Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1988, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1988.
35
Lífestm
sig á einum jakka. Svo er þetta alls
ekki timafrekt, námskeiðiö tekur
fimm vikur, og tíminn er mjög drjúg-
ur. Okkur er kennt að gera hlutina
sjálfar og ég stend mun betur að vígi
núna en áður en ég kom. Reyndar
spurði maðurinn minn um daginn
hvort ég gæti ekki saumað á hann
jakka núna,“ sagði Kristín og kímdi.
„Ef þetta heppnast vel ýtir það undir
áhugann. Ég á alveg örugglega eftir
að halda áfram að sauma og hingað
kem ég aftur. Hver veit, kannski kem
ég í haust og sauma mér kápu.“
Saumaklúbbur með nýju sniði
Saumanámskeið félagsins Nýtt af
nálinni er eilítið öðruvísi en mörg
önnur námskeið. Það er til að mynda
eingöngu opið félagsmönnum
klúbbsins og notast er við snið og
leiðbeiningar sem fást í blaði félags-
ins sem gefið er út mánaöarlega.
Námskeiðin standa í sex vikur og
kennt er vikulega í fjóra tíma í senn.
Verðið er 4.500 og miðað er við 8
nemenda hámarksfjölda á nám-
skeiði. En þeir sem vilja taka þátt í
þessu námskeiði verða að gerast fé-
lagsmenn og það kostar 240 krónur
fyrsta mánuðinn en 480 krónur
hvem mánuð eftir það. í þessu gjaldi
felst áskrift að blaði félagsins en
kennarar styðjast eingöngu við það
á námskeiðunum.
DV leit innð á eitt námskeiðanna
og ræddi við kennara, nemendur og
aðstoðarritstjóra blaðsins.
„Hingað koma konur á mismun-
andi stigum hvað varðar getu og
kunnáttu,“ sagði Edda Guömunds-
dóttir kennari. „Sumir eru byrjendur
en við fáum einnig konur sem hafa
saumað lengi en hefur ef til vill vant-
að tæknikunnáttuna sem þarf til.“
Fatasaumur er ekki eins einfaldur
og margur heldur, aö sögn Ástu Jó-
elsdóttur aðstoðarritstjóra blaðsins.
„Margar konur vantar grunnkunn-
áttuna í saumaskap, t.d. aö taka upp
sniö og sníða samkvæmt því. Þess
vegna kemur oft fát á konur sem
byija á því að taka upp snið og kom-
ast svo að þvi að það passar ekki.
íslendingar eiga góða prjónahefð,“
sagöi Ásta einnig, „en saumahefðin
er enn föst að hluta til í gömlum
kreddum. Áhugi á saumum er mikill
og við viljum vera sjálfum okkur nóg
og sjálfstæð í fatnaði. íslenskar kon-
ur vilja skapa sinn eigin stíl og vera
öðruvísi. Það er hægt í gegnum
saumaskapinn.
Fatasaumur er bara þjálfun og
skilningur. Það er mikið komið und-
ir konunum sjálfum hvað þær læra
á námskeiðum sem þessum, það
skiptir máh meö hvaða hugarfari
Sonja Hilmarsdóttir minnkaði við sig vinnuna, keypti sér vél og skellti sér á námskeið.
þær koma,“ sagði Ásta. „Fólk kemur
hingað með mjög mismunandi vænt-
ingar,“ sagði Edda, „en markmiðið
er að sjálfsögðu að verða sjálfbjarga
viö að sauma og að læra að vinna.
Flestar íslenskar konur kunna aö
prjóna en eru hræddar við að
sauma,“ sagði Edda. „Það er auðvelt
að leiðrétta mistök í prjónaskap, þaö
er alltaf hægt að rekja upp og byrja
upp á nýtt. En sumum fallast hendur
og gefast upp ef saumaskapurinn
mistekst. Efni eru einnig dýr, en það
er einnig tilbúinn fatnaður svo það
er gott að kunna að sauma."
Þær voru sammála um það að þeim
konum, sem á annaö borð byrja að
sauma, þykir það mjög gaman. Það
er útrás fyrir sköpunargleðina sem
blundar í okkur öllum.
Byrja á einhverju litlu
Olöf Bolladóttir var að sauma
bamabuxur þegar DV truflað hana.
„Maður verður að byrja á einhveiju
litlu og auðveldu þegar maður kann
ekki neitt. Ég get ekki sagt að ég
Ólöf Bolladóttir ákvað að byrja á einhverju tiltölulega einföldu, barnabuxur
eru mjög vinsælar sem frumraun.
hafi haft mikla kunnáttu þegar ég
byijaði," sagði hún.
„Þetta er þolinmæöisverk en hlut-
irnir verða auðveldari þegar maður
lærir á þetta. Strax og maður kann
þetta er saumaskapur ekkert mál.
Annars læri ég mikið á því að sauma
sjálf og reka mig á. Svo getur maður
alltaf fengið hjálp þegar allt er komið
i strand.“
. Aðspurð sagði Ólöf að þetta væri
ekkert dýrt ef það leiddi til þess að
hún færi að sauma. „Ég er búin að
læra mikið og ætla aö reyna mig við
buxur og jakka á sjálfa mig næst.“
Anna Guðrún Harðardóttir var að
sauma prufur en ætlaði einnig að
sauma bamafót. „Ég var húin að
sauma svolítið áður en ég kom hing-
að en það voru ósköp einfaldir
hlutir."
Þetta er allt miklu auðveldara eftir
að maöur er búinn aö gera þetta einu
sinni." Anna sagðist ekki hafa orðið
vör við aö áhugi á saumaskap hefði
minnkaö. „Þær sem á annað borð
kunna að sauma gera mikið að því,
hinar láta það eiga sig.“
Þær Anna og Olöf gátu ekki stilit
sig um að hlæja þegar blaðamaður
spurði þær hvort mcikarnir yrðu með
næst. „Það hvarflaði ekki einu sinni
að mér,“ sagði Ólöf. „Ætli þeir bíði
ekki og sjái hvað við höfum lært áður
en þeir biðja okkur að sauma á sig,“
sagði Anna. -StB
Hvað kostar
að læra
að sauma?
Mörgum leikur efiaust forvitni
á að fá að vita hvaö það kostar
aö læra aö sauma. DV aflaði sér
upplýsinga um hvað væri í boöi
á því sviði og hver kostnaður
væri viö aö taka þátt í slíku nám-
skeiði. Þaö era án efa fleiri
námskeið, sem boðið er upp á, en
þessi sem hér era talin upp en
þessi ættu aö geta einhveija hug-
mynd um framboðið.
Námsflokkar Hafnarfjarðar:
Námskeiðið kostar 5.600 krón-
ur. Það er alls 36 klukkustundir,
4 tímar í einu vikulega. Innifalin
í þessu verði eru afnot af sauma-
vélum.
Verð á klst. 155 kr.
Námsflokkar Kópavogs:
Námskeiðiö kostar 3.800 krón-
ur. Þaö er alls 24 klukkustundir,
4 tímar i einu vikulega. Boðið er
upp á afnot af saumavélum.
Verð á klst. 158 kr.
Námsflokkar Reykjavikur:
Námskeiöiö kostar 5.000, 40
klukkustundir. Innifalin era af-
not af saumavélum. Hámarks-
fjöldi nemenda á hveiju
námskeiði er 8.
Verð á klst. 125 kr.
Nýtt af nálinni:
Námskeiöiö kostar 4.500 krón-
ur. Það er alls 24 klukkustundir,
4 tímar í einu vikulega. Ekki er
boðið upp á afnot af saumavélum
en efiii í prufur er innifaliö. Hám-
arksfjöldi nemenda á hveiju
námskeiöi er 8. Þetta námskeið
er eingöngu fyrir félagsmemi í
klúbbnum. Mánaöargjald félags-
manna er 480 krónur en fyrsti
mánuðurinn kostar 240 krónur.
Verð á klst. 187.50 kr. fyrir utan
mánaöargjaldið.
Tómstundaskólinn:
Námskeiðið kostar 5.600 krón-
ur. Það er alls 20 klukkustundir,
4 tímar í einu og kennt er viku-
lega. Ekki er boðið upp á afnot
af saumavélum. Hámarksfjöldi
nemenda er 10 á námskeiöið.
Verð á klst. 280.
Vogue:
Námskeiðið kostar 4.000 krón-
ur. Það er alls 20 klukkustundir,
4 tímar í einu vikulega. Vogue
býður upp á afnot af tveimur
saumavélum, en hámarksfjöldi
nemenda á hverju námskeiði er 6.
Verð á klst. 200 kr.
-StB
Þær ráöast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, stelpurnar á sauma-
námskeiði Vogue. Guðrún Eggertsdóttir er að sauma sér frakka.
PFAFF SAUMAVELAR
VIÐ ALLRA HÆFI
Talsverðar birgðir á gamla góða verðinu!
Tryggið ykkur vél áður en þær hækka um 17,5%.
Þá mun vél, sem í dag kostar 33.400, hækka í 39.250.
VERSLUNIN
Kringlunni V
Borgartúni 20