Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Síða 32
32
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1988.
Smáauglýsmgar - Sími 27022 Þverholti 11
Fréttir
Tilsölu
Borðstofusett frá HP-húsgögnum, kosta
ný 180 þús., seljast á hálfvirði, lítið
notað og litur vel út. Uppl. í síma
14180 e.kl. 19.
■ Bílar til sölu
GMC Van Funtura ’82, V-8, með háum
toppi, rafmagn í læsingum + rúðum,
4 snúningsstólar, ísskápur, fataskáp-
ur. Einn með öllu. Ekinn 40 þús. F’ord
F-250 dísil 6,91, 4x4, árg. ’83, gúmmí-
klædd skúffa, ekinn 50 þús. Uppl. í
síma 985-20066, 92-46644 og 92-46704.
Mitsubishi L 300 sendibíll '82, ekinn
120.000 km, verð 230 þús., má greiðast
með skuldabréfi til 12-18 mán. Uppl.
í síma 623222 eða 18119.
Mini 1100 78 til sölu. Verð 35 þús.
Uppl. í síma 666506.
Bill í sérflokki, Range Rover ’82, til
sölu, 4 dyra, sportfelgur, litur svartur,
ekinn 90 þús., verð 850 þús. Uppl. í
síma 985-27778.
Verslun
SÍMASKUÁIN
Omissandi hjálpartæki nútímamannsins
Suzuki Fox ’85 til sölu, svartur, upp-
hækkaður, á nýjum 33" dekkjum og
10" krómfelgum, nýir demparar, upp-
hækkað boddí og Volvo vél, B 20.
Skipti ath. Uppl. í síma 675293 e.kl. 19.
Mazda 626 GLX dísil 1984, ckinn 115
þús. til sölu, steingrár, skoð. ’88, út-
varp - segulband, rafmagn í rúðum,
centrallæsingar, sumardekk á felgum.
S. 30948 og 985-21761.
Benz 813 ’83 til sölu, innfluttur ’87,
með nýlegum kassa, ekinn 120 þús.
km, stöðvarleyfi getur fylgt. Uppl. í
símum 985-24624 og 54414 eftir kl. 19.
OLAFSVIK
DV óskar að ráða umboðsmann á Ólafsvík frá og
með 1. apríl nk. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
93-61269 og á afgreiðslu DV í síma 91-27022.
Símaskráin geymir allar nauðsynlegar
uppl., svo sem nöfn, símanúmer, heim-
ilisföng, tollnúmer, nafnnr., kennitöl-
ur, númer bankareikninga, skilaboð,
eins löng og minnið leyfir, o.m.fl.
Ótrúlega íjölhæf. íslenskur leiðarvís-
ir. ÚTSÖLUSTAÐIR: Radiobúðin,
Skipholti, Leikfangahúsið, Skóla-
vörðustíg, Bókabúð Braga, Lauga-
vegi, Tónborg, Kópavogi, Bókabúð
Böðvars, Hafnarfirði, Bókabúð Jónas-
ar, Akureyri. Heildverslunin Yrkir,
Mánagötu 1, Reykjavík. Sími 621951.
Ýmislegt
Listgler auglýsir! Byrjum námskeið í
gerð glermynda og skrautmuna 21.
mars. Uppl. og skráning í símum 45133
og 44854.
H
BÍLDSHÖFÐI <
-------------1 m
I <
a
VESTURLANDS & VEGUR
..........~1:° I ' ~~~
Stórbílaþvottast., Höfðabakka 1. Þarftu
að þvo bílinn þinn en hefur ekki tíma
til þess? Stórbílaþvottastöðin, Höfða-
bakka 1, býður þvott sem fólginn er í
tjöruþvotti, sápuþvotti + skolbóni, á
vægu verði. Verðdæmi: Venjuleg
fólksbifreið 300 kr. Jeppar 400 kr.
Sendibiíar, litlir, 500 kr. Millistærð
600 kr. Langfbílar, stórir bílar 800 kr.
Fljót og örugg þjónusta. Opið mán.-
föst. 8-20, laugard. og sunnud. 10-18,
síminn er 688060.
t
Ít ft
■)t ft
Ít t
)t 1t
■Jt "Íí
ft ~jt it
ÞVERHOLTI
B L'JK'Ð
BURDARFÓLK
Stangarholt
Skipholt 2-28
Stórholt
Brautarholt
Nóatún 24-34
Sólheima 1-23
Goðheima
Túngata
Öldugata 1-40
■)t 1t 1t ^t
AFGREIÐSLA
SIMI 27022
Ráðstafanir tii bjargar refabændum:
Slapp ríkissjóður?
Ráðstafanir til að aðstoða refa-
bændur hafa verið samþykktar hjá
ríkisstjórninni, eins og áður hefur
komið fram. Þar er gert ráð fyrir
að þijár stofnanir taki að sér fyrir-
greiðslu til refabænda en ijármála-
ráðherra aftók að ríkissjóður tæki
að sér beina fyrirgreiðslu í málinu.
En er ríkissjóður laus allra mála -
þegar upp er staðíð, þarf hann þá
ekki að taka á sig skuldbindingar
vegna þessara 90 miiljóna kr. ráð-
stafana? Til að fá svar við því var
leitað til forstööumanna hjá þeim
stofnunum sem um ræðir.
„Almennt séð höfum við enga
peninga aflögu öðruvísi en að taka
þá að láni,“ sagði Sigurður Guð-
mundsson, forstöðumaður þróun-
arsviðs hjá Byggðastofnun, sem á
að reiöa fram 30-50 milljónir auk
þess aö skuldbreyta fyrri lánum.
Byggðastofnun mun eiga mikiö
hlutafé í fóðurstöövum og sagði
Sigurður aö leitast yrði við að selja
þaö hlutafé sem fyrst. Þess ber að
geta að endanlega er Byggðastofn-
un á ríkisábyrgö.
„Við erum með lán í Seðlabank-
anum sem við stefnum að að fá
skuldbreytt að hluta til að fjár-
magna okkar hlut,“ sagði Jóhannes
Torfason, stjórnarformaður Fram-
leiðnisjóðs, sem á að reiða fram 17
milijónir kr. Jóhannes sagði að
samkvæmt fyrri hugmyndum
heföu þeir átt að bjarga 25 milljón-
um til viðbótar en þeir hins vegar
neitað því enda væri fjárhagslegt
svigrúm þeirra takmarkað í ár.
Þess ber að geta að endanlega
tryggir ríkissjóður greiðslur til
Framleiðnisjóðs.
„Við getum auðvitað greitt þetta
en við höfum heimild til að fá frest
á afborgunum af skuldum okkar,”
sagði Leifur Jóhannsson, forstöðu-
maður Stofnlánadeildar landbún-
aðarins, sem á að greiða 17
milljónir auk skuldbreríinga á
eldri lánum sem Leifur sagði að
engin leið væri að gera sér grein
fyrir hvað væru mikil. Ef framlag
Stofnlánadeildar verður í formi
styrkja þarf að gera lagabreyting-
ar. Þess má geta að endanlega er
það landbúnaöarráðuneytið sem
tryggir íjármagn til Stofnlánadeild-
ar.
-SMJ
Fjórir efstu menn
eigast við í dag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það má bóka hörkuskákir í 8.
umferð alþjóðaskákmótsins á Ak-
ureyri í dag. Þá mætast innbyrðis
íjórir efstu menn mótsins og kunna
þessar viðureignir að vera úrslita-
skákir mótsins.
Jóhann Hjartarson mætir Gure-
vits og hefur svart. Margeir hefur
hvítt gegn Polugajevsky og þessar
tvær skákir verða án efa engar
„friöarráðstefnur".
í öðrum skákum eigast við Helgi
Ólafsson og Karl Þorsteins, Ólafur
Kristjánsson og Jón L„ Dolmatov
og Tistall og Jón G. teflir við Adorj-
an.
Þessar skákir hefjast kl. 17 ’og
verður tefld í Alþýðuhúsinu.
Barátta um efstu sætin
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
Eftir sjö umferðir a alþjóðaskák-
mótinu á Akureyri eru fjórir
keppendur efstir og jafnir. Margeir
og Jóhann eru tveir þeirra og þeir
standa betur að vígi því þeir eiga
báðir ólokið einni skák, Margeir
biðskák gegn Helga og Jóhann
ótefldri skák, einnig gegn Helga.
Geysileg barátta er framundan en
staðan er þessi:
Margeir
Jóhann
Gurevits
Polugajevsky
Karl
Dolmatov
Tistall
Adorjan
JónL.
Helgi
Ólafur
JónG.
4,5
4,5
4,5
4.5
4.0
4,0
4,0
3.5
3,0
2.5
0,5
0,5
+ biðskák
+ ótefld skák
+ bsk. og ót. sk.
Gestabókin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Að venju voru fjölmargir áhorf-
endur er 7. umferð skákmótsins á
Akureyri var tefld í gærkvöldi.
Meðal viðstaddra voru þessir:
Hreiðar Jónsson bæjarstarfs-
maður, Óskar Hjaltalín Verslunar-
maður, Ormar Snæbjörnsson
kennari, Sturla Smæbjörnsson
kennari, Gunnar Ragnars forstjóri,
Guðjón E. Jónsson kennari, Guð-
jón Jónsson skrifstofumaður,
Örlygur ívarsson kennari, Ari
Friðfinnsson trésmiður, Karl Þór-
leifsson tæknifræðingur, Halldór
Rafnsson framkvæmdastjóri, Pét-
ur Torfason verkfræðingur, Hár-
aldur Bogason umboðsmaður,
Bryndís Ýr Viggósdóttir skíðamað-
ur, Bjarni Jónasson pípulagninga-
maður, Þór Valtýsson kennari,
Stefán Sæmundsson blaðamaður,
Oddur Jónsson verkamaður, Þór-
oddur Hjaltalín bólstrari, Jón
Lárusson verslunarmaður, Guð-
mundur Guðlaugsson verkfræð-
ingur, Stefán Gunnlaugsson
framkvæmdastjóri, Eiríkur
Sveinsson læknir, Viðar Garðars-
son verslunarmaður, Valdimar
Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi,
Smári Ólafsson verslunarmaður,
Guðmundur Heiðreksson verk-
fræðingur, Haraldur Sigurðsson
bankafulltrúi, Rafn Kjartansson
verkamaður, Guðni Jónsson múr-
ari, Konráð Gunnarsson verka-
maður, Viðar Þorsteinsson
trésmiður, Björn Axelsson nemi,
Guðmundur Sigurjónsson skíða-
maður.
Tekst Margeiri að vinna?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Helgi Ólafsson og Margeir Pét-
ursson hafa nú teflt 80 leiki í skák
sinni án þess að fá fram úrslit.
Skák þeirra úr 6. umferð var tefld
áfram í gær og fór aftur í bið. Stað-
an er þannig að Margeir hefur hrók
og biskup gegn hrók Helga og vinn-
ingsmöguleikarnir eru Margeirs
þótt margir hallist að því að jafn-
tefli verði niðurstaðan þegar upp
verður staðið. Þeir Helgi og Mar-
geir settust að tafli kl. 11 í morgun
og var talið líklegt að úrslit myndu
þá fást.