Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Síða 25
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1988, 41 Fólk í fréttum Guðmundur Þ. Jónsson Guðmundur Þ. Jónsson, formað- ur Landssambands iðnverkafólks, hefur verið í fréttum DV vegna nýafstaðinna kjarasamninga iðn- verkafólks við atvinnurekendur. Guðmundur er fæddur 25. desemb- er 1939 á Gjögri í Árneshreppi og lauk fullnaðarprófi frá Finnboga- staðaskóla í Árneshreppi 1953. Hann vann verkamannavinnu og verslunarstörf í Rvík 1953-1960 og í Sápugerðinni Frigg 1960-1963. Guðmundur vann í Sælgætisgerð- inni Opal í Rvík 1966-1973 og hefur verið í stjóm Iðju frá 1967, vara- formaður 1970-1986 og formaður frá, 1986. Hann hefur verið í stjórn Landssambands iðnverkafólks frá stofnun 1973, formaður frá 1978 og starfsmaður sámtakanna frá 1. maí 1973 og starfsmaður Iðju frá 1. jan- úar 1974. Guðmundur hefur verið í mið- stjóm Alþýðusambands íslands frá 1976 og fulltrúi þess í stjórn At- vinnuleysistryggingasjóðs frá 1979. Guðmundur var í stjórn Bygging- arsjóðs Reykjavíkur 1980-1982 og hefur verið í stjóm Verkamanna- bústaða í Reykjavík frá 1982. Hann var í miðstjóm Alþýðubandalags- ins 1978-1981 og var borgarfulltrúi í Reykjavík 1978-1981. Guðmundur á tvö börn, Stellu Maríu, f. 23. mars 1970, og Hilmar Þór, f. 24. maí 1972. Systkini Guömundar eru Fjóla, f. 15. júlí 1918, sambýlismaður hennar Eiríkur Lýðsson, sjómaður á Víganesi í Strandasýslu, er lát- inn; Magnús, f. 25. október 1920, verkamaður i Keflavík, kvæntur Önnu Lilju Gísladóttur; Ingimar, f. 12. október 1922, rafvirkjameist- ari í Rvík, kvæntur Halldóru Ingunni Guðmundsdóttur, dóttur- sonur þeirra er Ingimar Jóhanns- son, fræðimaður í Rvík; Guðbjörn Gunnar, f. 4. apríl 1926, vélvirki í Rvík, kvæntur Hildi Jónsdóttur; Margrét Jóna, f. 13. september 1928, gift Birni Dagssyni, afgreiðslu- manni'í Keflavík; Lilja, f. 6. ágúst 1930, gift Páli Sæmundssyni, vél- stjóra á Djúpuvík nú í Rvík; Krist- ín, f. 1. apríl 1932, gift Sigbimi Brynjólfssyni, kaupmanni á Hlöð- um í Fellahreppi Norður-Múla- sýslu; Guðrún, f. 12. maí 1933, iðnverkakona í Rvík; Gísli, f. 15. apríl 1935, verkstjóri í Keflavík, kvæntur Ásdísi Bjameyju Óskars- dóttur; Guðríður Hallfríður, f. 27. nóvember 1936, gift Ólafi Gunnars- syni, bifreiðarstjóra í Rvík; og Ingibjörg Jakobína, f. 13. ágúst 1938, gift Einari Erni Guðjónssyni, múrarameistara í Rvík. Foreldrar Guðmundar voru Jón Magnússon, b. og sjómaður á Gjögri í Árneshreppi, og kona hans, Bjamveig Friðriksdóttir. Föður- bróðir Guðmundar var Jón, sonur Magnúsar, húsmanns á Gjögri, Jónssonar, b. í Tungugröf, Guð- brandssonar, b. í Tungugröf, Ólafssonar. Móðir Guðbrandar var Ingibjörg Guðbrandsdóttir, b. á Bakka í Geiradal, Magnússonar, bróður Erlendar, langafa Guð- mundar, afa Karvels Ögmundsson- ar, útgerðarmanns í Njarðvík. Móðir Jóns á Gjögri var Lilja Þor- bergsdóttir, b. í Reykjavík, Björns- sonar, b. í Klúku í Bjarnarflrði, Guðmundur Þ. Jónsson. Bjarnarsonar. Móðursystir Guðmundar var Jakobína, amma Einars Karls Har- aldssonar ritstjóra og Magnúsar Steinþórssonar, gullsmiðs og kast- alaeiganda, og Álfheiðar Steinþórs- dóttur sálfræðings. Móöurbróðir Guðmundar var einnig Magnús, cifi Hréins Loftssonar, aðstoðarmanns Matthíasar Á. Mathiesen ráðherra. Þriðji móðurbróðir Guömundar var Þorleifur afi Steinunnar Brynj- úlfsdóttur, meinatæknis hjá Krabbameinsfélaginu, konu Halld- órs Guðbjamasonar, fyrrv. banka- stjóra Útvegsbankans. Þorleifur er einnig afl Hjálmfríðar Sveinsdótt- ur, skólastjóra Barnaskólans í Vestmannaeyjum, og Þorleifs Jónssonar, bókavarðar á Lands- bóka- og Háskólabókasafni. Bjamveig var dóttir Friðriks, sjó- manns á Gjögri, Friörikssonar. Móðir Bjamveigar var Ingibjörg Magnúsdóttir, b. og skálds á Borg- um í Hrútafirði, Magnússonar, b. í Laxárdal, ættfóður Laxárdalsætt- arinnar, bróður Amdísar, langömmu Stefáns í Hvítadal og Guðbjargar, ömmu Nínu Bjarkar Ámadóttur rithöfundar. Amdís var einnig langamma Jensínu, langömmu Friðriks Sophussonar iðnaðarráðherra. Magnús var sonur Magnúsar, b. á Stóm-Hvalsá, Bjarnasonar. Móð- ir Ingibjargar var Kristín, systir Solveigar, ömmu Jóns Jónssonar, skálds í Ljárskógum. Kristín var dóttir Jóhanns, b. í Laxárdal í Hrútaflrði, Ólafssonar. Afmæli Gytfi Jónsson Gylfi Jónsson flugstjóri, Sunnu- braut 45, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Gylfi fæddist í Reykjavík og ólst þar upp en í tvö ár bjó hann ásamt foreldrum sínum í New York. Gylfi stundaði flugnám í A. S.T. flugháskólanum í Bretlandi og tók þaðan flugmannspróf. Hann hóf síðan flugmannsstörf hjá Flugfélagi íslands 1960 þar sem hann flaug fyrst Katalínu-flug- bátum og DC-3-vélum félagsins, en hann varð flugstjóri 1967. Gylfi starfaði svo hjá Flugfélagi íslands til 1970 en flutti þá til Japan þar sem hann flaug í tvö ár hjá japanska flugfélaginu All Nippon Airways. Hann kom svo aftur heim og hefur starfað hjá Flugfélagi íslands og Flugleiðum síðan. Kona Gylfa er Guðrún Lára, f. 1940, dóttir Bergsveins Ólafssonar augnlæknis og konu hans, Elínar Jóhannesdóttur. Gylfi og Elín eiga þrjú börn. Þau eru: Bergsveinn Þór, f. 31.12. 1961, rafmagnsverfræðingur, en hann var að ljúka framhaldsnámi í vél- mennafræðum og tölvufjarskipt- um, kvæntur Steinunni Stein- grímsdóttur, og eiga þau einn son, Gylfa Þór; Elín, f. 14.1. 1965, lög- fræðinemi við HÍ; og Lára Fanney, f. 7.11.1975, nemi, í foreldrahúsum. Gylfi á einn bróður, Ólaf Rafn, f. 1936, menntaskólakennara á Akur- eyri, sem er kvæntur Daníelu Somers. Foreldrar Gylfa: Jón Björnsson, f. að Varmá í Mosfellssveit, 1901, sem lengst af var innkaupastjóri hjá SÍS og síðan innkaupastjóri hjá íslenskum aðalverktökum, þar sem hann starfar enn, og kona hans, Lára Guðmundsdóttir, f. á Akureyri, 1901. Föðurforeldrar Gylfa voru Björn Þorláksson, stofnandi Álafossverksmiðjunnar, Gylfi Jónsson. og kona hans, Anna Jónsdóttir, ættuð undan Eyjaíjöllum. Móður- foreldrar Gylfa voru Guðmundur Vigfússon, skósmiður á Akureyri, og kona hans, Helga Guðrún Guð- mundsdóttir. Svanberg Þórðarson Svanberg Þórðarson forstöðu- maður, Kambagerði 6, Akureyri, er fimmtugur í dag. Svanberg fæd- dist á Þóroddsstöðum í Ólafsfirði og ólst þar upp til fimmtán ára ald- urs en flutti þá til Reykjavíkur með foreldrum sínum. Þar var hann búsettur í níu ár og lærði þar húsa- smíði en sveinsprófl lauk hann 1960. Hann flutti svo aftur norður í Ólafsfjörð og þaðan til Akureyrar 1969 þar sem þau hjónin hafa búið síðan. Svanberg hefur starfað við iðn sína þar til fyrir þremur árum að hann geröist forstöðumaður jarð- eigna- og dýraeftirhts hjá Akur- eyrarbæ. Svanberg er þekktur skíðamað- ur, en hann keppti lengi á skíðum fyrir ÍR og síðar fyrir Ólafsfirðinga. Hann keppti á íslandsmótum í tutt- ugu ár og hefur tvisvar sett íslands- met í stökki. Þá hefur hann unnið Öldungamót íslands í nokkur skipti. Svanberg er einnig mikill hesta- maður og situr í stjórn Hesta- mannafélagsins Léttis á Akureyri. Kona Svanbergs er Anna, f. 26.8. Svanberg Þórðarson. 1937, dóttir Halldórs Kristinssonar, sem lengi var útgerðarmaður á Ólafsfirði, og Huldu Helgadóttur. Svanberg og Anna eiga sex börn. Þau eru: Halldór, sjómaður á Ólafs- firði, f. 1959, en sambýliskona hans er Ása Bjamadóttir og eiga þau tvo syni; Þórður, rafmagnstæknifræð- ingur í Óöinsvéum í Danmörku, f. 1960, kvæntur Charlotte Ðrndoft háskólanema; Gunnar, dagskrár- gerðarmaður hjá Rás 2, f. 1965; Hulda, menntaskólanemi á Akur- eyri, f. 1969; Kristinn Helgi verk- menntaskólanemi, f. 1970; og Sigurjón Már, f. 1974. Svanberg á fimm systkini. Þau eru: Jón, framleiðslustjóri hjá Rey- kjalundi; Sigurður, sem rekur járnsmíðaverkstæði í Reykjavík; Ármann, útibússtjóri KEA á Ölafs- firði; María Sigríður, ráöskona á Húsavík; og Eysteinn, fram- kvæmdastjóri í Oregon í Banda- ríkjunum. Foreldrar Svanbergs: Þórður Jónsson, b. á Þóroddsstöðum og síðar gjaldkeri i Ofnasmiðjunni, f. 12.12. 1897, og kona hans, Guðrún Sigurðardóttir, f. 17.9.1895, d. 1985. Föðurforeldrar Svanbergs vom Jón bóndi, smiður og útgerðarmað- ur, Þórðarson, b. á Hnjúki í Svarf- aðardal, og kona hans, Sigríður Jónsdóttir. Móðuramma Svan- bergs var Sigrún Sigmundsdóttir. Svanberg verður ekki heima á afmælisdaginn. Eýrún Guðmundsdóttir Eyrún Guðmundsdóttir húsmóð- ir, Hamrahlíð 27, Reykjavík, er níræð í dag. Eyrún fæddist í Bræðraborg á Stokkseyri en flutti síðar með foreldrum sínum til Reykjavíkur. Eyrún var eitt sumar í kaupavinnu norður í landi en starfaði í Reykjavík, m.a. hjá Lofti Loftssyni útgeröarmanni. Eyrún giftist tuttugu og sex ára Jóni Þorsteinssyni, íþróttakennara og skólastjóra, f. 3.7. 1898, d. 24.3. 1985, en hann byggði og rak íþrótta- hús sitt að Lindargötu 7 í Reykjavík og bjuggu þau,hjónin þar í fjölda ára. Jón var sonur Þorsteins Hjálmssonar, b. í Örnólfsdal í Þver- árhlíð, og konu hans, Elínar Jónsdóttur frá Norðtungu í Borg- arflrði. Eyrún og Jón eignuðust einn son, Guðmund hæstaréttardómara, f. 10.2. 1925, en kona hans er Fríða, dóttir Halldórs, skipstjóra í Hafn- arfirði, Guðmundssonar og Elísa- betar Þorgeirsdóttur. Guðmundur og Fríða eiga fjóra syni: Jón kennara; Halldór, tækni- fræðing hjá Pósti og síma; Árna tölvufræðing; og Einar Rúnar. Eyrún átti níu systkini en af þeim komust á legg þrír bræður og þrjár systur. Hún á nú þijár systur á lífl. Foreldrar Eyrúnar voru Guð- mundur kennari Sæmundsson og kona hans, Eyrún Eiríksdóttir. Til hamingju með daginn! 80 ára Gissur Jónsson, Valagerði, Seylu- hreppi, er áttræður í dag. 75 ára Anton Eiríksson, Vallargerði 2F, Akureyri, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Hulda Mogensen, Ámanesi 2, Nesjahreppi, er sjötug í dag. 60 ára Guðrún Egilsdóttir, Tómasarhaga 46, Reykjavík, er sextug í dag. Kolbrún Bjarnadóttir, Ystafelli 2, Ljósavatnshreppi, er sextug í dag. 50 ára Sigfús Björnsson, Selbraut 72, Sel- tjarnarnesi, er fimmtugur í dag. Elín Guðnadóttir, Tjarnargötu 39, Keflavík, er fimmtug í dag. Kristín Guðbjartsdóttir, Heiðarbóli 10, Keflavík, er fimmtug í dag. Jökull Guðmundsson, Hraunholti 9, Akureyri, er fimmtugur í dag. 40 ára Valgerður Ólafsdóttir, Bakkaseli 33, Reykjavík, er fertug í dag. Halla Halldórsdóttir, Austurgerði 5, Kópavogi, er fertug í dag. Hannes Gíslason, Fífumýri 15, Garðabæ, er fertugur í dag. Guðmundur Guðmundsson, Breið- vangi 18, Hafnarfirði, er fertugur í dag. Kristinn Aadnegard, Amarhrauni 34, Hafnarflröi, er fertugur í dag. Jóhanna Hjartardóttir, Beitistöð- um, Leirár- og Melasveit, er fertug í dag. OPNUNARTÍMI Virka daga kl. 9-22, SMÁAUGLÝSINGA: iZXg,\r ,U42 ★ Afsöl og sölutilkynningar bifreiða. ★ Húsaleigusamningar (löggiltir). ★ Tekið á móti skriflegum filboöum. ATHUGIÐ! Ef auglýsing á aö birtast í helgarblaöi þart hún að hafa borist fyrir kl. 17 á föstudögum. KREDITKORTAÞJONUSTA Þú hringir - við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. SÍMINN ER 270227 tunoCAQU SMÁAUGLÝSINGA- ÞJÓNUSTA: Við viljum vekja athygli á aö þú getur látið okkur sjá um aö svara fyrir þig simanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur siðan tarið yfir þær í góðum tómi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.