Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Síða 11
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1988. 11 Utlönd Mótmæla loft- árásum ísraela Líbönsk stjórnvöld báru í gær fram formleg mótmæli viö ísraelsmenn vegna loftárása ísraelskra herflug- véla á svæði í suðurhluta Líbanons undanfama tvo daga. Að sögn heim- ildarmanna hafði Selim Hoss, starf- andi forsætisráðherra Líbanons, samband við Rashid Fakhoury, sendiherra ísraels, og bar fram harð- orð mótmæli við þeim „afsöktmum sem ísraelsmenn nota til að réttlæta árásaraðgerðir sínar“. Mótmæli þessi voru borin fram nokkrum klukkustundum efdr að ísraelskar herþotur gerðu harðar loftárásir á stöðvar byltingarráðs Abu Nidal í bænum Abra og nálæg- um þorpúm austur af hafnarborginni Sidon. Þetta var annar dagurinn í röð sem ísraelar réðust á stöðvamar því á miðvikudag féllu þar tíu manns í loftárásum þeirra. Að sögn heimilda særðust fimm Palestínumenn í loftárásunum í gær og fimm stöðvar byltingarráðsins voru eyðilagðar. Að sögn Palestínumanna skutu Mikill reykjarstrókur stendur upp af stöðvum Fatah deildar Abu Nidal eftir að ísraelsmenn gerðu loftárásir á þær i gær. Símamynd Reuter ísraelar meira en fimmtíu eldflaug- rnn á stöðvar byltingarráðsins og gereyðilögðu skotfærageymslur, þjálfunarstöðvar og herstjórnar- stöðvar. Embættismenn Palestínumanna bönnuðu fréttamönnum og ljós- myndurum aðgang að svæðinu og lögðu fréttabann á upplýsingar um tjón og mannfall í árásunum. Samningur um kjam- orkutilraunir vonlaus Bandarískur embættismaöur sagði í gær aö breytingar á afstöðu Sovétmanna hefðu nú gert þaö nær vonlaust að hafa samning um til- raunir með Hjamorkuvopn tilbú- inn tii undirritunar á leiötogafund- inum í maí. Embættismaðuriim sagði að svo virtist sem ekki yröi hægt aö undir- rita neinn samning um þessi efni í náinni framtíð. Þeir George Shultz, utanríkisráö- herra Bandarfkjanna, og Eduard Shevardnadse, utanríkisráöherra Sovétríkjanna, náðu á fundum sín- um í Washington í vikunni samkomuiagi um leiðtogafund í Moskvu í lok maí á þessu vori. Ut- anrikisráðherrunum tókst hins vegar ekki að nálgast samkomulag i neinu af þeim lykilraálum sem þeir ræddu um. Þeirra á meðal var fyrirhugaður samningur um fækk- un langdrægra kjamorkuvopna sem ætlunin var að yröi meginat- riði leiðtogafundarins. Samningamenn beggja stórveld- anna í Genf hafa undanfarið unnið að því að setja upp eftirlitskerfi sem tryggt gæti aö báðir aðilar héldu ákvæði tveggja samninga um til- raunir með kjamorkuvopn sem undirritaöir vom á áttunda áratug þessarar aldar en hafa aldrei verið staöfestir. Vonast haföi verið til að ef samkomulag næðist um eftirlit gætu leiðtogamir undirritað sam- komulag um slíkt á fundi sínum i maí. Aukinn ágreiningur meðal ráðamanna Varnarmálaráðherra ísraels, Yitzhak Rabin, ávarpar ísraelska hermenn í heimsókn sinni í gær til Gazasvæðisins. Simamynd Reuter Tveir Palestínumenn vom skotnir til bana á herteknu svæðunum í gær og hafa nú hundrað og flmm Palest- ínumenn fallið fyrir byssukúlum ísraelskra hermanna frá því að óeirðimar hófust í desember. Ágreiningurinn innan ísraels stjórnar um hvernig megi koma á friði fer vaxandi og í gær sagði Yitz- hak Rabin, vamarmálaráðherra landsins, að friöur væri mikilvægari en það að halda þeim landsvæðum sem tekin vom í stríðinu 1967. Kvað hann nauðsyn á að bæla niður óeirð- imar áður en samningaviöræðum hæfust. En viðskiptaráðhierra ísraels, Ariel Sharon, sem er fyrrverandi vamar- málaráðherra, vill hertari aðgerðir gegn þeim Palestínumönnum sem ógna ísraelskum hermönnum. Shar- on stingur upp á nýrri löggjöf sem heimilar brottrekstur úr landi allra þeirra sem kasta steinum að her- mönnum. Úgöngubanni var lýst yfir á vissum hluta herteknu svæðanna í gær og fréttamönnum verður meinaður að- gangur að þeim ífjóratil fimm daga. Um fimmn þúsund bandarískir hermenn, sem að ööru jöfiiu eru stað- settir á Hawaiieyjum, eru nú í Suöur-Kóreu, þar sem næstu daga standa sameiginlegar heræfingar Bandaríkjamanna og Suður-Kóreumanna. Flutningur bandarísku hermannanna til S-Kóreu hófst i gær. Undanfarið hefur ríkt veruleg spenna á landamærum kóresku rikjanna tveggja. deila fulltrúa fhelsissamtaka Palestínu, PLO, og Jórdana á ráöstefhu muha- meðstrúarmanna sem lýkur í Amman í dag. Deilur þessar risu vegna þeirrar kröfu PLO að sam- tökunum verði ætlaðir sérstakir fulltrúar í friöarviöræðum við ísra- elsríki. Það tók fulltrúa á ráðstefnunni sjö klukkustundir að finna mála- miölunartillögu sem báðir aöilar gátu sætt sig við. Búist var viö að ráðstefnan, sera sótt er af utanríkisráðherrura arabarikja, samþykki ályktun sera stjórnmálanefhd ráðstefmumar setti saman í gær. í ályktiminni er. hvatt til alþjóðlegrar ráðstefnu ura málefni Mið-Austurlanda, þar sera allir aðilar deilna þar eigi fulltrúa. Bankarán í Paris Hópur vopnaðra ræningja réðst í gær á banka í París og rændi hann. Ræningjamir óku nítján tonna trukki inn um framhlið bankans, rifu þeningaskáp hans upp á pall bifreiðarinnar með krana sem á henni var og óku á brott, eftir að hafa yfirbugaö varömann og bund- iö hann niður í stói. Ekki er Vitað hversu miklir fjár- munir voru í peningaskápnum. Heræfingar í S-Kóreu Þeir Oliver North og John Poind- exter, fyrrum aðstoðarmenn Ronalds Reagan Bandaríkjafor- seta, sem nú eru fyrir rétti í Washington sakaðir um misbeit- ingu á valdi sínu, hafa lýst síg saklausa af öliura ákærum. Tveir aðstoðarmenn þeirra, sem einnig eru fyrir rétti, hafa gefið sams kon- ar yfirlýsingar um sakleysi sitt. North og Poindexter eru sakaðir um samsæri um að svíkja fé út úr bandariska ríkinu með þvi að stela hiuta ágóðans af sölu vopna til ír- ans. Þeir eru einnig sakaðir um að hafa veitt kontraskæruliðum ólög- lega aðstoö. Athuga málshöfðun Enska kirkjan’ íhugar nú mögu- leikana á þvi að höfða mál á hendur P.W. Botha, forseta Suöiu--Afríku, vegna yfirlýsinga sem tengja Desmond Tutu erkibiskup við henndarverk skæruliöa í Suður- Afríku. Botha réðst harkalega á kirkju- deildir sem andsnúnar eru sfjórn- völdum í Suður-Afríku í gær og hótaöi aðgeröum gegn prestum sem taldir væru sekir um aöild að aðgerö* um stjórnarandstæöinga. Uppgjör Dukakis og Jacksons Búist er viö harðri baráttu milli Michaels Dukakis og Jesse Jacksons í forkosningum demókrata í Michigan á morgun. Skoöanakannanir benda til þess að Dukakis njóti ívið meira fylgis en Jackson en munurinn er ekki mikiil. Dukakis verður að vinna afgerandi sigur á Jackson í næstu forkosning- um demókrata ef hann á að geta tryggt sér útnefningu sem forsetaefhl demókrata.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.