Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Side 33
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988. 33 T lífcsHll Hárgreiðsla sem listsköpun Nýlega var staddur hér á landi bandarískur hárgreiöslumeistari, Gary Bray að nafni. Hann kom hingað á vegum Hárgreiðslumeist- arafélags' íslands og hélt sýningu fyrir fullu húsi. Á sýningu sinni sýndi Gary klippingu og blástur, daggreiðslur og kvöldgreiðslur. Viðhafnar- greiðslur hans vöktu mikla athygli áhorfenda en hann notar mikið hártoppa og ýmislegt hárskraut til að leggja áherslu á greiðslurnar. En Gary Bray gerði meira en halda hér sýningu. Hann var einnig fenginn til að leggja landsliðinu lín- urnar og þjálfa það fyrir heims- meistarakeppnina í hárgreiðslu sem fram fer þann 3. október nk. í Dusseldorf í Þýskalandi. DV ræddi við Gary Bray um heimsmeistarakeppnina og hár- greiðslu almennt en Gary Bray og kona hans, Ann, hafa þjálfað tvö bandarísk lið í heimsmeistara- keppni og hlaut annað þeirra gullverðlaun. íslenskar konur safna allarhári „Hárgreiðsla er list,“ sagði Gary Bray. „Hárgreiöslumeistarar nota hárið sem tjáningarform á svipað- an hátt og aðrir listamenn nota önnur efni. í heimsmeistarakeppn- um, sem og öðrum keppnum, er greiðslan tekin skrefi framar en gert er á hárgreiðslustofum. Þetta eru ekki greiðslur sem við sjáum á skemmtistöðum heldur eru þetta listform. Því er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hugsuninni á bak við greiösluna. Það er síðan kepp- ándans að þróa þá hugsun og leggja sinn persónulega stíl í hana. íslensku stúlkurnar verða að ákveða línuna, sem þær ætla að nota í keppninni, og æfa sig síðan á henni þar til fullkomnun er náð,“ sagði Gary einnig. „Þetta er mikil endurtekning og mikil vinna. Ég reyni að aðstoða þær eftir bestu getu, sérstaklega á andlega sviðinu, gefa þeim meira sjálfstraust. Þær þurfa að öðlast trúna á sjálfar sig, trúa því að þær geti þetta. í heimsmeistarakeppninni er keppt í þremur greinum: dag- greiðslu, viðhafnargreiðslu og klippingu og blæstri. Þar sem þetta er í annað sinn sem íslendingar taka þátt í þessari keppni er reynsl- an mjög takmörkuö. Sjálfur hef ég Hér er svo landsliðið i hárgreiðslu, frá vinstri: Sólveig Leifsdóttir, Dóró- thea Magnúsdóttir og Guðfinna Jóhannsdóttir. DV-mynd Brynjar Gauti m m Myndin lengst til vinstri sýnir módelið áður en Gary byrjaði, myndin í miðjunni sýnir hann að verki en til hægri sjáum við svo hvernig stutta hártiskan verður i sumar. DV-mynd GVA m þá trú að þær muni standa sig vel því þær búa yfir miklum hæfileik- um.“ Aðspurður sagði Gary að greiðsl- ur á sýningum sem þessum væru undir áhrifum frá tísku í fatnaði. „Formið er mjúkt og línur kvenleg- ar eins og tískan segir til um. Mikið er um bylgjur og sveigðar línur. í viðhafnargreiðslum eru hártoppar mikið notaðir og reyndar er skylda að nota topp í heimsmeistara- keppninni." Þrotlausar æfingar og mikil vinna „Við verðum bara að giftast hár- greiðslunni fram á næsta haust,“ sagði Dóróthea Magnúsdóttir, að- spurð hvort þjálfun fyrir keppni sem slíka væri ekki tímafrek. „Annars erum við mjög spenntar fyrir þessari keppni. Það er nýbúið að velja í landsiiöið. Við erum þrjár sem vorum valdar, ég, Sólveig Leifsdóttir og Guðfinna Jóhanns- dóttir. Framundan er því mikil vinna við undirbúning. Okkar undirbúningur felst í því að við æfum okkur á þeim línum sem Gary Bray lagði fyrir okkur. Við ætlum að hittast a.m.k. þrisvar í mánuöi og æfa okkur saman. Við komum ekki til með að nota lifandi módel fyrr en eftir mánuð eða svo, þegar við höfum náð leikni í þeim greiðslum sem við ætlum að nota. Þangað til notum við kollur. Við höfum vitað af Gary Bray í langan tíma. Hann var dómari í Norðurlandakeppninni sem var haldin hérlendis í nóvember sl. og l"'opm var farið að huga hann til að halda sýn- námskeið á íslandi. Hárgreiðslumeistarafélag Islands hafði svo samband við hann og hann sló til. Hann hefur þjálfað heimsmeistara í hárgreiöslu og hefur mikla reynslu í slíkum mál- um. Islenska liðinu gekk vel í síðustu heimsmeistarakeppni. Við lentum fyrir miðju en þaö var ítalska liðið sem vann. Keppni sem þessi er ekki einstaklingskeppni heldur keppum við sem samhent hð. Tískan Þessa greiðslu sýndi Gary Bray á sýningu sinni á Hótel Borg nýlega. Hárið hefur verið litað gult og sett skemmtilega upp að framan. DV-mynd GVA Hér sýnir Gary Bray Dórótheu Magnúsdóttur réttu handtökin, en Dóró- thea er ein þriggja sem valdar hafa verið til að keppa fyrir islands hönd á heimsmeistarakeppninni i hárgreiðslu. DV-mynd Brynjar Gauti Punktar okkar allra eru lagðir saman í heildareinkunn. Við verð- um því að hugsa og vinna sem ein manneskja.“ íslenskar konur hugsa vel um hár sitt og fylgjast grannt með tískufyrirbrigðum í hártískunni, að sögn Dórótheu. „En íslendingar eru líka mjög sjálfstæðir hvað varðar hárgreiðslur. Núna eru all- ar íslenskar konur að safna hári þótt það sé ekki í tísku. Það er mjög erfitt að lýsa tískunni fyrir vorið og sumarið. Hárið verður þó um- fram allt kvenlegt. Liðað hár er að komast aftur í tisku og línur verða allar mjög rnjúkar." -StB Við Viljum helst halda í hann sem lengst og til tals hefur komiö að við förum utan á einkanámskeið til hans. Hann hefur einnig boðist til að koma aftur til íslands. Hvað verður er ekki búið að ákveða. Helst vildum við að sjálfsögðu að hann yrðí okkur til halds og trausts í Dusseldorf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.