Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Side 15
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1988. 15 Ljósaskylda á bifreiðum: Lögboðið áreiti Ég vil þakka lesendabréf í DV þann 16. og 18. sl. þar sem fjallað er um þau slæmu mistök að skylda alla til a<) aka með ljósum hvenær sem ekið er. Satt að segja voru það mikil von- brigði að löggjafinn skyldi fara þessa leið, leið sem hlýtur að gera meir en að missa marks, því ef nokkuð verður, mun við þetta fjölga umferðaróhöppum, svo ekki sé talað um daglegan baga sem bíl- stjórar eiga eftir að hafa þessa vegna, svo sem straumlausa bíla út um allt, öðrum til baga einnig, og eigendum til kostnaðarauka. Ekki eftir „aðstæðum“ En víkjum að því alvarlegasta, örygginu í umferðinni. Það er nefnilega mun verra að mæta bíl með ljósum, og allt sem bagar öku- mann veldur honum áreiti. Honum fer að líða verr. Menn eru mjög hvattir til að vera sem best fyrir- kallaðir við akstur og í sem bestu skapi. Á sama tíma er dembt á þá lögboðnu áreiti einmitt í umferð- inni. í þessu er greinilega ekki samræmi. Með þessu er einnig brotinn og ónýtur gerr einn allra besti „frasi“ í umferðinni, þ.e. „aktu ávallt eftir aðstæðum"! Þegar ökumenn eru þvingaðir til þess á einu sviði að aka ekki eftir aðstæðum hlýtur það að ýta undir minni sjálfstæða hugsun í umferð- inni og slíkt er meira en varasamt. Sólskin, ryklaus vegur, samt allir með ökuljós? Það er ekki að aka eftir aðstæðum. Margir aka einnig í ógáti með háu geislana og því fremur sem þeir ekki sjá til eigin ljósa. Við því verður aldrei gert. Eitt sinn var notkun ökuljósa samræmd götulýsingunni. Einfalt og ekkert fór milli mála. Þá blikk- uðu menn ljósum til að minna aðra á að þeir væru með ökuljós um hábjartan daginn. Nú er þessu KjaUarim Bergsteinn Jónsson deildarstjóri öðruvísi farið, nú er sífellt verið að minna mann á að maður hafi gleymt að vera öðrum til baga. Notkun ökuljósa um sumartímann ætti ekki að leyfa, nema eftir regl- unni góðu: að aka eftir aðstæðum. Ef þoka var, t.d. á heiðinni, eða rykmökkur á vegum voru allir með ökuljós. Sem sagt allt eftir aðstæð- um. Vill einhver mæta bifreið sem bersýnilega er ekki ekið eftir að- stæðum? Svari hver fyrir sig. Mið af heilbrigðri skynsemi í sumar er leið ók ég frá Rvík austur fyrir fjall. Þetta var í júlí og heiður himinn. Nær samfelld umferð var á móti, flestir með öku- ljós og sumir með háa geisla. Þá að undanfórnu hafði hvert embætt- ið gengið undir annars hönd með áróður fyrir síljósanotkun, með þessum líka „indæla" árangri' að engu líkara var en nokkuð væri áfátt um heilbrigði vegfarenda. „Svíar aka ávallt með ljósurn," malda sumir í móinn. Ja, það var þá! Eigum við ekki heldur að hugsa til allra hinna þjóðanna sem, a.m.k. enn, hafa ekki orðið þessari vit- leysu að bráð. Við skulum beijast fyrir gamla fyrirkomulaginu sem eingöngu tók mið af heilbrigðri skynsemi en ekki láta teyma okkur út í eina vitleysuna annarri verri, fundna upp af einhverjum sem standa ráðþrota í umferðarvanda- málinu og komast hvorki lönd eða strönd. Nú vill kannski einhver spyrja sem svo: Vill ekki maðurinn gera svo vel að benda á einhverjar leiðir til úrbóta? Jú, það er alveg sjálfsagt og raunar er ég steinhissa oft og tíðum að hlusta á umræðuna sem títt er nefnd: umferöarvandamál. Menn eru þá að vonum spurðir: hvað er til úrbóta? Uppeldisskortur Og þá byrjar ballið. Það eru bíl- stjórar og aftur bílstjórar sem ekki eru góðar samfélagsverur. Það er eins og gengið sé út frá því að bíl- stjórar séu alveg sérstakur „þjóð- flokkur". Ekki er það svo. Á íslandi Það er eins og gengið sé út frá því að bílstjórar séu alveg sérstakur „þjóð- flokkur“. Ekki er það svo, bara Islend- ingar, úrtak úr þjóðinni. T~ r# »• * „Eitt sinn var notkun ökuljósa samræmd götulýsingunni. Einfalt og ekk ert fór milli mála,“ segir m.a. i greininni. : Jj BHT* f : yU y Á X1' : ■ - ''v; terpi /JB Jp' ^ eru þeir bara íslendingar, úrtak úr þjóðinni, og þá er komið að kjarna þessa máls. Umbúðalaust sagt, þjóðin í heild býr við uppeldisskort og það er von. Upp úr 1940 tók þeim heimilum að fækka sem veittu gott uppeldi og nú eru þau orðin tilfinn- anlega fá. Úr þessu er brýnt aö bæta ef menn meina eitthvað með tali sínu um slæma umferðar- menningu. Það verður að laga einstaklinginn, því ekki verður þjóðin betri en þeir eru allir til sam- ans. Daglegur umgangur margra hér er slíkur að varla frnnst samjöfnuð- ur nema e.t.v. í „favelu“hverfum þriðja heimsins. Oftast eftir hverja helgi er varla hægt aö ganga, hjóla eða aka fyrir glerbrotum á gang- stígum og akbrautum. Maður, sem ekki getur lagt frá sér gosflösku öðruvísi en kasta henni í gangslétt- ina til brots, hlýtur að hafa farið á mis við uppeldi sem fellur undir mannasiði. Þegar slíkir fá margra tuga hestafla mótor til að marg- falda ruddamennsku sína þá fer einmitt eins og fariö hefur hjá okk- ur í umferöarmálum aö undan- fórnu. Bætum uppeldi þjóðarinnar og þá verður ekki lengur talað um bílstjóra sem eitthvert sérstakt fyr- irbrigði. Bergsteinn Jónsson DV-leiðarinn fimmtud. 17. mars sl.: Ábyrgðin er... „Ábyrgðin er kennara"! segir þar. Launamenn, sem grípa til verk- falls, bera á því ábyrgð. Þeim þýðir ekki að kenna öðrum um. Pólska kennslustundin Leiðari DV segir dæmisögu. Þar er skýrt hvernig launamenn bera ábyrgðina á verkfóllum. Til þess þurfti aðeins að fara litla stund í fótspor upplýsingameistara Hitlers og taka okkur í kennslustund. Kennslustund dagsins Þetta var áhrifarík kennslustund. Nú skiljum við hverjir bera ábyrgðina þegar tekist er á um kaup og kjör. Það er auðvitað ekki sá sem rýrir kjör launamanna. Sá sem rýrir kjörin er alltaf í fullum rétti. Kröfur hans eru hógværar og nauðsynlegar. Auðvitaö berum við hinir alla ábyrgð. Við sem veitum viðnám. Ábyrgðin er Pólverja Auðvitað var það hárrétt hjá upp- lýsingameistara Hitlers að Hitler var neyddur til að ráðast á Pól- verja. Þeir höföu jú hafnað hans hógværu kröfum. Og Pólverjar voru svo ósvífnir að veita viðnám. KjaUarinn Gísli Ól. Pétursson í stjórn Hins isl. kennarafélags og form. samninganefndar HÍK Auðvitað var þeim refsað fyrir og að sjálfsögðu réttdræpir ef þeir voguðu sér í verkfall. Þeir gátu jú sjálfum sér um kennt. Ábyrgðin var þeirra. Pólland er ennþá of stórt Þetta gildir auðvitaö enn í dag: Pólland er alltof stórt. Launafólk er bara frekt. Einkum ríkisstarfs- menn. Sem betur fer hafa vinnu- veitendur bæði upplýsingameist- ara og her manns sér til aðstoðar að stýra sókninni. Og íjármálaráð- herra hefur tekið af skariö: Auðvit- að komast kennarar af með minna. „Við tökum af þeim ögn í viðbót. Þeir geta bara unnið á nóttunni Frá útifundi í kennaraverkfalli fyrir nokkrum árum. líka. Margir gera það þegar sé ég á heildarlaununum.“ Það Viðnám Pólverja Kennarar eru ósvífnir. Þeir eru eitthvað að hugsa. Það er þó gott að þeir eru hikandi rétt eins og „Kennarar skulu vita þaö að fjármála- ráðherra setur fram hógværar kröfur. Hann er 1 fullum rétti.“ Pólverjar forðum. Ég heyri þá segja: Hvernig eru lögin um samn- ingsrétt okkar? Ha? Ekkert um að velja nema verkfall? Pólverjum að kenna Kennarar skulu vita það að íjár- málaráðherra setur fram hógvær- ar kröfur. Hann er i fullum rétti. Pólverjar fengu strax að vita að ef þeir veittu viðnám væri ábyrgðin þeirra. Það var þó gott að sérlegur upplýsingameistari DV hefur talað. Undir fullu nafni hefur hann borið oss boðin: „Ábyrgðin er kennara". Gísli Ól. Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.