Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Page 17
33 Iþróttir 3 Gunnarsdóttir með sigurlaunin fyrir Islandsmót- DV-myndir G.Bender/Brynjar Gauti ^ Islandsmótið í blaki: IS og UBK meistarar ÍS-ingar tryggðu sér íslandsmeist- aratitilinn í blaki karla er þeir unnu HK í Digranesi, 3-2, í gærkvöldi. í kvennaflokki sigraði Breiðablik Vík- ing, 3-1, og unnu Blikastúlkurnar þar með Islandsbikarinn í fyrsta skipti. Leikur ÍS var mjög jafn og skemmtilegur. ÍS-ingar byrjuðu mjög vel og unnu fyrstu tvær hrinurnar 15-11 og 15-8. HK-menn voru ekki á því að gefa þetta eftir og komust í 8-0 í þriðju hrinu. Hrinan jafnaðist þá aðeins þó svo að HK væri alltaf yfir. Þeir unnu svo hrinuna, 15-11. Fjórða hrina var svo æsispennandi og jöfn allan tímann en hún endaöi með sigri HK, 18-16, eftir mikla baráttu. Fimmta hrinan var líka jöfn en hana unnu ÍS-ingar, 15-12. ÍS-ingar eru vel að titlinum komnir því að þeir hafa verið með besta hðiö í vetur en Þróttarar, sem hafa verið íslandsmeistarar síðastliðin 7 ár, verða nú að sætta sig við að vera í baráttunni um silfrið. Sigfinnur Viggósson átti míög góða kafla í leiknum fyrir ÍS og er mjög erfitt að ráða við skelli hans þegar hann nær sér á strik. Leikur Víkings og Breiðabliks var einnig mjög jafn þó svo að fæstir hafi búist við miklu af Víkingum fyr- irfram. Víkingar léku án Særúnar Jóhannsdóttur sem er á spítala og einnig var Jóhanna Kristjánsdóttir veik þó svo að hún spilaöi með og stæði fyrir sínu. Víkingar sigruðu í fyrstu hrinunni, 15-10, en Breiðablik í þeirri næstu, 15-11, eftir rúmlega hálftíma baráttu. í næstu hrinu gekk allt á afturfótunum hjá Víkingum og UBK nýtti sér það og vann hana, 15-3. Fjórða hrina stóð svo yfir í hálftíma og var þá mikil barátta í leiknum. Henni lauk svo meö sigri Breiða- bliks, 17-15, og þar meö var íslands- meistaratitihinn í höfn. -B Þrir Bretar í liðl KS? Svo kann að fara að þrir breskir knattspymumenn leiki með KS frá Siglufirði í 2. deildar keppninni næsta sumar. DV hefur áður sagt frá þeim Paul Friar, sem m.a. hefur leikið með Leicester í ensku 1. deild- inni, og Stephen John Rutter og nú hefur 25 ára Englendingur, Richard Hiran, bæst í hópinn. Hiran er miövallarleíkmaður og hefur leikið með héraösdehdahöinu Alfreton í vetur. Hann er kunningi Colins Thacker, burðaráss í vöm Siglfirðinga undanfarin ár, og KS komst þannig í samband viö hann. • Hins vegar er ekki ömggt aö Friar komi til Siglufjarðar en þaö skýrist á næstu vikum. KS tryggði sér því Hiran til að fa örugglega tvo leikmenn og hann er væntanlegur ura miöjan apríl. Rutter kemur hins vegar ekki fyrr en um mánaöamótin mai - júní og missir þvf af upphafi íslandsmótsins. • .JÞetta veröur á margan hátt óvenjulegt sumar h)á okkur. Við höfum misst marga góða leikmenn en fáum þessa bresku í staðinn. Síðan eram við loksins komnir meö grasvöll og getum farið að leika á honura einhvern tima fyrri part sumars," sagði Höröur Júlíusson, formaður knattspymudehdar KS, í samtah við DV í gær. -VS • Guðni Guðnason í baráttu við Tryggva Jónsson um knöttinn í leik liðanna í gær- kvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti 4-liða úrslit bikarkeppni KKÍ: Duga KR 8 stig? „Okkur tókst vel upp í leiknum í kvöld og þá sérstaklega í vörninni þar sem við héldum Pálmari vel niðri. Þetta var góð hefnd eftir tapið á sunnudaginn en þeir verða erflðir í seinni leiknum og óvíst hvort 8 stiga munurinn dugir okkur,“ sagði Birgir Guðbjörnsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði sigrað Hauka í und- anúrshtum bikarsins í Hagaskóla í gærkvöldi. Sigur KR-inga var sanngjam miðað viö gang leiksins. Þeir höfðu framkvæðið nær ahan tímann og höfðu 7 stiga forystu í leikhléi, 37-30. I upphafi síöari hálfleiks náðu Haukar að jafna leikinn, 51-51, og þegar 10 mínútur voru eftir var enn jafnt, 63-63. Þá náðu KR-ingar góðum kafla og komust 10 stig yfir en munurinn i lokin 8 stig, 85-77. „Þetta fór eins og búast mátti við. Þreyta sat í mönnum og liðið gerði mörg mistök. Við munum leggja aht í seinni leikinn en þaö verður erfitt aö vinna upp muninn,“ sagði Pálmar Sigurðsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. ívar Webster var bésti maður Hauka í leiknum og reyndar sá eini sem eitthvað sýndi. Vörn hðsins var ágæt og Guðni Guðnason, aðalstigaskorari KR-inga, átti erfltt uppdráttar í leiknum. Þeir Jóhannes Kristbjömsson og Birgir Mikaelsson vora bestu menn KR í leikn- um. -RR Reykjavíkurmótið í knattspymu: Óvæntjafntefli - í viðureign Víkings og Leiknis Sterk vörn og hættulegar skyndi- sóknir færðu 3. deildar hði Leiknis jafntefli gegn 1. deildar nýhðum Vík- ings, 1—1, á gervigrasinu í Laugardal í gærkvöldi, í öðrum leik Reykjavík- urmótsins. Ragnar Baldursson skoraði fyrir Leikni úr vítaspyrnu eftir 10 mínútna leik en Andri Mart- einsson jafnaði fyrir Víking í fyrri hálfleiknum. Víkingar sóttu stíft lengst af en réðu illa við Leiknisvörn- ina. Undir lokin skaut Sævar Geir Gunnleifsson fram hjá marki Vík- inga úr dauðafæri á markteig og rétt á eftir fór Andri svipað að ráði sínu við hitt markið. -VS Svíþjóð - handbolti: 8 mörk Gunnars - Saab vann Vikingama, 21-22 Sænska liöið Saab, sem Þorbergur Aðalsteinsson leikur með, sigraði Vikingarna, 21-22, á útivelli í fyrra- kvöld í úrshtakeppninni um sæti í Allsvenskan. Þorbergur var tekinn úr umferö en skoraði samt þijú mörk. • IFK Malmö, sem einnig berst um sæti í Allsvenskan, gerði jafntefli gegn Frölunda, 27-27, og skoraði Gunnar Gunnarsson níu mörk fyrir IFK Malmö. Á sunnudag eigast við Saab og IFK Malmö. -JKS Magnús dæmir ekki í 1. deild í sumar Magnús Theodórsson knatt- spymudómari hefur ákveðið að draga sig út úr 20 manna hópnum sem vahnn hefur verið th að dæma 1. og 2. deildarleiki íslandsmótsins í sumar. Magnús missti í haust sæti sitt í 15 manna hópnum sem dæmdi í 1. deildinni í fyrra, en var síðan einn fimmmenninganna sem bætt var við þegar fyrirkomulaginu var breytt fyrir skömmu. Magnús sagði í samtali við DV í gærkvöldi að hann myndi ekki dæma deildaleiki í sumar en ætlaði hins vegar að hjálpa til við dómgæslu í yngri flokkunum. -VS EM í borðtennis: Tómas út í 1. umferð Tómas Guöjónsson var sleginn út í fyrstu umferð í einliðaleik á Evr- ópumótinu í borðtennis sem haldiö er þessa dagana í París. Tómas mætti í 1. umferð Frode Grini frá Noregi og tapaði 21-12 og 21-13 og er þar með úr leik í keppninni. -JKS • Tómas Guðjónsson. Úrslit í gærkvöldi Handbolti 2. deild karla ÍBV - Afturelding.33-12 ÍBV .. 17 14 1 2 451-335 29 Grótta ..17 12 3 2 '348-286 27 HK.. .. 17 12 2 3 411-369 26 Haukar.... ..17 9 1 7 420-375 19 Reynir ..17 9 0 8 415-428 18 Selfoss ..17 7 1 9 382^131 15 UMFN ..17 7 0 10 420-444 14 Ármann.. ..17 5 2 10 356-391 12 Fylkir ..17 3 1 13 355-421 7 Aftureld.. ..17 1 1 15 348-426 3 Körfubolti - bikar undanúrslit - fyrri leikir KR - Haukar 85-77.(37-30) Stig Hauka: Ivar Webster 25, Pálmar Sigucðsson. 17, Tryggvi Jónsson 10, Ivar Asgrímsson 9, Henning Henningsson 5. Sveinn Steinsson 2, Reynir Kristinsson 2, Skarphéðinn Einarsson 2, Ingiinar Jónsson 1. Stig KR: Birgir Mikaelsson 24. Matthias Einarsson 18, Jóhannes Kristbjömsson 17, Guðni Guðna- son 12, Símon Ólafsson 10, Gauti Gunnarsson 2, Guömundur Jó- hapnsson 2. Ahorfendur. 120 UMFN-ÍR 69-62 (45-40) Stig UMFN: Valur Ingimundar- son 20, Isak Tómasson 17, Hreiöar Hreiðarsson 8, Teitur Orlygsson 7, Helgi Raihsson 7, Sturla Orlygs- son 5, Friðrik Rúnarsson 3, Friðrik Ragnarsson 2. Stig IR: Jón Öm Guömundsson 16, Vignir Hilraarsson 15, Karl Guölaugsson 9, Ragnar Torfason 8, Jóhaimes Sveinsson 6, Bjöm Steffensen 6, Bragi Reynisson 2. Áhorfendur: 80. Knattspyma Reykjavikunnót A-riðilI: Vikingur - Leiknir.......l-l Fylkir...........1 0 10 1-11 Leiknir..........1 0 10 1-11 Víkingur.........1 0 10 1-11 Þróttur.........1 0 10 1-11 Valur.......... 0 0 0 0 0-00 Blak Úrslitakeppni kurla: HK-ÍS.....................2-3 ÍS.............2 2 0 &-3 4 HK............1 0 12-3 0 Þróttur........1 0 11-3 0 Úrslitakeppni kvenna: UBK - Vikingur...........3-1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.