Þýskalandi hefur á sama tíma
hækkað óverulega. Auk þess fæst
þar mánaðarkort sem kemur sér-
lega vel út fyrir þá sem nota
vagnana daglega.
Hugfangin stansaði ég við gamla
Iðnó. í pínulitlum polli svömluðu 2
endur, daprar á svip. Heldur þótti
mér heitavatnsbunan fátækleg til
að bræða klakann á þessum stað.
Og þessi ríka borg ætti að hafa ein-
hverja smáaura afgangs til að setja
upp fleiri ruslaílát og láta tæma
þaú reglulega. Ekki éta endurnar
plast- né bréfpoka og ekki heldur
eru það meðmæh með „hreinustu
höfuðborg heimsins" að ösla gang-
stéttir og götur í glerbrotum og
rusli.
Uppi í loftinu svifu stórir hópar
af gæsum og álftum. Þær fylltu loft-
ið með sérkennilegum hljóðum
sínum.
Dýrar náttúruperlur
Ferðafólk og náttúruunnendur
frá öðrum löndum koma oft til ís-
lands til aö skoða þessar fuglateg-
undir. Ég held að þeir verði ekki
eins spenntir að reka augun í eitt-
hvert ráðhús sem er einna líkast
,,Ég held að þeir verði ekki eins spennt-
ir að reka augun 1 eitthvert ráðhús sem
er einna líkast járnbrautarstöð í útl-
öndum.“
„Reyndar er þessi þjóð langt á eftir í mengunarvörnum“ segir m.a. i
greininni.
járnbrautarstöö í útlöndum. Svo
sem kunnugt er ætlar borgarstjór-
inn í Reykjavík að láta byggja
þennan óskapnað fyrir offjár, ein-
mitt á þessum einstæða stað, á
móti vilja meirihluta borgarbúa.
Alveg ótrúleg skammsýni. Ég vildi
láta alfriða Tjarnarsvæðið og eins
Öskjuhlíðarskóginn og Nauthóls-
víkina (þar á t.d. eftir að kippa
skólpvatnshneykslinu í lag!). Þetta
eru allt of dýrmætar náttúruperlur
innan um götur, steypukassa og
óteljandi blikkbikkjur. Það má ekki
þrengja meira að þeim með „mont-
höllum", snúandi veitingahúsum
og aukinni umferð. Aðrar menn-
ingarþjóðir hafa nú þegar upp-
götvað þann mikla kost að leyfa
gömlum bæjarkjörnum að vera í
friði og draga þar sem mest úr
umferð. Áætlun borgaryfirvalda að
rífa eða flytja gömul hús, höggva
gömul tré og reisa nútímabygging-
ar í gömlum bæjarhlutum eru
hvorki nútímalegar né raunhæfar
lausnir, heldur skammsýnar og
gamaldags.
Að hugsunum þessum loknum
var ég komin í íþróttahúsið mitt
og var nógu reið til þess að blaka
boltanum með fullum krafti.
Ursula Júnemann
Hverjir eiga Jón?
ik
Eftirminnilegasti sirkus, sem
hingað til hefur farið hringinn í
kringum landið til þess að
skemmta landsmönnum, var þegar
Jón Baldvin, núverandi skatta-
málaráðherra, fór hringinn veif-
andi launaseðli Jóns verkamanns
úr Eyjum. Hlýnaði þá mörgum lág-
launamanninum um hjartaræt-
urnar vegna umhyggju hins
vígreifa byltingarmanns sem gerði
uppreisn gegn kerfmu og hét að
reka Jóhannes Nordal og lýsti því
fjálglega hvernig tvær þjóðir
byggju i þessu landi, hinir riku og
hinir fátæku. Yfirskrift allra fund-
anna var hin dramatíska spuming:
„Hverjir eiga ísland?"
Biðillinn Jón
Fyrir síðustu kosningar biðlaði
Jón Baldvin til þjóðarinnar meö
rauðum rósum og bað um umboð
hennar til aö jafna lífskjörin. Töfra-
brögð Jóns höfðu undraverð áhrif
og ótrúlegur fjöldi dáleiddra kjós-
enda fór inn í kjörklefann og tók
bónorðinu. En eins og alltaf, þegar
fólk fellur í þunga vímu, láta timb-
urmennirnir ekki á sér standa. Nú
er dásvefninn búinn og eftir situr
þjóðin með höfuðverk, velgju og
tóma budduna.
Svik Alþýðuflokksins
Alþýðuflokkurinn hefur svikið
allt sem hann hefur lofað, klúðrað
húsnæðismálunum, sett matar-
Kjallariim
Helga Gísladóttir
kennari, í landsráði
Flokks mannsins
með sér nafna sinn Sigurösson,
fyrrverandi bankastjóra hins ill-
ræmda Alþjóðagjaldeyrissjóðs sem
getið hefur sér óorð fyrir að arð-
ræna þriðja heiminn og rak síðan
erindi þess sjóðs með tillögugerð
sinni um afnám samningsréttar
launþega áriö 1983.
Stjörnuliðið
Greinilegt er að dáleiðslan er að
dofna og.þjóðin farin að ramska.
En hvað er nú til ráða fyrir Jón
bónda? Eitthvað verður hann að
gera núna til þess að þjóðin upp-
götvi ekki stóru svikin. Svikin eru
að Jón er auðvitað bara strengja-
brúða í höndum fjármálakerfisins
sem á ísland eins og hann í raun
lét að liggja í sinni frægu leikferð
um landið. En óþarft er að gefast
upp fyrir annan eins hæfileika-
„Því auðvitað er þetta land fyrir okkur
öll, en ekki bara fyrir fáa.“
skatt á þjóðina og er nú á góðri leið
með að múlbinda láglaunafólkið
með dyggri aðstoð útsendara sinna
í verkalýðshreyfingunni. Og í stað
þess að reka Jóhannes Nordal hef-
ur Jón Baldvin styrkt hann í sessi
með því að taka inn í ríkisstjórnina
mann og hann er. Og svo er hann
aldeilis ekki einn á ferð. Flokkur
hans hefur á að skipa mörgum
hæfum leikurum.
Ég held að það eina sem geti nú
bjargað hringleikaflokki Jóns sé
myndarleg hringferð um landið
með öllum sínum frægu kröftum.
Þar gæti komið fram stjörnuliðið:
Hinn vaski Guðmundur Einarsson,
fyrrverandi kerfisbani og núver-
andi varðmaður þess. Hin ókrýnda
drottning húsnæðisvandans, Jó-
hanna Sigurðardóttir, og hinn
baráttuglaði andstæðingur Al-
þýðuflokksins, Karvel Pálmason.
Að ógleymdri hinni ráðdeildar-
sömu matselju sirkussins, Bryndísi
Schram, sem gæti sýnt töfrabrögð,
svo sem hvernig hægt er að mat-
reiða sultardropa á ýmsa vegu.
Ekki má heldur gleyma aö bjóða
Jóni verkamanni með í ferðina, því
einhver verður að borga brúsann.
Tækniundur tuttugustu
aldarinnar
En nú dugir ekki að leika sama
leikritið og um árið, þótt það hafi
verið sýnt fyrir fullu húsi. Nýja
leikritið gæti til dæmis heitiö
„Tækniundur tuttugustu aldarinn-
ar - matarskatturinn" og hver veit
nema þjóðin dáleiðist á ný. Því eng-
inn vill láta sannast á sig að hann
sé á móti tækniframförum nútím-
ans. Enda hefur Jón sjálfur líkt
andstæðingum þessa tækniundurs
við bænduma sem mótmæltu tal-
símanum á sínum tíma.
Eigendur Jóns
En okkar á milli sagt: Nú vita
allir að eigendur íslands eru í
reynd fjármálafurstarnir á bak viö
Sjálfstæðiflokkinn og Framsóknar-
flokkinn.
Hvernig líður þér að vera nú í
þeirri stöðu að þurfa að vinna öll
óþrifaverkin fyrir þessa landseig-
endur?
Og hvernig finnst þér að hafa
verið hafður að fífli af þessum
sömu mönnum sem hafa fengið þig
með aðgerðum þínum til þess að
eyðileggja Alþýöuflokkinn á með-
an þeir sjálfir veltast um af hlátri
yfir því hversu auðvelt er að gabba
þig? Því þú tekur allan skellinn
þótt þú sért síður en svo. einn
ábyrgur fyrir allri þessari vitleysu.
Jón, gefðu sjálfum þér
tækifæri
Ég held að það sé nú betra fyrir
sálartetrið áð hætta að plata fólk,
annaðhvort með því aö lýsa hrein-
skilnislega yfir stuðningi þínum
við hina fyrri andstæðinga, Jó-
hannes Nordal og aðra fjármála-
fursta landsins, eða með því aö
afnema þær hrikalegu aðfarir sem
þú hefur beitt þér fyrir gagnvart
þeim sem minnst mega sín og
standa við loforð þín um að jafna
muninn milli þjóðanna tveggja sem
byggja landið.
Því auðvitað er þetta land fyrir
okkur öll en ekki bara fyrir fáa.
Helga Gísladóttir
_y Kvoóinrd
‘Undir LœíqartungCL Lœkjargötu 2
NÝR OPNUNARTÍMI
Borðpantanir í shnum 621625 og 11340. Snyrtilegur klæðnaður.
Opið alla virka daga í hádeginu og á kvöldin.
Um helgar: Föstudaga til kl. 02
Laugardaga frá kl. 18-02
Sunnudaga frá kl. 18-23.30